Fréttablaðið - 31.12.2021, Side 20

Fréttablaðið - 31.12.2021, Side 20
20 Íþróttir 31. desember 2021 FÖSTUDAGUR Þorsteinn Hreiðar Halldórsson Manchester City Það væri fínt að fá Erling Braut Håland í framlínuna og svo kannski vinstri bakvörð til þess að bæta í flóruna þar. Þar dettur mér helst í hug Alphonso Davis en ég hef svo sem litið pælt í þessu. Ég er með menn í vinnu við það. ÍÞRÓTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 31. desember 2021 FÖSTUDAGUR Fréttablaðið spáir í spilin um hvaða leikmenn muni skipta um félög í komandi félaga- skiptaglugga. Helst eru það Aubameyang, Martial, Cout- inho, Mbappe og Håland sem eru á vörum fótboltaáhuga- manna í þeim vangaveltum. hjorvaro@frettabladid.is FÓTBOLTI Komandi félagaskipta- gluggi í Evrópu hefst við sérstakar aðstæður þar sem leikmannahópar liðanna á Englandi eru þunnskip- aðir vegna Covid-smita og meiðsla. Því gæti verið að félög vilji bólstra leikmannahópa sína fyrir komandi átök en á sama tíma eru forráða- menn líklega ekki áfjáðir í að missa leikmenn úr sínum herbúðum. Hinir nýríku í Newcastle United munu að öllum líkindum opna veski sitt og fjárfesta í leikmönnum til þess að freista þess að bjarga sér frá falli í ensku úrvalsdeildinni. Þá eru Katalóníumenn með nokkra leikmenn á brunaútsölu til þess að lappa upp á fjárhag sinn og Real Madrid er orðað sterklega við tvö af stærstu nöfnum heimsfótboltans. Af íslenskum leikmönnum sem hafa helst verið í umræðu fjölmiðla um að færa sig um hefur Albert Guðmundsson verið orðaður við brottför frá AZ Alkmaar til Celtic, Rangers og Lazio. Þá hefur Jón Daði Böðvarssonar verið í frystikistunni hjá Millwall og er líklega spenntur fyrir því að komast þaðan sem fyrst. Hvíslað hefur verið um heim- komu Hólmars Arnar Eyjólfssonar frá Rosenborg í Val. FH ku einn- ig hafa mikinn áhuga á kröftum Hólmars Arnar. Kolbeinn Sigþórs- son er svo samningslaus eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá Gautaborg. Fossvogurinn, hans heimahagar, er með opinn faðminn og Kári Árnason er líklega á fullu að reyna að sannfæra sinn fyrrverandi samherja í landsliðinu um að koma í uppeldisfélag sitt, Víking. Fréttablaðið fékk stuðningsmenn nokkurra liða í ensku úrvalsdeild- inni til að nefna þá leikmenn sem þeir teldu henta sínu liði og vildu bæta við hóp sinna liða í janúar. n Félög geta opnað veskið á morgun Magnús Þór Jónsson Liverpool Liverpool týnir vanalega veskinu sínu 1. september ár hvert og grefur það upp í apríl ári seinna svo væntingarnar eru ekki miklar. Það eru þrátt fyrir það tveir hlutir sem ég tel við þyrftum að bregðast við. Annars vegar þarf að styrkja breiddina í hægri bak- verðinum. Það er langt síðan við sóttum mann til Southampton og ég tel að Kyle Walker Peters sé raunhæfur kostur í þá stöðu til að draga úr álaginu á Trent- Alexander Arnold. Hins vegar þarf að bæta við einum sóknarmanni sem er tilbúinn í bardagann. Þar eru tvö nöfn í mínum kolli, annars vegar Lucas Ocampos hjá Sevilla sem er held ég hinn fullkomni Klopp-leikmaður, bæði í pressu og sem skorari. Það hefur verið rætt um Raheem Sterling aftur heim og það væri líka ágætis kostur. Draumurinn er að Kylian Mbappé komi í alvöru lið og búi til bestu framlínu í sögunni … en það verður bara næsta sumar. Tómas Þór Þórðarson Manchester United Manchester United þarf að ganga frá vanda- málinu aftast á miðjunni hjá sér í janúar að mínu mati. Þess vegna þarf liðið helst að taka Declan Rice og Wilfred Ndidi þó það sé tæplega að fara að gerast í janúarglugga. Þar ætti Declan Rice að vera skotmark númer 1, 2 og 3. Ég var aðeins lengur að vera seldur á Rice heldur en aðrir en get viðurkennt að ég er algjör- lega kominn á vagninn. Framfarir hans undan- farin misseri eru hreint magnaðar. Rice er allt sem United þarf aftast á miðjuna. Hann er stór, sterkur, hefur mikla yfirferð, les leikinn vel, er leiðtogi og þá hafa tölur hans þegar kemur að sóknarleik bara farið upp á við. Ef Rice er ekki falur ætti Ndidi að vera næsta skotmark. Það eru alls konar nöfn í umræðunni en Ndidi hefur sannað sig í ensku úrvalsdeildinni og tel ég hann henta best af þeim nöfnum. Algjör ryksuga aftast á vellinum. Einar Örn Jónsson Arsenal Maður er náttúrulega með tvo óskalista í gangi: annan raunhæfan og hinn algjörlega óraunhæfan. Arsenal þarf nauðsynlega á framherja að halda eftir Aubameyang-vesenið. Það væri gríðarlega gaman að fá Vlahovic en ég tel það ósennilegt. Calvert-Lewin myndi smellpassa í leikstíl Arteta Hann er ungur og enskur, sem passar fínt. Jonathan David frá Lille og Ivan Toney koma líka til greina. Miðjumann vantar til að deila boltanum og keppa við Xhaka og Partey. Lokonga er á bekknum en er kornungur og að læra. Renato Sanchez hljómar mjög spennandi þar. Yves Bissouma er flottur spilari en hann er í vanda utan vallar. Það vantar góðan hafsent og hægri bakvörð. Það var keypt í báðar stöður í sumar og það er þvi ekki ofarlega á listanum. Koma Christopher Nkunku og Saka Fofana myndi hins vegar gleðja mig sem og Matthijs de Ligt sem er þó algjörlega óraunhæft. Svo eru ensku blöðin að bendla Coutinho, Isco og Asensio við Arsenal en það hljómar meira eins og umboðsmenn að pumpa upp sína menn. Albert Guðmundsson hefur verið orðaður við Celtic, Rangers og Lazio. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Magnús Þór dreymir um að fá Kylian Mbappe í Liverpool. Það er tímaspursmál hvenær Håland fer frá Dortmund. Lucas Digne er tilnefndur til þess að fylla skarð Chilwell. Declan Rice er efstur á óskalista Tómasar Þórs. Kieran Trippier er orðaður við Newcastle United. Barcelona er með Philippe Coutinho á sölulista. Jón Júlíus Karlsson Newcastle United Newcastle þarf 6-8 leikmenn í janúar til að eiga möguleika á að halda sér uppi. Eddie Howe þarf að horfa til leikmanna sem þekkja enska boltann enda liðið á leiðinni í erfiða fallbaráttu. Kieran Trippier getur leikið báðar bakvarðar- stöður. Reynslumikill í enska boltanum. Öflugur í vörn og sókn. James Tarkowski er góður mið- vörður sem er að renna út á samningi í vor. Ekki verra að höggva skarð í herbúðir Burnley sem verður í fallbaráttu með Newcastle. Marcelo Brozovic myndi læsa miðjunni hjá Newcastle. Alvöru stál frá Króatíu. Gini Wijnald- um þekkir Newcastle og enska boltann afar vel. Liðið vantar framherja ekki seinna en strax. Oliver Giroud tikkar í öll réttu boxin. Þekkir deildina, er góður að halda uppi bolta og skorar mikilvæg mörk. Ousmane Dembele er svo heimsklassa leikmaður sem verður samnings- laus í sumar. Getur bæði leyst framherjastöðuna og einnig leikið út á vængnum. Jóhann Már Helgason Chelsea Það er krísa í vinstri vængbak- verðinum þar sem Ben Chil- well er frá út tímabilið. Leikur Chelsea hefur farið versnandi eftir að Chilwell meiddist. Efstur á blaði hjá Tuchel er Lucas Digne. Hann er franskur landsliðsmaður með mikil gæði þó hann hafi ekki verið merkilegur í ár. Hinn þýski Robin Gosens hjá Atalanta sýndi það svo á EM að hann er frábær vængbakvörður. Ef meiðsli Reece James eru alvarleg þá væri gaman að sjá Tuchel sækja Adama Traore frá Wolves og smíða úr honum hægri vængbakvörð.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.