Morgunblaðið - 10.08.2021, Side 4

Morgunblaðið - 10.08.2021, Side 4
ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Þóra Birna Ingvarsdóttir thorab@mbl.is Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að inn til lands- ins muni berast hver bylgjan á fætur annarri uns 75 til 80 prósent þjóðar- innar hafa smitast af kórónuveirunni. Ekki sé hægt að ná hjarðónæmi með bólusetningu en máli sínu til stuðn- ings vísar Kári til þess hve margir hafa smitast hér á landi þrátt fyrir að vera bólusettir. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir talaði um það í kvöld- fréttum Rúv. á sunnudag að tvær leið- ir væru færar til þess að ná hjarð- ónæmi, önnur þeirra væri bólu- setning. Kári telur að Þórólfur hafi ruglast þegar hann orðaði þetta svona. „Það er engin önnur leið til að ná hjarðónæmi en að stór hluti þjóð- arinnar smitist,“ bætir Kári við. Að mati hans er verkefni sóttvarna- yfirvalda að sjá til þess að engin af þeim bylgjum sem eiga eftir að ríða yfir verði svo stór að hún kæfi spít- alann og sligi heilbrigðiskerfið. Kári telur að hjarðónæmi muni nást á einu til tveimur árum. Nægilega mörg smit þurfi að vera í samfélaginu til að ná ákveðinni dreifingu, en ekki svo mörg að þau bugi heilbrigðiskerfið. Mjög harðar aðgerðir gætu orðið til þess að seinka því að hjarðónæmi ná- ist. Kamilla S. Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, segir erfitt að meta hvort staða smita í samfélaginu sé orðin stöðug eða hvort framboð á sýnatöku hafi áhrif á tölurnar en í fyrradag greindust 106 smit innan- lands. Hún segist ekki sammála því að besta leiðin til að ná hjarðónæmi sé að láta veiruna ganga yfir þjóðina. Það megi ekki gleyma því að bóluefni við delta-afbrigði veirunnar sé í þróun. Bindur hún vonir við að það berist til Íslands á næsta ári og hægt verði að ná hjarðónæmi gegn delta-afbrigðinu með delta-bóluefninu. Litið til þess hve margir séu enn óbólusettir eða ólíklegir til að svara bólusetningu telur Kamilla að ef reynt væri að ná hjarðónæmi núna með útbreiðslu smita þyrftu þeir sem ekki eru bólusettir að greiða fórnar- kostnað hinna, þar sem þeir eru ekki varðir gegn alvarlegum veikindum. „Það er ekki endilega besta leiðin.“ Nú eru sóttvarnayfirvöld að afla sér upplýsinga um hvort samfélagið sé mögulega komið þangað nú þegar, þ.e. að hjarðónæmi gæti náðst með smitum. „Við teljum að vörnin sé mikil og er það bæði tilfinning okkar, læknanna á Landspítalanum og í samræmi við gögn að utan,“ segir Kamilla.“ Sótt- varnayfirvöld vinni nú að sinni eigin greiningu en niðurstöður ættu von- andi að liggja fyrir innan tveggja vikna. „Þá verða mögulega komin sterkari rök fyrir því að láta þetta gossa,“ segir Kamilla. Það yrði þó með þeim takmörkunum að enn verði þeir sem eru í áhættuhópi verndaðir. „Við teljum að vörnin sé mikil“ - Kári segir útbreiðslu smita einu leiðina til að ná hjarðónæmi - Kamilla bindur vonir við delta-bólu- efnið og hjarðónæmi með því - Niðurstaða greiningar gæti veitt rök fyrir því að láta delta ganga yfir Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Vörn Til skoðunar er hve vel viðkvæmir hópar eru varðir af þeim bóluefnum sem þeir hafa fengið í faraldrinum. Kári Stefánsson Kamilla Sigríður Jósefsdóttir 2 5 10 7 13 10 11 38 56 78 82 95 88 71 123 123 129 124 154 86 68 109 116 151 107 119 57 106 225 300 426 625 725 937 992 1.087 1.2051.2161.232 1.293 1.351 1.413 1.434 1.447 1.3851.386 Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær Heimild: LSH 106 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 1.023 einstaklingar eru í skimunarsóttkví 2.232 einstaklingar eru í sóttkví 2020 2021 Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 150 125 100 75 50 25 0 8.900 staðfest smit alls Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020 106 100 21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. Fjöldi einstaklinga undir eftirliti LSH frá 21. júlí* *Engar tölur fyrir 24.-25. júlí Væg eða engin einkenni Aukin einkenni Alvarlegri einkenni 30. júlí 2021 154 smit 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. Fullbólusettir Bólusetning hafin Óbólusettir Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí eftir stöðu bólusetningar* 1.386 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 49 af þeim sem eru undir eftir- liti flokkast sem gulir 26 sjúklingar eru inniliggjandi á LSHmeð Covid-19 55 hafa alls lagst inn á LSHmeð Covid-19 í fjórðu bylgju faraldursins Um 40% þeirra eru óbólusettir Um 60% bólusettir 2 einstak- lingar eru á gjörgæslu 1 sem rauður Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Bólusetning viðkvæmra hópa með örvunarskömmtum gegn kór- ónuveirunni mun hefjast að ein- hverju leyti í næstu viku. Þá verða bólusettir íbúar á hjúkrunarheim- ilum og síðan þeir sem eru með undirliggjandi sjúkdóma, yfir sex- tugt og þeir sem eru ónæm- isbældir. Þegar bólusetningu barna lýkur í lok ágúst mun bólusetning þess- ara fyrrnefndu hópa hefjast af fullum krafti. Þetta segir Ragnheiður Ósk Er- lendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, við mbl.is. „Þetta er alveg slatti af fólki,“ segir hún um viðkvæma hópa. „Við munum byrja á hjúkr- unarheimilunum og munum byrja á því hugsanlega eitthvað í næstu viku en aðallega þegar börnin eru búin, þarna 25. og 26. ágúst. Svo eru þarna hópar sem er ekki alveg búið að ákveða hvernig staðið verður að bólusetningu fyrir, það eru þá þeir sem eru eldri en átt- ræðir og svo eru það ónæmis- bældir líka sem eru ákveðinn hóp- ur og svo eru líka þeir sem eru eldri en sextugir.“ Færa sig í Höllina Þegar bólusett verður í Laug- ardalshöll í næstu viku verða þeir boðaðir sem fengið hafa bóluefni Janssen, um 32 þúsund manns, og verður bólusetningunni skipt niður á fjóra daga. Fá þeir annaðhvort bóluefni Pfizer eða Moderna. Þá verða fleiri þúsund börn á aldrinum 12-15 ára bólusett dag- ana 23. og 24. ágúst. Börn á þess- um aldri verða að koma í fylgd með fullorðnum í bólusetningu. Mögulega örvunarbólusetning á hjúkrunarheimilum í næstu viku Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.