Morgunblaðið - 10.08.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021
Danska viðskiptablaðið Børsen
fjallaði um það í gær hve
mjög opinberum starfsmönnum
hefði fjölgað í Danmörku síðasta
árið eða svo. Fjöldinn hafði verið
svipaður fyrir rúm-
um áratug en svo
fækkaði nokkuð og
hélst stöðugt þar
til nú. Kórónu-
veiran skýrir hluta
af fjölguninni nú
því að töluverður
fjöldi hefur verið
ráðinn til að sinna ýmsu sem
hana snertir. En það er fleira
sem veldur, svo sem almenn
fjölgun í stjórnsýslunni.
- - -
Haft er eftir aðalhagfræðingi
Danske bank að fjölgunin
vegna veirunnar hafi verið um-
fram það sem vænst hafi verið.
Og hann bendir á hið augljósa, að
eftir því sem hið opinbera fjölgar
hjá sér sé svigrúmið minna fyrir
fyrirtæki í einkaeigu. „Hið opin-
bera sogar til sín starfsmenn af
vinnumarkaðnum með tilheyrandi
tjóni fyrir danskt efnahagslíf,“
segir hann, og bætir við að hætt-
an sé sú að fyrirtæki verði að
flytja framleiðslu sína úr landi.
- - -
Danmörk er ekki ein um að
þurfa að hafa áhyggjur af
þessari þróun. Í greiningu frá
BHM í maí sl. kom fram að um-
svif hins opinbera hefðu í fyrra
aukist í 19 af 34 löndum Evrópu
og er kórónuveiran nefnd sem
skýring.
- - -
Í greiningunni koma að vísu
ekki fram áhyggjur af fjölg-
uninni en það er full ástæða til að
hafa áhyggjur. Og það þarf að
vinna markvisst að því að draga
úr hlut hins opinera í efnahagslíf-
inu, ekki aðeins vegna þess að
veiran hefur gefið eftir heldur al-
mennt til að efla atvinnulíf og
bæta lífskjör.
Útþensla
hins opinbera
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Latifa Al Maktoum prinsessa, dóttir
leiðtoga Dúbaí í Sameinuðu arabísku
furstadæmunum, er nú stödd á Ís-
landi en mynd birtist af henni á
Instagram við eldgosið í Geldinga-
dölum. Prinsessan komst í heims-
fréttirnar á þessu ári í kjölfar þess
að hún sagði frá því í upptökum að
sér væri haldið í gíslingu af fjöl-
skyldu sinni og hefði verið byrluð
ólyfjan. Sameinuðu þjóðirnar lýstu
því yfir áhyggjum af prinsessunni.
Í júní gaf hún aftur á móti út yfir-
lýsingu þar sem hún sagðist vera
frjáls ferða sinna og vildi lifa í friði
án frekari afskipta fjölmiðla.
Heilsuhraust og hamingjusöm
Á myndinni sem birtist á Insta-
gram sést Latifa með frænda sínum,
Marcus Essabri, og Sioned Taylor,
fyrrverandi liðsmanni sjóhersins og
fylgdarmanni prinsessunnar.
Essbari er í forsvari fyrir hóp sem
hefur kallað eftir frelsi prinsessunn-
ar og segir hann nú að því ákalli
verði hætt. „Mér finnst það blessun
að fá að eyða tíma með henni. Það
var hughreystandi að sjá hana svona
hamingjusama, heilsuhrausta og ein-
beitta í áætlunum sínum,“ sagði Ess-
bari í yfirlýsingu og þakkaði fyrir
stuðning allra sem kölluðu eftir frelsi
Latifu. urdur@mbl.is
Latifa prinsessa skoðar eldgosið
- Frjáls úr gíslingu fjölskyldu
sinnar í arabísku furstadæmunum
Skjáskot
Eldgos Prinsessan og félagar skoða
gosið í Geldingadölum.
Jónas Þórir Þórisson,
kristniboði og fv.
framkvæmdastjóri
Hjálparstarfs kirkj-
unnar, lést á Land-
spítalanum að kvöldi
sunnudagsins 8.
ágúst, 77 ára að aldri.
Jónas fæddist 7.
ágúst 1944 á Akur-
eyri, einn fjögurra
sona Jónasar Þóris
Björnssonar vélfræð-
ings og Huldu Stef-
ánsdóttur húsfreyju.
Jónas ólst upp á
Akureyri og lauk það-
an gagnfræðaprófi árið 1961.
Hann tók kennarapróf frá Kenn-
araháskóla Íslands 1971 og stund-
aði nám við Biblíu- og kristniboðs-
skólann Fjellhaug í Osló árin
1966-67. Ungur að árum vann Jón-
as m.a. sem skrifstofumaður og
bókari hjá Bílasölu Akureyrar og
starfsmaður hjá Útvegsbanka Ís-
lands.
Greint var frá andláti Jónasar á
vef Sambands íslenskra kristni-
boðsfélaga, SÍK, í gær. Þar kemur
m.a. fram að hann hafi starfað
sem kristniboði í Eþíópíu ásamt
eftirlifandi eiginkonu sinni, Ingi-
björgu Ingvarsdóttur, á árunum
1973-1987.
Sinnti hann þar m.a. boðun,
fræðslu, hjálpar- og neyðarstarfi í
Konsó og fjármála-
stjórnun á skrifstofu
kirkjunnar, Mekane
Yesu. „Aðstæður
voru oft erfiðar vegna
hungursneyðar og
byltingar sem gerð
var þegar keisaranum
var steypt af stóli og
marxískri hugmynda-
fræði komið á. Á
sama tíma óx starfið
og efldist,“ segir m.a.
á vef SÍK.
Hér á landi gegndi
Jónas starfi skrif-
stofustjóra aðal-
skrifstofu KFUM og KFUK í
nokkur ár en var síðan ráðinn
framkvæmdastjóri Hjálparstarfs
kirkjunnar, sem hann sinnti til
ársins 2013, eða í rúma tvo ára-
tugi.
Segir ennfremur að Jónas hafi
verið farsæll í starfi og lagt mikið
af mörkum til kristniboðs og
hjálparstarfs á starfsævi sinni.
Jónas sat í stjórn Kristniboðs-
sambandsins í mörg ár, þar af
tæpan áratug sem formaður til
ársins 2008.
Jónas og Ingibjörg eignuðust
sex börn; Huldu Björgu, Hönnu
Rut, Hrönn, Höllu, Þóru Björk og
Jónas Inga.
Barnabörnin eru 17 talsins og
langafabörnin tvö.
Andlát
Jónas Þórir Þórisson