Morgunblaðið - 10.08.2021, Síða 11

Morgunblaðið - 10.08.2021, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021 Skoðið fleiri innréttingar á innlifun.is Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700 Opið 11-18 virka daga innlifun.is ALVÖRU ELDHÚS Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Nýliðinn júlímánuður var alger met- mánuður í sjúkraflutningum hjá flugfélaginu Mýflugi. Farið var í 100 sjúkraflug í mánuðinum en mest hefur félagið áður flogið 89 sjúkra- flug í einum mánuði. Áætlað er að 70-80 sjúkraflug verði flogin í ágúst. Af þessum 100 sjúkraflugferðum var 81 til og frá Reykjavík, eða 81% allra flugferða. 19 flug voru á aðra staði. „Eins og gefur að skilja er Reykjavíkurflugvöllur gríðarlega mikilvægur fyrir sjúkraflugið,“ segir Leifur Hallgrímsson, fram- kvæmdastjóri Mýflugs, í samtali við Morgunblaðið. Munar oft ansi litlu „Það væri alveg svakaleg staða ef við þyrftum að lenda í Keflavík og aka þyrfti með sjúklingana þaðan eftir Reykjanesbrautinni á Land- spítalann,“ segir Leifur. Hann tekur sem dæmi að í þessari viku flutti Mýflug unga konu frá Norðfirði til Reykjavíkur, en hún var komin 33 vikur á leið. „Hún fæddi 10 mínútum eftir að hún kom á fæðingardeildina. Ef við hefðum lent í Keflavík í stað Reykjavíkur hefði hún líklega fætt barnið í sjúkrabílnum á Reykjanesbrautinni. Það hefði vissulega getað farið vel en öryggið er sjálfsögðu miklu meira á spítalanum.“ Leifur bætir því við að í sömu flugvél hafi verið hjartasjúklingur og fór hann beint í þræðingu á Land- spítalanum. „Það munar oft ansi litlu,“ segir Leifur. Landhelgisgæslan sinnti átján sjúkraflugferðum í júlí vegna slysa eða veikinda, samkvæmt upplýs- ingum Ásgeirs Erlendssonar upp- lýsingafulltrúa. Í fjórtán skipti, eða í tæplega 78% tilvika, lenti þyrlan á Reykjavíkurflugvelli þar sem sjúkrabíll beið og flutti viðkomandi á Landspítalann. Í fjögur skipti var lent á þyrlupallinum við Landspít- alann í Fossvogi. Útkallafjöldinn hjá Landhelgisgæslunni er sambæri- legur og fyrri ár. Annríkið vegna þyrluútkalla er alla jafna mest yfir sumarmánuðina. Flest hafa útköll flugdeildar verið alls (öll útköll) 278 árið 2018 og voru 219 árið 2019. Í fyrra fækkaði þeim niður í 184 og má draga þá ályktun að fækkun ferða- manna á landinu vegna farsótt- arinnar hafi haft áhrif á fækkun út- kallanna, segir Ásgeir. „Við hjá Mýflugi sinnum öllu sjúkraflugi með flugvélum á landinu og gerum út með tvær sérútbúnar flugvélar frá Akureyri,“ segir Ársæll Gunnlaugsson, sem var flugstjóri í 100. flugferðinni. Fjórir eru í áhöfn vélanna hverju sinni og eru það flug- stjóri, flugmaður, sjúkraflutn- ingamaður frá Slökkviliði Akureyrar og læknir frá sjúkrahúsinu á Akur- eyri. Ársæll segir hvert flug almennt vera tvo til þrjá leggi. „Við fáum þá boð frá Neyðarlínunni, fljúgum þá kannski austur á Egilsstaði, þaðan til Reykjavíkur með sjúklinginn og svo loks aftur norður til Akureyrar.“ Spurður hvort þetta sé ekki búið að vera mikið álag segir hann: „Jú, eins og þetta er búið að vera undanfarið þá kemur bara flug ofan í flug. Við erum eins og ég segi með tvær vélar og þær hafa margoft verið báðar í loftinu á sama tíma í júlímánuði.“ Nýtt met í sjúkraflutningum í lofti - Nærri 80% lend- inga á flugvélum og þyrlum í júlí voru á Reykjavíkurflugvelli Ljósmynd/Mýflug 100. sjúkraflugið Ársæll Gunnlaugsson flugstjóri, Guðmundur Óli Scheving flugmaður, Stefán Geir Andrésson sjúkraflutningamaður og Barbara Ruth Hess læknir. Þetta var síðasta sjúkraflug júlímánaðar hjá Mýflugi. Langflestar ferðir voru til Reykjavíkurflugvallar enda er Landspítalinn þar stutt frá. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Vilji allra stendur til þess að skóla- starfið verði eftir sem áður kröftugt og fjölbreytilegt þar sem þeim hæfniviðmiðum sem aðalnámskrá leggur til grundvallar í námi verður mætt,“ segir Ingibjörg Ýr Pálma- dóttir, skólastjóri Fossvogsskóla. Eins og Morgunblaðið greindi frá á laugardag verður ekki hægt að hefja kennslu í færanlegum skóla- stofum fyrir yngstu bekki Fossvogs- skóla þegar skólinn verður settur eftir tæpar tvær vikur. Viðgerðir standa yfir á skólahúsinu sjálfu. Til- kynnt var í gær að viðræður stæðu nú yfir milli Reykjavíkurborgar og Knattspyrnufélagsins Víkings um að kennsla fyrir 2. til 4. bekk skólans færi fram í húsnæði íþróttafélagsins í Víkinni fyrstu vikurnar. Í tilkynn- ingu frá borginni segir að vonast sé til að hægt verði að færa kennslu í einingahúsin um miðjan september. Skólastofunum verður komið fyrir á bílastæði starfsfólks skólans þegar grenndarkynningu er lokið og geng- ið hefur verið frá skipulagsmálum. Þegar hafði verið ákveðið að kennsla í 5. til 7. bekk fari fram í Korpuskóla. Kennsla í 1. bekk fer aftur á móti fram í Útlandi í húsnæði Frístundar. Skólasund verður áfram í Laugardalslaug eins og verið hefur. Yngri bekkir fá inni í Víkinni - Ekki hægt að hefja kennslu í færanlegum skólastofum á lóð Fossvogsskóla Morgunblaðið/Eggert Fossvogsskóli Viðgerð fram und- an og kennslan flutt á aðra staði. „Vel má hugsa sér að nýtt dreifikerfi sé byggt upp frá grunni, og það rekið af öðrum að- ila en Ríkis- útvarpinu, og fyr- ir fleiri aðila en bara RÚV.“ Þetta segir Stefán Ei- ríksson útvarps- stjóri um dreifikerfi Ríkisútvarpsins í umsögn við drög að Grænbók um fjarskipti sem samgönguráðuneytið hefur birt á samráðsgátt. Fram kem- ur í umsögn hans að gríðarleg tækni- þróun hafi orðið á undanförnum árum og muni fyrirsjáanlega halda áfram á næstu árum. Þessi þróun hafi m.a. falið í sér að öllu efni RÚV er dreift til almennings í gegnum tugi mismun- andi leiða. Frekari þróun muni hafa mikil áhrif á þróun og skipulag dreifi- kerfa Ríkisútvarpsins. „Ríkisútvarpið vekur athygli á því að mikil óhag- kvæmni fyrir landsmenn er falin í nú- verandi fyrirkomulagi dreifingar. Til- kostnaður RÚV við dreifingu er mikill, samningur um núverandi dreifikerfi rennur út 2028 og ljóst er að framtíðin er mjög óljós í dreifing- armálum. Verði af innleiðingu DAB+ í hljóðvarpi mun það til dæmis hafa í för með sér kostnaðarsamar breyt- ingar. Það er að mati Ríkisútvarpsins nauðsynlegt að ræða dreifingarmál algerlega frá grunni og vill RÚV eiga gott samtal við ráðuneytið um þau mál.“ omfr@mbl.is Nýtt dreifikerfi frá grunni - Mögulega rekið af öðrum aðila en RÚV Stefán Eiríksson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.