Morgunblaðið - 10.08.2021, Page 12

Morgunblaðið - 10.08.2021, Page 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021 HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf BAKSVIÐ Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is Félag atvinnurekenda hefur sent fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrirspurn varðandi starfsemi net- verslana með áfengi og afstöðu ráðu- neytisins til lög- mætis þeirra. Þessar verslan- ir eru Sante Win- es, Nýja vínbúðin og bjorland.is. Verslanirnar hafa nú starfað um nokkurra mánaða skeið en Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og for- stjóri hennar hafa dregið lögmæti reksturs verslananna í efa á opinberum vettvangi. Meðal annars með því að fara fram á lög- bann á rekstur þeirra og með kæru til lögreglu og skattayfirvalda. Enn sem komið er hafa yfirvöld þó ekki gripið inn í starfsemi verslananna. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, lýsti því yfir í Dagmálum, viðtalsþætti fyrir áskrif- endur Morgunblaðsins á mbl.is, þann 21. júlí að hann hefði lengi verið tals- maður aukins frelsis í áfengisverslun á Íslandi: „Ég hef einfaldlega ekki sannfæringu fyrir því að það sé nauð- synlegt að hið opinbera reki þessar verslanir og það séu opinberir starfs- menn sem afhendi vöruna.“ Hann sagðist þó einnig hafa skiln- ing á því að stofnunin vilji fá skorið úr um lögmæti reksturs slíkra verslana enda sé ÁTVR rekið á grundvelli einkaleyfis á smásölu með áfengi. Í bréfi FA, sem er stílað á Guð- mund Árnason ráðuneytisstjóra, seg- ir að félagsmenn í FA, sem bæði framleiði og flytji inn áfengi sjái sér ekki annað fært en að taka þátt í sam- keppninni á þessum nýja markaði ef framhald verði á starfsemi netversl- ana sem þessara: „Sumir hverjir hafa þeir jafnframt fengið fyrirspurnir frá vefverzlunum, sem reknar eru á erlendri kennitölu, um viðskipti. Umrædd fyrirtæki hafa þó verið hikandi að taka þátt í þessum viðskiptum, ekki sízt vegna þess að Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins (sem heyrir undir fjármála- og efna- hagsráðuneytið) hefur gengið fram af talsverðri hörku gegn hinum nýju keppinautum með kærum til lög- gæzlu- og skattayfirvalda.“ Þá eru orð Bjarna í áðurnefndum Dagmálaþætti rifjuð upp og þá sér- staklega þeirri afstöðu hans að net- verslanir með áfengi starfi „innan ramma EES-samningsins“ og að hann ætti erfitt með að sjá að þessi netverslun með áfengi stangist á við lög. Hann fagnaði komu þeirra og sagði þær frábæra viðbót. Vegna þessa krefur FA ráðuneytið um svar við þremur spurningum um netverslanir. Sú fyrsta er hvort net- verslun áfengisframleiðanda með staðfestu á Íslandi, eins og sú sem bjorland.is reki, sé í samræmi við lög. Önnur er hvort netverslun fyrirtækis með staðfestu í öðru EES-ríki, sem afhendir vörur beint til neytenda úr vöruhúsi á Íslandi stangist á við lög. Sú þriðja hvort netverslun með stað- festu í ríki utan EES, en afhendi vörur beint til neytenda úr vöruhúsi á Íslandi, sé í samræmi við lög. Svara er krafist innan tveggja vikna frá dagsetningu bréfsins sem er undirritað af Ólafi Stephenssen, framkvæmdastjóra FA: „Eins og áður segir hafa fé- lagsmenn FA áhuga á að taka þátt í þeirri samkeppni sem hafin er í net- verzlun með áfengi, en telja mikil- vægt að hafa vissu fyrir því að þeir starfi innan ramma laga og reglna og eigi ekki von á inngripum stjórn- valda.“ Skýrrar afstöðu krafist Morgunblaðið/Eggert Ríkið ÁTVR rekur vínbúðir sem hafa einkaleyfi á smásölu áfengis. - Félag atvinnurekenda krefur fjármála- og efnahagsráðuneytið um skýr svör um lögmæti netverslana með áfengi - Stór markaður sem margir vilja komast inn á Þrjá spurningar » Mega áfengisframleiðendur reka netverslun með staðfestu á Íslandi? » Má reka netverslun innan- lands með staðfestu í öðru EES-ríki? » Má reka netverslun innan- lands með staðfestu í ríki utan EES? Ólafur Stephensen sinnum keypti hann krónur fyrir 1.334 milljónir. Samanborið við mánuðinn á undan eru inngrip bankans óveruleg. Í júní keypti bankinn gjaldeyri fyrir 18,1 millj- arð króna í sex inngripum en seldi ekki gjaldeyri á móti í sama mánuði. Evran hreyfðist lítið Meðalgengi evru gagnvart krónu hækkaði um 0,2% milli júní og júlí. Raungengi íslensku krónunnar lækkaði um 0,3% í júlí miðað við mánuðinn á undan. Var gengið 88,0 stig. Vísitala raungengis á mælikvarða hlutfallslegs verðlags var 8,6% hærri í júlí, samanborið við sama mánuð 2020. Sé litið á gjaldeyrismarkaðinn kemur í ljós að Seðlabankinn blandaði sér sjö sinnum í umsvif hans í júlímánuði. Fjórum sinnum seldi bankinn krónur fyrir sam- anlagt 2.640 milljónir en þrisvar Lítilsháttar veiking á gengi krónu - Seðlabankinn greip sjö sinnum inn í Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Uppskipun í fullum gangi Litlar breytingar urðu á gengi krónunnar í júlí. « Sætanýting í flugferðum Play í júlímánuði var 41,7% og flutti fé- lagið 9.899 far- þega. Í tilkynn- ingu frá félaginu segir að tölurnar séu í samræmi við væntingar og áætlanir þess. Þá segir að eftirspurn eftir flugferðum á sumarleyfisstaði hafi verið umfram væntingar. Þá hafi ný bylgja kór- ónuveirunnar haft neikvæð áhrif á eftirspurn á flugmarkaði. „Íslenskir viðskiptavinir nýttu sér þá sveigjanlega Covid-19 skilmála Play og breyttu ferðadagsetningu sinni í mörgum tilfellum og hafði það neikvæð áhrif á sætanýtingu í mán- uðinum [...] Mun minna var um breytingar eða afbókanir meðal er- lendra ferðamanna á leið til Íslands sem er markvert vegna þess að meirihluti þeirra farþega sem kaupa miða með Play eru erlendir ferða- menn eða farþegar sem hefja ferð sína utan Íslands.“ Sætanýtingin hjá Play var 41,7% í júlímánuði Birgir Jónsson 10. ágúst 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 125.17 Sterlingspund 174.19 Kanadadalur 100.1 Dönsk króna 19.874 Norsk króna 14.18 Sænsk króna 14.539 Svissn. franki 137.82 Japanskt jen 1.14 SDR 178.3 Evra 147.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.7833 Ísfell, sem er leiðandi fyrirtæki á sviði veiðarfæraþjónustu og sölu á útgerðar- og rekstrarvörum ýmiss konar, skilaði 97,5 milljóna króna hagnaði í fyrra, samanborið við 60 milljóna hagnað árið áður. Rekstrar- tekjur félagsins drógust nokkuð saman og námu 3.558 milljónum, samanborið við 3.702 milljónir árið 2019. Kostnaðarverð seldra vara dróst saman, samfara minni umsvifum og nam 2.368 milljónum, samanborið við 2.615 milljónir árið 2019. Laun og annar starfsmannakostn- aður nam 624,3 milljónum og jókst milli ára um 31,4 milljónir króna. Annar rekstrarkostnaður dróst sam- an og nam 285,9 milljónum, sam- anborið við 298 milljónir ári fyrr. Í rekstrarreikningi er bókfært tap upp á 16,5 milljónir vegna hlut- deildar í afkomu dótturfélaga. Nam tap Maris ehf. 19,8 milljónum en fé- lagið er að fullu í eigu Ísfells. Hins vegar var bókfærður hagnaður upp á 3,3 milljónir hjá félaginu Isfell Sisi- miut AS. Eignarhlutur Ísfells í hinu grænlenska dótturfélagi er færður á 0 kr. þar sem eigið fé þess er nei- kvætt um 649 þúsund danskar krón- ur. Eignir Ísfells námu 2.349 millj- ónum í árslok 2020 og höfðu aukist um rúmar 300 milljónir milli ára. Munaði þar mestu um vörubirgðir sem jukust um 130 milljónir milli ára og þá hækkuðu viðskiptakröfur um 153 milljónir króna. Skuldir félags- ins námu 1.408 milljónum og jukust um ríflega 200 milljónir milli ára. Eigið fé félagsins nam 941,2 millj- ónum í lok árs í fyrra en hafði numið 844,4 milljónum 12 mánuðum fyrr. Ísfell hagnaðist vel 2020 - Vörusala dróst saman milli ára - Tap hjá dótturfélaginu Maris ehf. - Eigið fé dótturfélags á Grænlandi neikvætt Morgunblaðið/Eggert Netagerð Ísfell er að stærstum hluta í eigu Selstad Holding AS. « 255 einkahlutafélög voru skráð í júlí síðastliðnum. Eru það 31% fleiri félög en í sama mánuði í fyrra þegar þau voru 194. Þetta kemur fram í nýbirt- um tölum Hagstofunnar. Þar sést að nýskráningar í fjármála- og vátrygg- ingastarfsemi ríflega tvöfölduðust og fóru úr 18 í 40. Hins vegar fækkaði þeim úr 36 í 21 í heild- og smá- söluverslun og viðgerðum á vél- knúnum ökutækjum. Virðist þrótturinn í hagkerfinu fara vaxandi ef marka má tilburði einstakl- inga og lögaðila til stofnunar nýrra fyrirtækja. Þannig varö 15% fjölgun í nýskráningu einkahlutafélaga í júní- mánuði frá sama tíma í fyrra. Þá fjölgaði nýskráðum einkahlutafélögum um 62% í maímánuði og voru 271 talsins. Miklu fleiri einkahluta- félög nýskráð en í fyrra STUTT

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.