Morgunblaðið - 10.08.2021, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hefur látið annarra þarfir ganga
fyrir þínum. Nú er lag að koma hugmyndum
þínum og tillögum að.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú þarft á svolítilli einveru að halda til
að átta þig á hlutunum áður en þú gefur allt
í botn. Leitaðu samt ekki langt yfir skammt
því tækifærin eru við höndina.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það stefnir í átakalítinn dag hjá
þér en það þýðir ekki að þú getir slegið
slöku við. Peningamálin ættu að komast í
eðlilegt horf á næstunni.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Sterkar tilfinningar og ástríður
bærast í brjósti þínu af minnsta tilefni
þessa dagana. Stundum verður maður að
leyfa hlutunum að hafa sinn gang, þótt erf-
itt sé.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það er ýmislegt, sem þig langar til
þess að kanna og þú ættir að athuga mögu-
leikana á að láta það eftir þér. Ekki stressa
þig samt, leyfðu örlögunum að sjá um sitt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Hættu að velta þér upp úr mistök-
unum. Líttu í kringum þig og sjáðu hvað lífið
er í raun dásamlegt og gaman að taka þátt í
því.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það liggur einstaklega vel fyrir þér að
sannfæra aðra, sérstaklega almenning, í
dag. Kannski væri ekki úr vegi að kaupa
eitthvað handa ástvini.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Einmitt þegar þú hélst þú vær-
ir laus við ákveðið mál, er því dembt aftur á
þitt borð. Reyndu að ýta áhyggjunum frá
þér og halda þínu striki.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er óþarfi að vera svo feim-
inn að þora ekki að viðra skoðanir sínar við
vini og vandamenn. Hafðu það í huga þegar
þú ákveður framhaldið.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Bjóðist tækifæri til að skemmta
sér, verða ástfangin(n), daðra, vera skap-
andi eða leika við börn, skaltu grípa það.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Sjálfsmynd þín þarfnast þess nú
að vita hversu einstakur þú ert. Hlutirnir
ganga vel og fólkið í kringum þig er sam-
vinnuþýtt og skemmtilegt.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú hefur svo margt á þinni könnu að
þú þarft að gæta þess að lofa ekki upp í
ermina á þér.
Margrét talaði oft um ferð til Parísar
með sonardóttur sinni að heimsækja
Áslaugu Jónu Marinósdóttur frænku
þeirra og hve nýtíndar ferskjurnar í
Frakklandi hefðu verið góðar. Mar-
grét er enn ótrúlega hress í anda og
dvelur nú við gott atlæti á Sólvöllum
á Eyrarbakka, ein fárra sem sluppu
við bannsetta veiruna í fyrra. Eins fé-
lagslynd og hún er, var það henni
samkvæmt nýjustu tísku. Höfðu þau
um tíma svo mikið umleikis að þau
voru með fólk í vinnu hjá sér. Magga
hafði jú raunar alltaf saumað og
prjónað á alla fjölskylduna, annáluð
fyrir myndarskap í þeim efnum.
Þau Friðrik náðu einstaka sinnum
að komast frá í frí og nutu þess að
ferðast innanlands. Síðan komust
þau í nokkrar ferðir til útlanda og
M
argrét Valdimars-
dóttir fæddist 10.
ágúst 1921 í torfbæ í
Norðurgarði á
Skeiðum og var
yngst átta systkina. Nú er hún ein
eftir af þeim sem muna tímann úr
torfbænum með foreldrum sínum.
Margrét man eftir engjaslætti niðri
við Hvítá og klyfjahestum sem báru
baggana heim. Hún minnist dásam-
legra sumra með ilmandi töðu og fag-
urri fjallasýn af flatlendinu. Fjöl-
skyldan í Norðurgarði var gestrisin
með afbrigðum og þau tóku syst-
urdóttur Valdimars, Ástu Ásmunds-
dóttur, til sín hvert einasta sumar frá
sauðburði fram yfir réttir, en hún
hafði misst báða foreldra sína. Mar-
grét var einstaklega hænd að þessari
eldri frænku sinni og minnist þess
hve hana langaði oft að leika með fínu
brúðuna sem frænkan kom með frá
Reykjavík.
Systkinin átta í Norðurgarði uxu
upp, en einn bróðirinn dó í frum-
bernsku. Mikill harmur var kveðinn
að fjölskyldunni þegar elsta systirin,
Guðrún, lést um tvítugt, en hún þótti
mjög efnileg og var sárt saknað. Þeg-
ar Margrét var um tvítugt var hún
ein eftir í kotinu með gömlu hjón-
unum. Hún kynntist þá mannsefni
sínu, myndarlegum pilti, Friðriki
Sæmundssyni, síðar múrarameist-
ara, og settu þau niður bú á Selfossi,
byggðu þar hús og gömlu hjónin
fluttu með þeim á Selfoss. Gestrisnin
var ekki síðri hjá Margréti en hjá for-
eldrum hennar og stóð hún iðulega í
eldhúsinu og veitti gestum og gang-
andi beina af mikilli rausn og Friðrik,
eða Fiddi eins og hann var kallaður,
taldi ekki eftir sér að draga björg í
bú. Margrét sinnti foreldrum sínum
af mikilli natni og má segja að síðustu
árin hafi hún rekið hjúkrunarheimili
fyrir þau og mörg sporin átti hún
fram og til baka eftir ganginum inn í
herbergi „afa og ömmu“ með hress-
ingu og alls kyns aðstoð.
Þegar um fór að hægjast er ekki
eins og Margrét hafi sest í helgan
stein. Þá tóku þau Friðrik sig til og
komu á fót saumastofu uppi á lofti á
Kirkjuveginum og þar voru sniðnar
og saumaðar flíkur úr íslenskri ull
ekki að skapi að vera sú sem var sett í
einangrun. Svolítið bætir þó úr skák
að síminn ber ekki smit á milli.
Margrét er hafsjór af fróðleik um
liðna tíð og njóta ættingjarnir þess að
heyra hana segja frá gömlum tíma.
Þótt aldurinn hafi færst yfir fylgist
hún vel með sínum ættgarði og ber
hag allra fyrir brjósti, eins og hún
hefur alltaf gert.
Fjölskylda
Eiginmaður Margrétar var Frið-
rik Sæmundsson, múrarameistari, f.
24.2. 1927, d. 1.11. 2005. Foreldrar
hans voru Sæmundur Friðriksson,
formaður Verkalýðsfélags Akraness
og síðar barnakennari og bóndi í
Brautartungu á Stokkseyri, f. 27.6.
1884, d. 10.5. 1953, og Áslaug Hall-
dórsdóttir húsfreyja, f. 3.3. 1894, d.
22.9. 1933. Margrét og Friðrik
byggðu sér hús á Kirkjuvegi 20 á Sel-
fossi. Þau fluttust svo á Fífutjörn 3 á
Selfossi árið 2000 og loks fluttist
Margrét á Sólvelli, dvalarheimili fyr-
ir aldraða á Eyrarbakka í lok árs
2018.
Börn Margrétar og Friðriks eru 1)
Valdimar, vélsmíðameistari á Sel-
fossi, f. 10.2. 1948. Maki er Jóhanna
María Valdórsdóttir, starfsmaður hjá
sveitarfélaginu Árborg og þau eiga:
a) Margréti, hjúkrunar- og lífefna-
fræðing, f. 25.2 1972, sambýlismaður
hennar er Sigurður Örn Árnason vél-
iðnfræðingur og þeirra börn eru Árni
Matthías, f. 2008, og Valdimar Örn, f.
2012. b) Lena, sameindalíffræðingur,
f. 18.9 1983, sambýlismaður hennar
er Jóhannes Gunnar Guðmundsson,
starfsmaður hjá Marel. c) Friðrik
tölvunarfræðingur, f. 22.11. 1989. 2)
Sæmundur Hörður, iðnaðarmaður og
félagsliði, f. 22.8. 1953. Maki hans er
Hafdís Erna Gunnarsdóttir fé-
lagsliði. Barn þeirra er Fjóla Dóra
nemi, f. 15.5 1996, sambýlismaður
hennar er Páll Bárðarson bílstjóri og
þeirra börn eru Margrét Auður, f.
2018, og nýfæddur sonur, f. 2021. 3)
Erna Friðriksdóttir, deildarstjóri í
Öldutúnsskóla, f. 10.3 1957. Maki er
Bjarni Þorvaldsson, húsasmíðameist-
ari og kennari. Börn þeirra: a) Val-
gerður Þórunn, stjórnmálafræðingur
hjá mennta- og menningarmálaráðu-
Margrét Valdimarsdóttir húsfreyja og saumakona – 100 ára
Ættarmót júní 2019 Frá síðasta ættarmóti Norðurgarðsættarinnar í júní
2019 í sól og blíðu. Margrét með sonardóttur sinni Ragnheiði sem heldur á
barnabarni sínu Margréti Rögnu, barnabarni sínu Árna Sverri og tveimur
langömmubörnum sínum sem heita Margrét Auður og Edda Margrét.
Kona sem man tímana tvenna
Hjónin Hér eru Margrét og Friðrik Sæmundsson eiginmaður hennar.
Síðastliðinn laugardag áttu hjónin
Gunnar Benediktsson og Erna
Kjærnested 50 ára brúðkaupsafmæli
og þau fögnuðu þessum áfanga með
fjölskyldunni á veitingastaðnum Sjá-
landinu í Garðabæ. Gunnar og Erna
gengu í hjónaband þann 7. ágúst 1971 í
Háteigskirkju og séra Arngrímur Jóns-
son gaf þau saman. Gunnar hefur rek-
ið sína eigin tannlæknastofu alla tíð
eftir fyrstu fjögur árin, þegar hann var
aðstoðartannlæknir. Erna vann á Ís-
landspósti um 10 ára skeið og svo í Öl-
gerðinni en síðan í 10 ár hjá Strætó bs.
Síðan aðstoðaði hún Gunnar á tann-
læknastofunni eftir þörfum öll árin.
Helstu áhugamál þeirra hjóna hafa
verið ferðalög um Ísland.
Gunnar og Erna eiga þrjú börn og
barnabörnin eru orðin átta.
Árnað heilla
Gullbrúðkaup