Morgunblaðið - 10.08.2021, Síða 27

Morgunblaðið - 10.08.2021, Síða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021 Íþróttahreyfingin á heims- vísu þarf að vera á tánum til að viðhalda vinsældum. Neysluvenj- ur taka breytingum eins og þekkt er. Með aukinni tækni hef- ur svokölluð fjölmiðlahegðun breyst mikið og kemur til með að halda áfram að breytast. Í íþróttaheiminum hefur fólk vanist miklu sjónvarpsáhorfi varðandi hinar ýmsu íþrótta- greinar og þar myndast tekjur. Oft er þar um miklar tekjur að ræða, til dæmis í kringum stór- viðburði eins og Ólympíuleika. Fyrir ekki svo löngu sá ég viðtal við franska hagfræðinginn Ar- sene Wenger, sem þekktastur er fyrir störf sín sem knattspyrnu- stjóri. Hann starfar nú fyrir Al- þjóðaknattspyrnusambandið og kemur að alls kyns þróunar- málum. Eitt vakti athygli mína hjá Wenger en hann talaði um að ekki væri hægt að ganga út frá því sem gefnu að fólk myndi hafa eirð í sér til að horfa á heila knattspyrnuleiki í beinni útsend- ingu í framtíðinni. Kynslóðir sem eru að vaxa úr grasi þekkja best stutt myndskeið af Youtube eða samfélagsmiðlum. Þau horfa á stutt myndskeið hvert á eftir öðru. Athyglin virðist ekki vera lengi á sama stað. Mun fólk af þessari kynslóð nenna í stórum stíl að horfa á heila leiki í tvo tíma þar sem kannski lítið gerist? Þessu velta menn fyrir sér í knattspyrnu- heiminum ef marka má Wenger. Ef áhuginn fyrir beinum útsend- ingum fer minnkandi með tíð og tíma virðast aðrir möguleikar vera til skoðunar. Til dæmis helstu atriði leikja klippt saman um leið og þeim lýkur eða svo gott sem. Óvitlaust er hjá íþróttaheim- inum að velta þessu fyrir sér. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Selfoss og Þróttur úr Reykjavík eru áfram hnífjöfn í fjórða og fimmta sæti Pepsi Max-deildar kvenna í fótbolta eftir 2:2-jafntefli á Selfossi í gærkvöldi. Liðin eru nú með 19 stig, einu stigi á eftir Stjörnunni í þriðja sæti. Brenna Lovera kom Selfossi tvisvar yfir, fyrst á 12. mínútu og síðan 51. mínútu, en Katherine Cousins jafnaði í 1:1 á lokamínútu fyrri hálfleiks og Dani Rhodes tryggði Þrótti stig með síðasta marki leiksins á 83. mínútu. Þróttarar eru væntanlega sátt- ari við stöðuna en Selfyssingar, sem virtust ætla að taka þátt í toppbaráttu í upphafi leiktíðar. Selfoss vann fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni en hefur síðan þá aðeins unnið einn í síð- ustu níu deildarleikjum. Það hefur reynst liðum erfitt að vinna Þrótt í sumar en síðustu tæpa tvo mán- uði hefur Þróttur aðeins tapað fyrir efstu liðunum; Breiðabliki og Val. Þá eru Þróttarakonur einnig komnar í undanúrslit í bik- arkeppninni og því spenndi tímar í Laugardalnum. „Eins og í fyrri hálfleik þurfti Þróttur smá tíma til þess að jafna sig á því að hafa lent undir. En þeim óx ásmegin þegar leið á leik- inn og á lokakaflanum voru Sel- fyssingar að reyna að halda fengn- um hlut á meðan sóknarþungi Þróttar jókst stöðugt. Stíflan brast á 83. mínútu þegar boltinn barst inn fyrir Selfossvörnina og Dani Rhodes kom á sprettinum inn fyrir. Hún kom sér í góða stöðu í teignum og afgreiddi bolt- ann glæsilega í fjærhornið,“ skrif- aði Guðmundur Karl Sig- urdórsson m.a. um leikinn á mbl.is. Morgunblaðið/Árni Sæberg Mikilvæg Dani Rhodes tryggði Þrótti stig á Selfossi í gærkvöldi. Áfram hnífjöfn eftir jafntefli - Fjögurra marka leikur á Selfossi Karlalandsliðið í körfuknattleik verður án þeirra Martins Her- mannssonar, Hauks Helga Pálssonar og Jóns Axels Guð- mundssonar þeg- ar liðið leikur gegn Svartfjalla- landi og Dan- mörku í forkeppni HM 12., 13., 16. og 17. ágúst. Leikið verður í Svart- fjallalandi vegna heimsfaraldursins. Tvö efstu liðin komast áfram í und- ankeppni HM. Martin Hermannsson segist á Facebook hafa þurft að velja á milli landsliðsins og félagsliðsins Val- encia. Hefur sú staða komið upp áð- ur en Martin sagði á FB í gær: „Allir sem þekkja mig vita hvað landsliðið hefur gert fyrir mig og skiptir mig miklu máli.“ Haukur Helgi, sem gekk í sumar til liðs við Njarðvík, hefur ekki jafn- að sig af meiðslum sem hann varð fyrir í vor. Jón Axel ákvað að freista gæfunnar í sumardeild NBA þar sem NBA-meistararnir í Phoenix Suns buðu honum að sýna sig. - Landsliðshópinn er að finna á mbl.is/sport/korfubolti. Landsliðið verður án Martins Martin Hermannsson FÓTBOLTINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Breiðablik er aðeins fjórum stigum frá toppliði Vals, og með leik til góða, í Pepsi Max-deild karla í fótbolta eftir sannfærandi 3:1-útisigur á Stjörn- unni í grannaslag í gærkvöldi. Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, kom liðinu í 3:0 snemma í seinni hálfleik með sínu öðru glæsi- marki í leiknum. Viktor Karl Ein- arsson gerði fyrsta markið á 24. mín- útu. Danski varnarmaðurinn Oliver Haurits skoraði sárabótarmark fyrir Stjörnuna rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok og þar við sat. Það er mikill meðbyr með Óskari Hrafni Þorvaldssyni og lærisveinum hans í Breiðabliki, en liðið hefur sleg- ið í gegn í Sambandsdeild Evrópu og leikið afar vel. Sá meðbyr er kominn í deildina, þar sem liðið hefur unnið tvo sannfærandi sigra í röð. Stjarnan heldur áfram að valda vonbrigðum. Liðið er nú aðeins þremur stigum fyr- ir ofan fallsæti og með fjóra sigra í deildinni í allt sumar. „Eftir að Breiðablik skoraði fyrsta markið hafði maður á tilfinningunni að liðið myndi taka öll stigin og sú varð raunin. Blikarnir spiluðu oft skemmtilega eins og þeir hafa burði til að gera. En þeir höfðu ekki yfir- burði á vellinum í síðari hálfleik. Stjarnan átti mörg skot á mark Breiðabliks og Anton Ari lék vel í markinu,“ skrifaði Kristján Jónsson m.a. um leikinn á mbl.is Blikar pressa á toppliðin - Breiðablik upp í þriðja sæti eftir sigur á Stjörnunni - Höskuldur með tvö Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tvenna Höskuldur Gunnlaugsson skoraði tvö mörk í öruggum sigri Breiðabliks í Garðabænum í gærkvöldi. Knattspyrnumaðurinn Aron Sig- urðarson samdi í gær við danska B- deildarliðið Horsens til næstu þriggja ára. Hjá Horsens mun Aron hitta fyrir Ágúst Eðvald Hlynsson. Aron er 27 ára vængmaður og kemur frá belgíska 1. deildar liðinu Union St. Gilloise þar sem hann lék 23 deildarleiki og skoraði sjö mörk í B-deildinni á einu og hálfu ári. Hann er uppalinn hjá Fjölni og hefur einnig leikið með Start og Tromsö í Noregi. Þá á hann sex A-landsleiki að baki og hefur skor- að í þeim tvö mörk. Aron hjá Horsens næstu þrjú árin Ljósmynd/Horsens Danmörk Aron Sigurðarson semur við Horsens til sumarsins 2024. Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur ákveðið að leggja markmanns- hanskana á hilluna eftir langan og farsælan knattspyrnuferil. Guð- björg er 36 ára gömul og varði mark Íslands þegar kvennalands- liðið náði sínum besta árangri til þessa og komst í 8-liða úrslit á EM í Svíþjóð 2013. „Tímabilið 2015 var sennilega það besta á ferlinum þegar ég vann tvöfalt með LSK í Noregi, var markmaður ársins og sló m.a. met í að halda hreinu í deildinni,“ rifjaði Guðbjörg upp á Twitter. Guðbjörg lætur staðar numið Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hætt Guðbjörg Gunnarsdóttir kveður sviðið eftir langan feril. SELFOSS – ÞRÓTTUR R. 2:2 1:0 Brenna Lovera 12. 1:1 Katherine Cousins 45. 2:1 Brenna Lovera 51. 2:2 Dani Rhodes 83. M Brynja Líf Jónsdóttir (Selfossi) Susanna Friedrichs (Selfossi) Þóra Jónsdóttir (Selfossi) Brenna Lovera (Selfossi) Andrea Rut Bjarnadóttir (Þrótti) Katherine Cousins (Þrótti) Dani Rhodes (Þrótti) Lorena Baumann (Þrótti) Dómari: Arnar Þór Stefánsson – 5. Áhorfendur: 163. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/ sport/fotbolti. STJARNAN – BREIÐABLIK 1:3 0:1 Viktor Karl Einarsson 24. 0:2 Höskuldur Gunnlaugsson 34. 0:3 Höskuldur Gunnlaugsson 54. 1:3 Oliver Haurits 73. MM Höskuldur Gunnlaugsson (Breiða.) M Eggert Aron Guðmunds. (Stjörn.) Oliver Haurits (Stjörnunni) Anton Ari Einarsson (Breiðabliki) Damir Muminovic (Breiðabliki) Viktor Karl Einarsson (Breiðabliki) Jason Daði Svanþórsson (Breiðab.) Rautt spjald: Engin. Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 7. Áhorfendur: 539 _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, við- töl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.