Morgunblaðið - 10.08.2021, Page 29

Morgunblaðið - 10.08.2021, Page 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 10. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% D isney-myndin Jungle Cruise eða Frumskógar- sigling (reyndar um regnskóga Amasón) er ætluð öllum aldurshópum og byggð á samnefndri skemmtireið í Disn- eylandi, ef rétt er skilið. Disney er því, sem fyrr, duglegt við að selja eigin varning og afþreyingu og sver myndin sig í ætt við frumskógaræv- intýramyndir á borð við Romancing the Stone og Indiana Jones-mynd- irnar. Aðalleikararnir eru hin geð- þekku Dwayne Johnson og Emily Blunt en Johnson, einnig þekktur undir glímunafni sínu The Rock eða Steini, hefur notið fádæma hylli í seinni tíð og verið einn tekjuhæsti leikari heims, þótt ólærður sé í þeirri list. Í flokki vöðvatrölla sem hafa snúið sér að kvikmyndum fer hann fremstur og hefur bæði tekið að sér hasarhlutverk og hlutverk í léttari kantinum, líkt og Arnold Schwarzen- egger hér forðum daga. Blunt er þó öllu ríkari að hæfileikum og nýtur sín ágætlega í hlutverki vísinda- konunnar Lily Houghton sem ræður skipperinn Frank Wolff, sem John- son leikur, til að sigla að stað einum í Amasónregnskóginum í Brasilíu þar sem hún telur að finna megi töfratré eitt mikið. Lauf þess eiga, ef marka má þjóðsögur, að lækna hvers konar veikindi og sár manna og auk þess aflétta álögum, séu menn undir þeim. Skipperinn er tregur til í fyrstu en þegar hann sér landakort sem Houghton er með í fórum sín- um, og dularfullan og fornan spjóts- odd, slær hann til. Við tekur ævin- týraleg sigling þar sem skipperinn gengur ítrekað fram af ensku döm- unni, með lélegum bröndurum og ruddaskap, og hefðarmanninum bróður hennar, sem neyðist til að fljóta með. Eftir því sem á líður kem- ur í ljós að skipperinn er ekki allur þar sem hann er séður og ekki endi- lega hægt að treysta honum. Til að bæta gráu ofan á svart veitir þýskur prins, Jóakim, þeim eftirför á víg- búnum kafbáti og hyggst hann einn- ig ná til trésins góða. Á leiðinni þarf svo auðvitað að glíma við ýmsar skaðræðisskepnur, flúðir og fossa. Jungle Cruise er sæmileg fjöl- skyldumynd og afskaplega Disney- leg. Hér er engin áhætta tekin, stemningartónlist mikið og jafnvel ofnotuð og lítið um frumlegheit, nema þá kannski þegar kemur að vali á leikara í hlutverk skippersins. Að troða manni svo íturvöxnum í heldur þröngan búning skippers og setja hann í brúna á pínulitlum fljótabáti er gott grín út af fyrir sig og heldur ótrúverðugt er útlitið á Steina þegar litið er til þess að sagan á að gerast árið 1916, löngu fyrir tíma steratrölla og vaxtarræktar. En hvað um það, Johnson er geð- þekkur að vanda þótt útlitið passi ekki við persónuna og tímann, sem fyrr segir. Í lokakafla myndarinnar verður óvænt og furðuleg vending sem breytir heilmiklu hvað varðar upp- runa skippersins og veldur allnokk- urri eyðileggingu þegar kemur að sögufléttunni, verður að segjast. Til- tölulega einföld sagan er flækt að óþörfu og gerir ekkert nema lengja myndina sem er of löng fyrir. Jungle Cruise má þó eiga að hún fer mjög svo hressilega af stað, þeg- ar Houghton og skipperinn eru kynnt til sögunnar í líflegum atriðum með eltingaleikjum og aulagríni. Er þar Blunt öllu léttari á sér en John- son, eins og gefur að skilja. Jesse Plemons á líka góðar rispur í hlut- verki Jóakims prins og talar þýsku merkilega vel. Hann nýtur þess greinilega að leika þennan skraut- lega karakter. Þá er Whitehall líka ágætur sem taugaveiklaði bróðirinn. Jungle Cruise sver sig í ætt við gamlar ævintýramyndir og er fín sem slík. Hér er grín, hasar og róm- antík í jöfnum skömmtum og tölvu- teiknaður blettatígur líka sem gælu- dýr. Myndin missir dampinn um miðbikið en nær sér nokkurn veginn á strik í lokakaflanum og litadýrðin er mikil og nóg að gerast. Krakkar jafnt sem fullorðnir munu eflaust njóta siglingarinnar. Steini, Emma og leitin að töfratrénu Ævintýri Emily Blunt, Dwayne Johnson og Jack Whitehall í Disney-ævintýramyndinni Jungle Cruise sem byggð er á samnefndri skemmtireið Disneylands. Sambíóin, Smárabíó, Laugarás- bíó, Borgarbíó og Háskólabíó Jungle Cruise bbmnn Leikstjórn: Jaume Collet-Serra. Handrit: Michael Green. Aðalleikarar: Dwayne Johnson, Emily Blunt, Jack Whitehall og Jesse Plemons. Bandaríkin, 2021. 127 mín. HELGI SNÆR SIGURÐSSON KVIKMYNDIR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.