Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 39
DÆGRADVÖL 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
Ýmsar gerðir af heyrnar-
tækjum í mismunandi
litum og stærðum.
Allar helstu rekstrarvörur og
aukahlutir fyrir heyrnartæki fást
í vefverslun heyrn.is
HEYRNARÞJÓNUSTA
2007
HLÍÐASMÁRI 19, 2. HÆÐ • 201 KÓPAVOGI • SÍMI 534 9600
HEYRN@HEYRN.IS • HEYRN.IS
Heyrðu
umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
aðra afurð íslensku sauðkindar-
innar.“ Hún segir að lúpína sé alveg
frábær litunarjurt, en hún hefur
einnig notað mikið njóla, kerfil og oft
jurtir sem er gott fyrir umhverfið að
taka og nýta.
Guðríður hefur skrifað og gefið út
tvær barnabækur á vegum forlagsins
Sæmundar: Sólskin með van-
illubragði 2019 og Drengurinn sem
dó úr leiðindum 2021 sem er að koma
úr prentun og er saga um dreng sem
þarf að kljást við afar fúla foreldra
sem taka af honum símann! „Ég var
alltaf að búa til sögur fyrir krakkana
þegar þau fóru í háttinn sem þau
höfðu mjög gaman af. Er svo ekki
sagt að allir Íslendingar gangi með
bók í maganum?“
Guðríður segist hafa verið heppin
að geta tvinnað saman áhugamálin
við störf sín. „Svo framkvæmi ég
bara mínar hugmyndir, því ég ætla
ekki að sjá eftir neinum glötuðum
tækifærum þegar ég er orðin gömul.“
Fjölskylda
Eiginmaður Guðríðar er Einar
Ófeigur Björnsson, bóndi á Lóni í
Kelduhverfi, f. 22.12. 1961. Foreldrar
hans eru hjónin Ásdís Einarsdóttir
húsfreyja, f. 13.7. 1924, d. 28.4. 2005,
og Björn Guðmundsson, bóndi og fé-
lagsmálamaður, f. 7.4. 1929, d. 12.2.
2009. Þau bjuggu í Lóni í Keldu-
hverfi. Börn Guðríðar og Einars eru
Hanna, f. 4.1.2001, d. 4.1.2001; Ásdís,
f. 29.3. 2004; 3) Baldvin, f. 25.9. 2005
og Björn Ófeigur, f. 4.4. 2009.
Systkini Guðríðar eru Hulda Ólafs-
dóttir, grafískur hönnuður og eigandi
Hjartalags á Akureyri, f. 25.5. 1969
og Einar Baldvinsson, fyrrum bóndi,
f. 7.9. 1975, búsettur á Húsavík.
Foreldrar Guðríðar eru hjónin Sig-
urborg Gunnlaugsdóttir, bóndi,
handverkskona og listmálari, f. 20.1.
1951, og Baldvin Einarsson, bóndi í
Engihlíð, Köldu-Kinn, S-Þing., f.
3.10. 1938, d. 24.8. 2014.
Guðríður
Baldvinsdóttir
Friðgeir Kristjánsson
bóndi á Þóroddsstað,
S-Þing.
Kristbjörg Einarsdóttir
húsfreyja á Þóroddsstað, S-Þing.
Einar Þórhallur
Friðgeirsson
bóndi í Engihlíð, S-Þing.
Hulda Baldvinsdóttir
húsfreyja í Engihlíð,
S-Þing.
Baldvin Einarsson
bóndi í Engihlíð, S-Þing.
Baldvin Baldvinsson
bóndi á Ófeigsstöðum, S-Þing.
Kristín Jakobína Jónasdóttir
húsfreyja á Ófeigsstöðum, S-Þing.
Jón Marteinsson
bóndi á Fossi í Hrútafirði
Sigríður Björnsdóttir
húsfreyja á Fossi í Hrútafirði
Gunnlaugur Jónsson
veggfóðrarameistari í
Reykjavík
Guðríður Árnadóttir
verkakona í Kópavogi
Árni Kristófer Sigurðsson
sjómaður og verkamaður í
Ólafsvík og Reykjavík
Sigurborg Þórkatla Jóhannesdóttir
húsfreyja í Ólafsvík og Reykjavík
Úr frændgarði Guðríðar Baldvinsdóttur
Sigurborg
Gunnlaugsdóttir
bóndi og listmálari í
Engihlíð, S-Þing.
„DAVÍÐ, EIGUM VIÐ ÞESSA Í
SKÆRBLEIKUM?“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... það þegar brosið þitt
lagar allt.
HVERT ER LEYNDARMÁLIÐ
Á BAK VIÐ GOTT KAFFI?
BAUNIRNAR?
NEIBB BOLLASTÆRÐIN!
MUNT ÞÚ ÖSKRA Á MIG EF ÉG SEGI AÐ
VIÐ MUNUM ALDREI GIFTAST HVORT
ÖÐRU?
NEI…
TAKK FYRIR AÐ
ÖSKRA EKKI!
„ÞÚ ÞARFT AÐ AFKLÆÐAST. FARÐU ÚR
ÖLLU NEMA GRÍMUNNI.“
Gátan er sem endranær eftir
Guðmund Arnfinnsson:
Hlýðir þessu hundurinn.
Hermir ýmsum dauða sinn.
Eitthvað, sem ég á mér finn.
Oft þér geri, vinur minn.
Knútur H. Ólafsson leysir gát-
una svona:
Hlýðir boðum hundurinn.
Hermir feigðin boðskap sinn.
Á mér skilaboð oft ég finn.
Oft þér geri heimboð, vinur minn.
„Þá er það lausnin,“ segir Helgi
R. Einarsson:
Boðum hlýðir hundurinn.
Herma dauða váboðin.
Hugboð ég í hausnum finn.
Mér heimboð gerir vinur minn.
Þessi er lausn Guðrúnar B.:
Hlýðir vel boði hundurinn
og hann skynjar fyrirboð um margt.
Mitt hugboð að færist fundurinn
og fyrnist mitt boð í þitt gamla skart.
Þannig skýrir Guðmundur gát-
una:
Boði hlýðir hundurinn.
Hermir boð þeim dauða sinn.
Hugboð oft ég á mér finn.
Oft fær boð mitt vinurinn.
Þá er limra:
Hersing af flokkum í framboð
fer nú með sams konar amboð
sér fylgi að heyja,
menn fussa og sveia,
hvern fýsir að styðja það samboð.
Síðan er ný gáta eftir Guð-
mund:
Morgunskíman skírist æ,
skuggar burtu flýja,
góða vini glatt ég fæ.
Því gátu samdi nýja:
Er hér nafn á einum bæ.
Óvandaður maður sá.
Þann á skipi fundið fæ.
Fella þig í glímu má.
Þessar limrur fengu að fljóta
með lausn Helga:
Saga aldanna
Meðan bóndinn Barði
á Benediktu starði
frúin keik
á klárnum Bleik
grunlaus reið hjá garði.
Kosningar nálgast
Án fordóma
Um muninn á konum og köllum
við körpum í gríni og spjöllum,
en þegar þú kýst
um hvern þér á lýst
að kostum skal huga og göllum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mörgum verður bilt við boð