Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 LIZ MICRO-VISCOSE BOLIR MEÐTOPP Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366 Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15 Falinn toppur með létt fóðruðum skálum, efnið inní er þunnt, saumlaust og bindur ekki raka. Stærðir S-XL Verð 6.850 kr. Málefnastarf og undirbúningur fyrir alþingiskosningar í næsta mánuði verða í aðalhlutverki á landsþingi Miðflokksins sem verður haldið nú um helgina, það er í dag og á morgun, sunnudag. Vegna sóttvarnatakmarka er ekki hægt að opna þingið fyrir öll- um flokksmönnum eins og til stóð heldur er það aðeins opið fasta- fulltrúum sem eru um 190 talsins. Þingið verður haldið á Hótel Nordica við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Í dag, kl. 13.15, munu oddvitar Miðflokksins í einstaka kjördæmum kynna sig og í framhaldinu flytur flokksformaðurinn, Sigmundar Davíð Gunnlaugsson, ræðu. Málefnavinnan stendur svo áfram fram eftir sunnu- deginum. Afskrifi ekki flokkinn „Sú ræða sem formaðurinn flytur verður stefnumarkandi fyrir kosn- ingabaráttuna, sem ég reikna með að fari í fullan gang nú eftir helgina,“ segir Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins og oddviti í Norðvest- urkjördæmi. „Efnahagsmál og at- vinnuuppbygging í kjölfar kórónu- veirufaraldursins, loftslagsmál og heilbrigðisþjónustan; þetta verða klárlega áhersluatriði nú í kosninga- baráttunni. Um þetta efni hef ég sagt að mikilvægt framlag okkar Íslend- inga til atvinnu- og umhverfismála skuli vera að auka innlenda fram- leiðslu; það er skapa störf hér heima og draga úr flutningum og fækka kol- efnissporum. Þessi sjónarmið eru mikilvæg í umræðu fyrir kosningar þar sem enginn ætti að afskrifa Mið- flokkinn. Engin ástæða er til þess og sjálfur hef ég að undanförnu verið víða í kjördæminu að ræða við fólk um verkefni og málefni sem taka þarf á. Var í Dölunum og Reykhólasveit nú í vikunni og held svo för áfram strax eftir helgina.“ sbs@mbl.is Atvinna og lofts- lag kosningamál - Miðflokkurinn þingar nú um helgina Bergþór Ólason Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Gönguleiðin að Grænahrygg í Frið- landi að Fjallabaki hefur verið merkt með stikum. Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar. Grænihryggur hefur verið vinsæll áfangastaður í sumar og hafa ófáir ferðalangar birt mynd af sér frá þessum fallega stað á samfélags- miðlum. Hin nýstikaða leið er átta kíló- metrar að lengd og krefjandi og fengu landverðir hjálp við að koma stikunum niður. Má þar helst nefna björgunarsveitarmenn úr Björg- unarfélaginu Blöndu sem voru á há- lendisvakt í Landmannalaugum auk sjálfboðaliða frá Umhverfisstofnun. Leiðin er, sem segir, krefjandi en einnig fjölbreytt og hefst í nágrenni við Kýlingavatn. Þaðan er gengið upp á hæð og niður á áreyrar þar sem áfram er gengið upp milli Sveinsgils og Svigagils. Einnig þarf að vaða yfir straumharða á. Tilgangurinn með stikun leið- arinnar er sagður að bæta öryggi gesta auk þess að vernda náttúruna. Grænihryggur er blágræn líparít- alda og því viðkvæm fyrir traðki og mikilvægt að ekki sé gengið upp á hrygginn, mælst er til þess að fólk fylgi frekar nýstikuðu leiðinni. Ef fjöldi fólks fer yfir 15 manns skal haft samráð við landvörð, segir á vef Umhverfisstofnunar. ari@mbl.is Stikuðu gönguleiðina að Grænahrygg - Vinsæll áfangastaður í sumar - Margir hjálpuðust að við að merkja leiðina Ljósmynd/Umhverfisstofnun Hópur Allir glaðir að verki loknu. Meirihlutinn í Reykjavík er áhugasamur um háa skatta og gjöld á borgarbúa. Nýjasta dæmið eru stórkostlegar hækkanir á gjaldskrá bílastæða fyrir borgar- búa nærri heimilum, nokkuð sem kallað hefur verið íbúa- kort. Árgjald fyrir íbúa hefur verið 8.000 krónur og þykir sumum sjálf- sagt meira en nóg að þurfa að greiða þá upphæð fyrir að leggja bíl við eigið heimili. Meiri- hlutanum þykir þetta hins vegar ekki nóg og hefur ákveðið að hækka gjaldið í 30.000 krónur, sem er nær fjórföldun! - - - Þeir íbúar sem eru svo lánsamir að aka um á hreinum rafbílum eða vetnisbílum fá á sig minni hækkun, en gjaldið fer þó í 15.000 krónur, sem er nærri tvöföldun. - - - Enginn afsláttur er veittur þeim sem aka um á bílum sem nota bæði rafmagn og bensín eða dísil- olíu, sem sætir eflaust nokkurri furðu hjá eigendum slíkra bíla. - - - Þrátt fyrir að hálfgerðir rafbílar njóti ekki „afsláttar“ er þessi freklega hækkun meðal annars rökstudd með vísan í „loftgæði“ og baráttuna „við loftslagsbreytingar sem eru stærsta viðfangsefni okk- ar tíma,“ eins og meirihlutaflokk- arnir orða það í bókun um málið í borgarráði. - - - En auðvitað er augljóst að að- gerðin er fyrst og fremst lið- ur í skattahækkunarstefnu borg- arinnar, annars hefðu gjöld á rafbíla ekki hækkað, og fjandskap meirihlutans við fjölskyldubílinn. Þegar að þeim fjandskap kemur virðist engin aðgerð vera of ósvíf- in. Dagur B. Eggertsson Gjaldtakan fjórfölduð STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.