Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þú hvorki lærir né þroskast af
markmiðum sem er of létt að ná. Mundu
að þú uppskerð eins og þú sáir.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það getur komið sér vel að vera
gæddur hæfilegum skammti af þrjósku
þegar allir vilja kasta ábyrgðinni yfir á
þig. Allt er undir því komið hvaða viðhorf
þú hefur til hlutanna.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú ert friðsæl/l og í góðu jafn-
vægi og hefur því góð áhrif á alla í kring-
um þig. Láttu þess vegna ekkert koma
þér á óvart í dag.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þú ert alltaf til í áskorun og ert
því glaður að frétta að nánasta framtíð
ber í skauti sér flækjur og öfga. Búðu þig
undir harða samkeppni.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Veittu því athygli hvað góðvild
fólksins í kring um þig skiptir þig miklu
máli. Mundu að kurteisi kostar ekki neitt.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þetta er góður dagur til að líta inn
á við og reyna að skilja sjálfa/n þig betur,
því að óvæntar uppákomur í sjónmáli.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er ósköp notalegt að finna það
að aðrir geta glaðst yfir velgengni
manns. Leggðu áherslu á jákvætt hug-
arfar.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Frestaðu öllum fram-
kvæmdum meðan þú ert að gera þínum
nánustu grein fyrir því hvað það sem þú
raunverulega vilt.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þú ert upptekinn af þörfum
annarra. En seinna tekur þetta fólk þátt í
verki með þér og vinsamlegheitin verða
endurgoldin.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þér finnst dagskráin fram-
undan alls ekki spennandi, reyndu samt
sem áður að halda þínu striki.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það er gott að hafa stjórn á
öllum hlutum en nauðsynlegt að vita hve-
nær maður á að sleppa hendinni af öðr-
um. Farðu varlega í samskiptum þínum
við vini og vandamenn.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Finnist þér eitthvað vera að vaxa
þér yfir höfuð er enn meiri ástæða til að
spýta í lófana og taka málin í sínar hend-
ur.
bændum með skógrækt. Árið 2008
stofnaði hún fyrirtækið Sælusápur,
sem var frumkvöðlafyrirtæki á sviði
sápugerðar. Hún fékk hvatning-
arverðlaun Atvinnuþróunarfélags
Þingeyinga 2016 fyrir vandaða upp-
byggingu framleiðslufyrirtækis sem
eykur verðmæti hráefna á svæðinu.
Sápurnar eru vinsælar hjá bæði
heimamönnum og ekki síður ferða-
mönnum og reksturinn gekk vel.
„Svo þegar konur nálgast miðjan ald-
ur leggjast þær í nám, og það gerði
ég og lauk meistaragráðu frá Land-
búnaðarháskóla Íslands í skógrækt
árið 2018 með áherslu á sauðfjárbeit í
ræktuðum lerkiskógi. Þá var ég búin
að reka sápufyrirtækið í 10 ár og vildi
landi 1999-2000. „Ég kynntist ekki
manninum mínum, Einari, fyrr en
um aldamótin eftir að ég var komin
út á vinnumarkaðinn, en hann var
verktaki hjá Landgræðslunni og
bóndi í Lóni í Kelduhverfi, fæddur
þar og uppalinn.“ Guðríður flutti í
Lón vorið 2000. „Mér fannst þetta
óttalega afskekkt, svona eins og
Reykvíkingum finnst um Selfoss.
En það er alveg ofboðslega fallegt
hérna og við hjónin rekum hér rúm-
lega 500 kinda sauðfjárbú sem ég
hef starfað við samhliða öðrum
störfum.“
Guðríður var svæðisstjóri Norður-
landsskóga í Þingeyjarsýslum 2000-
2008 þar sem hún var að ráðleggja
G
uðríður Baldvinsdóttir
fæddist 14. ágúst 1971 á
Akureyri og ólst upp í
Engihlíð í Köldu-Kinn.
Hún gekk í Hafralækj-
arskóla í Aðaldal og Stórutjarn-
arskóla í Ljósavatnsskarði. Guðríður
fékk snemma mikinn íþróttaáhuga.
„Það var mikill áhugi á íþróttum í
sveitinni og alltaf haldnar íþrótta-
æfingar á sumrin og manni fannst
rosalega gaman að fara og hitta aðra
krakka, enda virkilega góður félags-
skapur. Svo fór manni að ganga vel
og þá fannst manni enn þá skemmti-
legra að æfa.“ Guðríður æfði frjálsar
íþróttir á unglingsárunum og hún á
enn þá héraðsmet HSÞ í spjótkasti,
og það met verður aldrei slegið, þar
sem ekki er lengur keppt með sams
konar spjóti!
Guðríður fór til Akureyrar í
menntaskólann á náttúrufræðibraut.
„Það var mjög gaman á heimavistinni
og skemmtilegt samfélag, enda
krakkar víða frá landinu og oft
sveitakrakkar eins og ég.“ Íþrótt-
irnar fóru smám saman til hliðar
enda var Guðríður komin í vinnu. „Já,
þegar ég hætti að fá frí um helgar til
að fara á mót, þá svona datt þetta upp
fyrir. Það var heldur óvinsælt á
Edduhótelunum að sama fólkið fengi
alltaf helgarfríin.“
Þegar hún útskrifaðist úr MA 1991
fór hún í ár í Lýðháskóla sænsku
bændasamtakanna í Sånga-Säby í
Ekerö í Svíþjóð. „Á þessum tíma var
íslenskum námsmönnum boðið upp á
ársdvöl í þessum skóla og við fórum
tvö frá Íslandi og þetta var virkilega
skemmtilegur tími.“ Frá Svíþjóð fór
hún heim og gerði stutt stopp í Há-
skóla Íslands í líffræði, en ákvað að
fara frekar til Noregs þar sem hún
fór í Landbúnaðarháskólann í Ås og
útskrifaðist sem skógfræðingur, can-
d.agric. árið 1999. „Það var mjög
gaman þarna og bæði bóklegt og
verklegt nám. Við vorum t.d. send út
í skóg með vélsög til að saga kannski
25 metra há tré. Það voru svolítið
mikið stærri tré en ég var vön að
heiman.“
Þegar heim var komið fór Guð-
ríður að vinna sem héraðsfulltrúi
Landgræðslunnar á Norðaustur-
athuga hvort ég ætti aftur að fara í
skógræktargeirann. Það vantar líka
svo mikið af rannsóknum á þessu
sviði og í verkefni mínu komst ég að
því að kindurnar snertu eiginlega
ekki lerkið í skóginum, á meðan þær
átu birkið nánast upp til agna. En
það er ómetanlegt að vera sinn eigin
herra og hélt ég mig við minn eigin
rekstur eftir námið.“
Árið 2019 seldi Guðríður Sælusáp-
ur og stofnaði fyrirtækið Mórúnir.
„Ég nota jurtir úr náttúrunni til að
lita íslenskt ullarband, sem er endur-
vakning á gömlu handverki og nátt-
úruleg framleiðsluaðferð. Þegar ég
gerði sápuna var ég alltaf að nota tólg
í sápurnar, og núna er ég að nota
Guðríður Baldvinsdóttir, frumkvöðull, rithöfundur og bóndi – 50 ára
Lón í Kelduhverfi Það er gífurleg náttúrufegurð á bænum eins og sést á þessari mynd sem tekin er með dróna.
Á met sem aldrei verður slegið
Mórúnir Guðríður notar jurtir til að lita ís-
lenskt ullarband í fyrirtæki sínu Mórúnum.
Sveitastelpan Guðríður hefur mikinn áhuga á að nýta afurðir í
nærumhverfinu til framleiðslu og halda við gömlu handverki.
Til hamingju með daginn
30 ÁRA María fæddist
og ólst upp í Árbænum í
Reykjavík. Eftir að hún út-
skrifaðist úr MH 2011 fór
hún í heimsreisu í fimm ár.
„Ég var au-pair í Dubai í
eitt ár og fannst það fínt,
því lífið í Sameinuðu
furstadæmunum er líkara
en margir myndu halda.
Ég mátti t.d. alveg vera
hvar sem er í lestinni, þótt
það væri líka aukapláss
bara fyrir konur.“ Ekki lét
María þó staðar numið þar
heldur fór til Indlands sem
hún er mjög hrifin af, Taí-
lands, Noregs, Ítalíu m.a.
og svo hefur hún verið
mikið í London. Eftir fimm
ára flakk um heiminn kom
hún til Íslands og byrjaði í
hjúkrunarfræði, en var
ekki alveg nógu ánægð.
„Vorið 2017 var ég mjög
óviss um hvað ég ætti að
taka mér fyrir hendur, en
fór í inntökupróf í læknanám í Slóvakíu og var komin í námið þremur mánuðum
seinna, eiginlega alveg óvart.“ Núna er hún á 5. ári í náminu og er mjög ánægð.
Hún segir námið fara að mestu fram á ensku, en þó taki hún kúrsa í slóvak-
ísku því hún þarf að geta rætt við skjólstæðinga á spítalanum á þeirra tungu-
máli. „Það er góð aðstaða, þótt húsnæðið sé reyndar lélegt, en öll tæki og tól
eru mjög fín.“
Það hafði staðið til að María yrði á Fulham leik í London á afmælisdaginn, en
hún varð að sleppa því út af Covid. „Mitt helsta áhugamál er Fulham og ferða-
lög og ég hef farið víða á Fulham leiki. Ég held við séum þrjú sem erum hörð-
ustu stuðningsmenn liðsins hérlendis og ég mun pottþétt sitja við sjónvarpið á
eftir og horfa á leikinn.“
María Kjartansdóttir
HEIMILI ENSKA BOLTANS
Á VEFNUM