Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 45
MENNING 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær VIÐ ERUMSÉRFRÆÐINGAR Í MALBIKUN Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband. Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is El Seed er nafn sem ekki allir þekkja en engu að síður er um að ræða heimsfrægan vegglistamann. Hann ferðaðist hér á landi síðast- liðna viku og skildi eftir sig listaverk á horni Sandholts bak- arís við Lauga- veg, vitaskuld með leyfi eiganda staðarins. El Seed fædd- ist í Frakklandi en á rætur að rekja til Túnis. Í listsköpun sinni blandar hann sam- an áhrifum úr arabískri skrautritun og veggjalist eða, eins og það er alla jafnan kallað, graffi. Í samtali við blaðamann segist El Seed þó ekki skilgreina sig sem skrautritara eða „graffara“, hans stíll sé sam- bland af hvoru tveggja og það sé hans sérkenni. Ræturnar í skrautritun „Rætur stílsins eru vissulega skrautritun en ég tel mig þó ekki vera skrautritara. Í arabískri skrautritun þarf maður að læra það af þaullærðum „meistara“ í skraut- ritun, sem lærði af öðrum slíkum, sú var ekki raunin hjá mér,“ segir El Seed. Hann segist hafa byrjað að læra arabísku og kynnt sér skrautrit- unarformið í kjölfar þess að hann ákvað að reyna að tengjast tún- iskum rótum sínum betur. Hann segist þó síðar hafa áttað sig á því að væri hann ekki hálf-franskur þá væri hann ekki að gera það sem hann er að gera í dag. „Arabísk skrautritun brúaði bilið milli þeirra tveggja menningarheima sem ég tilheyri og nú nota ég hana til þess að brúa bil milli fólks, menningar- heima og kynslóða.“ Skilur eftir sig listaverk El Seed segist ávallt reyna, hvert sem hann fer, að skilja eftir sig brot af list sinni. „Ég reyni ávallt að skilja eftir mig list, hvert sem ég ferðast eða dvel, og vanalega reyni ég þá að tengja verkið við staðinn eða menningu staðarins. Mögulega ljóðbút eða tilvitnun úr bók- menntum.“ Eins og áður segir málaði hann verk á gafl Sandholts bakarís og segist hann hafa leitað innblásturs í íslenskar bókmenntir. Tilvitnun í Bjart í Sumarhúsum, aðalsögu- persónu Laxness úr Sjálfstæðu fólki. „Það er frelsið í landinu sem við öll sækjumst eftir“ varð fyrir valinu og ritað með arabísku letri á gafl hússins. Spurður að því hvers vegna þessi tilvitnun hafi orðið fyrir valinu seg- ir El Seed: „Ég vildi kynna mér nánar bókmenntasögu Íslands og rakst á Laxness og bókmenntir hans. Bókmenntir Laxness þekkja allir Íslendingar og það er það sem ég var að leita eftir. Eitthvað sem brúar bilið milli kynslóða.“ Fólk og samskipti innblástur Innblásturinn segist hann nær ávallt finna í fólkinu sem býr á þeim stöðum sem hann skapar sína list. Vissulega snerti hann stundum á stöku málefnum í listinni, en mannlega hliðin veitir honum mestu andagiftina. „Það er mér af- ar mikilvægt, sama hvar ég er, að tengjast fólkinu á staðnum. Inn- blásturinn kemur frá fólkinu því mannleg samskipti eru ávallt mögn- uð og með samskiptum getur mað- ur safnað augnablikum. En ég lít á mig sem safnara augnablika,“ segir El Seed, býsna spekingslega, að lokum.Fallegt El Seed að störfum á efri mynd og á hinni neðri er verkið tilbúið. Brúar bilið milli menningar- heima og kynslóða - El Seed blandar saman arabískri skrautritun og graffi - Vann verk á gafl hússins sem hýsir Sandholt við Laugaveg - Tilvitnun úr Sjálfstæðu fólki El Seed Rebekka Blöndal söngkona kemur fram á níundu tónleikum sumar- djasstónleikaraðar veitingahússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu í dag kl. 15 og fara þeir fram utan- dyra, á Jómfrúartorgi. Rebekka kemur fram með hljómsveit og hana skipa Ásgeir Ásgeirsson á gít- ar, Sigurður Flosason á saxófón, Sigmar Þór Matthíasson á kontra- bassa og Einar Scheving á tromm- ur. Munu þau flytja fjölbreytta efn- isskrá og þá meðal annars lög af væntanlegri EP-plötu Rebekku og lög af nýlegri plötu Sigurðar, í bland við blús- og djassstandarda. Aðgangur er ókeypis. Rebekka Blöndal á Jómfrúnni Hæfileikarík Rebekka Blöndal er djass- og blússöngkona og alveg svakalega góð í Yatzy, að því er fram kemur í tilkynningu. Aðdáendur Brit- ney Spears hafa fagnað því und- anfarna tvo daga að faðir tónlist- arkonunnar, Ja- mie, hafi tekið þá ákvörðun að vera ekki lengur lög- ráðamaður dótt- ur sinnar. Björn- inn er þó ekki unninn því Jamie hefur enn ekki stigið til hliðar og þar að auki stendur til að finna ann- an lögráðamann, að því fram kemur í frétt The New York Times. Fjöldi aðdáenda Britney hefur því skrifað færslur á samfélagsmiðla þess efnis að ótímabært sé að fagna frelsi hennar þar sem það virðist ekki í sjónmáli. Britney var svipt lögræði árið 2008 og hafa réttarhöld staðið yfir í sumar þar sem lögmaður söng- konunnar hefur sótt það fast að hún losni undan föður sínum. Leitað verður að lögráðamanni Britney Spears Holland verður í fókus á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem hefst 30. september og haldin verður í 18. sinn. Verður sýndur fjöldi áhugaverðra kvikmynda frá landinu og eru gestir úr hollenska kvikmyndageiranum væntanlegir, munu taka þátt í umræðum á Bransadögum RIFF og kynna mynd- irnar sem sýndar verða í Bíó Paradís og Heima á riff.is, að því er fram kemur í tilkynningu. Sérstakur hol- lenskur dagur verður haldinn á RIFF 3. október og er verið að leggja lokahönd á dagskrá hátíð- arinnar í ár sem verður kynnt á næstu dögum. Fjölbreytt úrval kvikmynda í fullri lengd verður á hátíðinni og er sérstaklega nefnd Benedetta eftir leikstjórann Paul Verhoeven sem vakti athygli þegar hún var frum- sýnd í Cannes fyrr í sumar og þá meðal annars fyrir djarfar kynlífs- senur. Af öðrum hollenskum mynd- um má nefna Do Not Hesitate sem er nýr spennutryllir og var frumsýnd- ur á Tribeca-hátíðinni í byrjun sum- ars; Dramagirl sem hlaut sérstaka viðurkenningu á Rotterdam-hátíð- inni fyrr á árinu og Farewell Para- dise sem fjallar um rík yfirstéttar- ungmenni í asískri stórborg. Meðal heimsfrægra leikstjóra sem koma frá Hollandi á RIFF eru fyrr- nefndur Verhoeven sem á m.a. að baki Basic Instinct og RoboCop og Jan De Bont, leikstjóri Speed. Nunnusaga Úr Benedettu sem vakti athygli á kvikmyndahátíðinni í Cannes í sumar. Holland í fókus og Verhoeven gestur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.