Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Mikil hækkun á bílastæðakortum - Kortin hækka úr 8.000 krónum á ári í 30.000 krónur - Afsláttur veittur fyrir rafmagns- og vetnisbíla Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Bílastæðakort í Reykjavíkurborg hækka úr 8.000 krónum í 30.000 krónur á ári en 15.000 krónur árlega fyrir þá sem aka á hreinum raf- magns- og vetnisbílum. Borgarráð samþykkti breytingu á gjaldi bíla- stæðakorta á fimmtudag. Mánaðargjald fyrir bílastæðakort- in verður 2.500 kr. en 1.250 kr. fyrir þá sem aka á hreinum rafmagns- og vetnisbílum. „Ég tel gríðarlega mikilvægt að grípa til aðgerða vegna loftslagskrís- unnar sem við erum í núna en aðgerð- irnar mega aldrei vera þannig að þær bitni mest á þeim sem geta síst borið þær,“ segir Sanna Magdalena, borg- arfulltrúi Sósíalistaflokksins. Margir þurfi að nota einkabíl til þess að koma sér frá einum stað til annars. „Við viljum náttúrulega lifa í grænni borg og til þess þurfum við að tryggja að fólk geti treyst á góðar samgöngur,“ segir Sanna sem telur að erfitt sé að treysta á Strætó sem áreiðanlegan kost fyrir margar fjöl- skyldur. Fyrir vikið þurfi fólk að vera með bíl. Pawel Bartozek, formaður skipu- lagsráðs, segir að regluverki hafi ver- ið breytt svo fleiri hafi nú rétt á bíla- stæðakortum en hann skilur að hækkunin veki umtal. Er ekki hætt við því að þessi hækkun bitni mest á fjölskyldufólki sem ekki hefur ráð á að fjárfesta í rafmagns- og vetnisbíl- um? „Ef þessi rök verða tekin gild þá getum við aldrei beitt hagrænum hvötum til þess að fá fólk til þess að skipta um lifnaðarhætti. Ólíkir hvat- ar geta haft ólík áhrif á fólk eftir efnahag en við teljum að þetta sé í fyrsta lagi ekki óhóflegt og í öðru lagi þá styð ég við það að hagrænum hvötum sé beitt til þess að hvetja fólk til þess að vera umhverfisvænt,“ seg- ir Pawel. Stendur til að hækka gjald í stöðu- mæla? „Það hefur ekki verið ákveðið, það er ekki hluti af endurskoðun þessar- ar gjaldskrár. Við erum hins vegar búin að ein- falda regluverkið í kringum íbúakort- in svo hópurinn sem hefur rétt á íbúa- kortum hefur stækkað töluvert,“ segir Pawel. Þá segir hann að hrein- um rafmagns- og vetnisbílum muni fjölga mikið á næstunni: „Svona hvat- ar leiða til þess.“ Morgunblaðið/Eggert Stöðumælir Bílastæðakort hækka umtalsvert, eða í 30 þúsund á ári. „Það er allt að verða klárt,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgar- svæðinu, en bólusetningar hefjast aftur í næstu viku í Laugardalshöll. Þeim verður boðinn örvunar- skammtur sem fengu Janssen fyrir a.m.k. 28 dögum og þeir sem eiga eftir að fá seinni skammt af Pfizer fá boð í hann. Þau sem eru með mótefni eftir Covid-19-sýkingu og hafa fengið Janssen-örvunar- skammt þurfa ekki að mæta í annan Pfizer-örvunarskammt að sögn Ragnheiðar. „Við erum búin að senda út boð fyrir mánudaginn og þriðjudaginn. Þannig að þetta er allt að gerast,“ segir Ragnheiður. Á fjórum dögum verða bólusett um 32 þúsund manns. Þá gerir hún ráð fyrir að ráðist verði í að gefa íbúum á hjúkrunarheimilum og þeim sem eru eldri en 80 ára örvunar- skammta í næstu viku. Bólusetja börn 24. og 25. ágúst fá síðan börn á aldrinum 12 til 15 ára Pfizer. Ragnheiður nefnir að hvorki börnin né forráðamenn þeirra fái strikamerki sent í síma heldur eigi fólk að koma samkvæmt skipulagi sem birtist á vef heilsugæslunnar. Bólusetningin verði skráð með því að gefa upp kennitölu barnsins. „Við erum að útbúa höllina þann- ig að það verði gott fyrir börn að koma. Bæði að foreldri geti setið við hlið þess og líka verða fullt af- drepum ef börnin eru kvíðin eða hrædd. Við óskum bara eftir að þau láti vita ef þau eru hrædd við komu. Við erum að reyna að gera þetta eins vel og við getum fyrir þennan hóp.“ urdur@mbl.is Bólusetja 32 þúsund í vikunni - Hefja bólusetningar aftur í Laugardalshöll í næstu viku Morgunblaðið/Eggert Bólusetning Ragnheiður Ósk Er- lendsdóttir í Laugardalshöll. Heiða Björg Pálmadóttir, forstjóri Barna- verndarstofu, hefur verið skipuð í emb- ætti skrif- stofustjóra á skrifstofu inn- viða heilbrigð- isþjónustu í heilbrigðis- ráðuneytinu. Heiða Björg lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands ár- ið 2004 og hlaut leyfi til starfa sem héraðsdómslögmaður árið 2008 og leggur nú stund á dokt- orsnám í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Heiða skipuð í emb- ætti skrifstofustjóra Heiða Björg Pálmadóttir Borgin breytir sífellt um svip og tímans kvörn malar allt mélinu smærra. Þessa dagana er verið að rífa þriggja hæða verslunar- og skrifstofuhús að Borgartúni 24 í Reykjavík sem víkur fyrir nýrri byggingu. Stórir kranar og krabbagrafa er notuð við niðurbrot hússins, sem vakið hefur eftirtekt margra þeirra sem fara um götuna þar sem svo mörg fyrirtæki á sviði fjármála og við- skipta eru með aðsetur. Brotið er niður í Borgartúninu Morgunblaðið/Eggert Dómsmálaráð- herra hefur skipað Björn Þorvaldsson saksóknara í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðs- dómstólana eftir ákvörðun dóm- stólasýslunnar, frá 1. september á þessu ári. Björn lauk embættis- prófi frá lagadeild HÍ 1993 og hefur í tæplega tvo áratugi feng- ist við sakamál hjá embættum ríkissaksóknara, ríkislög- reglustjóra og sérstaks saksókn- ara. Skipaður í embætti héraðsdómara Björn Þorvaldsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.