Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 14.08.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND DWAYNE JOHNSON EMILY BLUNT TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Þó að þessi plata hafi fyrst kom- ið út núna í maí hefur með- gangan verið til muna lengri. Hún var tekin upp fyrir rúmum þremur árum, af Kjartani Kjartans- syni, og var efni hennar m.a. leikið á Jazzhátíð Reykjavíkur haustið 2018. Á plötunni leika þau Þórdís Gerður Jónsdóttir (selló), Andri Ólafsson (kontrabassi), Guðmundur Pét- ursson (gítar), Grímur Helgason (klarinett), Matt- hías MD Hemstock (slagverk), Stein- grímur Karl Teague (píanó) og Ragn- heiður Gröndal (söngur). Á plötunni leitast Þórdís mark- visst við að finna sellóinu stað í spuna og djassi, og með það að markmiði skrifaði hún ný verk, hvar útgangs- punkturinn var aukinheldur sígild kammertónlist, en Þórdís hefur num- ið bæði djass og klassík. Þessi djarfa nálgun nær alla leið aftur til námsára hennar en þessi samsláttur allur var Þórdísi hugstæður í náminu við djassdeild Tónlistarskóla FÍH. Það þarf ekki að koma á óvart að aðal- kennari hennar þar var Hilmar Jens- son, gítarleikari og „könnuður“, svo ég setji þetta í glettið samhengi. Öll lögin fimm eru eftir Þórdísi, utan „Melodie“, sem er ný útsetning Þórdísar á lagstúf úr óperunni Or- feus og Evridís (eftir Gluck). Platan opnar með „Skarð“, giska áleitin Sannfærandi samsláttur smíð og ansi margt í gangi. Það er indverskur blær yfir henni og hljóm- urinn, upptakan þ.e., er til algerrar fyrirmyndar. Hvert og eitt hljóðfæri er vel einangrað og dregið fram, án þess þó að þau séu á stangli. Heildar- myndin er góð á sama tíma. Gítar Guðmundar Péturssonar er frábær, flottar krúsídúllur sem tóna yfir framvindunni og slagverk Matthíasar lúmskt en þó natið. Það spilar enginn eins og Matthías. „Bíða, vona, bölva“ er næst og nú tekur maður eftir því hvernig þessir heimar renna saman og sundur. „Mjúkt malbik“ hefst þannig á tilraunakenndum nótum, hljóðfærin eins og villuráfandi – hvert í sínu horni – þar til sellóið ákveður að rúlla sér inn og binda framvinduna betur saman. „Melodie“ er þekkilegt, kunnuglegt stef sem undirbýr okkur fyrir tæplega átta mínútna lokalag. „Nótt“ er sungið kröftuglega af okkar bestu Ragnheiði Gröndal. Eftir temmilega kurteisan inngang er allt keyrt í botn; Guð- mundur fer á kostum í hringlandi gít- arspuna, bassi og hrynhljóðfæri styðja rækilega við á meðan allir hitt- ast í hálfgerðri orgíu í blálokin. Það er ákefð hérna, ýtni og eitthvað sem ég kýs að kalla ljúfa kakófóníu. Við erum laus úr Vistarböndum, en er það gott? Þórdís hefur verið æði virk í ís- lenskri tónlistarsenu síðustu ár og hefur leikið með t.d. sinfóníuhljóm- sveitinni, Elektra Ensemble, Caput, strengjasveitinni Spiccato og Umbru. Síðasta september flutti hún ásamt hljómsveit verk eftir Kurt Weill í eig- in útsetningum, en hann samdi bæði djasstónlist og sígilda, nokkurs konar andlegur bróðir Þórdísar mætti því segja! Vistir er þá þriðja platan sem Þórdís kemur að í ár. Nýverið gaf kammerhópurinn Cauda Collective út plötu, hvar Þórdís er liðsmann- eskja, en platan Adest Festum er ný útsetning og frjáls túlkun á elsta varðveitta nótnahandriti Íslands, Þorlákstíðum. Einnig tók hún ríkan þátt í Blóðhófni, hvar Umbra flytur tónlist Kristínar Þóru Haraldsdóttur við ljóðabálk Gerðar Kristnýjar en sú plata kom út í upphafi árs. Þórdís býr um þessar mundir í Árósum hvar hún leggur stund á frekara sellónám undir handleiðslu Henrik Brendstrup. Það verður for- vitnilegt að sjá og heyra hvað það mun hafa í för með sér. » Guðmundur fer á kostum í hringlandi gítarspuna, bassi og hrynhljóðfæri styðja rækilega við á meðan allir hittast í hálfgerðri orgíu í blálokin. Þórdís Gerður Jóns- dóttir reynir sig við eins lags kammerdjass á stuttskífunni Vistir, hvar sellóið er gert að aðalhljóðfærinu í sam- bræðslu þriggja tón- heima. Tilraunir Þórdís Gerður Jónsdóttir fer óhikað út á ókunnar lendur á Vistum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.