Morgunblaðið - 14.08.2021, Síða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ ÍSLENSKU
OG ENSKU TALI
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI
96%
THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL
RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI
GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND
DWAYNE JOHNSON
EMILY BLUNT
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Þó að þessi plata hafi fyrst kom-
ið út núna í maí hefur með-
gangan verið til muna lengri.
Hún var tekin upp fyrir rúmum
þremur árum, af Kjartani Kjartans-
syni, og var efni hennar m.a. leikið á
Jazzhátíð Reykjavíkur haustið 2018.
Á plötunni leika þau Þórdís Gerður
Jónsdóttir (selló),
Andri Ólafsson
(kontrabassi),
Guðmundur Pét-
ursson (gítar),
Grímur Helgason
(klarinett), Matt-
hías MD Hemstock (slagverk), Stein-
grímur Karl Teague (píanó) og Ragn-
heiður Gröndal (söngur).
Á plötunni leitast Þórdís mark-
visst við að finna sellóinu stað í spuna
og djassi, og með það að markmiði
skrifaði hún ný verk, hvar útgangs-
punkturinn var aukinheldur sígild
kammertónlist, en Þórdís hefur num-
ið bæði djass og klassík. Þessi djarfa
nálgun nær alla leið aftur til námsára
hennar en þessi samsláttur allur var
Þórdísi hugstæður í náminu við
djassdeild Tónlistarskóla FÍH. Það
þarf ekki að koma á óvart að aðal-
kennari hennar þar var Hilmar Jens-
son, gítarleikari og „könnuður“, svo
ég setji þetta í glettið samhengi.
Öll lögin fimm eru eftir Þórdísi,
utan „Melodie“, sem er ný útsetning
Þórdísar á lagstúf úr óperunni Or-
feus og Evridís (eftir Gluck). Platan
opnar með „Skarð“, giska áleitin
Sannfærandi samsláttur
smíð og ansi margt í gangi. Það er
indverskur blær yfir henni og hljóm-
urinn, upptakan þ.e., er til algerrar
fyrirmyndar. Hvert og eitt hljóðfæri
er vel einangrað og dregið fram, án
þess þó að þau séu á stangli. Heildar-
myndin er góð á sama tíma. Gítar
Guðmundar Péturssonar er frábær,
flottar krúsídúllur sem tóna yfir
framvindunni og slagverk Matthíasar
lúmskt en þó natið. Það spilar enginn
eins og Matthías. „Bíða, vona, bölva“
er næst og nú tekur maður eftir því
hvernig þessir heimar renna saman
og sundur. „Mjúkt malbik“ hefst
þannig á tilraunakenndum nótum,
hljóðfærin eins og villuráfandi –
hvert í sínu horni – þar til sellóið
ákveður að rúlla sér inn og binda
framvinduna betur saman. „Melodie“
er þekkilegt, kunnuglegt stef sem
undirbýr okkur fyrir tæplega átta
mínútna lokalag. „Nótt“ er sungið
kröftuglega af okkar bestu Ragnheiði
Gröndal. Eftir temmilega kurteisan
inngang er allt keyrt í botn; Guð-
mundur fer á kostum í hringlandi gít-
arspuna, bassi og hrynhljóðfæri
styðja rækilega við á meðan allir hitt-
ast í hálfgerðri orgíu í blálokin. Það
er ákefð hérna, ýtni og eitthvað sem
ég kýs að kalla ljúfa kakófóníu. Við
erum laus úr Vistarböndum, en er
það gott?
Þórdís hefur verið æði virk í ís-
lenskri tónlistarsenu síðustu ár og
hefur leikið með t.d. sinfóníuhljóm-
sveitinni, Elektra Ensemble, Caput,
strengjasveitinni Spiccato og Umbru.
Síðasta september flutti hún ásamt
hljómsveit verk eftir Kurt Weill í eig-
in útsetningum, en hann samdi bæði
djasstónlist og sígilda, nokkurs konar
andlegur bróðir Þórdísar mætti því
segja! Vistir er þá þriðja platan sem
Þórdís kemur að í ár. Nýverið gaf
kammerhópurinn Cauda Collective
út plötu, hvar Þórdís er liðsmann-
eskja, en platan Adest Festum er ný
útsetning og frjáls túlkun á elsta
varðveitta nótnahandriti Íslands,
Þorlákstíðum. Einnig tók hún ríkan
þátt í Blóðhófni, hvar Umbra flytur
tónlist Kristínar Þóru Haraldsdóttur
við ljóðabálk Gerðar Kristnýjar en sú
plata kom út í upphafi árs.
Þórdís býr um þessar mundir í
Árósum hvar hún leggur stund á
frekara sellónám undir handleiðslu
Henrik Brendstrup. Það verður for-
vitnilegt að sjá og heyra hvað það
mun hafa í för með sér.
»
Guðmundur fer á
kostum í hringlandi
gítarspuna, bassi og
hrynhljóðfæri styðja
rækilega við á meðan
allir hittast í hálfgerðri
orgíu í blálokin.
Þórdís Gerður Jóns-
dóttir reynir sig við
eins lags kammerdjass
á stuttskífunni Vistir,
hvar sellóið er gert að
aðalhljóðfærinu í sam-
bræðslu þriggja tón-
heima.
Tilraunir Þórdís
Gerður Jónsdóttir
fer óhikað út á
ókunnar lendur á
Vistum.