Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 8

Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is GLÁMUR DVERGARNIR R Dvergurinn Glámur er 35 cm á hæð, vegur 65 kg og er með innsteypta festingu fyrir 2“ rör Öflugur skiltasteinn fyrir umferðarskilti Björgvin Víglundsson verkfræð- ingur skrifaði um bygginga- kostnað og byggingarreglugerð í blaðið á laugardag. Hann hefur meðal annars starfað í nokkur ár sem byggingar- fulltrúi í Noregi og þekkir þessi mál því af eigin reynslu, bæði hér og erlendis. Og samanburðurinn er sláandi óhag- stæður Íslandi. Hér ættum við í til- tölulega litlu og ein- földu samfélagi að geta haft hlutina einfalda og skilvirka, en það er öðru nær eins og lýsingar Björgvins, og raunar ýmissa annarra, sýna fram á. - - - Björgvin segir stjórnvöld stöðugt þyngja lög og reglugerðir „í samráði við hagsmunaaðila sem veldur stöðugt auknum byggingar- kostnaði ásamt því að vera allt of ströng, langt umfram meðalhóf þótt sé miðað við íslenskar aðstæður.“ - - - Hann lýsir því hvernig er að byggja hús í Noregi miðað við hér á landi og er augljóst að þar munar töluvert miklu á flækjustig- inu. - - - Og hann bætir því við að bygging- arreglugerð sé „mun einfaldari í Svíþjóð og Danmörku en í Noregi,“ þannig að samanburðurinn fyrir Ís- land er afleitur. - - - Þá bendir Björgvin á að flækjan valdi miklum töfum hér á landi en auki ekki á gæði nýrra bygginga. Þær séu „langt fyrir neðan meðallag vestrænna þjóða“. - - - Augljóst er miðað við lýsingar Björgvins að þessi sér-íslenska flækja veldur miklum viðbót- arkostnaði fyrir allan almenning. Því verður að breyta. Björgvin Víglundsson Sér-íslenskur aukakostnaður STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Um 500 biðstöðvar hjá Strætó fengu nýtt nafn í gær er breytingar tóku gildi hjá fyrirtækinu á höfuðborgar- svæðinu. Biðstöðvartöflur fengu andlitslyftingu og ný plaköt voru sett upp í strætóskýlum en fram kemur í tilkynningu frá Strætó að miklu magni af prentuðu efni þurfi að skipta út og því megi viðskiptavin- ir búast við að sumar biðstöðvartöfl- ur verði með rangt nafn í þessari viku, á meðan sú vinna stendur yfir. Þá munu leiðir 18, 24 og 28 aka á ný samkvæmt vetraráætlun og verða því á fimmtán mínútna fresti á anna- tímum. Breytingar verða gerðar á leiðum 6, 7 og 18 í Grafarvogi. Breyt- ing verður gerð á leið 7 til að tengja íbúa Staðahverfis við Engjaskóla og Víkurskóla. Í stað þess að aka um Víkurveg og Borgarveg þá verður ekið um Mosaveg, Hamravík, Vætta- borgir, Móaveg og Borgarveg. Egils- höll A verður upphafs- og endastöð leiðarinnar. Leið 6 ekur sömu leið og gert er ráð fyrir í fyrsta áfanga borg- arlínu og hættir að aka niður Skóla- veg og Gullengi í átt að Hlemmi. Í staðinn verður ekin sama leið fram og til baka. Í stað þess að aka um Mosaveg, Hamravík, Vættaborgir, Strandveg og Melaveg þá mun leið 18 aka að Egilshöll og um Borgarveg á leið sinni til og frá Spöng. Breytingar hjá Strætó taka gildi - Um 500 biðstöðvar fá nýtt nafn - Leiðakerfisbreyting í Grafarvogi Morgunblaðið/Eggert Biðstöð Um 500 stöðvar fengu nýtt nafn er breytingarnar tóku gildi. Úrskurðarnefnd velferðarmála hef- ur fellt úr gildi ákvörðun Trygg- ingastofnunar ríkisins frá 8. desem- ber 2020 um að synja einstaklingi um örorkulífeyri og hefur málinu verið vísað aftur til stofnunarinnar til nýrrar meðferðar. Tryggingastofnun hafði komist að þeirri niðurstöðu að skilyrði staðals um örorkulífeyri hefðu ekki verið uppfyllt hjá kæranda samkvæmt 18. gr. laga um almannatryggingar. Á grundvelli skýrslu skoðunarlæknis fékk kærandi 9 stig í andlega hluta staðalsins en 10 stig þurfti til að upp- fylla efsta stigs örorku. Í úrskurði úrskurðarnefndar kom fram að skoðunarlæknir hefði kom- ist að því að kæranda væri annt um útlit sitt og aðbúnað í lífinu en hins vegar hafi komið fram í greinargerð tveimur mánuðum áður að þegar líð- an kæranda færi versnandi sjáist það á hans eigin umhirðu og hann hætti að sinna hreyfingu og heim- ilisverkum. Að mati úrskurðarnefndar gaf sú lýsing til kynna að kæranda væri ekki annt um útlit sitt og aðbúnað í lífinu. Ef fallist væri á slíkt fengi kærandi eitt stig til viðbótar vegna andlegrar færniskerðingar og myndi hann því uppfylla læknisfræðileg skilyrði fyrir greiðslu örorkulífeyris. Taldi úrskurðarnefnd velferðar- mála að vegna þessa hefði verið mis- ræmi í skoðunarskýrslu varðandi mat á andlegri færni kæranda og var það því mat nefndarinnar að nýtt mat færi fram á örorku kæranda og tekin rökstudd afstaða til þessa mis- ræmis. Benti nefndin á að hafa bæri í huga að miklir hagsmunir væru því tengdir fyrir kæranda hvort hann uppfyllti skilyrði örorkulífeyris. Synjun örorkulíf- eyris felld úr gildi - Nefndin taldi að misræmi hefði verið í skoðunarskýrslu Morgunblaðið/ÞÖK Örorkustaðall Eitt stig vantaði til að uppfylla skilyrði efsta stigs örorku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.