Morgunblaðið - 16.08.2021, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 16.08.2021, Blaðsíða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 Bollywood-dansganga Margrét Erla Maack leiddi dansinn niður Laugaveginn en sífellt fleiri bættust í hópinn. Unnur Karen Nú eru tæpar sex vikur til alþingiskosn- inga og auðfundið hvernig stjórnmálin taka til sín meira rými með hverjum degi sem líður. Samt hafa sumir fundið að því að fólk sé á einhvern hátt áhuga- lausara um stjórnmál en áður, að almenn- ingur sé sinnulausari um þau en á árum áð- ur og finnist þau fjarlæg sínu dag- lega lífi, önn og amstri. Þetta er ekki reynsla okkar í Sjálfstæðisflokknum. Þvert á móti finnum við fyrir miklum áhuga á því hvernig landinu er stjórnað, af hverjum og hvert beri að stefna á næstu árum. Það er ekki byggt á tilfinningu einni, heldur tala töl- urnar sínu máli um það, að fólk hef- ur áhuga á því sem við höfum fram að færa og vill taka þátt í mótun framtíðarinnar með okkur. Sjálfstæðisflokkurinn boðaði til almennra prófkjöra í öllum kjör- dæmum landsins, þar sem fjöldi manna gaf kost á sér til starfa fyrir land og þjóð, kynnti sjónarmið sín og af því spratt fjörleg og þörf um- ræða um hina ýmsu málaflokka stjórnmálanna. Hátt í þúsund sjálf- boðaliða og stuðningsmanna ein- stakra frambjóðenda unnu óeigin- gjarna vinnu við framkvæmd prófkjörsins. Ekki munaði þó minna um hitt, að alls kaus 20.771 í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins, sem er hátt í 10% kjósenda. Enginn annar flokk- ur getur státað af slíkri lýðræðis- veislu, enginn stillir framboðs- listum sínum upp með aðkomu svo stórs hluta kjósenda landsins. Raunar er það svo að fæstir flokk- anna treystu fólki til þess að koma og kjósa um listana á jafn lýðræð- islegan hátt og létu margir þeirra duga að gera út um listana í bak- herbergjum. Þátttakan í prófkjörum flokksins sýnir og sannar enn einu sinni að Sjálf- stæðisflokkurinn er fjöldahreyfing. Þeir sem leiða listana fengu allir einkar glæsilega kosningu og óyggjandi umboð, ekki síst for- maður flokksins sem í sínu kjördæmi fékk yf- irburðakosningu með yfir 90% atkvæða að baki sér. Prófkjörin gerðu það að verkum að Sjálfstæðisflokk- urinn teflir fram fjölbreyttu og sig- urstranglegu liði í kosningunum í haust, þar sem þrjár konur og þrír karlar leiða listana í kjördæmunum sex. Það olli okkur vonbrigðum að þurfa enn að fresta landsfundi vegna sóttvarnaráðstafana, en í staðinn hefur verið boðað til flokks- ráðs- og formannafundar um aðra helgi, þar sem Sjálfstæðismenn koma saman á 6-8 stöðum á landinu og leggja lokahönd á kosn- ingastefnu flokksins. Enginn annar flokkur getur stát- að af sams konar lýðræðisveislu. Það er lykilatriði í erindi Sjálfstæð- isflokksins sem burðarflokks ís- lenskra stjórnmála. Við treystum kjósendum og þess vegna treysta kjósendur Sjálfstæðisflokknum. Við erum á réttri leið og við ætl- um lengra! Eftir Þórð Þórarinsson » Þeir sem leiða lista Sjálfstæðisflokksins fengu allir glæsilega kosningu, ekki síst for- maður flokksins sem í sínu kjördæmi fékk yf- irburðakosningu með yfir 90% atkvæða að baki sér. Þórður Þórarinsson Höfundur er framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Lýðræðisveislan heldur áfram Covid-19 er út- breiddasti heimsfar- aldur sem mannkynið hefur orðið vitni að síð- ustu 100 árin. Með harm í hjarta höfum við horft upp á farald- urinn hafa gríðarleg áhrif á bæði ríki og íbúa þeirra, með yfir 200 milljónir stað- festra tilfella á heims- vísu og yfir fjórar milljónir dauðsfalla. Þar sem við stöndum frammi fyrir þessum ham- förum verður alþjóðasamfélagið að koma sér með hraði út úr því þoku- kennda ástandi sem nú ríkir og taka höndum saman um hagnýtar og framkvæmanlegar lausnir. Í fyrsta lagi ættum við að beina öllum okkar kröftum í að ná tökum á faraldrinum sem allra fyrst. Co- vid-19-vírusinn er mjög smitandi og er sífellt að ala af sér fjölbreyttar stökkbreytingar. Augnabliks kæru- leysi getur leitt af sér hrinu smita. Allir aðilar ættu að fylgjast náið með þessum vírus og beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu hans. Kína var fyrst ríkja til að greina og tilkynna um Co- vid-19 til WHO. Síðan í ársbyrjun 2020, hefur kínverska ríkisstjórnin sett líf og heilsu fólks í fyrsta sæti, og hefur gripið til víðtækustu, ströngustu og ítarlegustu for- varnar- og eftirlitsaðgerða sem völ er á, og hefur náð ágætis tökum á faraldrinum á til- tölulega stuttum tíma. Þó að faraldurinn sé núna að brjótast fram hér og þar í Kína, þá hefur á heildina litið tekist að ná stjórn á faraldrinum. Dagleg ný tilfelli hafa haldist fá. Kína hefur gripið til áhrifaríkra aðgerða til að hindra að Covid-19 nái fótfestu aftur, og hefur náð að hraða bólusetningum. Þann 9. ágúst höfðu yfir 1,78 milljarðar skammtar af Covid-19-bóluefni ver- ið nýttir í bólusetningar innan Kína og er það mesti fjöldi bólusettra á heimsvísu. Kínverska hagkerfið hef- ur aftur náð sér á strik og er farið að sýna vöxt á ný. Á fyrsta helmingi ársins 2021 hefur landsframleiðsla Kína aukist um 12,7% á árs- grundvelli og hefur lagt sitt af mörkum við að örva alþjóðlegan efnahagsbata. Þar sem við stöndum frammi fyr- ir faraldrinum, ættu öll ríki jarðar að sameinast við að vinna bug á erf- iðleikunum. Covid-19 gerir ekki greinarmun á kyni eða kynþætti. Ekkert land er ónæmt fyrir vírusn- um og baráttan gegn faraldrinum verður einungis unnin með sam- stöðu og samvinnu alls mannkyns. Eftir að Covid-19-faraldurinn braust út hefur Kína tekið virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi í barátt- unni við faraldurinn og staðið við það fyrirheit sitt að gera bóluefni aðgengileg almenningi á heimsvísu. Kína hefur staðið fyrir sinni stærstu neyðarmannúðaraðgerð síðan Al- þýðulýðveldið Kína var stofnað árið 1949. Kína hefur til dagsins í dag út- vegað mikið af smitvarnarbúnaði til yfir 160 landa og alþjóðlegra sam- taka, auk þess að útvega meira en 750 milljónir skammta af bóluefni og bóluefnisþykkni til yfir 100 landa og alþjóðlegra stofnana, og sam- svarar það um einum sjötta hluta al- þjóðlegrar framleiðslu. Þar með hef- ur Kína útvegað langflesta skammta bóluefnis til þróunarríkja af ríkjum jarðar. Skuldbinding Kína til að út- vega 20 milljónir skammta í verk- efni WHO í aðgengi að bóluefnum gegn Covid-19 (COVAX) hefur gengið hnökralaust. Kína hefur verið með opið og gagnsætt viðhorf til rannsókna á uppruna veirunnar og hefur boðið sérfræðingum frá WHO tvisvar til Kína. Skýrsla WHO um rannsókn á uppruna veirunnar „Convened Glo- bal Study of Origins of SARS- Cov-2: China Part“ var birt í júlí á þessu ári og hefur hlotið samþykki alþjóðasamfélagsins og vísinda- samfélagsins, og hefur lagt grunn- inn að næsta fasa rannsókna á upp- runa veirunnar. Afstaða kínverskra stjórnvalda er að rannsóknir á upp- runa veirunnar séu mikilvægt og flókið verkefni fyrir vísinda- samfélagið, sem krefst samstarfs vísindamanna úr öllum heims- hornum, ásamt því að vera stutt af ríkisstjórnum og íbúum allra landa. Kína er andsnúið því að rannsóknir á uppruna veirunnar séu gerðar að pólitísku bitbeini. Stöðugar, lang- tíma vísindarannsóknir á uppruna veirunnar á heimsvísu ættu að vera viðmiðið. Alþjóðleg samskipti og samvinna í rannsóknum á uppruna veirunnar ættu að vera sameiginlegt verkefni, og með sameiginlegu átaki ættum við að geta komið í veg fyrir sambærilegan vírusfaraldur í dýr- um og mönnum. Kína og Ísland hafa staðið saman gegn faraldrinum og hafa stutt hvort annað, og með samvinnu á þessu sviði hafa löndin tvö ritað nýj- an kafla vináttu í tvíhliða sam- skiptum. Kína metur mikils þann góða hug og umhyggju sem Ísland og Íslendingar úr öllum þjóðfélags- stéttum hafa sýnt með mismunandi hætti. Á sama tíma hefur Kína einn- ig til hins ýtrasta reynt að útvega Íslandi hjúkrunarvörur. Það gleður okkur að sjá hvaða árangri Ísland hefur náð með vísindalegum faraldursvörnum og við vonumst til að við getum styrkt samstarf okkar frekar á þessu sviði, og þar með styrkt samvinnuna enn frekar í bar- áttunni gegn Covid-19 og lagt okkar af mörkum til hinnar alþjóðlegu baráttu gegn faraldrinum. Nú um stundir stendur heims- byggðin enn frammi fyrir yfirstand- andi faraldri, og mismunandi ríki bregðast við á mismunandi hátt. Hinn „pólitíski vírus“ grefur þó undan alþjóðlegu samstarfi í barátt- unni við faraldurinn, og hið al- þjóðlega ástand í faraldrinum held- ur áfram að vera flókið og alvarlegt. Það er sameiginlegur vilji alþjóða- samfélagsins að taka höndum sam- an og sigrast á Covid-19-faraldr- inum og endurheimta efnahagskerfi heimsins ásamt því að öðlast eðlilegt líf aftur eins fljótt og auðið er. Co- vid-19 er sameiginlegur óvinur mannkyns. Covid-19-faraldurinn hefur heldur betur minnt heims- byggðina á að samfélög manna eru nátengd, og að við búum í veröld sem á sér sameiginlega framtíð. Þar sem við stöndum nú frammi fyrir faraldrinum verðum við að halda í þá framtíðarsýn að ná að byggja upp heilsusamlegt samfélag fyrir alla. Við ættum að standa saman, hafna kröftuglega öllum tilraunum til að nýta sér faraldurinn í pólitísk- um tilgangi og að kenna um og að rægja vegna faraldursins, þannig að við náum í sameiningu að standa vörð um líf og heilsu fólks og náum að kveða niður faraldurinn eins fljótt og hægt er. Eftir Jin Zhijian »Kína og Ísland hafa staðið saman gegn faraldrinum og hafa stutt hvort annað, og með samvinnu á þessu sviði hafa löndin tvö rit- að nýjan kafla vináttu í tvíhliða samskiptum. Jin Zhijian Höfundur er sendiherra Kína á Íslandi. Covid-19 er sameiginlegur óvinur alls mannkyns

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.