Morgunblaðið - 16.08.2021, Side 27
liðið og þeir Símon Michael Guð-
jónsson og Kristófer Máni Jónasson
voru báðir með fimm.
_ Þýski knattspyrnumaðurinn fyrrver-
andi Gerd Müller er látinn 75 ára að
aldri. Müller er ein af goðsögnum stór-
liðs Bayern München og vestur-þýska
landsliðsins. Müller var markaskorari
af guðs náð. Hann skoraði 68 mörk í
62 leikjum með vesturþýska landslið-
inu og meira en 650 mörk fyrir fé-
lagsliðin sín. Lengst af spilaði hann
með Bayern eða í um 15 ár þar sem
hann skoraði 365 mörk í 427 leikjum.
Müller varð markakóngur á HM 1970
þegar hann skoraði 10 mörk og hann
skoraði sigurmarkið þegar Vestur-
Þjóðverjar lögðu Hollendinga í úrslita-
leik á HM árið 1974 í München. Hann er
í þriðja sæti yfir markahæstu leikmenn
í úrslitakeppni HM með 14 mörk.
_ Real Madrid hóf keppni í spænsku 1.
deildinni í knattspyrnu á þessu tímabili
með 4:1-sigri á Alavés á útivelli á laug-
ardagskvöld. Eftir markalausan fyrri
hálfleik skoruðu leikmenn Real þrjú
mörk á 17 mínútna kafla í upphafi þess
síðari. Karim Benzema gerði tvö mark-
anna.
_ Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur á
von á gríðarlegum liðstyrk fyrir átökin
á Íslandsmótinu í haust en argentínski
bakvörðurinn Nicolas Richotti er á
leiðinni til félagsins. Richotti er afar
reynslumikill leikmaður sem lék í fjöl-
mörg ár í einni sterkustu deild Evrópu,
efstu deild á Spáni. Þar lék hann meðal
annars í níu ár með
liði Tenerife og
vann Meistaradeild
Evrópu þar árið
2017. Þá lék hann
einnig um árabil
með argentínska
landsliðinu.
_ Norski knatt-
spyrnumaðurinn Erling Braut Haaland
hóf keppni með látum er Dortmund
vann 5:2-sigur á Frankfurt í fyrstu um-
ferð þýsku efstu deildarinnar í knatt-
spyrnu á laugardag. Hann lagði upp
fyrstu tvö mörk heimamanna, á Marco
Reus og Thorgan Hazard, en þar á milli
jöfnuðu gestirnir metin. Haaland kom
svo sjálfur Dortmund í forystu, 3:1, á
34. mínútu og skoraði sitt annað mark
á 70. mínútu eftir
að Giovanni Reya
kom Dortmund í
4:1.
_ Fram og ÍBV
eru afar líkleg til
að enda í tveimur
efstu sætum
Lengjudeildar
karla í fótbolta eftir sigra á laugardag.
Þórir Guðjónsson skoraði sigurmark
Fram í 1:0-sigri á Vestra á útivelli og
José Sito skoraði sigurmark ÍBV í 1:0-
útisigri á Kórdrengjum á Leiknisvelli í
Breiðholti. Fram er í toppsætinu með
44 stig og ÍBV í öðru sæti með 35 stig.
Kórdrengir eru í þriðja með 28 stig en
tvö efstu liðin fara upp í úrvalsdeild-
ina.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021
ENGLAND
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nýtt keppnistímabil hófst ekki vel
hjá Englandsmeisturunum í Man-
chester City í ensku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu í gær. City heimsótti
Tottenham Hotspur til London og
mátti sætta sig við 1:0-tap. Kór-
eumaðurinn frábæri Son Heung-min
skoraði eina mark leiksins með hnit-
miðuðu skoti og verður væntanlega
jafn skeinuhættur í vetur eins og
undanfarin tvö ár.
Tottenham Hotspur fékk því óska-
byrjun á nýju tímabili og hver hefði
búist við því? Harry Kane virðist vera
á förum frá félaginu og var ekki með
auk þess sem Gareth Bale er aftur
farinn til Real Madrid. Portúgalinn
Nuno Espírito Santo tók við Totten-
ham í sumar og skilaði stórkostlegum
úrslitum í fyrsta leik. Árangur Wolv-
es undir hans stjórn hafði áður vakið
athygli.
„Þetta var góður dagur. Leikurinn
var erfiður, en mínir menn lögðu
mjög hart að sér. Hlupu mikið og
börðust. Ég er mjög stoltur,“ sagði
Santo í sjónvarpsviðtali að leik lokn-
um.
Þrenna hjá Fernandes
Fyrsta umferðin var mjög fjörug.
Ekki síst fyrir þær sakir að áhorf-
endur fylltu leikvangana með tilheyr-
andi stuði. Til að mynda voru 60 þús-
und manns á leiknum hjá Tottenham
og City og 75 þúsund manns voru á
Old Trafford þar sem Manchester
United fór illa með gamla fjendur í
Leeds United, 5:1. Helgin var góð
fyrir marga Portúgala því Bruno
Fernandes skoraði þrennu. Þótt hann
hafi leikið vel fyrir Manchester Unit-
ed frá því hann kom frá Sporting
Lissabon þá hefur hann ekki tekið
upp á því áður að skora þrennu.
Ólíkindatólið Paul Pogba fór rétt-
um megin fram úr rúminu á laug-
ardaginn og átti fjórar stoðsendingar.
Gárungarnir bentu á að stoðsend-
ingar hans á síðasta tímabili hafi ver-
ið færri en þann hluta þessa eina leiks
sem hann spilaði á laugardaginn.
Pogba fékk svokallaða heiðursskipt-
ingu í leiknum og var ekki annað að
heyra en að stuðningsmenn United
haldi enn mikið upp á franska heims-
meistarann.
Van Dijk orðinn leikfær
Þau tíðindi urðu um helgina að
Hollendingurinn Virgil van Dijk sneri
aftur í vörnina hjá Liverpool eftir
krossbandsslit í október í fyrra.
Fyrsti leikurinn lofaði góðu fyrir Liv-
erpool sem vann Norwich City 3:0 á
útivelli og Mohamed Salah var í ess-
inu sínu. Skoraði eitt og lagði upp hin
tvö mörkin.
„Þetta var fín byrjun og við fáum
tíma til að safna kröftum fyrir leikinn
í næstu viku. Gott er að vera kominn
aftur út á völl að hjálpa strákunum og
ég vil halda því áfram. Ég þarf á leikj-
um að halda. Stjórinn veit það og ég
veit það,“ sagði van Dijk í samtali við
BBC.
Margir spá Chelsea velgengni und-
ir stjórn Þjóðverjans Thomasar Tuc-
hel. Liðið er með fínan meðbyr eftir
3:0-sigur á Crystal Palace í fyrstu
umferð og félagaskipti Romelu Lu-
kaku.
Annað stórt nafn er á leiðinni í
deildina en Man Utd tilkynnti á laug-
ardag að franski miðvörðurinn
Raphaël Varane væri kominn til
United frá Real Madrid.
Þvílík úrslit fyrir Santo
- Meistararnir lagðir að velli
- Fjörugir leikir í fyrstu umferðinni
AFP
Sigur Pierre-Emile Højbjerg tekur utan um Nuno Espirito Santo.
um. Covid er búið að trufla smá en
maður heldur bara hausnum uppi og
gerir sitt besta.“
Heimaæfingar í faraldrinum
Spurður hvernig kórónuveiru-
faraldurinn hafi sett strik í reikning-
inn sagði Róbert Ísak: „Við fengum
ekki að synda í nokkrar vikur. Það
var í öllum bylgjum þegar allt stopp-
aði, öllum þessum þremur eða fjór-
um bylgjum á síðasta ári. Þá voru
bara gerðar heimaæfingar og passað
upp á að heilsan væri í lagi. Líka
andlega heilsan.“
Hann fer með skýr markmið á
mótið í Tókýó. „Markmið mín eru
alltaf að bæta tímana mína. Að kom-
ast í úrslit yrði frábært og að ná á
pall væri glæsilegt, það væri virki-
lega mikill plús.“ Hvernig metur Ró-
bert Ísak möguleikana á að ná þess-
um markmiðum þegar komið verður
á stóra sviðið?
„Það finnst mér erfitt að segja. Að
bæta tímana mína, ég er nokkuð viss
um að ég get það, en að komast í úr-
slit og að fá verðlaunasæti, það fer
allt eftir hinum manneskjunum. Ég
næ ekkert að stjórna því sem þær
gera. Ég hugsa alltaf fyrst um mig
áður en ég hugsa um aðra,“ sagði
Róbert við Morgunblaðið.
- Róbert Ísak keppir fyrstur Ís-
lendinga á leikunum í Tókýó þegar
hann stingur sér til sunds í und-
anrásum 100 metra flugsundsins
hinn 25. ágúst.
„Væri glæsilegt að ná á pall“
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sund Róbert Ísak Jónsson keppir fyrstur Íslendinga í Tókýó.
- Þrettán æfingar á viku hjá sund-
manninum Róberti Ísak Jónssyni
SUND
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
Sundmaðurinn Róbert Ísak Jóns-
son úr Firði/Sundfélagi Hafnar-
fjarðar tekur þátt á sínu fyrsta Ól-
ympíumóti fatlaðra, Paralympics,
þegar hann keppir í þremur grein-
um, 100 metra flugsundi, 100 metra
bringusundi og 200 metra fjórsundi í
S14-flokki þroskahamlaðra á mótinu
í Tókýó. Hann segist afar spenntur
fyrir því að þreyta frumraun sína.
„Mér líður bara virkilega vel. Bara
voða spenntur og vona að mér gangi
virkilega vel,“ sagði Róbert Ísak í
samtali við Morgunblaðið.
Hann bætti því við að undirbún-
ingur fyrir mótið hafi gengið vel.
„Hann er búinn að vera voða góður.
Ég æfi 13 sinnum í viku. Ég syndi 10
sinnum og fer í ræktina þrisvar sinn-
KNATTSPYRNA
Pepsi Max-deild karla:
Kórinn: HK – KR ..................................19.15
Würth-völlur: Fylkir – Víkingur R. ....19.15
Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍA .........19.15
Í KVÖLD!
Forkeppni HM karla
Danmörk – Svartfjallaland.................. 68:79
>73G,&:=/D
EM U17 kvenna
B-deild:
Spánn – Ísland ...................................... 31:32
Úrslitaleikur:
Ísland – N-Makedónía ......................... 26:27
EM U19 karla
Ísland – Serbía...................................... 31:30
E(;R&:=/D
England
Everton – Southampton.......................... 3:1
- Gylfi Þór Sigurðsson var sendur í leyfi
hjá Everton.
Burnley – Brighton ................................. 1:2
- Jóhann Berg Guðmundsson lék allan
leikinn með Burnley.
Manchester United – Leeds United....... 5:1
Chelsea – Crystal Palace ......................... 3:0
Leicester City – Wolves........................... 1:0
Watford – Aston Villa .............................. 3:2
Norwich City – Liverpool ........................ 0:3
Newcastle – West Ham ........................... 2:4
Tottenham – Manchester City................ 1:0
Frakkland
B-deild:
Nimes – Pau.............................................. 0:0
- Elías Már Ómarsson lék fyrstu 90 mín-
úturnar með Nimes.
Skotland
Celtic – Hearts ......................................... 2:0
- María Ólafsdóttir Gros lék fyrstu 61
mínútuna með Celtic.
Danmörk
AGF – Köbenhavn ................................... 1:3
- Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á eftir
72 mínútur.
OB – Silkeborg......................................... 1:1
- Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 76 mín-
úturnar með OB.
- Stefán Teitur Þórðarson lék fyrstu 74
mínúturnar með Silkeborg.
AaB – Bröndby......................................... 1:2
- Barbára Sól Gísladóttir lék fyrstu 64
mínúturnar og lagði upp sigurmarkið.
Svíþjóð
Malmö – Gautaborg................................. 2:3
- Kolbeinn Sigþórsson lék fyrstu 76 mín-
úturnar með Gautaborg.
Degerfors – Häcken ................................ 3:0
- Oskar Tor Sverrisson lék fyrstu 52 mín-
úturnar með Häcken en Valgeir Lunddal
Friðriksson var ekki í leikmannahópnum.
Östersund – Norrköping ........................ 1:2
- Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn og
skoraði en Ari Freyr Skúlason og Jóhannes
Kristinn Bjarnason voru ekki í leikmanna-
hópi Norrköping.
Hammarby – Elfsborg ............................ 0:2
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
AIK – Kristianstad .................................. 1:1
- Hallbera Guðný Gísladóttir lék allan
leikinn með AIK.
- Sif Atladóttir og Sveindís Jane Jónsdótt-
ir léku allan leikinn með Kristianstad. El-
ísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið.
Noregur
Lilleström – Bodö/Glimt ........................ 0:1
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
Kristiansund – Stabæk............................ 5:1
- Brynjólfur Willumsson var ónotaður
varamaður hjá Kristiansund.
Mjöndalen – Rosenborg .......................... 1:2
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Brann – Sandefjord ................................. 3:2
- Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Brann og lagði upp mark.
Sarpsborg – Strömsgodset..................... 1:0
- Emil Pálsson var ekki í leikmannahópi
Sarpsborg.
- Ari Leifsson var ónotaður varamaður
hjá Strömsgodset en Valdimar Þór Ingi-
mundarson var ekki í hópnum.
Tromsö – Vålerenga ............................... 1:1
- Adam Örn Arnarson var ónotaður vara-
maður hjá Tromsö.
- Viðar Örn Kjartansson kom inn á hjá
Vålerenga eftir 64 mínútur.
Viking – Molde ......................................... 3:2
- Samúel Kári Friðjónsson kom inn á eftir
65 mínútur hjá Viking.
- Björn Bergmann Sigurðarson var ekki í
leikmannahópi Molde.
Avaldsnes – Vålerenga ........................... 1:1
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga og Amanda Andradóttir
kom inn á eftir 56 mínútur.
KNATTSPYRNA