Morgunblaðið - 16.08.2021, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.08.2021, Blaðsíða 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 Anna í Stóruborg á sér öruggan sess í sögu 16. aldar á Íslandi. Þjóðsagan varðveitti minningu hennar svo að eftir er munað og hún færði skáldinu Jóni Trausta þau föng er urðu uppi- staða í góðu, víðlesnu skáldverki er nefnist Anna frá Stóruborg. Anna var fædd upp úr aldamótum 1500, dóttir Vigfúsar Erlendssonar, lögmanns og hirðstjóra á Hlíðar- enda, og fyrri konu hans, Guðrúnar Pálsdóttur frá Skarði á Skarðs- strönd. Vigfús dó í Björgvin í Noregi 1521, frá stóreignum og stórskuld- um. Seinni kona hans var Salgerður Snjólfsdóttir og taldi kirkjan fjórmennings- meinbugi á hjónabandi. Þau voru barn- laus. Varðveitt er uppskrift á geysimiklu dánarbúi Vigfúsar í skjalabók Jóns Halls- sonar, sýslumanns í Næfurholti, síð- ari manns Hólmfríðar Erlendsdótt- ur hinnar ríku, systur Vigfúsar. Þau höfðu umsjón með dánarbúi og erf- ingjum. Skrár eru prentaðar í Ís- lenzku fornbréfasafni, hinni mestu námu að fróðleik um menningu og búskaparhætti. Guðríður, dóttir Vig- fúsar, var gift, er hér var komið sögu, Sæmundi Eiríkssyni í Ási í Holtum, ógefin voru Páll, síðar sýslumaður og lögmaður, Kristín og Anna. Virðing og skipti með Páli og systrum hans gerðust á Hlíðarenda. Sæmundur í Ási „tók þar vegna Páls og Önnu 4 hundruð í virðingar góssi og eigi fulla 6 aura betur og þar að auk 3 hundruð betur í reiðskap og það að auk sem hann tók í reflum og tjöldum, bókum og amboðum. Item tók hann svo mikið í Engey, 12 aura í tölufé, búsgagni og amboðum og hér til 3 hundruð í öðru góssi. Item þar 2 hundruð fríð og hér til 300 er guld- ust á Hvoli í Hvolhrepp.“ Bækur sem hér eru tilgreindar leiða hugann að því að Páll Vigfús- son átti Konungsbók Grágásar, handrit frá 13. öld, og Anna virðist hafa átt miðaldahandrit með sögum Noregskonunga, Ólafs Tryggvason- ar og Ólafs helga. Sonur hennar, Magnús Hjaltason í Teigi, eignaðist það og léði Oddi Einarssyni, biskupi í Skálholti. Það tættist þar í sundur en Árni Magnússon bjargaði hluta þess í safn sitt um 1700 (AM 62 fol.). Tvenn bókarspennsli fundust í Borg við rannsókn Mjallar Snæs- dóttur og félaga, önnur áletruð, ég fann tvenn, önnur úr silfri. Anna hefur verið vel búfær eftir skiptin. Vigfús Erlendsson átti undir Austurfjöllum jarðirnar Miðbæli og Borg, með hjáleigum, Minniborg og Klömbru, sem báðar eru ranglega taldar kirkjujarðir í skiptum. Þetta verður hluti af arffé Önnu og hún flytur að Borg, einstæð kona og sjálfstæð. Dánarbú Vigfúsar átti út- gerð í Miðbælisvörum: „Áttæringur í Miðbæli, er gjörður var fyrir 3 hundruð, og annað sexæringur. Var hann gjörður fyrir hálft annað hundrað.“ Líklegt er að skipin tvö hafi fallið í hlut Önnu. Ekkert getur um kúgildi í Miðbæli og í Borg eða hjáleigum en um Borg segir: „Með kirkjunni tvævetur kvíga, mylk.“ Jón Sigurðsson í Steinum skráði ævintýralega frásögn um smalapilt- inn Hjalta Magnússon og hefðar- húsfreyjuna í Borg sem birtist í Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Hjalti kemur ættlaus inn í söguna. Saman taka þau Anna og Hjalti að hlaða niður börnum og í sögum Eyfellinga heitir hann Barna-Hjalti. Enginn efi er á því að Páll Vigfússon reis önd- verður við frjálsu sambandi Hjalta og Önnu og vist Hjalta í Paradísar- helli tel ég staðreynd. Sagnamenn mínir undir Eyjafjöllum sögðu að Hjalti hefði dvalið þar í tvö ár. Bær- inn á Fit stóð þá þar sem nú heitir Forna-Fit og Markarfljót féll nærri bæ á 16. öld, fluttur á 17. öld austar í land. Fornan farveg fljótsins má enn sjá við Fornu-Fit. Húsfreyja á Fit bjó Hjalta mat kvöld hvert og setti í búrglugga. Hjalti vitjaði hans að nóttu. Vert er að geta þess að bónd- inn á Fit var leiguliði Páls Vigfús- sonar svo þarna hefur orðið að gæta mikillar leyndar. Sannindablær er á sögunni um björgun lögmanns úr fljótinu. Staðreynd er að Páll tekur Önnu og Hjalta í sátt, þau fá upp- gefnar sakir og efnt er til hjóna- bands. Ákveðin heimild vísar til þess að Anna hafi búið einhleyp og óspjölluð í Borg á fjórða tugi 16. ald- ar, byrjað barneignir eftir 1541, þá komin vel um þrítugt. Gissur Ein- arsson biskup kvittar þann 31. ágúst það ár austur á Þykkvabæjar- klaustri „erliga dandispíku“ Önnu Vigfúsdóttur um niðurfall og reikn- ingsskap kirkjunnar á Borg undir Eyjafjöllum. Orðin ærleg og dánd- ispíka benda á flekklaust líf og orðin um niðurfall og reikningsskap Borg- arkirkju benda til alllangrar búsetu. Elsta barn Önnu, væntanlega Magn- ús Hjaltason, ætti að vera fætt eftir 1541. Hann er enn á lífi 1612 sam- kvæmt minnisgrein Odds Einars- sonar biskups. Það ætti að hafa verið nálægt 1560 sem Anna og Hjalti flytja búferlum frá Borg á eignarjörð Páls Vigfús- sonar, höfuðbólið Teig í Fljótshlíð, sem Önnu féll síðar í arf. Börn þeirra hafa þá verið vaxin á legg. Tengsl fjölskyldunnar við Borg rofn- uðu ekki. Ættarhöfðinginn Páll Vigfússon á Hlíðarenda deyr frá miklum eignum árið 1569. Hann lét ekki eftir sig börn. Erfingjar voru Guðríður Vig- fúsdóttir frá Ási, Anna Vigfúsdóttir og börn þeirra. Árni Gíslason, sýslu- maður á Hlíðarenda, tengdasonur Guðríðar, hélt uppi arfstilkalli, taldi Önnu og börn hennar ekki arftæk. Anna hefði með barneignum sínum í óvígðri sambúð með Hjalta brotið af sér allan arfsrétt. Magnús Hjaltason varði rétt fjölskyldunnar fyrir dómi á Alþingi, bar fram samþykki Páls fyrir hjónabandi Önnu og Hjalta og sannanir fyrir greiðslum sökum sak- ferlis. Dómur féll honum í vil á Al- þingi 1571. Líkur benda til að Anna hafi dáið sama ár. Hjalti var á lífi 1570 en óþekkt er dánarár hans. Þrír synir Önnu og Hjalta tengj- ast Stóruborg eftir brottför þeirra, Magnús, Erlendur og Eiríkur. Heimild er fyrir því að Magnús af- hendir Erlendi 9 kúgildi Borgar- kirkju, gæti þó verið einu færra. Eiríkur ílendist í Borg; Björn son- ur hans eftir hann. Jón sonur Björns er bóndi í Borg um miðja 17. öld. Er- lendur flutti á eignarjörð, Barkar- staði í Fljótshlíð. Ættin bjó í karl- legg á Barkarstöðum til 1764 og skiptust á nöfnin Erlendur og Eirík- ur. Efni þurru og jörðin deildist við arfskipti. Erlendur Eiríksson flutti nauðugur á kotbýlið Murnavöll und- ir Eyjafjöllum, hjáleigu frá Eyvindarholti. Hann kvað þá vísu þessa: Murnavöll úr býtum bar fyrir Barkarstaða partinn minn og í millum ekki þar, allir sjá þau viðskiptin. Þjóðskáldið sr. Sigurður Einars- son í Holti kunni skil á ætt sinni og vissi sig afkomanda Péturs Erlends- sonar frá Murnavelli. Hann lét þess getið við sveitarhöfðingjann Sigurð Tómasson á Barkarstöðum að gæfa ættar sinnar hefði þorrið er hún varð að hörfa frá Barkarstöðum. Sigurður svaraði og var snöggur upp á lagið: „Að þú skulir láta nokkurn mann heyra þetta, að gæfa ættar sé komin undir nokkrum jarðarhundr- uðum!“ Guðlaug, dóttir Erlends, var móð- ir Valgerðar Tómasdóttur, langa- langömmu minnar, í Varmahlíð. Jón Trausti hefur séð því borgið að Anna og ástir hennar bregða enn birtu á Borg. Hann skýrir örnefnið Paradísarhellir á skynsamlegan hátt: Hjalti hverfur sýnum í sam- félagi, einhver hyggur hann dauðan og kominn í Paradís. Staður mannlífs og menningar Bókarkafli Þegar brim tók að brjóta niður hinn forna bæjarhól Stóru- borgar undir Eyjafjöll- um fylgdist Þórður Tómasson grannt með eyðingunni og bjargaði fjölda gripa sem sjór- inn gróf úr hólnum uns Þjóðminjasafn hóf forn- leifarannsókn á svæð- inu árið 1978. Í bókinni Stóraborg stiklar Þórð- ur á stóru um sögu Stóruborgar, segir frá fjölmörgum gripum sem hann fann í Borg- arhóli og dregur af þeim ályktanir um mannlíf, búskaparhætti og menningarsögu. Ljósmynd/Þórir N. Kjartansson Stóraborg Borgarhóll, bæjarstæðið mikla niðri á sjávarströndinni undir Austur-Eyjafjöllum. Safnstjóri Þórður Tómasson ber á herðum sér kvarnarstokk frá eyðibýlinu Tungunesi í Svínavatnshreppi, A-Hún. Hann er nú ásamt frambænum á byggðasafninu á Reykjum. Myndina tók Þór Magnússon árið 1984.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.