Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 18

Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 ✝ Hannes Pét- ursson fæddist í Reykjavík 30. desember 1947. Hann lést 4. ágúst 2021 á hjúkr- unarheimilinu Mörk í Reykjavík. Foreldrar hans voru Pétur Hann- esson, f. 5.5. 1924, d. 27.8. 2004, og Guðrún Margrét Árnadóttir, f. 24.10. 1926, d. 9.10. 2019. Systkin eru Grétar Vilhelmsson, f. 1943, og Sól- veig Guðrún Pétursdóttir, f. 1952. Eftirlifandi eiginkona Hannesar er Júlíana Sigurð- ardóttir, f. 25.12. 1948, frá Siglufirði. Þau giftu sig 2.9. 1972. Foreldrar Júlíönu voru Sigurður Björnsson, f. 1910, d. 1965, og Kristjana Sigurð- ardóttir, f. 1915, d. 2007. Dæt- ur Hannesar og Júlíönu eru þrjár: 1) Sólveig Guðrún Hann- esdóttir, f. 1973, maki Jónas Páll Jónasson, f.1976. Börn þeirra eru Ís- ar Freyr, f. 2002, Þorgerður Katla, f. 2002, Pétur Þór, f. 2006, Þorlákur Ingi, f. 2013, og Finnur Júlían, f. 2015. 2) Kristín Inga Hannesdóttir, f. 1976, maki Hilm- ar Hauksson, f. 1972. Barn þeirra er Hannes Tryggvi, f. 2012. 3) Þórunn Hannesdóttir, f. 1982, maki Jason Andrew Doyle, f. 1967. Útförin fer fram í Dómkirkj- unni, í dag, 16. ágúst 2021, klukkan 15. Útförinni verður einnig streymt. Slóð á streymi: http://www.sonik.is/hannes Hlekk á streymi má finna á www.mbl.is/andlat/ Minningarorðin um pabba hafa verið lengi í smíðum. Pabbi háði stríð við Alzheimer-sjúk- dóm í tólf ár það minnsta áður en yfir lauk. Minningar týndust, orð hurfu og gáfur gufuðu upp uns allt varð sem þoku hulið. Þessi ömurlegi sjúkdómur rændi okk- ur ástvini smátt og smátt og sorgin yfir missinum hófst löngu áður en að eiginlegri kveðju- stund kom. Yngstu börnin mín muna ekki eftir afa Hannesi án sjúkdómsins og nú síðustu ár hjálparvana og bundnum við hjólastól í Mörk- inni, þar sem hugsað var um hann af einstakri natni og alúð. Við hin erum svo lánsöm að geta minnst hans eins og hann var fyrir veikindin. Nú eru elstu börnin mín 19 ára og ég hugsa til þess þegar ég var á þeirra aldri og var svo heppin að eiga ráða- og úrræðagóðan pabba með meiru sem gat sett sig inn í öll mál og voru mun fleiri en ég sem nutu þess. Pabbi var prófessor í geð- lækningum. Hann var metnaðar- fullur, hóf nám í læknisfræði, fann sig í geðlækningum og fór utan til Englands í doktorsnám. Hann hafði brennandi áhuga á sínu fagi, bæði sem læknir og sem vísindamaður á sviði geð- sjúkdóma. Við nutum þess fjöl- skyldan að búa í Englandi fyrstu ár okkar systra. Á þessum árum urðu miklar framfarir í geð- lækningum og þar kviknaði áhugi hans á akademískum rannsóknum, sem hann smitaði okkur systur af og sjálfsagt marga af þeim læknum, sam- starfsmönnum og nemum sem hann átti samneyti við á langri og afkastamikilli starfsævi. Enda var pabbi kennari og leið- beinandi sem átti auðvelt með að miðla og glæða áhuga á sínu fræðasviði. Fjölskyldubönd voru pabba mjög mikilvæg. Hann var náinn foreldrum sínum og systur. Við ferðuðumst mikið saman, jafnt innan- sem utanlands og nutum þar yfirgripsmikillar þekkingar afa Péturs á landafræði og sam- eiginlegum áhuga þeirra á sögu. Sérstaklega var gaman að ganga með pabba um London þar sem hann var öllum hnútum kunn- ugur. Þau mamma, Sólveig syst- ir hans og Kristinn maður henn- ar áttu líka margt sameiginlegt, ferðuðust mikið saman og nutu samvista. Samband þeirra mömmu var fallegt. Þau kynntust ung í Glaumbæ, hún kát og glöð stúlka frá Sigló að dansa með vinkonu sinni, hann alvarlegur og ábyrgðarfullur eldri bróðir að fylgja systur sinni á ball - eða svona hefur okkur verið sögð sagan og finnst mér hún hljóma sennilega. Mamma og pabbi voru ætíð samhent, ástrík og ein- huga um að veita okkur systrum öryggi, ást og umhyggju. Pabbi var hlýr, skilningsríkur og rétt- sýnn. Hann bar sig af mikilli reisn, en jafnframt hógværð, var alltaf óaðfinnanlega til fara og smekkmaður fram í fingurgóma. Pabbi hafði þægilega nærveru og átti auðvelt með að láta fólki líða vel, hvort sem það var yfir margrétta máltíð á veitingastað í stórborg eða heima með tebolla í garðinum á Kjarrveginum. Und- ir lok ævinnar var pabbi til stað- ar en samt farinn - þegar að endalokum kom fékk þokan þó að líða burt og æðri dagur beið elsku pabba. Ó, blessuð stund, er burtu þokan líður, sem blindar þessi dauðleg augu vor, en æðri dagur, dýrðarskær og blíður, með Drottins ljósi skín á öll vor spor. (Matthías Jochumsson) Sólveig G. Hannesdóttir. Elsku pabbi, það er ekki hægt að koma á blað öllu sem okkur langar að minnast og þakka þér fyrir. Þú varst okkur einstök fyrir- mynd; vinnusamur, sterkur og metnaðarfullur. Þú náðir aðdá- unarverðum árangri í námi og starfi en það er okkur ekki efst í huga þegar við hugsum til þín. Fyrir okkur varstu traustur vin- ur og besti pabbi og afi sem hægt var að hugsa sér. Þú tókst föður- og afahlutverkið alvarlega og gafst aldrei eftir í þeim mál- um. Þú hafðir einstakt lag á að hughreysta og stappa í okkur stálinu þegar á þurfti að halda. Jafnvel þegar þú varst orðinn lasinn tókstu utan um okkur og sagðir að þetta yrði allt í lagi. Þú kenndir okkur að gefast aldrei upp og að vera tilbúnar að vinna hörðum höndum að því sem skiptir okkur máli í lífinu og halda okkar striki. Þú sýndir okkur hógværð og vandaða framkomu og hversu mikilvægt það er að hlúa að fjölskyldunni. Það skipti ekki máli hversu upp- tekinn þú varst við vinnu, þú varst alltaf tilbúinn til að gera allt fyrir okkur. Við eigum ótal góðar minning- ar um okkur saman, eins og spilakvöldin á Kjarrveginum þar sem spilaður var kani í gríð og erg og kvöldin þar sem þú sast með okkur inni í bókaherbergi að hjálpa okkur að lesa fyrir próf. Þú sagðir líka bestu sög- urnar um tröll og drauga á með- an við ferðuðumst um landið á rauða Jeep-jeppanum þínum. Þú varst einstaklega vel les- inn og hafðir brennandi áhuga á mannkynssögu. Við hlógum oft að því saman hvernig þú reyndir ítrekað að fræða okkur stelpurn- ar en með takmörkuðum ár- angri, við virtumst alltaf hafa meiri áhuga á fötum og tísku. Þar af leiðandi breyttust menn- ingarlegar söguferðir þínar iðu- lega í búðarferðir þar sem þú lékst sem þú réðir ekkert við bíl- inn sem beygði skyndilega inn að verslunarmiðstöð sem þú vissir að okkur langaði miklu frekar í. Þar beiðstu þolinmóður eftir okkur á kaffihúsi og samgladdist okkur innilega þegar við komum ljómandi til baka með öll inn- kaupin. Þú og mamma voruð einstak- lega samheldin og góðir vinir. Þið stóðuð þétt saman í öllu sem þið gerðuð og þegar þú veiktist stóð mamma eins og klettur við þína hlið. Jafnvel þegar þú varst kominn með langt genginn Alz- heimers-sjúkdóm ljómaði andlit þitt í hvert skipti sem þú sást mömmu. Þú lifðir fyrir að gleðja mömmu og sást ekki sólina fyrir henni. Sem foreldrar voruð þið einstök fyrirmynd fyrir dætur ykkar og fjölskyldur. Þú tókst á við hvert verkefnið á fætur öðru með jafnaðargeði og baráttuhug. Þú lést ekkert stoppa þig, þetta sýndir þú okk- ur í baráttunni þinni við erfið veikindi fram á síðasta dag. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Bless elsku pabbi, takk fyrir alla ástina og góðu minningarn- ar. Hlýja væntumþykjan í aug- unum þínum, glettna brosið og smitandi hlátur lifir áfram í hjörtum okkar og heldur áfram að hughreysta okkur og hvetja okkur áfram. Þínar dætur og fjölskyldur, Þórunn og Kristín. Í dag kveð ég elskulegan bróður minn, Hannes Pétursson, sem lést 4. ágúst sl. á hjúkrunar- heimilinu Mörkinni eftir lang- vinn veikindi. Minningarnar koma upp í hugann, við Hannes að leika okkur í Stórholtinu, bruna á kassabíl eða tvímenna á nýja reiðhjólinu sem hann keypti fyrir sumarhýruna eftir sveita- dvölina. Heimsóknir til hans á Stóru Tjarnir, Ljósavatni, þar sem Hannes var í sveit öll sumur fram eftir aldri. Unglingsárin, menntaskólaárin, háskólaárin, alltaf var stóri bróðir mér til halds og trausts, vinnusamur ungur maður, búinn ríkum dyggðum og mannkærleika og góð fyrirmynd. Sunnudagskvöld eitt fórum við systkinin saman í Glaumbæ og þar kynntist Hannes sínum lífsförunaut, henni Júlíönu. Þau voru heppin að finna hvort annað og Júlíana var hans trausti bak- hjarl og vinkona mín. Síðar þegar ég kynntist mín- um manni, Kristni, sem nú er látinn, þá urðu þeir mágarnir góðir vinir, höfðu ríkulegan húmor og hlógu mikið saman. Við fórum í margar skemmtileg- ar ferðir með þeim hjónum, bæði á skíði og í golf. Klettafjöllin, Flórída og London voru í sér- stöku uppáhaldi. Fjölskyldur okkar voru mjög samrýmdar og börnin okkar miklir vinir. Foreldrar okkar Hannesar voru tíðir gestir á okk- ar heimilum, aðstoðuðu eins og þeim einum var lagið en voru líka með í ferðum. Hannes og Júlíana ferðuðust með þeim á framandi staði og óku vítt og breitt um Bandaríkin og Evrópu, m.a. á heimaslóðir Hannesar þar sem hann var skiptinemi. Hann var mikill Sjálfstæðis- maður, eins og svo margir í minni fjölskyldu, og vann að ýmsum málaflokkum í þágu sjálfstæðisstefnunnar. Þegar Hannes lauk lækna- námi hér heima þá fór hann til Bretlands í sérnám og bjuggu þau Júlíana þar í nokkur ár, fyrir utan London. Þangað var gaman að heimsækja þau og þar eign- uðust þau góða vini. Það er skemmtilegt að segja frá því, að tengdafjölskylda mín lét ekki sitt eftir liggja þegar þau heim- sóttu London en þá var fátækum námsmönnunum ætíð boðið á góða veitingastaði og var það ákaflega vel þegið. Hannes var alla tíð nátengdur Bretlandi og átti þar hluta af sín- um starfsferli. Hann var virkur í alþjóðlegu starfi í heilbrigðis- málum og var sýndur margvís- legur heiður. Síðast en ekki síst var hann mjög öflugur í starfi í þágu geðheilbrigðismála á Ís- landi og náði þar góðum árangri enda trúað fyrir áhrifastöðum. Hann var hógvær maður en framsækinn og lagði sig fram um að láta gott af sér leiða. Það er alltaf sárt að kveðja en það er gott að eiga fallegar minningar. Ég veit að þær munu styrkja Júlíönu og dæturnar þrjár, Sólveigu, Kristínu og Þór- unni, tengdasyni og barnabörnin á þessum erfiðu tímum. Þau hugsuðu svo vel um bróður minn í hans veikindum, ekki síst mág- kona mín, sem var eins og klett- ur við hlið hans. Ég votta ykkur innilega samúð mína, fjölskyld- unni sem hann bróðir minn var svo stoltur af. Hannes naut góðrar umönn- unar starfsfólks á Mörkinni og færi ég þeim bestu þakkir. Hvíl í friði, elsku bróðir minn, minning þín mun ætíð lifa í huga mér. Sólveig Pétursdóttir. Fallinn er frá góður og mætur maður, Hannes Pétursson móðurbróðir minn. Hann og mamma voru einstaklega góðir og nánir vinir og með fjölskyld- um okkar hefur alla tíð verið mikill samgangur. Það var ávallt gaman var að koma í heimsókn til Hannesar og Júlíönu, konu hans, og var tekið vel á móti manni. Hann sýndi því áhuga sem maður var að gera og spurði frétta. Hannes hafði afskaplega þægilega og góða nærveru. Hann var fróður og vel lesinn, ekki kom maður að tómum kof- anum í samtölum við hann. Hannes var veraldarvanur eftir að hafa búið í Englandi sem námsmaður og við vinnu. Hann var alltaf vel til fara, lagði mikið upp úr því og var snyrtimenni. Þegar ég fór á mín fyrstu skóla- böll í Verzlunarskólanum þá leit- aði ég til hans með stuttum fyr- irvara og fékk hjá honum skyrtur og jakkaföt, vel var tekið á móti manni. Hannes var mikill húmoristi þegar sá gállinn var á honum og oft mikið hlegið þegar fjölskyld- urnar hittust. Hann var jafnvíg- ur á fimmaurabrandara og þá sem eru meira úthugsaðir, hann og pabbi náðu vel saman á þessu sviði. Á heimili hans og Júlíönu var enn fremur til úrval af sígild- um grínmyndum og á ég góðar minningar um það að horfa á góða grínmynd og hlæja dátt á Kjarrveginum þegar ég var yngri. Hannes var góðhjartaður og ég er þakklátur fyrir að hafa átt eins traustan og skemmtilegan frænda og hann í lífi mínu. Ég á margar fallegar minningar um hann og þær mun ég ætíð varð- veita. Blessuð sé minning Hann- esar frænda. Björn Hallgrímur Kristinsson. Elsku Hannes frændi minn er látinn eftir erfið veikindi. Ég á margar góðar minningar um hann og var eins og heimalning- ur inni á heimili hans og Júllu og dætur þeirra, Þórunn, Kristín og Solla, voru mér sem systur. Ég og Þórunn lékum sérstaklega mikið saman enda næstar í aldri. Ég var því oft tekin með í ferða- lög og ég man sérstaklega eftir sumarhúsaferðum upp í Munað- arnes og að Hannes reyndi að hræða okkur með sögum af draugum og tröllum. Hann hafði alltaf tíma til að leika við okkur, hvort sem það var að draga okk- ur á snjóþotum um vetur eða fara í minigolf og svo ís í Baulu um sumar. Hannes frændi minn var skemmtilegur og hafði mik- inn húmor, ég man sérstaklega eftir því þegar hann reyndi að sannfæra okkur Þórunni um að hann hefði einu sinni fengið svo stóran marblett að hann þakti allan líkama hans og þurfti hann að geyma afganginn í skjala- tösku! Á fullorðinsárum hafði ég sér- staklega gaman af sambandi okkar Hannesar. Ég ferðaðist mikið með foreldrum mínum og hans fjölskyldu og á ég margar góðar minningar frá Flórída, Aspen og London. Í Flórída minnist ég þess þegar hann og afi Pétur sáu alltaf um að smyrja handa okkur samlokur í hádeg- ismat og koma með niður á strönd, jafnvel færa okkur Moggann. Við spiluðum golf saman, fórum á skíði og gerðum margt skemmtilegt. Í Aspen man ég það þegar hann kenndi mér allt um Bordeaux-vínin og hvaða þrúgur eru notaðar í hvaða vín. Hannes var ákaflega fróður maður og vel að sér á mörgum sviðum og það var gam- an að nema af honum. Við áttum einnig mjög góðar stundir saman í London, við fjölskyldurnar, og hafði ég sérstaklega gaman af því hvað Hannes þekkti sögu Bretlands vel. Við áttum mörg góð samtöl þar sem hann fræddi mig og sérstaklega er mér það minnisstætt þegar hann fór með okkur í Churchill’s War Room Museum og svo í „fish & chips“ eftir á. Hannes frændi var alveg ein- staklega klár, skemmtilegur og góðhjartaður maður. Ég mun sakna hans mjög mikið en góðar minningar eru gulls ígildi. Júllu, Sollu, Kristínu, Þórunni minni og fjölskyldunni allri, sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Emilía Sjöfn Kristinsdóttir. Stór hópur vonglaðra stúd- enta hóf nám við læknadeild Há- skóla Íslands haustið 1968. Eftir mikil afföll og fækkun í hópnum voru liðlega 30 kandidatar út- skrifaðir sjö árum síðar. Náms- árin einkenndust af löngum set- um yfir misskemmtilegum bókum og vinnu á hinum ýmsu deildum innan heilbrigðiskerfis- ins. Mikil nánd og vinátta skap- aðist innan hópsins sem hefur haldist alla tíð. Í dag kveðjum við góðan fé- laga, Hannes Pétursson prófess- or, við læknadeild HÍ. Hann var metnaðarfullur og marksækinn og vissi alltaf hvað hann vildi. Mikill áhugi á geðsjúkdómum leiddi hann í sérnám í greininni og síðan til mikilla metorða í há- skólasamfélaginu. Hannes stóð að merkilegum rannsóknum um geðklofa sem víða var vitnað til. Þegar hefðbundnu sérnámi lauk tók Hannes að sér stjórn- unarstörf við geðdeild Borgar- spítala og síðan við Landspítal- ann og bar alltaf hag stofnunarinnar sér fyrir brjósti. Hann var í fararbroddi þeirra mörgu starfsmanna Borgarspít- alans sem mótmæltu því að ríkið tæki yfir rekstur spítalans af Reykjavíkurborg. Ýmsir eru enn samsinna Hannesi. Hannes naut lífsins til fulls með eiginkonu sinni, Júlíönu Sigurðardóttur. Þau bjuggu sér og dætrum sínum fagurt og list- rænt heimili. Hannes leiddi okk- ur félagana í ógleymanlegar ferðir um Skotland og London þar sem ítarlegar rannsóknir voru gerðar á skosku maltviskíi og ævisögu Churchills. Hannes kynntist ungur kjörum geð- sjúkra þegar hann starfaði með Tenglum á sjöunda áratugnum. Hann gleymdi aldrei þeirri reynslu og barðist af alefli fyrir bættum hag þessa hóps. Fyrir hönd samstúdenta Hannesar í útskriftarárgangnum sendum við ættingjum hans hugheilar samúðarkveðjur. Óttar Guðmundsson og Sigurður Guðmundsson. Sumarið 1964 hélt hópur ung- menna vestur um haf til ársdval- ar sem skiptinemar á vegum Þjóðkirkjunnar. Þeirra á meðal var dr. Hannes Pétursson sem kvaddur er í dag. Okkur þremur hafði verið úthlutað heimilum á svipuðum slóðum í Wash- ingtonríki á vesturströndinni. Á þessu ári knýttust vinabönd sem síðan héldu og báru, traust og hlý. Við dáðum Hannes fyrir húmorinn og hlýjuna og einstak- lega praktíska hugsun, hagsýni og veraldarvit sem hann hafði sannarlega fram yfir okkur draumóramennina. Hannes var alveg ótrúlegur vinnuþjarkur. Á skólaárunum vann hann langa vinnudaga og -nætur í hreinsun- ardeild borgarinnar, stýrði götu- Hannes Pétursson Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN INDRIÐADÓTTIR, Jöklafold 29, lést heima í faðmi fjölskyldunar fimmtudaginn 5. ágúst. Bálförin fer fram frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn 17. ágúst klukkan 13 og verður streymt. Jón Ágúst Sigurjónsson Bjarki Rafn Jónsson Vala Sif Jónsdóttir Sindri Freyr Jónsson Noémie Gutleben Vera Björk Jónsdóttir Þórður Ásþórsson og barnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi, SIGURÐUR H. EIRÍKSSON, Strandgötu 6, Hvammstanga, lést á Sjúkrahúsinu á Hvammstanga þriðjudaginn 10. ágúst. Útför hans fer fram frá Hvammstangakirkju miðvikudaginn 18. ágúst kl. 14. Athöfninni verður streymt á https://youtu.be/CJna7CpZSwM og útvarpað á FM 106,5 á Hvammstanga. Ingibjörg Pálsdóttir Oddur Sigurðarson Skúli Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.