Morgunblaðið - 16.08.2021, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021
Pepsi Max-deild karla
KA – Stjarnan........................................... 2:1
FH – Leiknir R......................................... 5:0
Valur – Keflavík........................................ 2:1
Staðan:
Valur 17 11 3 3 28:15 36
KA 16 9 3 4 25:13 30
Víkingur R. 16 8 6 2 24:18 30
Breiðablik 15 9 2 4 36:19 29
KR 16 7 5 4 25:16 26
FH 16 6 4 6 26:22 22
Leiknir R. 17 6 3 8 16:24 21
Keflavík 16 5 2 9 20:27 17
Stjarnan 17 4 4 9 20:28 16
Fylkir 16 3 7 6 18:26 16
HK 16 3 4 9 19:32 13
ÍA 16 3 3 10 17:34 12
Lengjudeild karla
Vestri – Fram ........................................... 0:1
Fjölnir – Afturelding................................ 3:0
Þór – Víkingur Ó....................................... 0:2
Kórdrengir – ÍBV..................................... 0:1
Staðan:
Fram 16 14 2 0 42:10 44
ÍBV 16 11 2 3 30:13 35
Kórdrengir 15 8 4 3 24:16 28
Fjölnir 16 8 2 6 22:18 26
Vestri 16 8 1 7 25:29 25
Grótta 16 7 2 7 32:30 23
Grindavík 16 5 5 6 29:33 20
Þór 16 5 4 7 29:28 19
Afturelding 16 5 4 7 30:31 19
Selfoss 16 4 3 9 25:36 15
Þróttur R. 16 3 1 12 26:38 10
Víkingur Ó. 15 1 2 12 17:49 5
2. deild karla
KV – ÍR ..................................................... 0:2
Völsungur – Reynir S............................... 4:1
Kári – Leiknir F. ...................................... 2:2
Njarðvík – Fjarðabyggð .......................... 5:0
Þróttur V. – KF ........................................ 2:1
Magni – Haukar........................................ 2:0
Staðan:
Þróttur V. 16 10 5 1 33:13 35
Völsungur 16 9 3 4 37:28 30
KV 16 8 4 4 30:22 28
Njarðvík 16 6 8 2 35:18 26
KF 16 7 4 5 30:24 25
Magni 16 6 6 4 32:29 24
ÍR 16 5 7 4 26:22 22
Reynir S. 16 5 5 6 30:32 20
Haukar 16 5 4 7 30:30 19
Leiknir F. 16 4 3 9 22:38 15
Kári 16 1 6 9 23:37 9
Fjarðabyggð 16 0 5 11 8:43 5
3. deild karla
Einherji – Augnablik ............................... 5:2
Höttur/Huginn – Víðir ............................. 0:1
Ægir – Sindri ............................................ 2:3
Lengjudeild kvenna
Víkingur R. – Augnablik...........................2:1
Staðan:
FH 14 10 2 2 35:11 32
Afturelding 14 9 4 1 39:15 31
KR 14 9 3 2 36:20 30
Víkingur R. 14 6 4 4 25:23 22
Grindavík 14 3 6 5 21:25 15
Haukar 14 4 3 7 20:27 15
Grótta 14 4 1 9 19:33 13
HK 12 3 3 6 16:27 12
ÍA 13 3 2 8 12:28 11
Augnablik 13 2 2 9 18:32 8
2. deild kvenna
Einherji – Fj/Hö/Le................................. 1:1
Þýskaland
Augsburg – Hofenheim........................... 0:4
- Alfreð Finnbogason lék ekki með Augs-
burg vegna meiðsla.
B-deild:
Holstein Kiel – Jahn Regensburg.......... 0:3
- Hólmbert Aron Friðjónsson lék seinni
hálfleikinn með Holstein Kiel.
Ítalía
Bikarkeppni, 2. umferð:
Cagliari – Pisa.......................................... 3:1
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Pisa.
Parma – Lecce ......................................... 1:3
- Þórir Jóhann Helgason kom inn á hjá
Lecce á 60. mínútu en Brynjar Ingi Bjarna-
son var ónotaður varamaður.
Venezia – Frosinone................................ 0:0
- Arnór Sigurðsson kom inn á sem vara-
maður á 55. mínútu hjá Venezia og skoraði í
vítakeppninni sem Venezia vann 8:7.
Holland
Waalwijk – AZ Alkmaar ......................... 1:0
- Albert Guðmundsson lék fyrstu 80 mín-
úturnar með AZ.
Bandaríkin
Orlando Pride – Portland Thorns ......... 1:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando.
Houston Dash – Washington Spirit ....... 2:2
- Andrea Rán Hauksdóttir var ekki í leik-
mannahópi Houston.
Toronto – New England Revolution ..... 1:2
- Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 76
mínúturnar með New England.
New York City – Inter Miami ................ 2:0
- Guðmundur Þórarinsson lék síðari hálf-
leikinn með New York.
CF Montréal – New York Red Bulls...... 2:1
- Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leik-
mannahópi Montréal.
50$99(/:+0$
FÓTBOLTINN
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Íslandsmeistarar Vals hristu af sér slen-
ið eftir tap gegn nýliðum Leiknis í síð-
ustu umferð og unnu hina nýliðana,
Keflavík, í Pepsi Max-deild karla í knatt-
spyrnu í gær. Valsmenn voru ákveðnir í
sínum aðgerðum og náðu forskoti, 2:0,
áður en Keflvíkingar minnkuðu muninn.
„Valsmenn voru virkilega sprækir í
fyrri hálfleik og það tók þá aðeins níu
mínútur að skora fyrsta markið,“ skrifaði
Þór Bæring Ólafsson meðal annars í um-
fjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Heimir
Guðjónsson, þjálfari Vals, var hinn
ánægðasti með spilamennskuna.
„Við vorum að spila mjög góðan fót-
bolta og opnuðum þá oft á tíðum og feng-
um þessa stöðu sem við vildum og töl-
uðum um fyrir leikinn. Það vantaði var
bara að koma inn þessu þriðja marki og
klára leikinn. Við fengum góða mögu-
leika, en síðasta sending var oft að
klikka, en engu að síður jákvæð frammi-
staða,“ sagði Heimir í samtali við Þór
Bæring.
Valur er nú með sex stiga forskot á
KA og Víking sem eiga þó leik til góða.
Breiðablik er sjö stigum á eftir Val og á
tvo leiki til góða.
_ Sigurður Egill Lárusson skoraði
bæði mörk Vals í leiknum og hefur þá
skorað fimm mörk í deildinni á þessari
leiktíð.
KA í 2. sæti
Sumarið heldur áfram að vera gott
fyrir KA-menn hvort sem horft er til veð-
urfarsins í höfuðstað Norðurlands eða
stigasöfnunar í deildinni. KA hafði betur
gegn Stjörnunni 2:1 en sigurmarkið kom
ekki fyrr en um tíu mínútur voru eftir.
Skoraði þá Mikkel Qvist með skalla.
„KA má vel við una með þennan sigur
og liðið er komið í 2. sæti deildarinnar.
Liðið var ekki að spila neitt sérlega vel
en náði sér þó í öll stigin. Stjörnumenn
áttu skilið að fá eitthvað út úr leiknum en
eins og svo oft í sumar þá uppskáru þeir
ekkert,“ skrifaði Einar Sigtryggsson
meðal annars í umfjöllun sinni um leikinn
á mbl.is.
_ Dusan Brkovic hjá KA og Eyjólfur
Héðinsson hjá Stjörnunni fengu báðir
brottvísun á lokamínútunum og eru á leið
í leikbann.
FH-ingar skoruðu fimm
FH hrökk í gang í gær eftir slæmt
gengi en liðið féll á dögunum út úr bik-
arkeppninni ofan á annað. FH burstaði
Leikni 5:0 í Kaplakrika og það skyldi þó
aldrei vera að gamli refurinn Ólafur Jó-
hannesson verði fljótur að ná tökum á
liðinu.
„Með sigrinum fara FH-ingar upp fyr-
ir Leikni og í 6. sætið þar sem þeir hafa
nú 22 stig. Líklega hafa þeir kvatt fall-
drauginn endanlega nú. Leiknir á leik til
góða, með 21 stig í 7. sæti en hefur enn
ekki unnið útileik í sumar, gert tvö jafn-
tefli og tapað sex,“ skrifaði Kristófer
Kristjánsson m.a. í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
Valur fann taktinn á ný
- Sex stiga forskot Íslandsmeistaranna - Næstu lið eiga leiki til góða - Stiga-
söfnunin heldur áfram í hitabeltinu í Eyjafirðinum - FH-ingar hrukku í gang
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
Fögnuður Sigurður Egill
Lárusson fagnar marki á
Hlíðarenda í gær en hann
sá um að skora mörkin.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Akureyri Mikkel Qvist
og Oliver Haurits í
skallaeinvígi í gær.
_ Knattspyrnumaðurinn Sveinn Aron
Guðjohnsen samdi á laugardag við
sænska félagið Elfsborg frá Spezia á
Ítalíu. Hann var að láni hjá OB í Dan-
mörku á síðustu leiktíð. Sveinn skoraði
eitt mark í þrettán leikjum með OB á
síðustu leiktíð og tvö mörk í 23 leikjum
með Spezia í B-deild Ítalíu, en liðið
leikur nú í A-deildinni.
_ Enska knattspyrnufélagið Man-
chester United hefur gengið frá kaup-
um á franska varnarmanninum Rapha-
el Varane frá Real Madrid. Kaupverðið
er um 50 milljónir punda. Varane var
kynntur til leiks hjá United fyrir leikinn
gegn Leeds í 1. umferð ensku úrvals-
deildarinnar við mikinn fögnuð áhorf-
enda.
_ Barcelona hafði betur gegn Real So-
ciedad, 4:2, í 1. umferð í spænsku 1.
deildinni í fótbolta í gærkvöldi. Leik-
urinn var sá fyrsti sem Barcelona spil-
ar í deildinni eftir að Lionel Messi yf-
irgaf félagið og fór til París SG. Danski
framherjinn Martin Braithwaite skor-
aði tvö mörk fyrir Barcelona.
_ Íslenska U17 ára landslið kvenna í
handbolta hafnaði í öðru sæti í B-deild
Evrópumótsins í Litháen í gær eftir
naumt 26:27-tap fyrir Norður-
Makedóníu í úr-
slitum. Ísland
vann glæsilegan
32:31-sigur á
Spánverjum í
undanúrslitum á
laugardag. Elín
Klara Þorkels-
dóttir, Elísa Elías-
dóttir og Lilja
Ágústsdóttir skoruðu fjögur mörk
hver fyrir Ísland í úrslitaleiknum og
Katrín Anna Ásmundsdóttir og Tinna
Sigurrós Traustadóttir gerðu þrjú
mörk hvor.
_ Handknattleiksdeild Gróttu hefur
samið við Japanann Akimasa Abe um
að leika með liðinu á næstu leiktíð.
Abe er rétthent skytta, 185 sentímetr-
ar á hæð, en hann
kemur frá félaginu
Wakunaga Leolic í
heimalandinu.
Saturo Goto var að
láni hjá Gróttu á
síðustu leiktíð en
hann kom einmitt
frá sama félagi.
_ Íslenska U19 ára landslið karla í
handknattleik leikur til fjórðungs-
úrslita á Evrópumótinu í Króatíu en
það varð öruggt eftir 31:30-sigur á
Serbum í lokaumferð A-riðils keppn-
innar í gær. Serbar voru marki yfir í
hálfleik, 13:14, en leikurinn var hnífjafn
lengst af. Guðmundur Bragi Ástþórs-
son og Andri Már Rúnarsson skoruðu
sex mörk hvor um sig fyrir íslenska
Eitt
ogannað
KA – STJARNAN 2:1
1:0 Ásgeir Sigurgeirsson 29.
1:1 Hilmar Árni Halldórsson 53.
2:1 Mikkel Qvist 81.
M
Steinþór Már Auðunsson (KA)
Mikkel Qvist (KA)
Rodrigo Gomes Mateo (KA)
Sebastiaan Brebels (KA)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Heiðar Ægisson (Stjörnunni)
Magnus Anbo Clausen (Stjörnunni)
Þorsteinn M. Ragnarsson (Stjörnunni)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Þorvaldur Árnason – 6.
Áhorfendur: Ekki gefið upp.
FH – LEIKNIR R. 5:0
1:0 Steven Lennon 44.
2:0 Matthías Vilhjálmsson 55.
3:0 Pétur Viðarsson 62.
4:0 Morten Beck Guldsmed 81.
5:0 Oliver Heiðarsson 89.
MM
Jónatan Ingi Jónsson (FH)
M
Baldur Logi Guðlaugsson (FH)
Guðmann Þórisson (FH)
Logi Hrafn Róbertsson (FH)
Matthías Vilhjálmsson (FH)
Pétur Viðarsson (FH)
Steven Lennon (FH)
Andrés Manga Escobar (Leikni)
Hjalti Sigurðsson (Leikni)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson – 7.
Áhorfendur: 399.
VALUR – KEFLAVÍK 2:1
1:0 Sigurður Egill Lárusson 9.
2:0 Sigurður Egill Lárusson 30.
2:1 Ástbjörn Þórðarson 50.
M
Orri Sigurður Ómarsson (Val)
Birkir Már Sævarsson (Val)
Birkir Heimisson (Val)
Kristinn Freyr Sigurðsson (Val)
Sigurður Egill Lárusson (Val)
Patrick Pedersen (Val)
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Christian Volesky (Keflavík)
Rautt spjald: Engin.
Dómari: Vilhjálmur Þórarinsson – 7.
Áhorfendur: 412.
_ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl
og greinar um leikina – sjá mbl.is/
sport/fotbolti.