Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 16.08.2021, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. ÁGÚST 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI 96% THERE’S A LITTLE HERO INSIDE US ALL RYAN REYNOLDS – JODIE COMER – TAIKA WAITITI GEGGJUÐ NÝ GRÍNMYND DWAYNE JOHNSON EMILY BLUNT T itill bókar getur verið mis- vísandi og ljóðabók af ein- hverju tagi kemur fyrst upp í hugann við fyrstu sýn bókarinnar Heyrðu mig hvísla eftir Mons Kallentoft. Og mikið rétt. Textinn er heldur betur ljóð- rænn, rennur eins og vatn í glitr- andi á, en efnið er ógeðsleg harm- saga, lýsing á spillingu, græðgi og svikum á kostnað saklauss fólks. Frábærlega skrifuð glæpasaga, vel ígrunduð og spennandi. Fátt er viðbjóðslegra en mansal á börnum og unglingum og vonlaust er að setja sig í spor aðstandenda þeirra sem verða fyrir barðinu á glæpamönnunum. Í flestum tilfell- um eru þeir væntanlega ráðþrota, en stanslaus barátta bresku hjón- anna Kate og Gerry McCann til að endurheimta dóttur sína Madeleine, sem var rænt í Portúgal vorið 2007, er eflaust mörgum til eftirbreytni. Þau hafa aldrei gefist upp og halda í vonina, rétt eins og Tim Blanck, lögreglumaðurinn fyrrverandi og helsta persónan í umræddri bók. Emme, dóttir Tims og Rebecku, skurðlæknis í Stokkhólmi, var 16 ára þegar hún hvarf á Mallorca fyrir fimm ár- um. Hjónin eignuðust aðra dóttur, Maiu, fyrir um einu og hálfu ári, en hún kemur ekki í staðinn fyrir frumburðinn. Hjá Tim kemst ekkert annað að en að finna ungu stúlkuna og því er hann mættur á upphafsreit til þess að afla frekari gagna. Hann gefst ekki upp hvað sem það kostar. Lesandi getur varla annað en sett sig í sport fjölskyldunnar við lesturinn. Raddir þeirra og hugs- anir kallast stöðugt á. Þar sem er hvísl þar er von, en vandinn er að finna þetta líf, finna fyrir því, þreifa á því, sameinast því. Ganga má út frá því að eitthvað gott búi í öllu fólki, jafnvel harðsvíruðustu glæpamönnum, og vonin felst í því að trúa á það góða með bjartsýni að leið- arljósi en festast ekki í far- vegi illsku og vonleysis. Leit Tims kostar miklar fórnir. Hann er tilbúinn að borga hvað sem er fyrir upplýsingar, allt sem kem- ur að gagni til þess að finna Emme. Hann þarf að leita til glæpamanna, spilltra embættismanna, fórnar- lamba, leggja líf sitt í hættu. Allt fyrir Emme. Fjölskyldur annarra í sömu sporum hafa splundrast og hann fjarlægist Rebecku og Maiu, en þegar á reynir er það fjöl- skyldan sem skiptir öllu máli, hún stendur saman, hvað sem á bjátar. Stríð eiga sér almennt ekki margar bjartar hliðar, en Mons Kallentoft setur þessa baráttu í þannig búning að ekki er annað hægt en að heillast; fegurðin í far- veginum er slík að ástæða er til að ætla að betri heimur sé fram und- an. Að minnsta kosti í einhverri búblu. Ljóðrænn Textinn er heldur betur ljóðrænn, rennur eins og vatn í glitrandi á, segir rýnir um Heyrðu mig hvísla eftir Svíann Mons Kallentoft. Von um frjálsan og betri heim Glæpasaga Heyrðu mig hvísla bbbbm Eftir Mons Kallentoft. Jón Þ. Þór íslenskaði. Kilja. 392 bls. Ugla 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Söngkonunni Dolly Parton er margt til lista lagt. Nú herma fregnir The Guardian að hún muni gefa út skáldsögu næsta vor. Part- on skrifar bókina, sem verður gefin út hjá Penguin Random House næsta vor, í samvinnu við metsölu- höfundinn James Patterson. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Patterson vinnur að skáldsögu með frægum Bandaríkjamanni því þeir Bill Clinton gáfu út The President Is Missing árið 2018. Skáldsagan, sem mun bera tit- ilinn Run, Rose, Run, fjallar um unga konu sem flytur til Nashville í von um að láta draum sinn um frama innan tónlistargeirans verða að veruleika. Samhliða útgáfu skáldsögunnar mun Parton gefa út tólf ný lög. Þau eru að sögn söng- konunnar byggð á persónum í bók- inni og þeim aðstæðum sem koma upp þar. Textana verður að finna á síðum bókarinnar. Dolly Parton gerist skáldsagnahöfundur AFP Rithöfundur Mikill kraftur er í Dolly Par- ton. Nú gefur hún út bók. Katrín Halldóra Sigurðardóttir, leik- og söngkona, vinnur nú að út- gáfu á sólóplötu sem gefin verður út í október og fara upptökur fram í dag og á morgun, 16. og 17. ágúst, í Stúdíói Sýrlandi. Á plötunni syngur Katrín Hall- dóra lög Jóns Múla í nýjum útsetn- ingum eftir Hauk Gröndal og hófst samstarf þeirra á Jazzhátíð Reykja- víkur fyrir þremur árum þar sem flest laganna voru útsett og flutt á tónleikum. Hafa nú nokkur lög bæst við og var því ákveðið að loka hringnum og gefa þau út á plötu í til- efni þess að Jón Múli hefði orðið 100 ára í ár. Segir Katrín Halldóra að þetta sé því í raun heiðursplata. Lög Jóns Múla við texta bróður hans, Jónasar Árnasonar, eru í sér- stöku uppáhaldi hjá Katrínu Hall- dóru, lög úr vinsælum leiksýningum sem hún segir Jón Múla hafa kallað söngdansa og eru mörg hver orðin ein þekktustu dægurlög þjóð- arinnar. Segist Katrín hafa sungið þau frá því hún man eftir sér. Páll Óskar Hjálmtýsson syngur með henni tvo dúetta á plötunni en þau hafa áður sungið saman. Hljómsveit- ina sem leikur á plötunni skipa Ás- geir J. Ásgeirsson gítarleikari, Birg- ir Steinn Theódórsson bassaleikari, Eric Quick trommuleikari, Haukur Gröndal sem leiur á saxófóna og klarínett, Hjörtur Ingvi Jóhannsson píanóleikari, Ólafur Jónsson á saxó- fóna og klarínett og trompetleik- arinn Snorri Sigurðsson. Katrín syngur lög Jóns Múla Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Söngelsk Katrín Halldóra. - Sólóplata væntanleg í október

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.