Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
b
á
f
i
595 1000
Tenerife
rð
ge
tu
rb
8. september í 7 nætur
Verð frá kr.
52.200
Verð frá kr.
63.400
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum,
Íris Róbertsdóttir, hefur óskað eftir
fundi með samgönguráðherra og
stjórnendum Vegagerðarinnar
vegna þeirrar ákvörðunar Icelanda-
ir að hætta áætlunarflugi til og frá
Vestmannaeyjum eftir nk. þriðju-
dag. „Við teljum mikilvægt að í sam-
göngum til og frá Eyjum séu bæði
ferja og flug. Því er mjög miður að
forsvarsmenn Icelandair hafi ákveð-
ið að hætta flugi hingað. Ég tel það
vera á ábyrgð ríkisins að tryggja
eðlilega og góðar samgöngur milli
lands og Eyja,“ segir Íris bæjar-
stjóri í samtali við Morgunblaðið.
Bjuggust við að heimamenn
nýttu sér þjónustuna meira
Icelandair flýgur skv. áætlun til
Vestmannaeyja í dag og á morgun,
en þá verður punktur settur á síð-
asta degi ágústmánaðar. Félagið hóf
flug til Eyja rétt fyrir jól í fyrra.
Kom þá í stað Ernis sem hafði flogið
á þessari leið um nokkurn tíma en
taldi ekki grundvöll fyrir áfram-
haldi. Sama er uppi á teningnum nú.
Þegar best lét í sumar voru Eyja-
ferðir Icelandair átta í viku hverri
og en hafa verið fimm nú í ágúst.
„Við sáum fram á að eftirspurn
stæði ekki undir flugi til Vest-
mannaeyja í september. Ákváðum
því að ljúka sumaráætlun okkar
mánuði fyrr en áformað var, í lok
ágúst í stað september. Flugið gekk
ágætlega í sumar en við höfðum þó
væntingar um meiri eftirspurn og
teljum að margir samverkandi þætt-
ir hafi haft þar áhrif. Við bjuggumst
til dæmis við að heimamenn í Eyjum
nýttu sér þjónustuna í meira mæli í
sumar en raunin varð,“ sagði Ásdís
Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi
Icelandair, í samtali við Morgun-
blaðið í gærdag.
Vegna áhrifa Covid tók ferðaþjón-
ustan seinna við sér í sumar en
vænst var sem hafði áhrif á Eyja-
flugið, segir Ásdís Ýr og bætir við:
„Þá settu breytilegar ferðatakmark-
anir og samkomureglur strik í
reikninginn. Vegna veðurblíðu fyrir
norðan og austan, lá straumur inn-
lendra farþega að miklu leyti þang-
að en ekki til Eyja. Við höfum ekki
tekið ákvörðun um Eyjaflug næsta
sumar. Almennt til lengri tíma litið
sjáum við þó tækifæri í Vestmanna-
eyjum sem áfangastað, bæði fyrir
innlenda og erlenda ferðamenn.“
Breyttur veruleiki
Íris Róbertsdóttir segir að Ice-
landair hafi á sínum tíma gefið út að
flogið yrði til og frá Eyjum út sept-
ember. Framhald ferða á forsendum
markaðarins yrði síðan skoðað. Nú
blasi hins vegar nýr veruleiki við og
þá þurfi að bregðast við aðstæðum,
eins og reifað verði við ráðherra og
aðra sem áhrif geta haft.
„Við Vestmanneyingar getum
ekki sætt okkur við að ekkert áætl-
unarflug sé til Eyja,“ segir bæjar-
stjórinn.
Icelandair hættir fluginu til Eyja
Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson
Samgöngur Icelandair hóf Eyjaflug í desember á sl. ári. Ekki reyndist
grundvöllur til að halda fluginu áfram og lokalendingin er á morgun.
Íris
Róbertsdóttir
Ásdís Ýr
Pétursdóttir
- Síðasta flugferðin er á morgun - Höfðu væntingar um fleiri farþega- Mikilvægt að hafa bæði ferju og
flugferðir, segir bæjarstjóri - Á ábyrgð ríkisins að tryggja eðlilegar samgöngur - Ræða við ráðherra
Góðmennt var á Árbæjarsafni í gær
þegar 100 ára afmæli skála skátafé-
lagsins Væringja var minnst. Húsið
var í Lækjarbotnum ofan við
Reykjavík, reist 1921 en tekið ofan
áratugum síðar. Var svo endurreist
í Árbæjarsafni árið 1991 og er stað-
arprýði þar. Guðni Th. Jóhannes-
son, forseti Íslands, og Þórdís Lóa
Þórhallsdóttir, formaður borgar-
ráðs, voru meðal gesta í Árbæ í gær
og fluttu þar ávörp. Þau gengu svo í
bæinn og í skálanum fékk forsetinn
að heyra mergjaðar sögur af
draugnum Hallberu sem þarna er
sögð á sveimi.
Rúsínan í pylsuendanum í gær
var svo söngur Skátakórsins, sem
tók slagara og vel þekkta varðelda-
söngva. Söngfólkið var allt með
skátaklúta um háls og klætt í lopa-
peysur og á eftir var boðið upp á
kakó og kleinur. Má því segja að yf-
irbragð samkomunnar hafi verið
afar þjóðlegt. sbs@mbl.is
Sungið við
skátaskála
Morgunblaðið/Sigurður Unnar Ragnarsson
Afmælishátíð í Árbæjarsafni í áliðnum ágústmánuði
Oddur Þórðarsson
oddurth@mbl.is
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur til rannsóknar andlát konu á
sextugsaldri sem lést á geðdeild á
Landspítala fyrr í mánuðinum. Tal-
ið er að andlátið hafi borið að með
saknæmum hætti.
Margeir Sveinsson, aðstoðaryfir-
lögregluþjónn miðlægrar rannsókn-
ardeildar lögreglu, segir að krufn-
ingu sé lokið en niðurstöðu hennar
sé enn beðið. Að öðru leyti vildi
hann ekki tjá sig.
Spítalinn tjáir sig ekki
Í tilkynningu frá Landspítala
segir að hvorki starfsmenn spít-
alans né stjórnendur hans muni tjá
sig um málið á meðan það er til
rannsóknar lögreglu. Þar að auki
segir að embætti landlæknis hafi
tilkynnt um málið til lögreglu, eins
og lög kveða á um að sé gert þegar
„óvænt andlát“ beri að. Lögregla
segir að rannsókn málsins gangi
vel, en þann 25. ágúst var kona á
sextugsaldri úrskurðuð í vikulangt
gæsluvarðhald á grundvelli rann-
sóknarhagsmuna.
Óvænt andlát á geðdeild
- Líklega borið að með saknæmum hætti - Krufningu lokið
en niðurstöðu beðið - Kona á sextugsaldri í gæsluvarðhaldi
Morgunblaðið/Ómar
Rannsókn Andlátið átti sér stað á geðdeild Landspítalans.
Maðurinn sem lögregla skaut og
særði eftir skothríð á Egilsstöðum á
fimmtudagskvöld er á batavegi og er
kominn af gjörgæslu. Þetta stað-
festir Kolbrún Benediktsdóttir vara-
héraðssaksóknari í skriflegu svari
við fyrirspurn Morgunblaðsins.
„Við rannsökum bæði brot manns-
ins og höfum til rannsóknar hvort
lögregla hafi staðið rétt að málum,“
segir í svari Kolbrúnar. Kolbrún
sagðist ekki geta ekki gefið nánari
upplýsingar um rannsóknina að svo
stöddu.
Byssumað-
urinn á
batavegi
Morgunblaðið/Gunnar Gunnarsson
Skotgöt Árásin er til rannsóknar.