Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 30.08.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Skólastarf á hverjum tíma þarf að endurspegla samfélagið sem verður æ fjölbreyttara en jafn- framt flóknara,“ segir Sævar Helgason, skólastjóri Grunnskól- ans í Hveragerði. „Nemendur eru ólíkir eins og þeir eru margir og bakgrunnur þeirra sömuleiðis. Þess vegna hef ég sem skóla- stjórnandi reynt að fá hingað til kennslu og annarra starfa alls konar fólk svo fjölbreyttur hópur þess geti komið til móts við börn í samfélagi sem breytist hratt. Karlar eru um helmingur starfs- liðsins hér, í mörgum skólum eru konurnar mun fleiri. Þá lætur nærri að annar hver starfsmaður skólans hafi verið nemandi hér á sínum yngri árum. Þannig vona ég að ákveðinn þráður haldist og bæjarmenning hér í Hveragerði skili sér betur en ella inn í starf skólans.“ Nemendum fjölgar og skólinn stækkaður Um 420 grunnskólanem- endur eru í Hveragerði í vetur og hafa aldrei verið fleiri. Fjölgunin frá síðasta skólaári er um 10%, sem helgast fyrst og síðast af íbúafjölgun. Sú þróun hefur kall- að á mikla uppbyggingu af hálfu sveitarfélagsins og á dögunum var 600 fermetra viðbygging við skólahúsið tekin í notkun. Þar eru kennslustofur fyrir yngstu og elstu bekkjardeildirnar, en jöfn og stöðug fjölgun nemenda síð- ustu ár hefur krafist útsjónarsemi í húsnæðismálum. Og meiri upp- bygging er fram undan. Bæjarráð Hveragerðis samþykkti í síðustu viku að semja við dr. Magga Jónsson arkitekt, sem hannað hefur tvær viðbyggingarálmur við skólahúsið, um frekari störf. Bygging þriðju álmunnar hefst á allra næstu misserum og þá er út- gangspunkturinn sá að þrjár bekkjardeildir séu í hverjum ár- gangi að meðaltali og að nem- endur geti verið um 600 talsins. Spjallið er lærdómsríkt „Já, þótt nemendurnir séu orðnir ríflega 400 þekki ég senni- lega flesta með nafni og veit á þeim einhver deili. Tel slíkt mik- ilvægt og reyni líka að vera börn- unum aðgengilegur, svo sem hér frammi í matsal í frímínútum og hádegi. Spjallið þar er jafnan lær- dómsríkt, frábærar kennslu- stundir í raun og veru,“ segir Sævar sem er Hvergerðingur að uppruna. Kom að kennaranámi loknu aftur til starfa í sínum gamla grunnskóla árið 2000. Var svo ráðinn skólastjóri árið 2016. „Kórónuveirufaraldurinn hefur reynt talsvert á skóla- starfið,“ segir Sævar. „Veiran beit fast hér í Hveragerði í fyrstu bylgjunni í mars í fyrra. Tugir starfsmanna og stór hluti nem- enda þurfti í sóttkví og alls konar takmarkanir og hólfaskipting varð daglegur veruleiki og er að nokkru leyti enn. Vissulega tókst okkur að halda í horfinu þrátt fyrir þessar skerðingar, en hinn félagslegi þáttur datt að miklu leyti út, jafn mikilvægur og hann við heimilin, að stuðla að alhliða þroska allra nemenda og þátttöku þeirra í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun. Þá skuli skólinn leitast við að mæta stöðu og þörf- um nemenda og stuðla að alhliða þroska, velferð og menntun hvers og eins. „Eiginlegt nám er mik- ilvægt, en tilgangur skólastarfs- ins er líka sá að skapa nemendum skilyrði til að dafna í leik og starfi svo þeir fari út í lífið sem góðar manneskjur og verði nýtir þegnar í þjóðfélaginu, hver á sinn hátt, segir Sævar: Aðalnámskrá leggur línur fyrir starf í grunnskólum, en er svo yfirgripsmikil að aldrei verð- ur öllu því sem skráin segir til um komið fyrir í kennslunni, seg- ir Sævar. Hefðbundin kjarnafög, það er íslenska, stærðfræði, tungumál og félagsgreinar, eru í aðalhlutverki – en margt fleira kemur því til viðbótar. Ör þróun er eðli skólastarfs „Krakkar í dag þekkja ekki annað en tölvunotkun, aðgengi að neti og að hægt sé að nálgast all- ar upplýsingar. Hvernig vinna á úr þeim og leggja gagnrýnið mat á er eitt hið mikilvægasta í skóla- starfi í dag. Tölvutæknin er líka komin inn í skólastofurnar, gamla krítartaflan er horfin og upplýs- ingum er nú varpað á skjá. Staf- ræn samskipti og miðlun á náms- efni yfir netið eru framtíðin og þannig reynum við að vera í takti við öra þróun og hraðar breyt- ingar. Þess vegna finnst mér stundum sérstakt þegar fram á sjónarsviðið kemur fólk og gagn- rýnir skólastarf á kolröngum for- sendum. Telur jafnvel að starfið sé með sama hætti og var þegar það sjálft var í skóla fyrir kannski 30-40 árum. Skólastarf er alltaf í örri þróun, slíkt er bók- staflega eðli þess,“ segir Sævar og að síðustu: „Núna erum við til dæmis að koma til móts við óskir nemenda í elstu bekkjunum sem byrja skóla- daginn klukkan hálf níu á morgn- ana en yngri börnin mæta áfram hálftíma fyrr. Þetta er breyting sem margir óskuðu eftir og fögn- uðu þegar hún varð að veru- leika.“ er. Samvera, skoðanaskipti og fleira sem er ómissandi hluti af lífinu.“ Verði góðar manneskjur Í grunnskólalögum segir að hlutverk skólans sé, í samvinnu Nemendur Grunnskólans í Hveragerði eru nú 420 og fjölgar um 10% milli skólaára Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skólastjóri Skapa nemendum skilyrði til að dafna í leik og starfi, segir Sævar Helgason um skólastarfið sem hefur mjög fjölþætt inntak. Skólastarf í örri þróun - Sævar Þór Helgason er fæddur árið 1973, Hvergerð- ingur í húð og hár. Er með meistaragráðu í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Ís- lands og á að baki rúmlega 20 ára feril sem skólamaður. - Hefur komið að ýmsum menningarmálum í sínum heimabæ og er einn af sex for- mönnum Hljómlistarfélags Hveragerðis. Þá hefur Sævar verið liðsmaður hljómsveit- arinnar Á móti sól í áratugi. Hver er hann? Krakkar Líf og leikur 5. bekkinga að loknum skemmtilegum skóladegi. Vegna sóttvarnarreglna mega að óbreyttu aðeins 200 manns mæta í Tungnaréttir í Biskupstungum, sem verða laugardaginn 11. september. Í réttir mætir þá tiltekinn fjöldi fólks frá hverjum sveitabæ, það er í samræmi við fjölda þess fjár frá bænum sem rekinn var á fjall í sumar. Þetta er svipað fyrir- komulag og gilti á síðastliðnu ári í sveitum landsins við fjárréttir, sem jafnan eru fjölsótt mannamót og alþýðuskemmtun. „Við bíðum eftir nánari útskýr- ingum Almannavarna um útfærslu. Þó er alveg ljóst að réttir í ár - eins og í fyrra - verða ekki sú fjöldasamkoma sem fólk er vant,“ segir Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir, bóndi í Bræðratungu, fjallkóngur í Bisk- upstungum. Í september er stefnt á að 500 manna viðburðir verði leyfðir með þeim skilyrðum að allir fæddir 2005 og þaðan af eldri komi með neikvæða niðurstöðu úr hraðprófi vegna Covid. Fjallkóngurinn telur þetta þó tæpast muni breyta neinu hvað varðar réttir. Á Biskupstungnaafrétti hefur í sumar verið um 4.500 fjár og lagt verður upp í fjallferð nú í vikulokin. Farið verður á Hveravelli, féð svo rekið í suðurátt og fram til byggða. Í leiðangrinum verður ítrustu sótt- varna gætt og fjallaskálum, þar sem gist er, er skipt upp í sóttvarnahólf. Í fjallferð í Biskupstungum fara um 30 manns; 26 smalar, ráðskonur og trússar. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sveitalíf Fé dregið í dilka í Tungna- réttum, sem jafnan voru fjölsóttar. Takmörk í réttum - Fólkið fylgi fjárfjölda - 200 manna hámark - Farið á fjall í lok vikunnar Guðrún Svanhvít Magnúsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.