Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 LKINUGEFÐU DAGAMUN Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is 30. ágúst 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 126.87 Sterlingspund 174.1 Kanadadalur 100.04 Dönsk króna 20.064 Norsk króna 14.407 Sænsk króna 14.579 Svissn. franki 138.19 Japanskt jen 1.1513 SDR 180.18 Evra 149.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 179.5579 « Ítalska ríkisflugfélagið Alitalia til- kynnti í lok síðustu viku að flugvélar félagsins muni hefja sig til lofts í síð- asta sinn þann 14. október næstkom- andi. Hefur Alitalia aflýst öllum flug- um frá og með 15. október en þeim sem eiga bókað flug eftir þann tíma býðst ýmist að breyta miðanum og fljúga fyrir 15. október eða fá miðann endurgreiddan. Ekki er í boði að færa bókanir yfir til ITA – Italia Transporto Areo – sem mun taka við keflinu sem ríkisflugfélag Ítalíu en flugfréttavef- urinn AIN Online greinir frá að ítölsk stjórnvöld hafi sett 100 milljónir evra í sérstakan sjóð sem notaður verður til að endurgreiða viðskiptavinum Al- italia. Upphaflega stóð til að ITA tæki við af Alitalia strax í apríl og njóta góðs af háannatíma sumarmánaðanna en deilur við Evrópusambandið urðu til þess að fresta þeim áætlunum. Viðskiptaáætlun ITA gerir ráð fyrir að árið 2025 fljúgi félagið til 74 áfangastaða víðs vegar um heiminn. Félagið mun nýta flugvélar Alitalia framan af en til stendur að endurnýja 77% flotans á komandi árum og skipta eldri vélum út fyrir nýrri og um- hverfisvænni flugvélar. ai@mbl.is Alitalia hættir farþega- flugi 15. október STUTT VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Fyrir viku ræddi Morgunblaðið við Ingvar Örn Ingvarsson hjá Cohn & Wolfe um innvistun stofnana hins opinbera á verkefnum almanna- tengla, forritara, grafískra hönnuða og fleiri stétta. Reynir Sævarsson, formaður Félags ráðgjafarverk- fræðinga, segir mega greina sama vanda í verk- fræðigeiranum og að nýleg rann- sókn hafi sýnt fram á töluverða tilfærslu verk- fræðinga frá einkageiranum yfir til hins opin- bera: „Á undanförn- um árum hefur þó nokkuð af okk- ar reynslumesta og hæfasta fólki ráðið sig til opinberra aðila: fækkað hefur hjá verkfræðistofunum en á sama tíma hafa verkfræðideildir stofnananna aukið við sig,“ segir hann. „Samhliða þessu vinna stofn- anir verkfræðitengd verkefni í aukn- um mæli innanhúss frekar en að kaupa þessa þjónustu utan frá.“ Íþyngjandi útboðsreglur og ranghugmyndir um kostnað Sem dæmi um umfang og hraða þessarar tilfærslu nefnir Reynir að tæknimenntuðum starfsmönnum Framkvæmdasýslu ríkisins hafi fjölgað úr 23 árið 2015 í 41 árið 2019. Á sama tímabili fjölgaði tækni- menntuðum hjá Nýjum Landspítala úr 6 í 22, og hjá Ríkiseignum úr 17 í 24. „Hjá Vegagerðinni hefur fé- lögum í Verkfræðingafélagi Íslands fjölgað úr 66 árið 2015 í 73 á þessu ári. Er svipaða sögu að segja af um- hverfis- og skipulagssviði Reykja- víkurborgar, Landsvirkjun og Landsneti. Hins vegar hefur starfs- fólki þriggja stærstu verkfræðistof- anna fækkað um 66 manns, eða 7% af heildinni og oftar en ekki fólk með mikla reynslu sem hefur horfið á braut.“ Reynir segir margt geta skýrt þessa þróun og nefnir hann sem dæmi að stjórnendum stofnana geti þótt umgjörðin utan um útboð verk- efna orðin það flókin að hentugra sé að a.m.k. innvista smærri verkefn- um í meira mæli. „Útboðsreglur verða æ meira íþyngjandi og fylgir því bæði kostnaður fyrir þá sem skipuleggja útboðið og fara yfir til- boð, en ekki síður fyrir þá sem bjóða í verkin. Þá er ekki hægt að útiloka kvartanir og kærur að útboði loknu, með tilheyrandi kostnaði og fyrir- höfn. Er tímabært að skoða nánar hvaða leiðir mætti fara til að einfalda útboðsferli stofnana en einnig ætti að fylgja fordæmi hinna Norður- landaþjóðanna þar sem sjá má góð dæmi um vandaðar aðferðir við inn- kaup ráðgjafar þar sem fleiri mik- ilvægir þættir en verðið eru teknir inn við val. Við sjáum alltént þörf á að ræða stefnu hins opinbera varð- andi þessa hluti því núverandi stefna eykur umfang hins opinbera og rím- ar ekki við t.d. stefnu yfirvalda um nýsköpun.“ Minnkar sveigjanleika í rekstri hins opinbera Önnur möguleg skýring er að stofnanir meti það svo að hagkvæm- ara sé að verkfræðivinna fari fram innanhúss en Reynir segir það við- horf byggja á misskilningi. „Við sem störfum í greininni fáum með engu móti skilið þau rök að það sé dýrt að kaupa þjónustu verkfræðings, en þegar leitað er til verkfræðistofu er verkkaupi hins vegar að tryggja það að þeir sem leysa verkefnið af hendi hafi hárrétta reynslu og bakgrunn og séu líklegir til að vinna bæði hrað- ar og betur en verkfræðingur sem hefur kannski ekki unnið sambæri- legt verkefni í lengri tíma. Er starf verkfræðinga ekki ósvipað störfum lækna að þessu leyti, að munur er á sérhæfingu fólks og reynslu, og getu til að leysa ýmis sérhæfð verkefni hratt og vel af hendi,“ segir Reynir. „Hinu má ekki heldur gleyma að verkfræðingur á stofu þarf ekki nema að rölta um hæðina sína til að fá ábendingar og ráð frá öðrum reynsluboltum. Með því að semja við verkfræðistofu er verkkaupinn í raun að fá mikla reynslu og rýni með í kaupunum.“ Má því leiða líkum að því að inn- vistun verkfræðiþjónustu leiði til aukins kostnaðar fyrir hið opinbera og bendir Reynir á að stofnanir séu einnig í vanda staddar ef t.d. sam- dráttur í hagkerfinu veldur því að fjölmennar verkfræðideildir hafi úr fáum verkefnum að moða. „Fólk get- ur rétt ímyndað sér hvernig ástand- ið hefði orðið á árunum eftir banka- hrun ef að stofnanir hér og þar hefðu verið búnar að koma sér upp stórum verkfræðideildum enda hægara sagt en gert fyrir hið opinbera að segja fólki upp störfum. Það sem gerðist aftur á móti á samdráttarárunum fyrir röskum áratug var að verk- fræðistofurnar gátu aðlagast og leit- uðu verkefna erlendis – eitthvað sem opinber stofnun gæti aldrei gert.“ Útvistun bjó til öflugan verkfræðigeira Talandi um verkefni erlendis þá bendir Reynir á að þróun í átt til aukinnar innvistunar sé óhjákvæmi- lega til þess fallin að veikja verk- fræðistofurnar og draga úr getu þeirra til að láta að sér kveða jafnt á innlendum sem erlendum markaði. „Tengja má árangur stærstu verk- fræðistofa landsins með beinum hætti við það, að á sínum tíma voru teknar ákvarðanir um að útvista verkefnum orkugeirans. Þetta varð til þess að verkfræðistofunum óx fiskur um hrygg og menn urðu kappsmiklir, og er íslensk verk- fræðiþekking í dag orðin uppspretta mikilla útflutningstekna. Sem dæmi er Efla stærsti ráðgjafi Noregs í hönnun háspennulína, Mannvit leið- andi á heimsvísu í nýtingu jarð- varma og Verkís fengið til að hanna vatnsaflsvirkjanir um allan heim.“ Til að gera vandann enn alvarlegri eru það oft þeir einstaklingar sem búa yfir mestri reynslu og þekkingu sem hið opinbera laðar til sín, m.a. í krafti þess að geta yfirboðið verk- fræðistofurnar. „Verandi örþjóð þá eigum við ekki marga sérfræðinga og kannski bara einn eða tveir í landinu öllu sem hafa sérhæft sig á sumum sviðum verkfræðinnar. Í löndum eins og Noregi er þetta ekki vandi enda hægt að ganga að vísum 25 sambærilegum sérfræðingum, en þegar íslenskar verkfræðistofur missa þannig starfskraft til opin- berrar stofnunar þá nýtist þekking hans eftirleiðis aðeins á einum stað.“ Hið opinbera duglegt að laða til sín verkfræðinga Morgunblaðið/Eggert Rautt ljós Frá framkvæmdum á Hafnartorgi. Reynir bendir á að þróunin að undanförnu veiki verkfræðistofurnar. Það var útvistun verkefna í orkugeira sem á sínum tíma lagði grunninn að kröftugum verkfræðigeira á Íslandi. - Tæknimenntuðum fækkar á verkfræðistofunum en fjölgar hjá stofnunum Reynir Sævarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.