Morgunblaðið - 30.08.2021, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir #,&)"-/%
í síma %!" $#$$
Morgunblaðið óskar eftir
blaðber#! $
.('!+*$"
Raðauglýsingar
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Félagsfundur kl. 11. Handavinna
kl. 12-16. Félagsvist kl. 12.45. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á
könnunni. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Sími. 411-2600.
Boðinn Bingó í dag kl. 13.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Lista-
smiðja kl. 13-15.30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Garðabær Pool-hópur í Jónshúsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl.
12.40. Brids í Jónshúsi kl. 13. Hægt er að panta hádegismat með dags
fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu frá kl. 13.45-15.15.
Gullsmári Félagsvist kl. 20.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
Samsöngur, allir velkomnir kl. 13.30.
Hraunsel Myndlistarklúbbur kl. 9, stóla-jóga kl. 10 og félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps-
leikfimi kl. 9.45. Stólaleikfimi, hjúkrunarfræðingur kemur í heimsókn.
13.30, Gönguhópur, lengri ganga kl. 13.30.
Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9.45 í Borgum, ganga kl. 10, gengið frá
Grafarvogskirkju og frá Borgum, þrír styrkleikahópar. Dansleikfimi
með Auði Hörpu kl. 11 í Borgum. Kaffihúsið opnað kl. 14.30 og kl. 15 í
dag í Borgum er línudans með Guðrúnu, allir hjartanlega velkomnir.
Sóttvarnir í heiðri hafðar.
Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er kaffispjall í setustofu 2. hæðar
milli kl. 10.30-11. Eftir hádegi, kl. 13.15, er botsía á 2. hæð. Þá verður
núvitund í handavinnustofu milli kl. 15-16. Verið öll velkomin til okkar
á Lindargötu 59, við hlökkum til að sjá ykkur.
Seltjarnarnes Kaffikrókur á Skólabraut alla morgna frá kl. 9. Leir á
Skólabraut kl. 9. Jóga / leikfimi með Öldu í salnum á Skólabraut kl. 11.
Handavinna, samvera og kaffi í salnum á Skólabraut kl. 13.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Styrktar- og
stuðningsaðilar óskast
Lítið íþróttafélag óskar eftir
styrktar- og stuðningsaðilum.
Allar nánari upplýsingar á
dansa@dansa.is
Bílar
Audi A3 Sportback e-Tron
Hibryd 8/2017 modelár 2018.
Ekinn aðeins 40 þús. km. Sportsæti.
Panorama glerþak. 17” álfelgur.
Sjálfskiptur. LED ljós. O.fl.
Lækkað verð aðeins 3.990.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Húsviðhald
Húsaviðgerðir
www.husco.is
Sími 555 1947
Gsm 894 0217
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á
✝
Guðmundur
Þorsteinn
Bjarnason fæddist
á Bíldudal 17. febr-
úar 1930. Hann lést
11. ágúst 2021 á
dvalarheimilinu
Lögmannshlíð á
Akureyri.
Hann var sonur
hjónanna Guð-
rúnar Vilhelmínu
Guðmundsdóttur,
f. 14.10. 1907 á Bakka, Ket-
ildalahreppi V-Barð, alin upp á
Fífustöðum í Arnarfirði, d.
24.11. 1984, og Bjarna Þor-
bergssonar, f. 24.3. 1898, d.
17.5. 1964, frá Klúku í Ketil-
dalahreppi.
Guðmundur átti tvo bræður:
Elías, f. 4.1. 1929, d. 1.4. 1960,
og Svan Gísla Heiðar, f. 15.9.
mundur, f. 7.1. 1956, maki hans
er Guðfinna Ásgrímsdóttir, þau
eiga tvö börn, Guðmund Árna
og Kristínu Hrund, og fjögur
barnabörn. 3) Gunnar Hólm-
steinn, f. 4.2. 1960, maki hans er
Kristbjörg Gunnarsdóttir, þau
eiga tvær dætur, Þóreyju Ösp
og Söndru Björgu, og fjögur
barnabörn. 4) Haukur, f. 8.4.
1967, hann á þrjú börn, Heið-
björtu Ýri, Sólrúnu Önnu og
Heimi Bjarna, og eitt barna-
barn.
Guðmundur og Kristín
bjuggu fyrstu 10 hjúskaparárin
sín í Helgamagrastræti 42 á Ak-
ureyri, síðar byggðu þau Staf-
holt 5 á Akureyri og fluttu
þangað haustið 1953.
Guðmundur lærði bæði
skipa- og húsasmíði og vann
lengst af í Slippnum á Akur-
eyri.
Mörg voru hans áhugamál en
upp úr standa steinasöfnun og
silfursmíði um áratugi.
Guðmundur verður jarðsung-
inn frá Akureyrarkirkju í dag,
30. ágúst 2021, klukkan 13.
1933, d. 1.2. 2003.
Eiginkona Guð-
mundar var Kristín
Hrund Kjartans-
dóttir, f. 2.12. 1927,
d. 23.5. 2018. Krist-
ín var dóttir
hjónanna Rósu
Emelíu Bergvins-
dóttur, f. 22.7.
1891, d. 16.3. 1972,
og Kjartans Sig-
urjónssonar, f.
20.12. 1895, d. 11.6. 1955, frá
Miðhvammi í Aðaldal. Guð-
mundur og Kristín giftu sig 17.
júní 1953.
Þau eignuðust fjögur börn: 1)
Bjarney, f. 4.10. 1953, maki Óli
Reynir Ingimarsson, þau eiga
þrjár dætur, Kristínu Hrund,
Aðalheiði og Ingibjörgu, og níu
barnabörn. 2) Kjartan Guð-
Elsku afi Gummi. Undanfarn-
ir dagar hafa verið frekar tóm-
legir þar sem við höfum ekki far-
ið og heimsótt þig í
Lögmannshlíð þar sem þú dvald-
ir undanfarin tæp tvö ár hjá ynd-
islegu starfsfólki en þeim erum
við afar þakklát.
Það eru svo ótrúlega margar
minningar sem fara um hugann
nú þegar þú ert farinn. Nokkrar
standa upp úr og laða fram bros
þegar við hugsum til þeirra. All-
ar fjöruferðirnar sem við fórum
með þér og þú fræddir okkur um
hinar ýmsu steinategundir.
Ferðirnar sem við fórum með
ykkur ömmu inn í Vín til að fá
okkur ís eða einhverja góða
tertu. Óteljandi skipti sem við
fengum að gista hjá ykkur ömmu
í Stafholtinu með tilheyrandi
ferð í vídeóleigu að velja mynd
og auðvitað mátti ekki gleyma
ísnum með nóg af íssósu, einnig
klikkaði aldrei að horfa á spól-
urnar ykkar með Villa spætu eða
Steina og Olla. Þú varst svo
sannarlega mikill sælkeri og það
var svo ótrúlega gaman að bjóða
þér í veislu og þú varst alltaf
ótrúlega jákvæður og þakklátur
fyrir allt sem gert var fyrir þig.
Þú eyddir ófáum stundum í
bílskúrnum og í vinnuherberg-
inu þínu að slípa til steina og
búa til fallegt skart úr silfri sem
við erum svo ótrúlega heppin að
fá að njóta áfram um ókomin ár.
Í þó nokkur ár varstu með
skartgripina þína til sýnis og
sölu á Handverkshátíðinni á
Hrafnagili og var gaman að fá
að aðstoða þig þar. Okkur
fannst alltaf svo gaman að kíkja
til þín í skúrinn og inn í herbergi
og fylgjast með hvað þú varst að
búa til. Einnig höfðum við alltaf
gaman af því að hlusta á sög-
urnar um ferðir þínar út um allt
land að finna íslenska eðalsteina
og eru sjálfsagt ekki mörg fjöll á
Íslandi sem þú hefur ekki heim-
sótt.
Þú varst einnig alltaf mjög
áhugasamur um hvað börn þín,
barnabörn og langafabörn voru
að gera í lífinu og tókst alltaf á
móti okkur með bros á vör og
þakkaðir okkur alltaf fyrir kom-
una.
Við erum ótrúlega þakklát
fyrir allan tímann sem höfum
fengið að eyða með þér og allt
sem þú hefur kennt okkur í líf-
inu. En það er gott að hugsa til
þess að þú sért nú kominn til
ömmu Stínu. Þú varst besti afi í
heimi og við eigum eftir að
sakna þín mikið.
Hvíldu í friði elsku afi.
Þín barnabörn,
Guðmundur Árni
Kjartansson og Kristín
Hrund Kjartansdóttir.
Guðmundur Þor-
steinn Bjarnason
✝
Halldór Páls-
son fæddist í
Hafnarfirði 24. nóv-
ember 1930 og lést
á Hrafnistu Hafnar-
firði 14. Ágúst 2021.
Foreldrar Hall-
dórs voru hjónin
Páll Böðvarsson f.
1892, d. 1956, og
Sigríður Jenný
Halldórsdóttir, f.
1899, d. 1983.
Bróðir Halldórs var Ólafur
Pálsson, f. 1929, d. 2018. Eigin-
kona hans var Ragnheiður Jóns-
dóttir, f. 1931, d. 2003. Þau eiga
þrjú börn: Kristínu, Pál og Jón
Þorvarð.
Halldór kvæntist 31.10. 1964
Matthildi Jónsdóttur, f. 31.10.
1933. Foreldrar hennar voru Jón
Pétursson, f. 1912, d. 2001, og
Sigurlaug Jónsdóttir, f. 1912, d.
1996. Halldór og Matthildur eiga
tvö börn:
1. Ólafur Ragnar, f. 7.9. 1965.
Kona hans er Sigurveig Sigur-
dórsdóttir, f. 1970. Þeirra börn
Kjartan Þorsteinsson, f. 1910, d.
1970, og Maren Kristín Þor-
steinsson, f. 1919, d. 2021. Eig-
inmaður hennar er Matthías
Hannes Guðmundsson. Þeirra
börn eru: a) Kjartan, hann á tvo
syni, b) Kristín Ásta, hún á tvö
börn.
5. Birgir Svan Eiríksson, f.
3.10. 1960. Hans börn eru: a)
Alma, hún á einn son, b) Eiríkur
Hrannar, hann á einn son.
Halldór ólst upp og bjó alla tíð í
Hafnarfirði. Hann lærði rafvirkj-
un og starfaði fyrst hjá Rafveitu
Hafnarfjarðar, fór svo að vinna í
Kaupfélagi Hafnarfjarðar og
þaðan fór hann að vinna hjá
versluninni Pfaff þar sem hann
starfaði allt þar til hann lét af
störfum vegna aldurs í ársbyrjun
2001.
Áhugamál Halldórs var garð-
rækt og byggði hann sér gróður-
hús við heimili sitt í Hafnarfirði.
Árið 1993 kaupa hann og Matt-
hildur lítinn bústað í landi Mið-
fells við Þingvallavatn og þar hélt
Halldór áfram garðrækt.
Útför Halldórs fór fram 26.
ágúst frá Fríkirkjunni Hafn-
arfirði í kyrrþey að hans eigin
ósk.
eru: a) Ragnar Páll,
f. 9.9. 1994, kvæntur
Kelly Taft, b) El-
ísabet Ósk, f. 26.6.
2001,
2. Sigríður Jenny,
f. 11.8. 1967. Eigin-
maður hennar er
Guðjón Steinar
Sverrisson, f. 1968.
Þeirra börn eru:
a) Halldór, f. 28.12.
1990, unnusta Sissel
Sæther. Sonur Halldórs er Magn-
ús Berg, f. 5.3. 2016, móðir hans
er Elísa Marey Sverrisdóttir, b)
Steinunn f. 24.11. 1994, unnusti
Aron Tjörvi Gunnlaugsson, c)
Hildur, f. 10.10. 2001.
Börn Matthildar frá því fyrir
giftingu eru:
3. Margrét Jónsdóttir, f. 31.10.
1953. Hennar dætur eru: a) Svan-
hildur Dóra Björgvinsdóttir, hún
á þrjá syni, b) Eva Hrönn Mor-
ales, hún á eina dóttur, c) Anna
Teresa Morales, hún á tvö börn.
4. Gréta Kjartansdóttir, f. 7.11.
1958. Kjörforeldrar hennar voru
Elsku Halldór minn. Með
söknuði kveð ég þig og þakka þér
fyrir öll árin okkar saman, fyrir
börnin okkar, barnabörnin og
barnabarnabörnin sem eru stolt
okkar.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Hvíl í friði.
Þín
Matthildur.
Elsku besti pabbi minn hefur
kvatt okkur. Rúmlega níutíu ára
ævi lokið og pabbi sáttur með sitt.
Hann var tilbúinn að kveðja en
ekki ég enda mikil pabbastelpa.
Við pabbi gátum setið og spjallað
endalaust um allt milli himins og
jarðar en það sem hann ræddi
samt helst voru börnin mín og
hvað þau voru að gera. Hann
fylgdist vel með þeim hvort sem
það var skólinn hjá þeim eða hand-
boltinn. Stoltið leyndi sér ekki hjá
honum við hvern áfangann hjá
þeim. Hann átti líka mjög mikið í
þeim, sonur minn fékk nafnið hans
og pabbi fékk eldri dóttur mína í
afmælisgjöf þegar hann varð 64
ára. Yngri dóttir mín fæddist rétt
eftir að pabbi og mamma hættu að
vinna og aðstoðuðu þau mig mikið
með hana þar sem ég var í há-
skólanámi þegar hún fæddist. Það
var eldri dóttir mín sem byrjaði að
kalla afa sinn „afi Pálsson“ og fest-
ist það nafn við hann á mínu heim-
ili. Pabba fannst það alls ekki
slæmt og var mjög sáttur við þetta
virðulega nafn.
Árið 2016 eignaðist Halldór
minn son, Magnús Berg, sem
strax frá byrjun bræddi langafa
sinn. Aðeins sex dögum áður en
pabbi kvaddi heimsótti Magnús
Berg mömmu og pabba á Hrafn-
istu. Pabbi ljómaði eins og alltaf
þegar hann hitti Magnús Berg og
er þessi minning um samveru
þeirra mér mikils virði í dag.
Pabbi og mamma keyptu sér
lítinn bústað í Miðfellslandi á
Þingvöllum árið 1993. Við Guðjón
keyptum fljótlega þriðjungshlut í
bústaðnum af þeim og nutum við
þess að vera með þeim. Saman
ræktuðu pabbi og Guðjón upp lóð-
ina í kringum bústaðinn og löguðu
húsið eins og þurfti. Þegar heils-
unni fór að hraka hjá pabba og
mömmu keyptum við Guðjón bú-
staðinn. Pabbi var mjög ánægður
að við skyldum kaupa af þeim og
spurði frétta eftir hverja ferð okk-
ar þangað. Í sumar höfum við
Guðjón verið að stækka bústaðinn
og var pabbi spenntur fyrir þeim
framkvæmdum og tók ég myndir
af hverjum áfanga og sýndi hon-
um.
Þakklæti er mér efst í huga
þegar ég kveð elsku pabba. Ég er
þakklát fyrir lífið sem hann gaf
mér. Þakklát fyrir að hafa átt
hann að og geta alltaf leitað til
hans með öll mín mál. Þakklát fyr-
ir það sem hann var börnunum
mínum. Þakklát fyrir að hafa get-
að haldið í höndina á honum þegar
hann kvaddi.
Elsku pabbi hvíl þú í friði, ég
veit að þú varst orðinn þreyttur.
Ég passa áfram upp á mömmu.
Elska þig og sakna alla daga.
Þín uppáhalds og eina dóttir,
Sigríður Jenny.
Elsku afi Pálsson. Við systkinin
sitjum saman og erum að rifja upp
minningar okkar um þig og það
fyrsta sem kemur upp í hugann er
þakklæti og erum við mjög þakk-
lát fyrir að þú hafir verið afi okkar.
Við systkinin fórum í ótal ferðir
með þér og ömmu í sumarbústað-
inn á Þingvöllum og alltaf var jafn
gaman hjá okkur, sama hvort það
var að liggja í leti, spila ólsen-ól-
sen, vinna í garðinum eða fela litla
köttinn í skónum þínum því þú
tókst alltaf þátt í djókinu og bölv-
aðir yfir kettinum, sem fékk okkur
til að hlæja okkur máttlaus.
Þú varst alltaf til staðar fyrir
okkur þegar við þurftum á því að
halda, skutlaðir okkur út um allan
bæ, á handboltaæfingar, í vinnuna
og sóttir okkur í skólann. Þegar
við komum í heimsókn til ykkar
ömmu var alltaf hægt að treysta á
að fá ís eða pítsu úr frystinum. Þú
varst yfirleitt mættur með ísskál-
arnar á borðið þegar þú vissir að
við værum að koma.
Þú varst alltaf svo stoltur af
okkur öllum, sama hvað við tókum
okkur fyrir hendur. Við vorum öll í
handbolta og þú hafðir einstakan
áhuga á því. Alltaf þegar við vor-
um að keppa sendi mamma þér
skilaboð, bæði í hálfleik og eftir
leik og þú fékkst að vita hversu
mörg mörk við skoruðum í leikn-
um. Alltaf varstu stoltur, sama
hvernig gekk hjá okkur.
Á seinni árum þegar við kom-
um í heimsókn til þín þá varstu
alltaf svo þakklátur fyrir það. Þú
kvaddir yfirleitt með því að segja:
„Takk fyrir að koma í heimsókn,
þetta styttir daginn minn að fá að
sjá ykkur.“
Elsku afi Pálsson, við eigum
eftir að sakna þín og við lofum að
passa upp á ömmu fyrir þig.
Þín barnabörn,
Halldór, Steinunn og Hildur.
Halldór Pálsson