Morgunblaðið - 30.08.2021, Side 28

Morgunblaðið - 30.08.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. ÁGÚST 2021 „Það var snjór í götunni, og undir var frosinn aur, en sums staðar berghella, og tæp var gatan, geymdi rétt aðeins fótinn. Næsti sneiðingur var líka tæpur, en Monika horfði beint niður fyrir fætur sér, forðaðist að líta niður í gilið. Allt í einu beygði gatan til suðurs, lá eftir mjóum og afsleppum aurhrygg með stefnu á innri barm gils- ins. Gusturinn varð að þungum sogum, með slot- um á milli, eins og einhver furðu- skepna lægi á gil- botninum og and- aði þungt og erfiðlega. Niðri í gilinu sást glitta í straumstreng, og nú heyrðist svarr- kenndur niður.“ Þannig lýsti Monika Helgadóttir fyrir rithöfundinum Guðmundi G. Hagalín ferð sinni fyrir hartnær hundrað árum að þeim stað sem átti eftir að verða heimili hennar í meira en hálfa öld, Merkigili í Skagafirði. Þetta er bær í Austurdal, löngum og djúpum dal sem er eins þverskorinn og dramatískur og Reykholtsdalur er aðlíðandi og friðsæll. Jökulsá steypist þar eftir djúpu og hrikalegu gljúfri sem lengst af var ófært með öllu, en er nú vinsæll staður fyrir flúðasiglingar og dugir ekki minna en að hafa leiðsögumenn frá Nepal. Að gljúfrinu liggja ekki síður hrika- leg gil og eitt þeirra er Merkigil sem bærinn er kenndur við. Eftir gilinu lá leiðin sem varð að fara ef menn vildu komast að bænum af þjóðveg- inum í Skagafirði, einstigi utan í klettaskornum hlíðum lengst inn eft- ir gljúfrinu sem þræða þurfti beggja vegna óbrúaðrar ár sem ekki var hægt að fara yfir nema innst. Stund- um var farið með varning uppúr Austurdal upp á sjálft hálendið og svo aftur niður í Eyjafjörð, af því mjög þunga hluti var ekki hægt að flytja eftir einstiginu í gilinu, en sú leið var auðvitað helst fær um há- sumar. Af hverju lagði fólk á sig að búa þarna? Austurdalur er grösugur dalur og gjöfull á þess tíma mælikvarða, og um það leyti sem Monika fluttist þangað sem ráðskona var búið á sex bæjum. Það voru bæir í dalnum hin- um megin við gljúfrið en samt óra- vegur að ferðast milli nágranna sem gátu í besta falli kallast á. Lengst inni í dal, ellefu kílómetra frá Merki- gili, er kirkja sveitarinnar kennd við Ábæ, þar sem enn er messað einu sinni á ári. Núverandi kirkja var byggð nokkrum árum áður en Mon- ika kom í dalinn, og þá var búskapur á Ábæ. Hún var byggð eftir teikn- ingum frægasta og þá fyrsta full- menntaða arkítekts Íslendinga, Guðjóns Samúelssonar, sem síðar teiknaði Þjóðleikhúsið og Hallgríms- kirkju. Viðurinn í hana var fluttur eftir einstiginu í Merkigili, en annað byggingarefni dregið af mönnum á sleðum leiðina löngu uppúr Eyjafirði og yfir fjöllin. Þetta einstaka fram- tak bændanna í sókninni var Hall- dóri Laxness innblástur í kafla um bændur í Eystridal í bókinni Atóm- stöðin. Eitt þekktasta skáld nítjándu ald- ar bjó um tíma á Nýjabæ í Austur- dal, Hjálmar Jónsson sem oftast er kenndur við Bólu (1796-1875). Líf hans var mikill barningur alla tíð og hann átti iðulega í útistöðum við nágranna sína og kveðskapur hans ber þess merki, er fjarri rómantík og fagurgala. Gísli Sigurðsson segir í grein um Bólu-Hjálmar og búskap hans í Austurdal: „Meinið var, að Hjálmar komst ekki með góðu móti af bæ nema fara um hlaðið hjá þeim [á Merkigili]. Og þeir reyndust hon- um illa eins lengi og hægt var. Í búferlaflutningunum frá Nýjabæ sat Jón á Merkigili fyrir Hjálmari og tókst að ná spýtu, sem hann taldi sig eiga, af klyfjahesti. Í áflogum sem af þessu hlutust slæmdi Hjálmar spýt- unni í handlegg Ingibjargar hús- freyju á Merkigili; taldi hana ætla að veita bónda sínum lið. Svo var þó ekki, ¬ bætti Hjálmar Ingibjörgu meiðslin með forkunnarfögrum, út- skornum kistli sem enn er til í vörzlu Þjóðminjasafnsins og sýnir að Hjálmar var bæði listfengur og hag- ur í höndunum.“ Þetta er allt að því dæmisaga um Hjálmar: hann bætti um betur fyrir æviströgl sitt með líf- seigri list sinni, kvæðum og útskurði. Það er ótrúlega tilkomumikið að fara um allan Austurdal, þótt veg- irnir séu heldur grófgerðir. En það er ennþá tilkomumeira hugsi maður til þess fólks sem þarna bjó og hvað það er stutt síðan það vann myrkr- anna á milli við sinn búskap. Guð- mundur G. Hagalín rithöfundur sem bjó síðari hluta ævinnar skammt frá Reykholti, lýsti ævi Moniku á bók, Konan í dalnum og dæturnar sjö, þegar hún var ekki nema rétt rúm- lega fimmtug en hafði aflað sér virð- ingar allrar sveitarinnar með seiglu sinni og vinnusemi. Þegar hún kom ráðskona að Merkigili árið 1925 var þar tvíbýli. Hún hafði ætlað að fara til Reykjavíkur en lét tilleiðast að vera veturlangt eða svo til að lið- sinna fólkinu sem bjó á hálfu Merki- gili. En ungi maðurinn á hinu heim- ilinu á bænum hafði augastað á henni og þau tóku saman og eign- uðust bæinn allan þegar fram liðu stundir. Monika og Jóhannes, maður hennar, áttu sjö dætur og einn son, áður en Jóhannes lést langt fyrir aldur fram árið 1947. Það eitt að hugsa sér hvernig var að sækja ljós- móður að Merkigili nægir til að setja sér erfiðleikana þar fyrir hugskots- sjónir. Eftir fráfall Jóhannesar freistaði það Moniku að bregða búi og flytja í kaupstað. En hún tók þá ákvörðun að vera áfram á Merkigili með hjálp dætra sinna og er óhætt að segja að það hafi verið einstæður búskapur. Þegar Monika hafði ákveðið að halda áfram að búa þarna fannst henni nauðsynlegt að reisa almenni- legt hús. Á árunum eftir stríð er efn- isskortur og skömmtun á Íslandi eins og víðar og Monika þurfti að fara til Reykjavíkur og tala við emb- ættismenn og bankastjóra til að fá leyfi fyrir steinsteypu og öðru bygg- ingarefni og svo teikningunum. Það hafðist, með klíkuskap og tengslum eins og alsiða var, en meira átak var að koma öllu efninu, að meðtalinni steypuhrærivél sem var drifin af hesti, í Merkigil. Allt hvíldi það á hennar herðum og eldri dætranna því sonurinn var ennþá barnungur. En þetta skyldi vera almennilegt hús, og vel byggt og búið nútíma- þægindum, svo Monika festi kaup á baðkari, í stærra lagi. Leiðin til að koma því á staðinn var niður eftir einstiginu og síðan upp með gilinu. Fjórar elstu dæturnar tóku það að sér, settu á sig bönd og báru það alla leið, hægt og varlega og svo vel að það sá ekkert á því þegar það kom í hús. Þetta er ástæðan fyrir því að enn blasir við myndarlegt stein- steypt hús á Merkigili, þótt baðkarið sé horfið og sturta komin í staðinn. Það er athyglisvert að sjá hvernig nútíminn heldur smám saman inn- reið sína í sveitina um leið og fólkinu fækkar. Sími kom í Merkigil 1942, þrjátíu og fimm árum eftir að rit- símastrengur hafði verið lagður til Íslands frá Skotlandi um Færeyjar. Árið 1961 var Jökulsá eystri loksins brúuð, nokkuð innar í dalnum, og ak- vegur lagður að Merkigili. Sjálf lét Monika ryðja veg að Ábæjarkirkju sem henni var svo hugleikin að hún bauð jafnan í kaffi á Merkigili þegar messað hafði verið í kirkjunni, þótt Ábær væri kominn í eyði. Nú mátti sækja Merkigil heim, án þess að feta langt einstigi sem var sannkölluð martröð lofthrædds fólks. 1974 var svo loks lagt rafmagn í Merkigil. En þá voru stelpurnar löngu byrj- aðar að tínast að heiman, hvað sem leið síma, brú, rafmagni, miðstöðv- arofni og baðkari, og Monika varð ein eftir. 1974 kom til hennar vinnu- maður, Helgi Jónsson að nafni, og tók síðar yfir búskapinn þannig að hún varð að lokum ráðskona hjá honum – ráðskona á Merkigili eins og hún hafði ætlað sér hálfri öld fyrr – uns hún lést árið 1988. Helgi bjó áfram einn á Merkigili og lagði rækt við Ábæjarkirkju, en hann var þá orðinn eina sóknarbarn hennar og sinnti öllu því sem Moniku hafði ver- ið annt um, uns hann hrapaði til bana í gilinu í janúar árið 1997. Eng- inn búskapur er nú lengur þarna megin í Austurdal. Bænum á Merkigili er vel við haldið og hann er enn nýttur fyrir ferðamenn, ekki síst hópa hestafólks sem fara um Austurdal og þræða jafnvel einstigið fræga. Það fer vel á því, þar sem hestar voru bráðnauð- synlegir þeim sem þar bjuggu og fluttu bæði fólk og varning inn í dal- inn og Skagafjörður er reyndar þekktur fyrir mikla hestamennsku; lífsbarátta fyrri tíma eru tómstundir nútímamannsins. En þrátt fyrir allt er Skagafjörður ennþá sveit. Síðast þegar ég klöngr- aðist vegslóðann að Merkigili varð mér það á að gleyma lopapeysunni minni á bænum, þar sem hestafólk var þá að gera stuttan stans og hita sér súpu. Þetta var peysa sem konan mín hafði prjónað og ég uppgötvaði ekki að hún hafði orðið eftir fyrr en við vorum komin langleiðina til Reykjavíkur. Mér óx í augum að fara aftur alla leið að Merkigili upp á von og óvon til að gá hvort ég fyndi peysuna góðu. Svo ég hringdi í sam- starfsmann minn sem ættaður er úr Skagafirði og spurði hvort hann vissi um einhvern sem færi þarna fram eftir, eins og Skagfirðingar segja, og gæti hugsanlega svipast um eftir henni. Hann svaraði með hægð: það verða einhver ráð með það. Tveim dögum síðar hringdi hann í mig og peysan var fundin og komin til byggða, með hestafólki. Þannig hafði hún alltént þrætt gilið í bak- poka einhvers ættingja félaga míns, þótt ég myndi sjálfur aldrei treysta mér til þess. (Tilvísunum er sleppt.) Einstigið þrætt inn Austurdal Bókarkafli Í bókinni Sagnalandið fara þeir Halldór Guðmundsson og Dagur Gunnarsson hring um landið og nema staðar á stöðum sem tengjast höfundum og bókmenntaverkum, þjóðsögum og atburð- um úr Íslandssögunni. Meðal viðkomustaða er Merkigil í Skagafirði þar sem Monika Helga- dóttir bjó með börnin sín átta. Ljósmynd/Dagur Gunnarsson Ægifagurt Það er fallegt í Skagafirði og í Sagnalandinu er Merkigil meðal viðkomustaða. Þar bjó Monika Helgadóttir með börn sín átta. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.