Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Side 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Side 2
Morgunblaðið/Unnur Karen Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666 ., '* -�-"% ,�rKu!, KIEL/ - OG FRYSTITJEKI Iðnaðareiningar í miklu úrvali E flaust muna margir eftir kvikmyndinni Life of Brian frá 1979 þar sem Monty Python-grínhópurinn fer á kostum. Í lok myndar hanga þeir fé- lagar krossfestir á hæð einni þegar einn þeirra byrjar að syngja glað- legt lag: Always look on the bright side of life, eða horfðu alltaf á björtu hlið- arnar. Senan er vissulega absúrd, en fyndin og kemur manni alltaf í gott skap. Á þessum hörmungartímum kórónuveirunnar þurfum við oft að reyna að horfa á björtu hliðarnar, þótt allir hefðu viljað sleppa þessum blessaða heims- faraldri. Eins og Þórólfur segir, þetta er leiðinlegt. Já, Þórólfur, alveg hreint hund- leiðinlegt! En fyrst við ráðum engu í stóru myndinni, er gott að finna eitthvað jákvætt við þetta tímabil. Flest ætt- um við að geta horft til baka yfir síð- asta eina og hálfa árið og fundið eitt- hvað jákvætt. Ég segi flest okkar, því vissulega verður lífið hjá mörg- um aldrei samt. Á hverjum degi eru fréttir af smittölum, gjörgæsluinnlögnum, vandamálum spítalans, óeirðum, stríðum, gróðureldum og dauða. Er nema von að maður verði stundum svolítið niðurdreginn og fái alveg nóg af þessum hörmungartíðindum dag eftir dag? Því ákvað ég að fara á stúfana og athuga hvort ég fyndi ekki fólk sem gæti horft til baka og fundið eitthvað gott við þennan tíma síðan veiran skall á heimsbyggðinni. Viti menn, jákvætt fólk fannst sem var til í að segja sínar sög- ur. Sumir létu gamla drauma rætast, aðrir fengu nýja og betri vinnu, ein skellti sér í draumanámið og annarri fannst gott að njóta samverunnar með fjölskyldu og hægja á hröðum takti lífsins. Viðmælendur minntust á að þeir fyndu til þakklætis. Fólk var þakklátt fyrir góða heilsu, að fólkið þeirra hafi ekki veikst, að fá nýja vinnu eða halda þeirri gömlu og að vera meira með fjöl- skyldunni. Kannski er málið að slökkva á fréttum í nokkra daga, setjast út í sólina með góðan kaffibolla, horfa yfir síðasta eina og hálfa árið og hugleiða. Mögulega gætum við flest fundið eitthvað gott. Ég veit fyrir mitt leyti að ég kann miklu betur að meta fallega landið mitt eftir að hafa ferðast víða innanlands. Sólin skín í heiði, fuglarnir syngja, eldgosið gleður augað og lífið heldur áfram sama hvað. Viðhorfið skiptir öllu. Kannski eigum við að gera eins og gaurinn á kross- inum, raula gott lag og horfa bara á björtu hliðarnar. Björtu hliðarnar á hörmungartíð Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’ Kannski er málið að slökkva á fréttum í nokkra daga, setjast út í sólina með góðan kaffibolla, horfa yfir síðasta eina og hálfa árið og hugleiða. Guðný Eiríksdóttir Ég eyddi meiri tíma með fjölskyld- unni. Það var jákvætt. SPURNING DAGSINS Hvað er jákvætt við kórónu- veiru- tímabilið? Ólafur Haukur Matthíasson Ég útskrifaðist sem stúdent vegna fjarkennslu. Rita Afonso Fjölskyldan hefur orðið nánari og fólk sýnir meiri samkennd. Magnús Steindórsson Ég hef ferðast meira innanlands og verið meira með fjölskyldunni. Svo hafa Íslendingar loksins lært að standa í röð. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndirnar tók Ásdís Ásgeirsdóttir Hvað ertu að sýsla í góða veðrinu? Hljómsveitarliðsmenn úr Minua voru að koma til landsins í gær. Við vorum að koma úr gönguferð á Klambratúni en erum komnir inn úr sólinni til að æfa. Segðu mér frá Minua? Hún var stofnuð 2013 í Basel í Sviss þar sem ég bjó í nokkur ár þegar ég var í námi. Við erum þrír í Minua, ég, Luca sem spilar á gítar eins og ég og Fabian sem spilar á bassaklarin- ett. Við semjum mikið saman en ég sem þó kannski mest. Hvernig myndir þú lýsa tónlistinni ykkar? Hún er mjög róleg og myndræn, undir áhrifum frá djassi, klassískri tónlist, kvikmyndatónlist og mínímalískri tilrauna- tónlist. Ertu búinn að túra mikið um Evrópu? Já, ég hef spilað á fjögur hundruð tónleikum í ellefu löndum. Ég bjó í Sviss í fimm ár og svo í Berlín í þrjú ár og var þar í alls konar verkefnum og var að spila mikið víða. Ertu þá nýfluttur heim? Ég flutti heim fyrir tveimur árum. Ég hef verið sjálfstætt starfandi síðan ég kláraði námið. Maður hefur verið að ströggla en það hefur alltaf gengið upp einhvern veginn. Við erum að fara að gefa út nýja plötu 20. ágúst sem heitir Simulackra. Hún kemur út á kassettu og stafrænt. Á einhver kassettutæki í dag? Já, það hefur heilmikið selst í forsölu þannig að fólk virðist enn eiga kassettutæki. Hvað ætliði að spila á sunnudaginn? Við erum að vinna í því; það verður í bland nýtt efni og eldra. Rólegt og ljóðrænt KRISTINN SMÁRI KRISTINSSON SITUR FYRIR SVÖRUM Tónlistamaðurinn Kristinn Smári Kristinsson er með tónleika ásamt hljómsveit sinni Minua í Flóa í Hörpu sunnudaginn 15. ágúst klukkan 16. og er ókeypis inn. Einnig verða dúett tónleikar í Mengi þann 20. ágúst kl. 20.30. Upplýsingar eru á mengi.is.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.