Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Síða 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021 Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Nettó, Melabúð, Fjarðarkaup, Heilsuhúsið, Frú Lauga, Matarbúðin, Brauðhúsið, Fiskkompaní, Mamma veit best og Matarbúr Kaju Akranes Þ órólfur Guðnason sóttvarna- læknir sagði í viðtali á Bylgj- unni að tímabært væri að reyna að ná fram hjarðónæmi í land- inu með því að láta veiruna ganga fram. Hann sagði síðar að fjölmiðlar hefðu mistúlkað orð sín, þótt orð hans hafi verið nokkuð afdráttarlaus og ekki gefið neitt rúm til túlkunar. Á Landspítalanum eru alls konar læknar, en Stefán Hrafn Hagalín, spunalæknir spítalans, játaði að hann hefði verið óvarkár í orðum þegar hann varaði starfsfólk við að svara blaðamönnum, sem hann kall- aði skrattakolla. Breytt staða í þróun faraldursins kallar á nýja nálgun, sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og það virtist vera samhljómur um það í ríkisstjórninni. Sem sagt að eðli far- aldursins hefði breyst við bólusetn- ingu þorra þjóðarinnar, þar sem fáir veiktust alvarlega þrátt snaraukin smit af völdum Delta-afbrigðis kór- ónuveirunnar. Sama staða virðist blasa við yfir- stjórn Landspítalans, en Páll Matthíasson forstjóri hans segir spítalann vel hafa bolmagn til þess að takast á við bylgjuna. Aftur á móti reyndist örðugra að halda uppi æ flóknari sóttvörnum á landamærunum, þar sem tæknin hefði ekki haft undan fjöldanum, sem til landsins kom. Eins og sást á því að aðvífandi ferðamönnum var gert að forskrá sig til þess að fá út- gefið strikamerki til þess að komast inn í landið. Það var þó ekki skimað inn í Leifsstöð, heldur létu dyraverð- ir á vegum Isavia sér nægja að skoða þau með eigin augum. Hafist var handa við að rífa leg- steinahús Páls á Húsafelli, en deilur hafa staðið milli hans og nágranna hans um það árum saman. Á síðustu stundu náðist þó samkomulag um að það fengi að standa. . . . Svo virðist sem fjórða bylgjan (eða fimmta eftir því hvernig sóttvarna- yfirvöld vilja telja þann daginn) sé í rénun, þótt fullsnemmt þætti að slá nokkru föstu um það. Fram kom að fjórir af þeim sex Covid- sjúklingum, sem hefðu verið í gjör- gæslu í þessari bylgju, hefðu verið óbólusettir. Í ljósi þess að ekki er meira en 7% fólks sextán ára og eldra óbólusett, er það nokkuð afdráttarlaus vísbending um nytsemi bólusetninga. Kári Stefánsson segir að hjarð- ónæmi myndist ekki fyrr en um 75- 80% þjóðarinnar hafi smitast af kór- ónuveirunni. Hann telur að það muni gerast á 1-2 árum. Læknar á Land- spítala taka í sama streng og telja að það geti gerst án verulegra áfalla, enda sé vörnin af bóluefninu mikil. Fjögur banaslys hafa nú orðið hjá útivistarfólki það sem af er sumri, en 18 ára gömul frönsk stúlka hrapaði niður bratta hlíð á göngu um Súlur í Stöðvarfirði á sunnudag. Eigendur atvinnuhúsnæðis, sérstak- lega verslunarhúsnæðis, eru ekki ánægðir með hækkun á fasteigna- mati, sem ekki taki neitt tillit til teknanna af því, heldur aðeins ætl- uðu söluverði. Tekjur af verslunar- húsnæði hafa víða lækkað mjög mikið í kórónukreppunni. Íslendingar eru almennt ekki gefnir fyrir pöddur og skorkvikindi, en hins vegar telur Rúna Þrastardóttir dýralæknir skordýrarækt vera álit- lega búgrein, bæði til manneldis og fóðurgerðar. Latifa prinsessa af Dúbaí (sem ekki er sú sama og Latifah drottning af New Jersey) kom til Íslands til að skoða eldgosið, en hún er laus úr stofufangelsi fjölskyldu hennar, sem sagt var frá í fréttum fyrr á árinu. Ríkisútvarpið (Rúv.) virðist hafa áttað sig á umbreytingum í fjar- skiptum undanfarna tvo áratugi, en Stefán Eiríksson útvarpsstjóri tel- ur til greina koma að annars konar dreifikerfi verði reist og rekið af öðrum. Þóri Guðmundssyni, fréttastjóra Stöðvar 2, var sagt upp störfum. Jónas Þórir Þórisson, kristniboði og fv. framkvæmdastjóri Hjálparstarfs þjóðkrikjunnar, lést 77 ára að aldri. . . . Þrátt fyrir að hafa nokkrum dögum fyrr kynnt breytta stöðu kórónu- veirufaraldursins kynnti ríkis- stjórnin óbreyttar sóttvarna- ráðstafanir í vikunni. Þær voru framlengdar um tvær vikur þótt ekki sé vitað um fleiri útihátíðir í sumar, sem sóttvarnalæknir er á móti. Til þess að mæta því kynnti ríkis- stjórnin áform um umfangsmiklar aðgerðir til þess að efla skapandi greinar. Páll Matthíason, forstjóri Land- spítalans, segir ástæðulaust að óttast að spítalinn standist ekki álagið í bylgjunni. Vandræði upp á síðkastið hafi aðallega stafað af sumarleyfum og hefðbundnum sjúkdómum, Co- vid-19 hafi ekki leikið þar sérstakt hlutverk. Laugardalshöll kann að vera lokuð íþróttastarfi fram á næsta ár, ekki þó vegna faraldursins, heldur vegna viðhalds hennar og endurtekinna vandræða við útboð Reykjavíkur- borgar á lýsingu. Þrátt fyrir áhyggjur af ferðaþjónust- unni í kórónukreppunni, nú eða kannski einmitt vegna þeirra, ákváðu flugumferðarstjórar að boða til vinnustöðvana. Nú er minnsta atvinnuleysi síðan í febrúar 2020, en í júlí mældist það 6,1% á landinu öllu. Það var að vanda mest á Suðurnesjum eða 10,9% en þar hefur þó verulega dregið úr því upp á síðkastið. . . . Framhaldsskólar verða flestir settir í næstu viku, en við blasir að skóla- starfið mun litast af ákvörðun stjórn- valda að framlengja sóttvarnaráðstaf- anir um tvær vikur. Að vonum er þungt hljóð í nemendum vegna þessa, sem hafa orðið fyrir mikilli truflun á námsferlinum undanfarin tvö skólaár og hið þriðja að hefjast. Umboðsmaður Alþingis telur að starfsmönnum Tryggingastofnunar ríkisins beri að undirrita ákvarðanir stofnunarinnar, svo ábyrgðin á þeim sé ljós. Það hefur ekki tíðkast þar sem fyrir hefur komið að starfsfólk sé áreitt eða því hótað vegna ákvarð- ana, sem skjólstæðingar stofnunar- innar fella sig ekki við. Þórólfur Guðnason sóttvarnalækn- ir telur að veikindi af völdum kór- ónuveirunar réttlæti áframhaldandi sóttvarnaaðgerðir, þótt þau séu fátíð. Icelandair er krafið um 829 milljóna króna bætur vegna skemmda, sem starfsmaður þess vann á breskri flugvél, og tekjumissi af þeim sökum. Starfsmaðurinn ók á vélina, sem hann átti að ferma mat og drykk, en hann reyndist réttindalaus. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna í haust er hafin. Á höfuðborgarsvæðinu mun hún fara fram í Smáralind og Kringl- unni. Fótboltaáhugamenn tóku gleði sína á ný þegar enski boltinn hóf aftur göngu sína. Hann verður með fjör- legra yfirbragði en á síðustu leiktíð, enda eru áhorfendur velkomnir á pallana aftur. Sósíalistaflokkurinn, sem aðhyllist sameignarstefnu, fór þess á leit við Ríkisútvarpið að fá ókeypis auglýs- ingar í miðlinum fyrir kosningar. Flokkurinn telur það sjálfsagt enda nánast formsatriði að hann komist á spenann hjá skattgreiðendum. . . . Virkum smitum fækkaði um 55 og stærðfræðin virtist loks rifjast upp fyrir læknum, sem hættu allt í einu að tala um veldisvöxt faraldursins og tóku að ræða línulegan vöxt. Allt mjög traustvekjandi. Landspítalinn ákvað að umbuna starfsfólki sínu sérstaklega vegna álags, en spítalinn hefur sveiflast af varúðarstigi yfir á hættustig af minnsta tilefni. Það verður gert með aukatímagreiðslum í yfirvinnu. Eyja- og Miklaholtshreppur hefur ákveðið að taka upp sameiningar- viðræður við Snæfellsbæ. Tillögum um að Kolbrún Baldurs- dóttir, borgarfulltrúi Flokks fólks- ins, tæki sæti í neyðarstjórn Reykja- víkur var vísað frá á fundi borgarráðs. Píratar ákváðu að fresta aðalfundi sínum vegna smits, en hyggjast funda á Vogi (á Fellsströnd) í næstu viku í staðinn. Allt breytt og engu breytt Mynd og hljóð fóru ekki alltaf saman hjá stjórnvöldum í vikunni þegar gerbreyttri stöðu í faraldrinum var svarað með óbreyttum sóttvarnaráðstöfunum. Sumir ráðherrarnir voru víst öskureiðir en sögðu ekkert. Morgunblaðið/Eggert 8.8.-13.8. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.