Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Page 6
VETTVANGUR
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021
G
unnar heitinn Birgisson
kom víða við á allt of stutt-
um lífsferli sínum. Hann
var bæjarstjóri, alþingismaður og
verktaki og fleiri störfum gegndi
hann um dagana. Hann var at-
kvæðamikill hvar sem hann fór. Þeg-
ar verktakinn GB lagði í fram-
kvæmd allan sinn þunga, sem var
talsverður, þá máttu menn vita að
undan honum gengi.
Á vettvangi stjórnmálanna tók
hann sitt hlutverk einnig alvarlega
og lagði kapp á að afkasta miklu og
gera vel.
Um skeið sátum við saman á
þingi. Gunnar var jafnframt bæj-
arstóri í Kópavogi. Einhverju sinni
ræddum við um framkvæmdir á veg-
um hins opinbera. Ég sagðist taka
eftir því að gagnstætt ýmsum öðrum
bæjarstjórum
virtist mér hann
vilja fara varlega
í að fela verktök-
um að reisa og
reka stofnanir
sveitarfélagsins í
einkafram-
kvæmd. Ég sæi
ekki betur en
hann vildi að
bæjarfélagið
sjálft ætti húsnæðið sem hýsti starf-
semi þess og annaðist reksturinn
sjálft. Væri rétt tekið eftir, spurði ég
Gunnar. Hann kvað svo vera. En þú
ert bæði markaðshyggjumaður og
sjálfur úr verktakabransanum, hélt
ég áfram, hverju sætir?
Í auga Gunnars Birgissonar sá ég
bregða fyrir glimti. Þú hittir nagl-
ann á höfuðið, sagði hann og hló við,
ég er bisnissmaður, ég læt ekki plata
mig.
Þetta hefur mér oft orðið tilefni til
hugleiðinga. Þær hafa verið á þenn-
an veg: Menn skipa sér í fylkingar í
stjórnmálum til hægri og vinstri á
mismunandi forsendum. Þær geta
verið hagsmunatengdar, hvað komi
sér best fyrir þá sjálfa eða þá aðila
sem þeir bera fyrir brjósti. Það gætu
verið öryrkjar eða lágtekjufólk eða á
hinn bóginn fjárfestar og bisn-
issmenn. Þetta er hagsmunatengd
pólitík.
En svo geta menn tekið afstöðu í
stjórnmálum algerlega ótengt slík-
um hagsmunum, einfaldlega horft til
þess hvað þeir telji að gagnist best
heildinni, samfélaginu. Vinstri mað-
urinn vill leggja áherslu á samstarf
og samvinnu, sameiginlegt eign-
arhald og sameiginlegan rekstur á
því sem sameiginlegt er. Hægri
maðurinn, á hinn bóginn, telur að
samkeppni gagnist heildinni best; að
þegar upp er staðið komi í ljós að
ódýrara sé, og þar af leiðandi hag-
kvæmara, að fela einkaaðilum að
starfrækja opinbera þjónustu, reisa
undir hana húsnæði, eiga það og
reka.
Ef við nú gefum okkur að fyrir
hægri manninum og vinstri mann-
inum vaki ekkert annað en að gera
það sem hagkvæmast er fyrir okkur
öll – okkur sem samfélag – er þá
ekki komið að því að við grípum til
reiknistokksins?
Mér hefur oft komið þetta í hug,
nú síðast þegar ég las í Morg-
unblaðinu fyrir skömmu að ríkið
væri að láta reisa mikið hús undir
starfsemi á þess
vegum við Katr-
ínartún í Reykja-
vík. Hugmyndin
væri hins vegar
ekki sú að rík-
issjóður eignaðist
húsnæðið heldur
greiddi verktak-
anum leigu í heila
þrjá áratugi.
Leigan yrði þá
talin í allmörgum milljörðum.
Ekki tók ég eftir því hver verktak-
inn er. Man ég þó að það var ekki
móðir Teresa eða yfirleitt nokkur
góðgerðarstofnun. Að öllum lík-
indum var þetta fjárfestir sem ætlar
að fá eitthvað fyrir sinn snúð.
Og þá skulum við reikna, setja
okkur í stellingu bisnissverktakans
Gunnars Birgissonar og spyrja ein-
faldrar spurningar: Borgar þetta
sig?
Ég tók eftir því að nýja húsið á
meðal annars að hýsa skattinn og
fjársýsluna. Þar kunna menn að
reikna hefði ég haldið. Finnst mönn-
um þar á bæ þetta vera í lagi? Og er
ríkisstjórnin öll sammála? Ekki bara
með hliðsjón af hægri pólitík og
vinstri pólitík heldur einföldum
reikningi með plúsum og mínusum
og margföldun.
Hefur Skúli Eggert ríkisend-
urskoðandi verið spurður álits?
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landamæri
reiknilistar og
stjórnmála
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
’
Mér hefur oft komið
þetta í hug, nú síðast
þegar ég las í Morg-
unblaðinu fyrir skömmu
að ríkið væri að láta reisa
mikið hús undir starf-
semi á þess vegum við
Katrínartún í Reykjavík.
Vel hefur viðrað til ferðalaga í sumar og margir farið
víða um landið okkar fagra, bæði erlendir ferðamenn
sem og Íslendingar. Við Skógafoss mátti sjá glað-
beitta ferðamenn sem voru við öllu búnir. Fólk var
klætt í fínan útivistarfatnað, enda ekki ólíklegt að
blotna aðeins í návígi við fossinn.
Þegar sólin skín á þéttan úðann dansa regnbogar
um loftið og ekki þótti almættinu nóg að búa til einn
slíkan þennan fallega sumardag þegar ljósmyndari
var á ferðinni. Ferðamenn voru fljótir að taka fram
myndavélar eða farsímana og reyna að fanga feg-
urðina á mynd. Að fríinu loknu geta túristarnir skoð-
að fínu myndirnar sínar og yljað sér við góðar minn-
ingar.
Morgunblaðið/Einar Falur
Tvöfaldur regnbogi við Skógafoss
Speglaframlenging
Kerrulás
Hitablásarar
Reiðhjólafestingar
á bíl
Tjalds
Flugnanet fyrir
börn og fullorðna
Rafmagnspumpa
Farangursteygjur
og strekkibönd
ikföng
Allt í ferðalagið
frá 3.845
4.485
2.995
frá 4.999
1.995
995
Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is
Verkfæralagerinn
Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17
2.995Rafmangskælibox
frá 9.999