Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Blaðsíða 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021 G unnar heitinn Birgisson kom víða við á allt of stutt- um lífsferli sínum. Hann var bæjarstjóri, alþingismaður og verktaki og fleiri störfum gegndi hann um dagana. Hann var at- kvæðamikill hvar sem hann fór. Þeg- ar verktakinn GB lagði í fram- kvæmd allan sinn þunga, sem var talsverður, þá máttu menn vita að undan honum gengi. Á vettvangi stjórnmálanna tók hann sitt hlutverk einnig alvarlega og lagði kapp á að afkasta miklu og gera vel. Um skeið sátum við saman á þingi. Gunnar var jafnframt bæj- arstóri í Kópavogi. Einhverju sinni ræddum við um framkvæmdir á veg- um hins opinbera. Ég sagðist taka eftir því að gagnstætt ýmsum öðrum bæjarstjórum virtist mér hann vilja fara varlega í að fela verktök- um að reisa og reka stofnanir sveitarfélagsins í einkafram- kvæmd. Ég sæi ekki betur en hann vildi að bæjarfélagið sjálft ætti húsnæðið sem hýsti starf- semi þess og annaðist reksturinn sjálft. Væri rétt tekið eftir, spurði ég Gunnar. Hann kvað svo vera. En þú ert bæði markaðshyggjumaður og sjálfur úr verktakabransanum, hélt ég áfram, hverju sætir? Í auga Gunnars Birgissonar sá ég bregða fyrir glimti. Þú hittir nagl- ann á höfuðið, sagði hann og hló við, ég er bisnissmaður, ég læt ekki plata mig. Þetta hefur mér oft orðið tilefni til hugleiðinga. Þær hafa verið á þenn- an veg: Menn skipa sér í fylkingar í stjórnmálum til hægri og vinstri á mismunandi forsendum. Þær geta verið hagsmunatengdar, hvað komi sér best fyrir þá sjálfa eða þá aðila sem þeir bera fyrir brjósti. Það gætu verið öryrkjar eða lágtekjufólk eða á hinn bóginn fjárfestar og bisn- issmenn. Þetta er hagsmunatengd pólitík. En svo geta menn tekið afstöðu í stjórnmálum algerlega ótengt slík- um hagsmunum, einfaldlega horft til þess hvað þeir telji að gagnist best heildinni, samfélaginu. Vinstri mað- urinn vill leggja áherslu á samstarf og samvinnu, sameiginlegt eign- arhald og sameiginlegan rekstur á því sem sameiginlegt er. Hægri maðurinn, á hinn bóginn, telur að samkeppni gagnist heildinni best; að þegar upp er staðið komi í ljós að ódýrara sé, og þar af leiðandi hag- kvæmara, að fela einkaaðilum að starfrækja opinbera þjónustu, reisa undir hana húsnæði, eiga það og reka. Ef við nú gefum okkur að fyrir hægri manninum og vinstri mann- inum vaki ekkert annað en að gera það sem hagkvæmast er fyrir okkur öll – okkur sem samfélag – er þá ekki komið að því að við grípum til reiknistokksins? Mér hefur oft komið þetta í hug, nú síðast þegar ég las í Morg- unblaðinu fyrir skömmu að ríkið væri að láta reisa mikið hús undir starfsemi á þess vegum við Katr- ínartún í Reykja- vík. Hugmyndin væri hins vegar ekki sú að rík- issjóður eignaðist húsnæðið heldur greiddi verktak- anum leigu í heila þrjá áratugi. Leigan yrði þá talin í allmörgum milljörðum. Ekki tók ég eftir því hver verktak- inn er. Man ég þó að það var ekki móðir Teresa eða yfirleitt nokkur góðgerðarstofnun. Að öllum lík- indum var þetta fjárfestir sem ætlar að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Og þá skulum við reikna, setja okkur í stellingu bisnissverktakans Gunnars Birgissonar og spyrja ein- faldrar spurningar: Borgar þetta sig? Ég tók eftir því að nýja húsið á meðal annars að hýsa skattinn og fjársýsluna. Þar kunna menn að reikna hefði ég haldið. Finnst mönn- um þar á bæ þetta vera í lagi? Og er ríkisstjórnin öll sammála? Ekki bara með hliðsjón af hægri pólitík og vinstri pólitík heldur einföldum reikningi með plúsum og mínusum og margföldun. Hefur Skúli Eggert ríkisend- urskoðandi verið spurður álits? Morgunblaðið/Árni Sæberg Landamæri reiknilistar og stjórnmála Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is ’ Mér hefur oft komið þetta í hug, nú síðast þegar ég las í Morg- unblaðinu fyrir skömmu að ríkið væri að láta reisa mikið hús undir starf- semi á þess vegum við Katrínartún í Reykjavík. Vel hefur viðrað til ferðalaga í sumar og margir farið víða um landið okkar fagra, bæði erlendir ferðamenn sem og Íslendingar. Við Skógafoss mátti sjá glað- beitta ferðamenn sem voru við öllu búnir. Fólk var klætt í fínan útivistarfatnað, enda ekki ólíklegt að blotna aðeins í návígi við fossinn. Þegar sólin skín á þéttan úðann dansa regnbogar um loftið og ekki þótti almættinu nóg að búa til einn slíkan þennan fallega sumardag þegar ljósmyndari var á ferðinni. Ferðamenn voru fljótir að taka fram myndavélar eða farsímana og reyna að fanga feg- urðina á mynd. Að fríinu loknu geta túristarnir skoð- að fínu myndirnar sínar og yljað sér við góðar minn- ingar. Morgunblaðið/Einar Falur Tvöfaldur regnbogi við Skógafoss Speglaframlenging Kerrulás Hitablásarar Reiðhjólafestingar á bíl Tjalds Flugnanet fyrir börn og fullorðna Rafmagnspumpa Farangursteygjur og strekkibönd ikföng Allt í ferðalagið frá 3.845 4.485 2.995 frá 4.999 1.995 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 2.995Rafmangskælibox frá 9.999

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.