Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Qupperneq 12
KÓRÓNUVEIRAN 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021 Ég gerðist flugþjónn hjá Icelandair árið 2014 og á svipuðum tíma fór ég að brugga. Það byrjaði þannig að ég labb- aði inn í bílskúr til pabba þar sem hann var að brugga og ég varð strax alveg dolfallinn. Hann var þá nýbyrjaður og hafði keypt byrjenda- pakka. En svo tók ég við af honum og nú finnst honum bara skemmtilegra að drekka bjórinn,“ segir Ragnar og hlær. Atvinnulaus í tónlist „Þetta varð stærsta áhugamálið og varð strax hluti af lífinu. Mig dreymdi fljótlega um að opna mitt eigið brugghús. En svo varð ekkert úr því; ég var auðvitað í vinnu og svo eignaðist ég barn,“ segir Ragnar en hann starfaði sem flugþjónn alveg þar til í fyrra. „Ég fór líka í flugnám og er kominn langt, en hef sett það á pásu núna í Covid. En flug- þjónsstarfið var mjög skemmtilegt. Ég er líka mikið í tónlist og rek stúdíó og sem mína eigin tónlist. Það fór vel með flugþjónsstarfinu því það eru oft frídagar inn á milli. Svo var auðvit- að gaman að sinna bjóráhugamálinu með því að þræða brugghúsin í stoppum í Ameríku. Ég nýtti vel öll stoppin og kom oft heim með spennandi bjór,“ segir Ragnar. „Við vorum um 96% af freyjum sem fengum svo uppsagnarbréf í mars í fyrra, en ég missti ekki endanlega vinnuna fyrr en í ágúst. Það var mjög óraunverulegt að vera án vinnu. Þá sneri ég mér að tónlistinni en ég er með hljómsveit- ina Draumfarir og ég fór að einbeita mér að tónlistinni, en við höfðum verið með lög í Euro- vision. Ég er að vinna með tónlistarmanninum Birgi Steini Stefánssyni, en hann var líka flug- þjónn og missti líka vinnuna. En maður lifir ekki hátt af þessari vinnu,“ segir Ragnar. „Ég hafði eitthvað fyrir stafni en ekkert fast og litlar tekjur.“ Að vinna við áhugamálið Það var svo einn góðan veðurdag að Ragnar sá auglýsingu sem vakti áhuga hans. Hann hafði þá verið án vinnu allan veturinn. „Það var auglýsing á heimabruggarasíðu á Facebook þar sem óskað var eftir bruggmeist- ara í brugghús. Ég sótti bara um enda farinn að leita mér að vinnu og þetta hljómaði full- komið. Mig hafði lengi dreymt um að vinna við þetta, að vinna við áhugamálið. Ég sótti um og fékk starfið og það myndaðist strax góður vin- skapur á milli míns og samstarfsfélaganna Liljars Más Þorbjörnssonar og Ragnheiðar Eyjólfsdóttur, en þau reka brugghúsið Og nat- ura, sem er undir fyrirtækinu Íslenskri holl- ustu. Svo var svo mikil sigling í brugghúsinu að það vantaði einhvern til að sjá alfarið um bjórinn,“ segir Ragnar og segist hafa verið hent beint í djúpu laugina. „Það var svolítið stökk að fara úr tuttugu lítr- um í bílskúrnum yfir í sex hundruð lítra á fyrsta vinnudeginum. Ég hélt ég að ég væri bara að fara að skoða tækin og læra á þetta þennan fyrsta dag, en þá þurfti ég strax að brugga bjór sem átti að fara í Vínbúðina, gerðan eftir uppskrift frá mér,“ segir Ragnar sem lærði fljótt á tækin. „Bjórinn heitir Dögg en ég kom inn í þeim tilgangi að þróa uppskriftir, brugga bjórinn og koma þeim á flöskur. Það geta allir lært að brugga bjór en svo er málið að gera hann góð- an. Þetta er heilmikil tækni og vísindi, og svo þarf að hafa ástríðuna.“ Það þurfti faraldur til Ertu ánægðari í starfi núna en þú varst sem flugþjónn? „Þetta er allt öðruvísi. Hjá Icelandair var alltaf skemmtilegt í vinnunni en hér finnst mér ég ekki vera í vinnunni því þetta er svo mikið áhugamál. Ég fæ að vinna við áhuga- málið og finnst ég vera á hárréttum stað. Ég væri aldrei hér ef ekki hefði komið Covid,“ segir Ragnar. „Næsti draumur er að opna bar samhliða brugginu og er það á planinu,“ segir Ragnar og segir þau hjá Og natura nú selja þrjár gerðir af bjór í sumar og fleiri í bígerð með haustinu. Hvaða lærdóm hefurðu dregið af þessu kór- ónuveirutímabili? „Ég myndi segja að ég hafi lært að maður eigi ekki að bíða með hlutina. Ekki bíða með að fara að vinna við það sem þú hefur áhuga á. Það þurfti faraldur til að ég léti verða af því. Maður á að stökkva á tækifærin og láta draumana rætast.“ Ekki bíða með hlutina Bruggarinn Ragnar Már Jónsson er kominn á rétta hillu. Hann fær nú að vinna alla daga að helsta áhugamálinu og gæti ekki verið sáttari. Ragnar Már missti vinnuna sem flugþjónn en vinnur nú sem bruggari hjá Og natura og er alsæll. Morgunblaðið/Ásdís Kórónuveiran hefur sannarlega haft mikil áhrif á kennslu og hafa bæði kennarar og nemendur þurft að aðlagast breyttum aðstæðum. „Ég hef kennt við Háskólann í Reykjavík í tuttugu ár og finnst það alltaf jafn gaman. Þetta er mín köllun, að miðla efni til nem- anda. Ég vil að nemendur mínir hugsi um fólkið sem kemur til með að taka við kerfunum sem við búum til og er svo viss um að mín að- ferðarfræði sé sú rétta,“ segir tölvunarfræðingurinn Marta Kristín. Kenndi sama efnið fjórum sinnum „Frá því ég byrjaði að kenna árið 2000 höfum við alltaf verið með fólk í fjarnámi. Þannig að fyrirlestrarnir mínir hafa alltaf verið teknir upp og þeir settir á netið stuttu síðar. Það hefur nýst bæði fólki í staðnámi og fjarnámi,“ segir Marta og segir að þegar Covid skall á hafi lítið verið um staðnám og því hafi reynsla síðustu áratugina af fjarnámi komið sér vel. „Síðastliðið haust barðist ég fyrir því að nemendur fengju að koma aðeins í skólann. Hinir kennararnir vildu margir hafa nám- ið alveg í fjarnámi en ég vildi að nemendur myndu fá að sjá aðeins framan í hvort annað. Ég lagði því á mig að kenna sama fyrirlest- urinn fjórum sinnum vegna takmarkana sem voru við lýði,“ segir hún og segir marga nemendur hafa verið þakkláta fyrir það. „En mest var kennt í fjarnámi og það gekk vel því þetta var ekki glænýtt fyrir okkur.“ Fjarfundir á jafnréttisgrundvelli Marta segir það jákvætt við kórónuveirutímabilið að hafa til- einkað sér ný vinnubrögð. „Ég setti heimapróf fyrir nemendur sem var nýtt og var ég frekar stressuð yfir því, en það gekk miklu betur en ég þorði að vona. Ég lærði þá að framkvæma þannig próf og kannski hentar þetta sumum nemendum betur. Við komum ábyggilega til með að vera með meiri sveiganleika í framtíðinni í náminu hjá okkur, því við höfum lært ýmislegt síðastliðið ár. Svo fannst mér já- kvætt að vinna heima, en ég hafði auðvitað notað Teams og Skype í tíu, fimmtán ár þannig að það var ekki alveg nýtt. En það sem gerðist var að mér fannst ég vera á meiri jafnréttis- grundvelli þegar ég fundaði með fólki til dæmis í Bretlandi, því nú voru allir heima hjá sér á fjarfundi, en þau ekki öll saman á fundi og ég ein á fjarfundi. Mér fannst ég ekki eins einangruð því nú var þetta jafnara fyrir alla,“ segir hún og bætir við að starfinu hafi fylgt ferðalög sem nú hafa dottið niður í eitt og hálft ár. „Ég fór að jafnaði erlendis einu sinni í mánuði á fundi eða ráðstefnur. Nú hef ég ekkert farið og finnst það mjög þægilegt. Ég er orðin 58 ára og hef prófað þetta allt saman og finnst ferðalögin stundum svolítið þreytandi. Þetta er rask og truflar svefninn, þó oft sé gaman að hitta fólk. En ég var alveg til í þessa pásu frá ferðalögum.“ Dýrindismatur á hverju kvöldi Marta á þrjú börn og búa tvö þeirra yngri heima, Guðrún Ýr og Valur, átján og 21 árs. Elsti sonurinn Lárus hefur búið í Lyon í Frakklandi í nokkur ár þar sem hann útskrifaðist sem kokkur vorið 2020. Þar kynntist hann kærustu sinni Marie, sem einnig er kokkur og útskrifaðist frá sama skóla á sama tíma. „Þau ákváðu um haustið 2019 að ráða sig tímabundið á skíða- hótel í frönsku ölpunum. Svo lokaði auðvitað þetta skíðahótel um miðjan mars 2020, aðeins fyrr en gert var ráð fyrir, og þá var enga vinnu að fá. Þau voru spennt fyrir að fara að nota sína menntun en það var allt lokað í Frakklandi. Þau fluttu þá í gam- alt fjölskylduhús í fjölskyldu Marie um hríð en ákváðu svo að koma til Íslands í júní í fyrra og sjá til hvað myndi gerast. Lár- us fékk strax vinnu á Kaffi Vest og Marie um haustið á Matbar. Þannig að þau bjuggu hér hjá okkur í kjallaranum og þegar lok- anir voru á veitingastöðum var ekki mikil vinna hjá þeim, en þau þurftu að fá útrás fyrir að elda. Þannig að þau eldaðu bara hér! Það var dásamlegt að hafa tvo franskmenntaða kokka á heimilinu,“ segir hún og brosir breitt. Í heilt ár bjó því unga parið í kjallaranum en þau eru nú nýflutt út. Marta dásamar þennan tíma og segir yndislegt að hafa fengið að kynnast tengdadóttirinni svona vel. Ekki skemmdi fyrir að fá dýrind- ismat nánast á hverju kvöldi. Þakklæti efst í huga Þegar þú horfir til baka, hvað er jákvæðast við kórónuveiru- tímabilið? „Ég horfi til þessa tímabils með þakklæti og jákvæðni. Ég er þakklát fyrir að enginn náin mér veiktist, en ég hafði mestar áhyggjur af aldraðri móður minni,“ segir Marta. „Mér fannst ég hafa haft þörf fyrir að hægja aðeins á. Þetta er í raun spennandi alheimstilraun, að láta okkur njóta aðeins betur að vera heima hjá okkur. Það er fín hvíld að þurfa ekki að ferðast. Stundum fannst mér líka aðeins of mikill hraði í líf- inu og gott að takturinn er nú hægari en áður. Nú nýt ég betur litlu hlutina og hversdagsleikans. Ég naut mikið áhugamál- anna, bæði hestamennskunnar og að fara í fjallgöngur, og þessi áhugamál gat ég stundað ótrauð, þrátt fyrir takmark- anir. Ég fór líka að kunna betur að meta atvinnuöryggið. Ég hef aldrei verið eins þakklát fyrir það eins og nú að vera í starfi sem mér finnst ótrúlega spennandi og að það sé nokkuð öruggt að ég fái að halda því. Þannig að eitt af því sem ég hef fengið út úr þessu tímabili er þakklæti. Bæði vegna vinnunnar en ekki síður vegna sambands míns við krakkana mína og tengdadóttur. Við vorum oftast sex saman hér heima, tengslin okkar efldust og mér fannst stundum eins og við værum öll sex saman í heimsreisu.“ Eins og að vera í heimsreisu Marta Kristín Lárusdóttir, dósent hjá Háskólanum í Reykjavík, segist sjá margt jákvætt við kórónuveirutímabilið. Aukin samvera með fjölskyldu, minni ferðalög og hægara líf hentar henni vel. Marta Kristín segist hafa haft þörf fyrir að hægja aðeins á og kór- ónuveirutímabilið hafi því að mörgu leyti verið pása frá hrað- anum. Hún segist líka hafa eflt samband sitt við fjölskylduna. Morgunblaðið/Ásdís

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.