Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.8. 2021
LESBÓK
Vinsamlegast pantið tíma hjá ráðgjafa í síma 580 3900
Fastus ehf. | Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I fastus.is
fastus.is
Agility
Föhr 4 FUHR Super 8
Mini Comfort
RAFSKUTLUR
BÓLA Það kom fram í grein New York Times á dög-
unum að einstaklingur sem boðin var bólusetning við
Covid í vetur hefði áhyggjur af aukaverkunum vegna
kvikmyndarinnar I Am Legend. Í myndinni, sem kom
út árið 2007, leikur Will Smith mann sem er sá eini í
New York-borg sem lifði af veirufaraldur og er þar
enn. Veiran var búin til til að nota í lyf gegn krabba-
meini en braust út meðal almennings, drap stærstan
hluta þess en breytti mörgum í uppvakninga sem fara
einungis á stjá að nóttu til og ráðast á þá sem verða á
vegi þeirra. Handritshöfundur myndarinnar, Akiva
Goldsman, fór á Twitter í vikunni í kjölfar fréttanna
og sagði: „Guð minn góður. Þetta er kvikmynd. Ég
skáldaði þetta. Þetta er ekki raunverulegt.“
„Ekki raunverulegt“
Golds-
man var
hneyksl-
aður.
AFP
KVIKMYNDIR Svo virðist sem kvikmyndageirinn
í Bandaríkjunum sé stiginn inn í nýjan veruleika
vegna kórónuveirufaraldursins og aukinna vin-
sælda streymisveitna. Kvikmyndinni Suicide
Squad hefur ekki gengið vel í kvikmyndahúsum
vestanhafs síðan hún kom út á dögunum en það
skiptir kannski ekki máli þar sem stór hluti tekna
bíóhúsanna kemur nú frá streymisveitum. Myndin
fór einmitt á HBO Max, streymisveitu AT&T, um
leið og hún kom út í bíóhúsum. Sem dæmi má
nefna að Disney fær nú hærri tekjur frá streym-
isveitu sinni Disney+ en það fékk á ári hverju frá
miðasölu fyrir faraldurinn. Þá fær Netflix hærri
tekjur af áskriftum en nokkurt stúdíó af miðasölu.
Breytt landslag
Leikarahópur Suicide Squad samankominn.
AFP
Appelgate bað fólk að virða einkalíf
hennar í kjölfar tilkynningarinnar.
Greindi frá
greiningunni
VEIKINDI Leikkonan Christina
Appelgate tilkynnti á Twitter á
dögunum að hún hefði greinst með
MS-sjúkdóminn. Appelgate, sem
gerði garðinn frægan í Anchorman
árið 2004, leikur nú aðalhlutverkið
í Netflix-þáttunum Dead to Me. Hún
er einnig einn framleiðenda þátt-
anna. Appelgate sagði á Twitter að
hún hefði greinst fyrir nokkrum
mánuðum. „En ég hef verið studd
af fólki sem ég veit að hefur einnig
þessa greiningu,“ sagði hún. Þetta
er ekki fyrsta barátta Appelgate
við alvarlegan sjúkdóm en hún
greindist með brjóstakrabbamein
árið 2008 sem hún vann bug á.
E
f gáfuðum lífverum frá ann-
arri plánetu yrði leyft að
horfa á nokkrar vinsælar
kvikmyndir frá jörðu myndu þær
líklega halda að konur séu mun
færri en karlar, að minnsta kosti
ómerkilegri. Staðreyndin er ein-
faldlega sú að konur eru talsvert
minna sýnilegar í kvikmyndum en
karlar og séu þær sýnilegar þá er
tilgangur þeirra oft einungis að
styðja við sögu karlmannsins sem
er í aðalhlutverki.
Rannsókn sem gerð var árið
2014 sýndi að 31% titlaðra hlut-
verka í Bandaríkjunum fóru til
kvenna á árunum 2010-13 og 23%
kvikmynda höfðu kvenkyns sögu-
hetju í aðal- eða aukahlutverki. Þá
leikstýrðu konur aðeins 7% kvik-
mynda á þessum árum. Önnur
rannsókn sýndi að meðal vinsælla
kvikmynda í Bandaríkjunum frá
árinu 1929 til 2015 talaði kona mest
í aðeins 22% þeirra. Þá var aðeins
ein mynd af 26 sem vann til Ósk-
arsverðlauna fyrir bestu mynd á
árunum 1991-2016 þar sem konur
töluðu meira en karlar.
Standast ekki prófið
Allt er þetta nokkuð einkennilegt
ef sú staðreynd er höfð að leið-
arljósi að konur eru um það bil
jafnmargar og karlar (raunar að-
eins fleiri) í Bandaríkjunum. Sömu
sögu má segja um fjölda kvenna
samanborið við karla meðal þeirra
sem gera sér leið í kvikmyndahús
þar í landi. Þá benda rannsóknir til
þess að konur og karlar tali að
meðaltali jafnmikið svo ekki ætti
það að hafa áhrif á kvikmyndagerð-
ina.
Í aðdraganda Óskarsverð-
launanna árið 2018 gerði BBC
rannsókn sem sýndi að aðeins 49%
kvikmynda sem unnið höfðu til
Óskarsverðlauna sem besta mynd
frá því verðlaunin voru fyrst veitt
stóðust svokallað Bechdel-próf.
Bechdel-prófið hefur á síðustu
árum orðið sú mælistika sem helst
er horft til þegar skoðaður er sýni-
leiki og framsetning kvenna í kvik-
myndum. Það átti þó aldrei að fara
svo enda var prófið, eða „reglan“
eins og það var kallað þá, fyrst sett
fram í myndasögu Alison Bechdel,
Dykes to Watch Out For, árið
1985. Hugmyndin af reglunni á að
hafa komið frá Liz Wallace, vikonu
Bechdel, og því er prófið oft kallað
Bechdel-Wallace-prófið.
Í myndasögunni segir frá tveim-
ur konum sem ræða saman. Önnur
þeirra segist aðeins fara á kvik-
mynd í bíó ef myndin 1) hefur tvær
eða fleiri konur, 2) sem tala saman,
3) um eitthvað annað en karlmenn.
Er prófið í sömu mynd nú og það
var fyrir 36 árum en gerðar hafa
verið ýmsar tilraunir til að bæta
við það. Dæmi um það er að gera
kröfu um að konurnar í myndinni
þurfi að hafa nöfn, setja lágmark á
Konur skila
meiri tekjum
36 ár eru liðin frá því að Bechdel-prófið, sem er
mælikvarði á þátttöku kvenna í kvikmyndum,
var fyrst sett fram. Konur njóta enn minna vægis
en eðlilegt gæti talist í kvikmyndaiðnaðnum.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is
Sandra Bullock var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn í Gravity sem þó
stenst ekki Bechdel-prófið enda fámennur leikarahópur þar á bæ.
Ljósmynd/Warner Bros. Pictures