Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Qupperneq 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.08.2021, Qupperneq 29
lengd samtalsins og að karlar séu aldrei nefndir í samtalinu þar sem talað er um eitthvað annað en þá. Skila meira fjármagni Árið 2014 gerði fréttasíðan Five- ThirtyEight greiningu á kvikmynd- um með það að leiðarljósi hvort þær stæðust Bechdel-prófið eða ekki. Kom í ljós að eftir því sem leið á 20. öldina fóru fleiri og fleiri myndir að standast prófið en eftir aldamótin hafði hlutfallið haldist í kringum 50%. Megináhersla grein- ingarinnar var að skoða myndirnar með tilliti til fjármagns sem veitt var í þær og þeirra tekna sem þær öfluðu. Myndir frá árunum 1990 til 2013 sem stóðust prófið höfðu miðgildi fjármagns sem var 16% lægra en miðgildi allra myndanna sem skoð- aðar voru. Áhugaverðast var þó að myndir sem stóðust fyrsta skilyrði prófsins fengu mest fjármagn, myndir sem stóðust ekkert næst- mest en myndir sem stóðust öll skilyrðin minnst. Auðveldara var því að fá fjármagn í kvikmyndir með tveimur konum en færri en aðeins ef þær töluðu ekki við hvor aðra. Þetta eru myndir þar sem konur leika til dæmis eiginkonu að- alsöguhetjunnar eða „stúlku í neyð“ (e. damsel in distress). Hin hefðbundna útskýring á þessu ójafnvægi hefur verið að áhorfendum líki einfaldlega betur við myndir þar sem karlar eru í meginhlutverki. Þeim myndum gangi betur í kvikmyndahúsum og því fái þær mest fjármagn. Gögnin renna þó ekki stoðum undir þessar staðhæfingar. FiveThirtyEight skoðaði hve miklu fjárfesting í kvikmynd skilaði þegar horft er til Bechdel-prófsins. Sýndi greiningin að myndir sem standast prófið skila meiri tekjum á hvern dollara sem fjárfest er í þær í Bandaríkjunum og Kanada. Á því svæði skili fjárfestingin meira eftir því sem fleiri skilyrði prófsins eru uppfyllt. Utan Norður- Ameríku sýndi rannsóknin ekki að munur væri á því hverju hver doll- ari skilaði í tekjum eftir því hvort myndir stóðust prófið eður ei. Ekki fullkomið próf Eðli málsins samkvæmt hefur Bechdel-prófið sætt gagnrýni enda langt frá því að vera fullkomið tæki til greiningar á því hvort mynd varpi ljósi á raunverulegt líf kvenna eður ei. Kvikmyndir þar sem konur eru hlutgerðar geta staðist prófið. (Tónlistarmynd- bandið við lagið Baby Got Back með Sir Mix-a-Lot verður seint lof- að fyrir að hampa margbreytileika kvenna en stenst prófið því tvær konur tala um rassinn á annarri í upphafi myndbandsins). Þá getur verið að mynd þar sem kona er í aðalhlutverki standist ekki prófið einfaldlega því það eru svo fáir karakterar í myndinni (til dæmis myndin Gravity sem hefur aðeins tvo karaktera sem birtast áhorf- endum). Raunar á Bechdel-prófið ekki að vera mælikvarði á það hvort ein- stök kvikmynd er góð eða ekki. Það er ekkert að mynd einungis vegna þess að hún fjallar aðeins um karla eins og það er ekkert að mynd því hún fjallar eingöngu um konur. Prófinu er hins vegar ætlað varpa ljósi á það misræmi sem er til staðar í kvikmyndaiðnaðinum í heild sinni og hvernig hann end- urspeglar ekki raunveruleikann. Hver og ein einasta mynd þarf ekki að standast prófið þó að fleiri myndir þurfi að gera það. Þótt greiningin sem rædd var hér að ofan sýndi að hlutfall þeirra mynda sem standast prófið hafi ekki aukist frá því um aldamót eru teikn á lofti um að tímarnir séu hægt og bítandi að breytast. Gögn frá bechdeltest.com sýna að hlut- fallið er að aukast og stóð í tæp- lega 70% mynda árið 2019. Þá hafa stór kvikmyndastúdíó í auknum mæli stólað á konur í aðal- hlutverkum, nú siðast Disney í of- urhetjumyndinni Black Widow. Betur má þó ef duga skal og væri óskandi ef konum muni fjölga í hátt settum stöðum innan kvik- myndageirans og meðal handrits- höfunda og leikstjóra á komandi árum og við sjáum fleiri sögur með konum í stórum hlutverkum í fram- tíðinni. Kvikmyndin Bridesmaids stenst Bechdel-prófið með prýði og er ein af fáum vinsælum myndum sem standast ekki öfugt Bechdel- próf, þ.e. engir karlar tala saman í myndinni um annað en konur. Ljósmynd/Universal Studios 15.8. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Njóttu þess að hvílast í hreinum rúmfötum Háaleitisbraut 58–60 • haaleiti@bjorg.is • Sími: 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Við þvoum og pressum rúmfötin - þú finnur muninn! FRAMHALD Nýsjálenski leikstjórinn Taika Waititi vinnur að framhaldsmynd af einni af hans vinsælustu myndum. Waititi er einn sá heitasti í kvikmyndaiðnaðinum um þessar mundir. Hann leikstýrði og skrifaði handritið að myndinni Jojo Rabbit sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir besta handrit byggt á öðru efni í fyrra. Ein vin- sælasta mynd Waititi er What We Do in the Shadows sem fjallar um nokkrar vampírur og erfiðleika þeirra við að að- lagast daglegu lífi. Lengi hefur verið beðið eftir framhaldi af myndinni og segist Wai- titi ásamt öðru vera að vinna að því. Önnur vampírumynd í bígerð Taika Waititi er ávallt hress. AFP BÓKSALA 4.-10. ÁGÚST Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Bréfið Kathryn Hughes 2 Fimmtudagsmorð- klúbburinn Richard Osman 3 Sagas Of The Icelanders Ýmsir höfundar 4 Hún á afmæli í dag Anders Roslund 5 Birth of a Volcano Max Milligan 6 Independent People Halldór Laxness 7 Sagnalandið Halldór Guðmundsson 8 Litla bókabúðin við vatnið Jenny Colgan 9 Pure Iceland Kristján Ingi Einarsson 10 Risasyrpa – rokkstjörnur 1 Risasyrpa – rokkstjörnur 2 Palli Playstation Gunnar Helgason 3 Múmínsnáðinn og Jónsmessuráðgátan Tove Jansson 4 Kettlingur kallaður Tígur Holly Webb 5 Snuðra og Tuðra fara í útilegu Iðunn Steinsd. / Lóa Hlín 6 Ég elska mig (strákur) Agnes Marinósd. / Hanna Sif 7 Hvað veistu um Ísland? Gauti Eiríksson 8 Depill heimsækir afa og ömmu Eric Hill 9 Harry Potter og viskusteinninn J.K. Rowling 10 Stelpan sem fauk Halla Eysteinsdóttir Allar bækur Barnabækur Leshringur er skemmtilegt fyr- irbæri. Minn leshringur telur átta manns. Hann hittist reglulega og efni valinnar bókar krufið. Eftir umræður og lok hvers fundar er sammælst um næstu bók eða bæk- ur sem lesa skal fyrir næsta hitting. Stundum verða gamlar sígildar bækur fyrir valinu og stundum ný- útkomnar bækur, öll bókmennta- flóran kemur til greina. Það er gaman að lesa bækur og ekki síður gaman að eyða kvöldi í að spjalla um efni bókanna frá mörgum hlið- um, heyra annarra álit. Túlkun manna á bókum er stundum eins og stundum ekki. Oftast kemur einhver í hópnum auga á eitthvað sem enginn tengdi við eða áttaði sig á og það er það skemmtilega við að vera í leshring því þá fær bókin svona endanlega lokun eftir lestur, krufin til mergjar. Næstu bækur sem leshringurinn minn tekur fyrir er bók úr síðasta jólabókaflóði, Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson, og svo tökum við einnig fyrir eina sem komin er til ára sinna, frá árinu 1961. Bókin geymir smásagnasafn og heitir Sunnudagskvöld til mánudags- morguns eftir Ástu Sigurð- ardóttur. Ein sagan í smásagna- safninu ber sama heiti og bókartitillinn og er talin ein af fyrstu módernísku íslensku smá- sögunum. Bókina las ég fyrst í MH. Við áttum að lesa tiltekna bók og draga hvaða smásögu við myndum skrifa um. Ég dró söguna Í hvaða vagni. Íslenskukennarinn, Jóhanna Sveinsdóttir, náði svo vel að fanga athygli mína og hafði augljóslega sjálf miklar mætur á Ástu Sigurð- ardóttur og hennar skrifum. Jó- hanna heitin var frábær kennari. Hún var sjálf rithöfundur, þýðandi á frönsku, blaðamaður, matgæð- ingur og bókmenntagagnrýnandi. Hún bjó um tíma í Frakklandi og lést þar langt um aldur fram í svip- legu slysi aðeins 43 ára gömul. Aftur að sögunni. Sögupersónan er móðir sem ber tilfinningar sínar, systurnar örvæntingu og eymd, á borð fyrir lesand- ann. Ásta fangaði tilfinningar móður í leit að barni sínu þannig, að 40 árum síðar man ég þessa sögu enn þann dag í dag, hvernig móð- irin leitar villuráf- andi að barninu sínu í barnavögn- um á götum borgarinnar og von hennar um að sjá það á ný. Ásta Sigurðardóttir var mynd- listarmaður, rithöfundur, grafíker og leirlistamaður. Hún var ætíð umdeild og mætti fordómum því hún fór sínar eigin leiðir og stork- aði hefðbundnum gildum sam- félagsins. Hún varð sex barna móð- ir en dó ung að árum, eins og íslenskukennari minn, aðeins 41 árs að aldri. Í vikunni var farið í kvöldgöngu í miðbæ Reykjavíkur, um slóðir Ástu Sigurðardóttur. Ólafur Egill Ólafs- son leiddi gönguna og tilefnið var að nú stendur til að sýna nýtt leik- verk í Þjóðleikhúsinu í haust um Ástu Sigurðardóttur og lífshlaup hennar sem hann mun leikstýra. Leshringurinn mun að sjálfsögðu fjölmenna í leikhúsið. Ég hlakka mikið til. HAFDÍS ER AÐ LESA Bækurnar krufnar Hafdís Ósk- arsdóttir er þjónustufulltrúi hjá Mosfellsbæ og höfuðbeina- og spjald- hryggsjafnari.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.