Morgunblaðið - 08.09.2021, Page 2

Morgunblaðið - 08.09.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. kl. 8-17, fös. kl. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Um 500 manns mættu í hraðpróf við Suðurlandsbraut í gær samkvæmt Óskari Reykdalssyni, forstjóra Heilsugæslunnar á höfuðborg- arsvæðinu, en nú er boðið upp á að fara í gjaldfrjálst hraðpróf hjá heilsugæslunni. Óskar segir að bú- ast megi við að það bæti í þegar helgin nálgast. Prófin henta til dæm- is þeim sem skulu sæta smitgát og fólki sem hyggst sækja viðburði. Spurður hversu mörgum þau geti tekið á móti í það mesta, segir Óskar þau viðbúin ansi miklu. „Við höfum reiknað með að það gæti farið svo að það komi tíu þúsund manns á einum degi. Segum að það væri allt í einu fótboltaleikur eða stórir tónleikar, þá er þetta nú fljótt að fara upp í þúsund, jafnvel mörg þúsund,“ segir hann. Önnur tegund hraðprófa, sjálfs- próf, eru ekki tekin gild inn á stærri viðburði og segir Óskar góða ástæðu fyrir því. Munurinn á sjálfsprófum og hraðprófum heilsugæslunnar er sá að í prófum heilsugæslunnar fer sýnatökupinninn lengra upp í nef- holið þar sem veiran dvelur frekar. Þannig séu því minni líkur á fölsku neikvæðu prófi. „Þau eru ekki alveg eins góð, en þau eru alveg gagnleg. En þau duga ekki til þess að útiloka veiruna jafn vel og hin prófin,“ segir hann um sjálfsprófin. „Best er PCR-próf, næstbest er hraðpróf og síst er sjálfspróf.“ 500 manns mættu og tóku hraðpróf í gær - Geta tekið við tíu þúsund manns - Betri en sjálfspróf Morgunblaðið/Unnur Karen Prófað Hraðpróf má nú fá gjaldfrjálst á Suðurlandsbraut fyrir viðburði. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Pawel Bartoszek, formaður skipu- lagsráðs borgarinnar, segir uppbygg- ingu bílakjallara á Héðinsreit skapa tækifæri til að fækka bílastæð- um ofanjarðar í hverfinu. „Það er mín stefna að fækka bílastæð- um, en auðvitað er þetta íbúðahverfi og gera verður ráð fyrir einhverj- um stæðum,“ seg- ir Pawel. Þessi umbreyt- ing hverfisins hafi komið til umræðu hjá borginni. „Við höfum rætt um það í skipu- lagsráði að bæta göngutengingar á þessu svæði. Það eru kannski þrjár gönguleiðir; Mýrargata, Vesturgata og Nýlendugata, og engin þeirra er fullkomin fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur. Þannig að nú þegar þessi íbúðabygging fer fram vil ég fara að skoða fljótlega hvernig við getum bætt þessar tengingar. Ég vil hjólastíga. Ég vil skoða hvort við getum gert upp Vesturgötuna með því til dæmis að setja gangandi í meiri forgang og með því að gera hana að vistgötu eða breikka gang- stéttir. Svo eiga hjólreiðamenn erfitt með að fara um Mýrargötuna á sum- um stöðum og við þurfum að skoða leiðir til að bæta úr því.“ Bílakjallari undir reitnum Pawel var í gær viðstaddur þegar fyrsta skóflustungan var tekin að rúmlega 200 íbúðum á Héðinsreit en þar munu rísa á fjórða hundrað íbúðir á næstu árum. Bílakjallari verður undir reitnum sem verður aðgengi- legur íbúum í hverfinu gegn gjaldi. Sömuleiðis verður bílakjallari undir fyrirhuguðu 170 íbúða hverfi í Vest- urbugt, steinsnar frá Héðinsreit, en nánar er fjallað um skóflustunguna í ViðskiptaMogganum í dag. „Þetta er svæði sem hefur verið í skipulagi í svolítinn tíma og við erum að gleðjast yfir þessum áfanga. Því þetta er gott þéttingarverkefni sem mun færa íbúa og enn meira líf í þetta hverfi. Við stöndum hér hjá Center- Hótel Granda og veitingastað sem hefur hafið rekstur og svo verður væntanlega enn meiri þjónusta hér þegar fram líða stundir. Það er gert ráð fyrir þjónusturýmum hér sem við gleðjumst mjög yfir,“ segir Pawel. Ásamt Héðinsreitnum er uppbygg- ing hafin á svonefndum Byko-reit (líka nefndur Steindórsreitur), gegnt JL-húsinu, og fasteignaþróunarfélag- ið Kaldalón hyggst hefja uppbygg- ingu Vesturbugtar fyrir áramót. Pawel segir fleiri þéttingarreiti til skoðunar og nefnir sérstaklega svo- nefndan Landhelgisgæslureit við Vesturgötu. Rætt hefur verið um 75 íbúðir á þeim reit og að fjórða hver íbúð verði hjá húsnæðisfélögum. MViðskiptamogginn Bílastæði víki fyrir grænni umferð - Formaður skipulagsráðs boðar endurnýjun Vesturgötu, Mýrargötu og Nýlendugötu á næstu árum - Greiða á fyrir umferð gangandi og hjólandi á kostnað bílaumferðar - Bílastæðahús rísa í hverfinu Morgunblaðið/Baldur Vesturgata Horft upp götuna frá gatnamótunum við Seljaveg. Pawel Bartoszek Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is „Okkur grunaði nú ekki að við vær- um enn þá að ræða mál Fossvogs- skóla þremur árum eftir að málið kom upp en þetta er sagan enda- lausa,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, en flokkurinn fór fram á umræðu um mál skólans á fundi borgar- stjórnar í gær. Þá bárust einnig þær fréttir í gær að tafir yrðu á vinnu við uppsetn- ingu færanlegra kennslustofa á skólalóð Fossvogsskóla og því mun kennsla 2. til 4. bekkjar verða áfram í húsnæði Hjálpræðishersins en upphaflega stóð til að uppsetningu yrði lokið 15. september. Í pósti frá Reykjavíkurborg til foreldra nemenda segir meðal ann- ars að einingarnar séu hannaðar til nota í heitari löndum en á Íslandi og því sé verið að þykkja útveggi. „Þetta er endalaus bútasaumur,“ segir Eyþór. „Verst er hvernig hefur verið staðið að samráði og upplýsinga- gjöf,“ segir hann og nefnir tölvupóst sem aðstoðarmaður borgarstjóra sendi til stjórnenda borgarinnar og heilbrigðiseftirlitsins þar sem fólk var hvatt til þess að leyna málinu. „Ég held að það hafi verið stærstu mistökin í málinu, að viðurkenna ekki þann vanda sem var í gangi. Ég held að þessi yfirhylming hafi bæði gert fólk reitt og orðið til þess að aldrei var tekið á málinu af alvöru.“ Eyþór segir hafa verið lágt risið á borgarstjóra á fundinum í gær og fátt hafi verið um svör. „Við köllum eftir að þetta mál verði skoðað til botns.“ „Endalaus bútasaumur“ - Vinna við uppsetningu færanlegra kennslustofa við Foss- vogsskóla tefst - Mistök að viðurkenna ekki vandann strax Morgunblaðið/Eggert Fossvogsskóli Uppsetning á fær- anlegu kennslustofunum tefst. Karítas Ríkharðsdóttir Urður Egilsdóttir Helgi Magnús Gunnarsson vararíkis- saksóknari gagnrýnir þá umfjöllun um að hann hafi látið ummæli falla um brotaþola ofbeldis en hann segist aldrei hafa viðhaft nein ummæli. Helgi hefur verið á milli tannanna á fólki vegna umdeildra færslna á sam- félagsmiðlum sem hann hefur líkað við. „Ég vil benda á að ég hef aldrei haft nein ummæli uppi um nokkurn skapaðan hlut í sambandi við þetta mál, nema þá skýringu sem ég gaf fjölmiðlum um helgina spurður um viðbrögð einhverra við einhverju „læki“ við frétt,“ segir Helgi. Málið sem Helgi vísar til er sú umræða sem hefur skapast eftir að Þórhildur Gyða Arnarsdóttir steig fram í viðtali á RÚV í lok ágúst og greindi frá kyn- ferðisofbeldi sem hún hefði orðið fyrir af hálfu landsliðsmanns í knattspyrnu árið 2017. „Ég hef ekki haft eitt ein- asta orð um þetta,“ segir Helgi en Stígamót og Öfgar hafa skorað á Ás- laugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dóms- málaráðherra að setja Helga af vegna færslnanna sem hann hefur líkað við. Áslaug segir tjáningu Helga á sam- félagsmiðlum vera vafasama. „Mér finnst mjög vafasamt af vararíkissak- sóknara að vera að tjá sig með þeim hætti sem hann hefur gert á sam- félagsmiðlum nú nýlega. Það má al- veg gagnrýna hann fyrir það,“ segir Áslaug. Helgi segir að honum finnist svar Áslaugar yfirvegað, en um misskiln- ing sé að ræða í fréttinni, að viðbrögð Stígamóta og annarra séu vegna um- mæla um brotaþola. „Það er ekki rétt, ég hef ekki sagt eitt orð um brotaþola eða nokkurn tengdan hennar [Þór- hildar] máli.“ Hef ekki sagt eitt einasta orð - Skora á ráðherra að setja Helga af Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Helgi Magnús Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.