Morgunblaðið - 08.09.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.09.2021, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Bætt hreinlæti í nýjum heimi Fáðu ráðgjöf fyrir þitt fyrirtæki www.hreint.is s: 589 5000 hreint@hreint.is Hólmfríður María Ragnhildardóttir Urður Egilsdóttir Jökulhlaupið í Skaftá hefur nú staðið yfir í viku en það hófst 1. september í Vestari-Skaftárkatli. 5. september hófst síðan hlaup í Eystri-Skaft- árkatli. Elísabet Pálmadóttir, náttúruvár- sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að hlaupið hafi haldið áfram óbreytt í gær en rennslið hækkaði hægt og rólega við þjóðveginn. Það var um 560 rúmmetrar á sekúndu við Eldvatn í gær. Við Sveinstind hafði rennslið hins vegar lækkað ör- lítið og var um 1.500 rúmmetrar á sekúndu. Fundað verður um stöðu mála í dag en gert er ráð fyrir að há- marksrennsli verði náð í dag við þjóðveginn að sögn Elísabetar. Gera má ráð fyrir því að útbreiðsla hlaupsins vaxi í byggð í sólarhring eða meira eftir að hámarksrennsli er náð við Eldvatn. Mun vara í einhverja daga „Hlaupið er aðeins öðruvísi en við höfum áður séð þar sem það hefur lekið svo hratt úr katlinum en nú er að leka hægt og rólega,“ segir El- ísabet og bætir við að enn sé töluvert vatnsmagn eftir í katlinum. Áætlað er að um 75 gígalítrar af hlaupvatni hafi komið fram við Sveinstind á fyrsta sólarhring hlaupsins. Mæl- ingar gefa til kynna að heildarrúm- mál eystri ketilsins hafi verið um 260 gígalítrar áður en hljóp úr honum. Því er áætlað að aðeins um þriðj- ungur heildarrúmmáls hlaupvatns- ins sé nú þegar kominn fram við Sveinstind. Líklegasta skýringin á hröðum vexti er sú að hlaupið úr eystri katl- inum kemur í kjölfar hlaups úr þeim vestari. Vatnið á því greiðari leið undir jöklinum. Við þetta bætist að hlaupið ýtir vatni sem fyrir er í far- veginum úr vestari katlinum á und- an sér. „Þetta mun því ábyggilega halda svona áfram í einhverja daga,“ segir Elísabet en hlaup sem varir lengur, ásamt hárri vatnsstöðu í upphafi hlaups, getur orsakað meiri út- breiðslu hlaupvatns í byggð. Brúin stendur af sér hlaupið Ágúst Freyr Bjartmarsson, yf- irverkstjóri hjá Vegagerðinni á Vík, telur að brúin yfir Skaftá muni örugglega standa af sér hlaupið. „Ég veit ekki með þá gömlu en þetta virðast ekki vera miklar breytingar, þetta er bara að vaxa hægt og rótt hérna,“ segir Ágúst. Hann segir það eftir að koma í ljós hvort það muni flæða yfir þjóðveginn og þá sé Vega- gerðin tilbúin til þess að loka vegum. Töluvert vatnsmagn eftir í katlinum - Gert ráð fyrir að hámarksrennsli náist í dag við þjóðveginn - Hlaupið mun líklega vara áfram í einhverja daga - Jökulhlaup sem varir lengur getur orsakað meiri útbreiðslu hlaupvatns í byggð Sigurður Sig- urbjörnsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, segir að lög- reglan sé með sólarhrings- vakt á svæði og geti leitað til Vegagerð- arinnar ef á þurfi að halda. „Þetta virðist nú ætla að vera eitthvað örlítið minna en menn bjuggust við. Við erum bara ró- legir og bara bíðum eftir því að sjá hvað gerist,“ segir Sigurður. Hann segir að lögreglan hafi þurft að vísa nokkrum erlendum ferðamönnum af svæðinu en annars hafi eftirlit gengið vel. Minna en búist var við SÓLARHRINGSVAKT Sigurður Sigurbjörnsson Morgunblaðið/Eggert Skaftárhlaup Reiknað er með því að jökulhlaupið komi til með að ná hámarki við þjóðveginn í dag. Lokað Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri hjá Vegagerðinni á Vík, segir óvíst hvort gamla brúin yfir Eldvatn muni standa af sér hlaupið. Vatnsrennsli Hlaupið virðist minna en á árunum 2015 og 2018. „Það er eitthvað að gerast þarna því gas streymir upp úr gígnum, en ég þori ekki að fullyrða hvað er að ger- ast,“ sagði Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við HÍ, um gíginn í Geldingadölum. Hegðun gossins breyttist á fimmtudaginn var eins og sést vel á óróaritinu. Gos- virknin hefur verið mjög róleg síðan þá. Glóð sást í gígnum í fyrrinótt. „Afgösunin segir okkur að það er kvika þarna tiltölulega grunnt og það hlýtur að vera að koma inn fersk kvika,“ sagði Þorvaldur. Hann sagði að það væri líkt og eitthvað tefði kvikuna frá því að ná til yfirborðsins. Slík fyrirstaða gæti mögulega nægt til að stöðva gosið. Hann taldi þó ekki orðið tímabært að afskrifa gos- ið, sem hófst 19. mars. gudni@mbl.is Gosórói við gosstöðvarnar á Fagradalsfjalli Mælingar með jarðskjálftamælinum FAF, um 3 km NV við gosgíginn Mælirinn er rekinn af Tékknesku vísindaakademíunni (Czech Academy of Science) og ÍSOR en Náttúruvárvakt Veðurstofunnar fær aðgang að gögnunum til vöktunar 0,5 - 1,0 Hz 1,0 - 2,0 Hz 2,0 - 4,0 Hz Heimild: Veðurstofa Íslands ágúst september 29. 30. 31 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. Breyttur taktur í Geldingadalagosinu - Gasið streymir upp úr eldgígnum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.