Morgunblaðið - 08.09.2021, Side 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
NÝTT FRÁ
Molly heimafatn
úr dásamlega
mjúku modal efn
aður
i
Hlýrabolur 8.990,-
Stuttbuxur 8.990,-
Síðar buxur 12.950,-
Síðermabolir 12.950,-
Í sumar fór af stað atburðarás sem
var hin sérkennilegasta að fylgj-
ast með fyrir þá sem ekki þekkja
dýpstu innviði og hugskot Viðreisnar.
Fyrrverandi formaður flokksins var
bersýnilega að velta
fyrir sér CCér-
framboði og sú skýr-
ing virtist á því að
honum hefði ekki
verið boðið sæmandi
sæti á lista flokksins,
aðeins neðsta sætið
og ekki einu sinni
verið beðinn afsök-
unar á uppátækinu á
bak við luktar dyr.
- - -
Mikil þyngsli
voru vegna
málsins innan flokks-
ins og þoldu ýmsir
ekki við á flokks-
skránni vegna þess. Svo gerðist það
með hástemmdum yfirlýsingum að
sátt náðist á milli núverandi formanns
og fyrrverandi formanns. Sáttin sner-
ist fyrst og fremst um það að hér eftir
skyldu prófkjör verða meginregla
innan flokksins, en formaðurinn fyrr-
verandi hafði barist fyrir slíku.
- - -
Tillögu um þetta átti að bera upp á
landsþingi, eins og formaðurinn
fyrrverandi kynnti „með mikilli
gleði“ á Facebook og núverandi for-
maður lýsti líka ánægju með sam-
komulagið.
- - -
Svo rann landsþing upp og þar var
tillagan góða borin undir at-
kvæði og þar var hún felld eins og
ekkert væri sjálfsagðara, þvert á ósk-
ir formanns, stjórnar og fyrrverandi
formanns og stofnanda, sem hafði
meira að segja lagt félag sitt, End-
urreisn, inn í Viðreisn.
- - -
Getur verið að einhver hafi verið
með krosslagða fingur fyrir aft-
an bak þegar samkomulagið góða var
gert?
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Endurreisn
heilindanna?
STAKSTEINAR
Benedikt
Jóhannesson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Rannsóknaskipin Árni Friðriksson
og Bjarni Sæmundsson héldu í
fyrradag í árlegan haustleiðangur til
rannsókna á loðnu. Um er að ræða
samstarfsverkefni Íslands og Græn-
lands, en Grænlendingar leigja Árna
Friðriksson af Hafrannsóknastofn-
un til þátttöku í verkefninu. Áætlað
er að Bjarni verði 17 daga í leiðangr-
inum en Árni í 19 daga og að sigldar
verði samtals um 7.000 sjómílur.
Meginmarkmið leiðangursins er
mæling á stærð veiðistofns sem ætla
má að komi til hrygningar í vetur og
mæling á magni ungloðnu, sem verð-
ur uppistaðan í veiðistofni 2023. Auk
þess verða stundaðar umhverfis- og
vistfræðirannsóknir.
Strax að loknum leiðangri og úr-
vinnslu gagna verður gefin út ný ráð-
gjöf um veiðar á loðnu í vetur. Um
mánaðamótin nóvember-desember
verður gefin út ráðgjöf um upphafs-
aflamark fyrir vertíðina 2023.
Loðnuleiðangur
Áætlaðar leiðarlínur rannsókna-
skipanna Bjarna Sæmundssonar
og Árna Friðrikssonar við loðnu-
rannsóknir næstu þrjár vikur
H
ei
m
ild
:H
af
ra
nn
só
kn
as
to
fn
un
Bjarni Sæmundsson
Árni Friðriksson
Í S L A N D
G R Æ N L A N D
Sjö þúsund sjómílna
loðnuleiðangur hafinn
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Stéttarfélög sjómanna slitu samn-
ingaviðræðum við Samtök fyrir-
tækja í sjávarútvegi (SFS) á mánu-
dagskvöld og hafa stéttarfélögin
ekki sparað stóru orðin og sakað
samtökin um hroka, óbilgirni og
græðgi. SFS hefur fyrir sitt leyti
ekki talið hægt að undirrita samn-
inga sem sagðir eru hafa í för með
sér verulega íþyngjandi kostnað fyr-
ir hóp útgerðarfyrirtækja.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði
hvernig staðan er í þessu,“ segir
Árni Bjarnason, formaður Félags
skipstjórnarmanna.
Stendur ekki á SFS
Stéttarfélög sjómanna telja kröfur
sínar ekki kosta meira en 1,5 millj-
arða króna en SFS segir kostnaðinn
hlaupa á milljörðum. Þá er ein meg-
inkrafa sjómanna að mótframlag í
lífeyrissjóð hækki um 3,5% til jafns
við það sem gerðist á almenna mark-
aðnum. Vandinn virðist þó fólginn í
því að þessi kostnaður, jafnt og ann-
ar launatengdur kostnaður, leggst
ójafnt á mismunandi tegundir út-
gerða að sögn SFS. Benda samtökin
á að launahlutfallið sé þegar hátt í
dragnóta- og frystiskipaútgerðum
og telja þessar útgerðir ekki geta
staðið undir útgjaldaaukningunni.
„Ég ætla að leyfa mér að vera
bjartsýn og ég bind vonir við það. [...]
Það stendur ekki á SFS að setjast
aftur að borðinu og reyna að finna
lausn.
Eins og ég sagði áður er þetta
verkefni okkar sem sitjum í samn-
inganefndinni og undan því getum
við ekkert vikist,“ sagði Heiðrún
Lind Marteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri SFS, í samtali við 200 mílur á
mbl.is í gær.
Mikil óvissa í kjaradeilu sjómanna
- Deila um kostnað sem fylgir kröfum sjómanna - Engin lausn í sjónmáli