Morgunblaðið - 08.09.2021, Side 9

Morgunblaðið - 08.09.2021, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í umsókn félagsins Ör- yggisfjarskipta ehf. um leyfi til að byggja nýtt flugskýli á Reykjavíkur- flugvelli fyrir björgunarþyrlur Land- helgisgæslunnar. Eins og fram hefur komið hér í blaðinu rúmar núverandi flugskýli ekki flugflota Gæslunnar, þ.e. þrjár björgunarþyrlur og flug- vél. Skýlið er að stofni til frá árinu 1943 og að mörgu leyti úrelt. Hinn 16. júní sl. var gengið frá samkomulagi milli Landhelgisgæsl- unnar og félagsins Öryggisfjarskipta ehf., sem er í eigu ríkisins og fjár- magnað hefur búnað og séð um upp- byggingu á húsnæði og mannvirkjum Neyðarlínunnar. Í samkomulaginu er kveðið á um að Öryggisfjarskipti ehf. fjármagni og byggi flugskýli í þágu LHG. Enn fremur að byggingin verði þannig úr garði gerð að hana megi taka niður og flytja þegar flug- starfsemi leggist af á Reykjavíkur- flugvelli. Félagið sótti í sumar um leyfi hjá borginni til að byggja flugskýli fyrir tvær þyrlur og gera tengibygginu á tveimur hæðum, sem tengist núver- andi flugskýli og á að hýsa skrif- stofur, mötuneyti starfsmanna, bún- ingsklefa og hvíldarrými fyrir starfsfólk. Stærð flugskýlis og tengi- byggingar verður 2.881,6 fermetrar. Umsögn verkefnisstjóra skipu- lagsfulltrúa var tekin til afgreiðslu á síðsta fundi og samþykkt. Niður- staða verkefnastjórans var sú að ekki séu gerðar skipulagslegar athuga- semdir við umsóknina sem sé í sam- ræmi við gildandi deiliskipulag, þar sem heimilt er að byggja mannvirki er tengjast flugrekstri á svæðinu. Verkefnastjórinn vekur athygli á takmörkunum sem í gildi eru á flug- vallarsvæðinu með vísan til skilmála deiliskipulags Reykjavíkurflugvallar, sem samþykkt var í borgarráði 28. apríl 2016. Einungis sé heimilt að reisa á svæðinu mannvirki sem tengjast flugi eða rekstri flugvall- arins með beinum hætti. Allar bygg- ingar á deiliskipulagssvæðinu í kjöl- far gildistöku þess eru háðar ákvæðum um tímamörk flugvallar- starfsemi í Vatnsmýrinni. Fram- kvæmdaraðilar leggi því í fram- kvæmdir með skilning á því að um tímabundnar byggingar sé að ræða. Öll mannvirki byggð á svæðinu eftir 2015 skulu hönnuð þannig að auðvelt sé að fjarlægja þau. Í aðalskipulagi Reykjavíkur 2010- 2030 er gert ráð fyrir að flugvöllur- inn í Vatnsmýri verði lagður niður, sbr. stefnu svæðisskipulags höfuð- borgarsvæðisins 2040, segir í um- sögn verkefnastjórans. Í aðal- skipulaginu er gert ráð fyrir að á reitnum sem um ræðir verði opin svæði fyrir útivist. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Reykjavíkurflugvöllur Núverandi flugskýli Landhelgisgæslunnar er að stofni til frá árinu 1943. Það er of lítið fyrir starfsemina og að flestu leyti ófullnægjandi. Nýja skýlið mun rísa við hlið þess. Borgin gefur grænt ljós á flugskýli - Óskað eftir nýju flugskýli fyrir Gæsluna - Mannvirki verði fjarlægð þegar flugstarfsemi leggst af Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði Sláttutraktorar 40 ár á Íslandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.