Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 13
13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021
Fegurð Skýin röðuðu sér skemmtilega upp yfir Skagafirði þegar ljósmyndari blaðsins átti nýverið leið um Sauðárkrók. Hér sést vel yfir gamla bæinn á Króknum og Eyrina, þaðan út á ysta haf
þar sem eyjarnar Drangey og Málmey blasa við, ásamt Þórðarhöfða. Húsin í bænum og þökin eru mörg hver litrík og í góðu skjóli undir Nöfunum hafa trén fengið að vaxa óáreitt.
Árni Sæberg
Hafi einhver haft
efasemdir um efna-
hagslega skynsemi
þess að styðja við og
efla nýsköpun getur sá
hinn sami pakkað þeim
efasemdum ofan í
skúffu og glaðst yfir
hvernig íslenskur hug-
verkaiðnaður er að
springa út. Á síðasta
ári námu útflutnings-
tekjur hugverkaiðnaðar um 158
milljörðum króna – 103% meira en
árið 2013. Hlutdeild hugverkaiðn-
aðar í útflutningstekjum fór úr 7,4%
í nær 16%. Fjórða stoðin í íslensku
atvinnulífi – í verðmætasköpun
landsmanna – hefur því sprungið út
á erfiðum tímum.
Virkjun hugvitsins – nýsköpunin
– byggist á framtakssemi,
sköpunargleði og færni einstak-
linga. Hugvitið verður ekki virkjað
inni á ríkiskontórum eða á skrif-
borðum embættismanna. Frum-
kvöðullinn – hugvitsmaðurinn – fær
því aðeins notið sín að hann fái til
þess frelsi og frjóan jarðveg. Hlut-
verk embættismannsins er að þjóna
hugvitsmanninum, liðka til innan
kerfisins. Því miður eru dæmi um
hvernig kerfislægar hindranir og
allt að því þráhyggja koma í veg fyr-
ir að ferskir vindar nýsköpunar fái
að leika um samfélagið, með betri
lausnum og hagkvæmari nýtingu
fjármagns.
Stjórnmálamaðurinn ber ábyrgð
á því að ryðja úr vegi hindrunum,
smíða hagkvæmt regluverk og
tryggja umhverfi hvatningar og
umbunar fyrir sköpunargleði og
framtakssemi. Enginn stjórnmála-
flokkur skilur þetta betur en Sjálf-
stæðisflokkurinn sem
hefur rutt braut inn í
nýja tíma, þar sem
hugvitið verður svo
sannarlega í askana
látið. Að standa þétt við
bakið á nýsköpunar- og
sprotafyrirtækjum er
samofið grunnstefi í
hugmyndafræði okkar
sjálfstæðismanna um
athafnafrelsi ein-
staklingsins.
Land frumkvöðla
og nýsköpunar
Undir forystu og að frumkvæði
Bjarna Benediktssonar fjármála-
ráðherra og Þórdísar Kolbrúnar
Reykfjörð Gylfadóttur nýsköpunar-
ráðherra hafa verið byggðar traust-
ar undirstöður undir hugverka-
iðnaðinn og alla nýsköpun með
uppstokkun á skatta- og fjármögn-
unarumhverfi nýsköpunar og þróun-
ar. Nýsköpunarstefna stjórnvalda
hefur og er að skila árangri. Hér
verður gengið svo langt og fullyrt að
við Íslendingar séum í dauðafæri til
að byggja undir enn frekari vöxt
hugverkaiðnaðar á komandi árum.
Við getum gert Ísland að landi frum-
kvöðla og nýsköpunar – landi tæki-
færanna. Fátt hefur skipt nýsköpun
meira máli en hækkun á endur-
greiðslu á rannsóknar- og þróun-
arkostnaði sem var hækkuð í 1.100
milljónir króna og hlutfall endur-
greiðslu úr 20% í 35% hjá meðal-
stórum og minni fyrirtækjum en í
25% hjá stærstu fyrirtækjunum. Það
er forgangsverkefni Sjálfstæðis-
flokksins, fái hann til þess þingstyrk,
að tryggja að endurgreiðslan verði
ótímabundin – verði til frambúðar
og hækki.
Skrefin inn í framtíðina hafa verið
fleiri.
Skattaafsláttur til einstaklinga
vegna fjárfestinga í litlum félögum –
ekki síst sprotafyrirtækjum í þróun-
arstarfsemi – var hækkaður úr 50%
í 75%. Um leið voru fjárhæðarmörk
hækkuð úr 10 milljónum króna í 15
milljónir. Til að virkja enn frekar
fjármagn einstaklinga í nýsköpun á
að hækka hlutfallið í 100% strax á
komandi ári og tvöfalda fjárhæðar-
mörkin í það minnsta.
Fjárfestingarheimildir lífeyris-
sjóðanna voru auknar tímabundið
þannig að nú geta sjóðirnir átt allt
að 35% í stað 20% af hlutdeildar-
skírteinum eða hlutum í sjóðum um
sameiginlega fjárfestingu sem ein-
göngu fjárfesta í litlum eða meðal-
stórum fyrirtækjum. Þessa heimild
verða lífeyrissjóðirnir að fá varan-
lega.
Stofnun Kríu – sprota- og nýsköp-
unarsjóðs markar tímamót í fjár-
festingarumhverfi fyrirtækja, ekki
síst á sviði hugverkaiðnaðar. Hlut-
verk Kríu er að fjárfesta í sérhæfð-
um fjárfestingarsjóðum, svoköll-
uðum vísisjóðum (e. venture capital
funds) sem fjárfesta beint í skap-
andi sprotafyrirtækjum. Þá eru
ónefnd stóraukin framlög til rann-
sókna og þróunar, m.a. til tækniþró-
unarsjóðs. Matvælasjóður, sem varð
til með sameiningu framleiðnisjóðs
landbúnaðarins og AVS-rann-
sóknasjóðs í sjávarútvegi, styður við
nýsköpun, sjálfbærni og verðmæta-
sköpun íslenskrar matvælafram-
leiðslu.
Sköpunargáfan njóti sín
Með markvissum og skilvirkum
hætti hefur verið unnið að því að
móta og tryggja heilbrigt umhverfi
fyrir áhættufjármagn til fjárfest-
ingar í sprota- og nýsköpunar-
fyrirtækjum samhliða því sem ýtt
hefur verið undir rannsóknir og þró-
un.
Allar þessar breytingar miða að
því að gera Ísland samkeppnishæft
á sviði nýsköpunar – leggja grunn
að því að Ísland sé og verði nýsköp-
unarland. Markaðssetning Íslands
snýst ekki lengur aðeins um ferða-
mannalandið Ísland heldur ekki
síður um nýsköpunarlandið í norð-
urhöfum, sem er aðlaðandi fyrir er-
lenda fjárfesta, frumkvöðla og sér-
fræðinga frá öllum heimshornum.
Þannig tökum við þátt í harðri al-
þjóðlegri samkeppni um hugvit, þar
sem við stöndum ágætlega en get-
um styrkt stöðuna enn betur.
Öllum má vera ljóst, þegar horft
er á þróun hugverkaiðnaðarins síð-
ustu ár, að nýsköpun er ekki illskilj-
anlegt tískuorð einhverra sérvitr-
inga í tæknifyrirtækjum heldur
traust stoð undir íslensku efnahags-
lífi. (Hugverkaiðnaðurinn er fjöl-
breyttur; tölvuleikjafyrirtæki,
gagnaver og hugbúnaðarfyrirtæki,
lyfja- og líftæknifyrirtæki, heil-
brigðistækni, framleiðsla stoðtækja
og tækja fyrir matvælaiðnað og
kvikmyndagerð.) Í einfaldleika sín-
um er nýsköpun ekki annað en að
leyfa sköpunargáfu einstaklingsins
að njóta sín.
Sjálfstæðisflokkurinn er nýsköp-
unarflokkurinn sem með stefnu
sinni og verkum hefur gjörbreytt
umhverfi nýsköpunar og þróunar,
skotið styrkum stoðum undir
sprotafyrirtæki. Árangurinn er
áþreifanlegur en við verðum að
halda áfram – tækifærin eru svo
sannarlega fyrir hendi.
Eftir Óla Björn
Kárason » Sjálfstæðisflokk-
urinn er nýsköp-
unarflokkurinn og hefur
gjörbreytt umhverfi ný-
sköpunar og þróunar,
skotið styrkum stoðum
undir sprotafyrirtæki.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Nýsköpunarlandið Ísland
Fjórða stoðin – hugverkaiðnaður
Ma.kr. %
180
150
120
90
60
30
0
18%
15%
12%
9%
6%
3%
0%
Útflutningstekjur, ma.kr. Hlutfall af heildargjaldeyristekjum,%
2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020
Heimild: Samtök
iðnaðarins
78
93
112 112
94 98
135
158
7,4%
15,7%
Útflutningstekjur hugverkaiðnaðar hafa aukist um
103% frá 2013
– það er að segja tvöfaldast