Morgunblaðið - 08.09.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 08.09.2021, Qupperneq 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 ✝ Haukur Sig- urðsson fædd- ist í Reykjavík 23. október 1947. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 28. ágúst 2021. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Tryggva- son, f. í Keldunesi í Kelduhverfi 18. janúar 1916, d. 7. júní 1997 og Inga Hanna Ólafs- dóttir, f. í Reykjarfirði í N-Ísa- fjarðarsýslu 22. júlí 1923, d. 3. september 2005. Systkini Hauks eru Hulda Björg, f. 21. sept- ember 1945, Anna Margrét, f. 5. september 1957 og Ólafur Atli, f. 12. apríl 1963. Eftirlifandi eiginkona Hauks er Ásta Kjartansdóttir, fædd í Vestmannaeyjum 19. febrúar 1950. Börn þeirra eru: 1) Guð- rún Gyða, f. 16. október 1968, gift Njáli Trausta Friðbertssyni, f. 31. desember 1969. Synir þeirra eru: a) Stefán Trausti, hann á dótturina Elenu Hrönn og b) Patrekur Atli. 2) Sigurður Ingi, f. 30. apríl 1972, giftur Sig- rúnu Eyþórsdóttur, f. 9. desem- ber 1972. Börn þeirra eru: a) Haukur Þór, í sambúð með úr háskólanum vann Haukur við fag sitt, hann var skrifstofu- stjóri hjá Vélsmiðjunni Völundi í Vestmannaeyjum, bæjarritari á Akranesi, vann á bæjar- skrifstofu Akureyrar, fjár- málastjóri byggingaverktakans Híbýli á Akureyri, bæjarstjóri Blönduóss. Hann var for- stöðumaður hjá Húsnæðis- stofnun ríkisins, fjármálastjóri Hólaskóla og framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda. Síðustu starfsárin vann Haukur sem sérfræðingur hjá Rík- isskattstjóra þar til hann lauk störfum vegna aldurs vorið 2019. Haukur var virkur í félags- málum og tónlistarstarfi. Sem ungur maður á Ísafirði var hann öflugur í skátastarfi og hann var einn af stofnfélögum St. Georgsgildisins í Kópavogi. Hann var í Kiwanis á Akranesi og á Akureyri, var meðlimur í lúðrasveitum í Vestmanna- eyjum og á Akureyri. Eftir að fjölskyldan fluttist aftur í Kópa- voginn 1988 tók hann þátt í kórastarfi, s.s. í Kór Átthaga- félags Strandamanna og um stund í Kirkjukór Árbæj- arkirkju. Haukur söng um ára- bil með Kirkjukór Kópavogs- kirkju eða allt þar til veikindin hömluðu frekari þátttöku í því starfi. Útför Hauks verður gerð frá Digraneskirkju í dag, 8. sept- ember 2021, og hefst athöfnin kl. 13. Helgu Hrund Frið- riksdóttur og þau eiga dótturina And- reu Sigrúnu og b) Kristín Rós. 3) Þór- leif Kristín, f. 21. apríl 1977, gift Árna Geir Ómars- syni, f. 8. sept- ember 1977. Sonur þeirra er: a) Almar Ingvi. 4) Kjartan Ingi, f. 22. mars 1984, giftur Evu Rún Boorman Colmsdóttur, f. 16. maí 1983. Synir þeirra eru: a) Logi Ger- ald, b) Ólafur Aidan og c) Tryggvi Seamus. Haukur fluttist með for- eldrum sínum vestur á Ísafjörð árið 1948 og ólst þar upp þar til hann fluttist með fjölskyldu sinni í Kópavoginn 1962. Hann tók landspróf árið 1963 og að því loknu hóf hann nám við MA. Haukur lauk stúdentsprófi frá MR 1969 og viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1975. Hann var í sveit öll sín uppvaxtarár hjá frændfólki á Stöng í Mývatns- sveit. Sem unglingur vann hann á sumrin við landmælingar og við undirbúning framkvæmda á hálendinu og seinna sem háseti á sjó í Norðursjó. Eftir útskrift Elsku pabbi. Höggið er þungt og það mun taka tíma að venjast því að þú sért ekki til staðar. Minninga- brot hafa verið að skjóta upp kollinum undanfarna daga, við vörðum miklum tíma saman og stóðum ávallt saman þótt stund- um gustaði, það er nú eins og gengur þegar fólk er ekki skoð- analaust. Ég á eftir að sakna sím- talanna sem byrjuðu iðulega á orðunum: Sæl Þóra mín, þetta er pabbi þinn, ég á engin erindi, hvað segir þú? Það sem eftir stendur eru gild- in sem þú kenndir: fjölskyldan er allt, stundum er betra að þegja en að segja (auðvitað erum við misdugleg að fara eftir því en það er önnur saga), hjálpsemi, að standa trúr sínu og klára verk- efnin sín, réttlætiskennd, sýna hvert öðru áhuga og ekki klára veitingar sem bornar eru fram ef ske kynni að hinir myndu vilja meira. Ég gæti talið upp mikið fleiri hluti en það sem raunveru- lega stendur eftir er kærleikur, hlýja, húmor og stolt. Ég kveð þig með miklum söknuði, elsku pabbi, en ylja mér við minningarnar, sem betur fer eru þær margar. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. Drottinn minn réttu sorgmæddri sál svala líknarhönd og slökk þú hjartans harmabál slít sundur dauðans bönd. Svo vaknar hann með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Þín dóttir, Þórleif Kristín. Þegar ég hitti pabba fyrst var ég tæplega 3ja ára og kallaði hann pabba við fyrstu sýn. Mamma seg- ir reyndar að ég hafi gert það við flesta karlmenn sem mér leist vel á en pabbi tók þetta bókstaflega. Mamma átti væntanlega einhvern hlut að máli en okkur pabba kom saman um að ég hefði valið hann og hann mig og við það stóð. Seinna þegar systkini mín bætt- ust í hópinn fann ég engan mun, pabbi var, er og verður alltaf pabbi minn og fyrir það er ég endalaust þakklát. Hann var þannig strangheiðarlegur og stóð við það sem hann sagði og tók sér fyrir hendur. Pabbi var líka ótrúlega fróður og víðlesinn og þegar ég óx úr grasi var alltaf hægt að leita til hans með upplýsingar og góð ráð, hann var eiginlega minn eigin „go- ogle“, alveg sama hvort það sneri að íslensku eða stærðfræði sem kom sér ákaflega vel áður en tölv- ur og leitarvélar komu til sögunn- ar. Sama átti við ef þurfti að lag- færa eitthvað, negla eða bora, pabbi var sá fyrsti sem ég hringdi í. Þegar við ferðuðumst um landið var hann hafsjór fróðleiks um landið okkar, jarðfræði og örnefni. Það viðurkennist að unglingurinn var ekki alltaf að hlusta og sá eftir því á fullorðinsárunum. Pabbi kenndi mér ótal margt en það dýrmætasta er gildi fjöl- skyldunnar og mikilvægi þess að fjölskyldan standi saman. Ég ólst upp með þá vitneskju að hjá mömmu og pabba ætti ég alltaf skjól sama á hverju gengi. Við systkinin höfum tileinkað okkur þessi gildi vel og þykir fjölskyldan einstaklega samheldin. Við vitum að við erum til staðar hvert fyrir annað eins og okkur var kennt og það er ómetanlegt. Ég hef margs að minnast og margt að þakka en fyrst og fremst hef ég dýrmætt veganesti sem ég mun gera mitt besta til þess að koma áfram til minna afkomenda. Elsku pabbi minn, takk fyrir að vera pabbi minn, ég elska þig allt- af. Þín Guðrún Gyða. „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi“ er málsháttur sem oft hefur leitað á huga minn undan- farið. Það er með miklum söknuði sem ég kveð bróður minn í dag, heiðarlegasta mann sem ég hef þekkt. Við bræður vorum mjög nánir og töluðum reglulega saman eftir að ég varð fullorðinn. Meðan við bjuggum hvor í sínum lands- hlutanum töluðum við oft saman í síma og eftir að ég flutti aftur í Kópavoginn árið 2016 urðu heim- sóknir okkar á milli tíðar en sím- tölunum fækkaði ekki. Haukur er sextán árum eldri en ég. Þegar ég var að alast upp í Kópavogi man ég ekki eftir hon- um búandi heima hjá mömmu og pabba. Hann var í Menntaskólan- um á Akureyri og svo í vinnu, hér og þar, þess á milli. Fyrsta minningin mín um hann er þegar hann var sendur til að ná í mig, fjögurra til sex ára gamlan, til að koma að borða jólamáltíðina. Ég hafði farið í fýlu og falið mig undir rúmi, en hann talaði mig til og ég fór með honum að borða og vildi hvergi vera nema við hliðina á honum. Minningarnar eru margar og ég er afskaplega þakklátur fyrir að geta dvalið við þær þegar sökn- uðurinn hefur hellst yfir mig. Margar þeirra tengjast bílum og ferðum milli landshluta. Hann átti ansi marga bíla í gegnum ævina og það var hann sem kenndi mér að keyra á þjóðvegunum. Einnig að láta alltaf einhvern vita af ferðalögum mínum og eftir að pabbi dó flutti ég þá reglu yfir á hann, hringdi alltaf og lét vita. Haukur hringdi alltaf í mig á afmælinu mínu, held að það hafi ekki einn afmælisdagur dottið út svo lengi sem ég man og í þau skipti sem ég var á sjó og ekki í símasambandi kom símskeyti, eins og t.d. norður í Smugu en þá kom skeyti í gegnum Noreg. Síðastliðin tvö ár voru Hauk og allri fjölskyldunni mjög erfið. Hann var, eftir á að hyggja, orð- inn veikur nokkru áður en grein- ingin kemur, og ekki bætti Covid- ástandið úr skák. Við sem eftir erum syrgjum góðan dreng, fjölskyldumann, fyr- irmynd og vin. Elsku bróðir minn, ég trúi að þú sért á góðum stað með fólkinu okkar og þegar sá tími kemur að við hittumst á ný þá takir þú á móti mér í siginn fisk og svartfugl- segg. Ólafur Atli Sigurðsson. „Ég bið kærlega að heilsa fólk- inu ykkar.“ Þessi kveðja var lýs- andi fyrir samskipti okkar við Hauk mág í hálfa öld og svila til fjörutíu ára. Það er óraunverulegt að eiga ekki eftir að hitta Hauk aftur. En frá þessum árum er margs að minnast og margs að sakna. Haukur hafði ætíð brennandi áhuga á fólkinu okkar, fylgdist með af áhuga og umhyggju. Ásta og Haukur eiga stóra og sam- heldna fjölskyldu og var hann mjög stoltur af sínu fólki og mátti vera það. Hann var með ákaflega sterka réttlætiskennd og öll umræða um þjóðmálin, sem hann hafði mikinn áhuga á, einkenndust af því og tók hann iðulega málstað þeirra sem minna mega sín. Í gegnum tíðina hafa Þóru/Kjartans börn og mak- ar hist einu sinni á ári til að hafa gaman saman og treysta fjöl- skylduböndin. Oft var talað um að fara saman til útlanda og loks tókst það. Sannkölluð draumaferð til Glasgow rétt fyrir Covid. Haukur naut sín í þessari ferð og sjáum við hann fyrir okkur með vindil í munni og blik í augum. Því miður fer ekki allt eins og við ætlum, óboðinn gestur mætti og krabbamein greindist hjá Hauki. Þetta er enn erfiðara á Co- vid-tímum. Einangrunin mikil og því miður höfum við lítið getað hitt Hauk. Þess vegna verður Glas- gowferðin enn dýrmætari. Við þökkum Hauki samfylgd- ina öll þessi ár og sendum Ástu og fólkinu hans Hauks innilegar sam- úðarkveðjur frá okkur, strákun- um og þeirra fjölskyldum. Erla og Óskar. Þá er Haukur vinur minn allur eftir langa og erfiða glímu við ban- vænan sjúkdóm. Með honum er genginn mikill sómamaður sem mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Ég tel mig lánsmann að hafa fengið að kynnast honum ungur og að hafa fengið að eiga hann að nánum vini upp frá því. Þó vík væri löngum á milli okkar vinanna átti hvor um sig sitt pláss í hjarta hins, það fundum við glöggt í hvert skipti sem við hittumst eða áttum tal saman í síma. Haukur var ætíð glaður á góðri stund og ótölulegar eru minningarnar sem verma hugann í því sambandi. Haukur nam viðskiptafræði við Háskóla Íslands. Sú ákvörðun kom mér á óvart. Ég átti von á því að hann helgaði sig bókmenntum. Haukur var óseðjandi lestrarhest- ur og dáðist ég oft að því hve vel hann var lesinn því hann vitnaði oft og einatt í fagurbókmenntir þegar við ræddumst við. Hann kaus þó að eiga bókina að vini fremur en að vinnuveitanda. Kannski var sú ákvörðun rétt. Hinsvegar reyndust siðferðisgild- in, sem hann tók með sér úr föð- urgarði, honum oft og einatt fjötur um fót á hálu svelli viðskipta og stjórnunar. Á því sviði gat hann ekki sæst á málamiðlanir. Sú ein- dregna afstaða hans að farið skyldi að reglum og sanngirnis- kröfum samfélagsins var svo rík, að hann lagði starfsframa sinn að veði, – vildi fremur víkja en taka þátt í að beygja reglur eða eiga að- ild að ósæmilegum viðskiptahátt- um. Þessi framganga hans kostaði bæði árekstra og efnalegar fórnir. Ávinningurinn var hinsvegar sá að hann stóð eftir með óflekkaða samvisku og hreinan skjöld. Haukur var kirkjunnar maður og ræktaði og rækti trú sína af einlægni og án nokkurrar yfir- borðsmennsku. Hann sat í sókn- arnefnd á Akureyrarárunum og söng í kirkjukórum, lengst í Kópa- vogi. Söngur og tónlist voru yndi hans og eftirlæti. Haukur var gæfumaður í einkalífi. Hann eignaðist góða konu, Ástu Kjartansdóttur, sem bjó honum gott heimili og reynd- ist honum trú og trygg. Haukur vinur minn gat verið stór í stykkj- unum og því kannski ekki alltaf auðveldur í sambúð, en hann mat Ástu mikils og heimilið og fjöl- skyldan voru honum dýrmæti. Í langvinnum og erfiðum veikindum Hauks reyndist Ásta honum ómetanleg og aðdáunarverð stoð og stytta. Alltaf var notalegt og gott að koma á heimili þeirra hjóna. Og barnaláni áttu þau að fagna. Börnin og barnabörnin voru Hauki ætíð efst í huga síð- ustu árin, það fann ég glöggt þeg- ar við tókum tal saman. Nú, þegar leiðir skilur, þökkum við Margrét af alhug allar góðar minningar Hauki tengdar um leið og við biðjum Ástu og fólkinu hennar öllu blessunar Guðs. Blessuð sé minning Hauks Sig- urðssonar. Jón Aðalsteinn Baldvinsson. Haukur Sigurðsson er farinn heim. Þannig komast skátar að orði þegar einhver úr þeirra hóp fellur frá. Leiðir okkar lágu saman fyrir um 25 árum vegna undirbúnings við stofnun St. Georgsgildisins (Skátagildisins) í Kópavogi. Þar vorum við síðan saman í stjórn um árabil. Haukur var oft hrókur alls fagnaðar og allt sem hann tók að sér stóðst eins og stafur á bók. Hann var söngmaður mikill og oft var lagið tekið á góðum stundum. Eins og gengur og gerist í spjalli meðal fólks komumst við fljótt að því að okkar kynni höfðu hafist mun fyrr eða rétt eftir miðja síðustu öld. Haukur var Ís- firðingur og þangað á ég einnig sterkar rætur. Foreldrar Hauks og frændfólk mitt bjuggu í sama húsi í Fjarðarstræti og þar lágu leiðir saman. Haukur gerðist ungur skáti á Ísafirði og var m.a. í frægum flokki sem vann til verðlauna sem besti drengjaskátaflokkur lands- ins á Landsmóti skáta á Þingvöll- um 1962. Síðustu árin voru honum erfið. Ýmis veikindi létu á sér kræla og sennilega er hann hvíldinni feg- inn. Elsku Ásta og fjölskylda, fé- lagar í Skátagildinu í Kópavogi senda ykkur innilegar samúðar- kveðjur og minnast látins félaga með þökk fyrir genginn veg. Elín Richards. Haukur Sigurðsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÞÓRGUNNUR ÞÓRÓLFSDÓTTIR lést á Hrafnistu, Boðaþingi, fimmtudaginn 2. september. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 10. september klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir og þeim sem vilja minnast hennar er bent á Parkinsonsamtökin. Sesselja Magnúsdóttir Guðrún Magnúsdóttir Guðmundur H. Jóhannsson Árni Vigfús Magnússon Maria M. Lewandowska Fannar Orri, Jóhann Örn, Kjartan Þór, Gabriel Andri og Elísabet Łucja. Ástkær eiginmaður minn, GEIR GUÐLAUGSSON, bóndi á Kjaransstöðum ll, lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi miðvikudaginn 1. september. Útförin fer fram frá Akraneskirkju mánudaginn 13. september klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is. Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vilja minnast hins látna er bent á styrktarreikning Innra-Hólmskirkju: Banki 0326-22-1873, kennitala 660169-5129. Jóhanna Þórdís Þórarinsdóttir dætur og tengdasynir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, STEINAR GEIRDAL byggingafræðingur, Norðurbrú 2, Garðabæ, lést fimmtudaginn 2. september. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju föstudaginn 10. september klukkan 13. Vigdís Erlingsdóttir Sverrir Geirdal Lára Jóhannesdóttir Snorri Geirdal Christina Byø Dagný Geirdal Bergþór Haukdal Jónasson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HJÖRDÍS HENTZE MAGNÚSSON, Suðurbraut 8, Hafnarfirði, lést í faðmi fjölskyldunnar fimmtudaginn 2. september á hjúkrunarheimilinu Sólvangi. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 10. september klukkan 10. Sigurður Birgir Magnússon Ólafur Sigurðsson Freyja Margrét Sigurðardóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.