Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 17
MINNINGAR 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021
✝
Bjarni Magn-
ússon, fyrrver-
andi hreppstjóri í
Grímsey, fæddist í
Syðri-Grenivík í
Grímsey 30. júní
1930 og ólst þar
upp. Hann lést 29.
ágúst 2021, 91 árs
að aldri.
Foreldrar hans
voru Magnús Stef-
án Símonarson
hreppstjóri í Sigtúni í Grímsey
og Siggerður Bjarnadóttir hús-
freyja.
Bjarni var við vélstjóranám á
Akureyri 1948-1949. Hann
starfaði sem vélgæslumaður
fyrir Rafmagnsveitur ríkisins,
vatnsveitustjóri, vitavörður og
slökkviliðsstjóri í Grímsey.
veðurathugunarmanni, sem lést
2. febrúar 2009. Börn Bjarna og
Vilborgar eru: 1) Siggerður
Hulda, f. 16. júní 1952, gift Ólafi
Árnasyni. Hún á eina dóttur sem
er látin, hann á fjögur börn, þar
af tvö látin. 2) Sigurður Ingi, f.
6. apríl 1956, giftur Steinunni
Stefánsdóttur, saman eiga þau
tvær dætur og tvö barnabörn,
Sigurður á einn son fyrir. 3)
Kristjana Bára, f. 4. október
1957, gift Grétari Erlendssyni,
hún á þrjú börn og sjö barna-
börn. 4) Magnús Þór, f. 29. nóv-
ember 1963, giftur Önnu Maríu
Sigvaldadóttur, eiga þau tvö
börn saman og Magnús á son
fyrir. 5) Bryndís Anna, f. 20. jan-
úar 1969, gift Vigni Erni Stef-
ánssyni. Hún á tvær dætur og
tvö barnabörn, Vignir á þrjú
börn.
Jarðarför Bjarna fer fram frá
Miðgarðakirkju 8. september
2021 klukkan 14.
Bjarni sat í hrepps-
nefnd í Grímsey frá
1962-1970. Hann
tók við starfi
hreppstjóra árið
1969 og gegndi
starfinu í nákvæm-
lega 40 ár, tvo mán-
uði og tvo daga.
Bjarni sá um
kosningar í Gríms-
ey í um fimmtíu ár.
Hann var einn af
stofnendum Kiwanisklúbbsins
Gríms í Grímsey og var forseti
hans ásamt fleiri störfum innan
Gríms. Bjarni stundaði það um
áratugaskeið að síga í björg eft-
ir eggjum og veiða lunda.
Bjarni var kvæntur Vilborgu
Sigurðardóttur, f. 1. maí 1929,
ljósmóður, símstöðvarstjóra og
Bjarni hreppstjóri Magnús-
son hefur kvatt. 91 árs höfðingi
sem aldrei lét deigan síga, held-
ur hélt áfram heimili bæði í
Grímsey og á Akureyri eftir að
hann missti konuna sína hana
Vilborgu Sigurðardóttur ljós-
móður. Ung bundust þau bönd-
um, bæði uppalin Grímseyjar-
börn. Saman eignuðust þau
þrjár stúlkur og tvo drengi, allt
efnisfólk. Mörg störf tóku þau
hjónin að sér fyrir Grímsey og
Grímseyinga. Þau skiptu máli í
sínu samfélagi. Þegar við Dó-
nald fluttum til Grímseyjar fyr-
ir tæpum þrjátíu árum var
Bjarni Magnússon einn sá
fyrsti sem kom til okkar í Mið-
hús og bauð okkur velkomin til
starfa við Grunnskólann. Bjarni
var glæsimenni, hávaxinn með
bjart bros. Þannig birtist hann
mér þarna í dyrunum og þannig
var hann árin öll. Léttur, kátur,
mikið náttúrubarn, alltaf úti við
eitthvað að brasa eins og það er
kallað í Grímsey. Félagslyndur
var hann og skínandi dansari.
Grímseyjarbjörgin voru sér-
stakir vinir hans. Eggjataka
vorsins voru dýrðartímar hjá
Bjarna. Síðasta myndin sem ég
sá af honum var frá bjargsigi
nú í vor. Bjargsigsmaðurinn
mikli sat í þetta sinn inni í bíl
en fylgdist fullur áhuga með
sigi nafna síns og eggjatínsl-
unni. Bjarni var staðfastur
maður sem stóð sterkur með
þeim og því er hann tók ást-
fóstri við. Fjölskyldan, Gríms-
ey, hreppstjórastarfið, Kiwanis,
Sjálfstæðisflokkurinn og vel-
gjörðarmaðurinn dr. Daniel
Willard Fiske. Til marks um
þetta bar báturinn hans Bjarna
nafnið Fiske EA 33 og núm-
eraplatan á bílnum hans var
Fiske. Og nú er hann kvaddur
hinstu kveðju frá Miðgarða-
kirkju í eyjunni hans kæru.
Veri Bjarni Reykjalín Magnús-
son góðum Guði falinn með
hjartans þökk frá okkur Dónald
fyrir góð og elskuleg kynni.
Helga Mattína og
Dónald, Dalvík.
Góður vinur minn Bjarni
Magnússon er til moldar borinn
í dag, 91 árs að aldri. Hann bar
aldurinn vel til hinstu stundar.
Ekki er langt síðan við spjöll-
uðum saman í síma, hann var
hress að vanda svo að það kom
mér ekki á óvart að hann hafði
búið sig undir að sækja Fær-
eyjar heim nú í byrjun sept-
ember með öðrum Grímseying-
um. En örlögin höguðu því svo,
að hann átti aðra og lengri ferð
fyrir höndum.
Þegar ég sótti Grímsey heim
á löngum stjórnmálaferli gisti
ég hjá þeim Bjarna og Vilborgu
Sigurðardóttur konu hans og á
þaðan góðar minningar. Þegar
ég hugsa til þeirra hjóna blasir
við mér, að heimili þeirra hefur
verið miðstöð eyjarskeggja í
margvíslegum skilningi. Vilborg
var ljósmóðir, símstöðvarstjóri
og hafði veðurathuganir með
höndum. Bjarni var þúsund
þjala smiður, lærður vélstjóri
og var til hinstu stundar alltaf
reiðubúinn að rétta hjálparhönd
í stóru og smáu, ef með þurfti.
Hann gegndi margvíslegum
trúnaðarstörfum fyrir eyja-
skeggja, sat í hreppsnefnd og
var hreppstjóri í 40 ár og vita-
skuld kallaður hreppstjórinn til
dauðadags.
Grímsey var og er matar-
kista, ef menn kunna að nýta
sér það. Og það kunni Bjarni.
Um áratuga skeið seig hann í
björg eftir eggjum og veiddi
lunda. Þess nutum við Kristrún.
Síðast núna í vor sendi Bjarni
mér Grímseyjaregg, eins og við
Kristján Karlsson kölluðum
þau, svo að ég gat boðið heim
vinum mínum, þeim sömu ár
eftir ár, að gæða sér á þeim. Og
það var alltaf tilhlökkunarefni.
En eftir að Kristrún kona mín
dó hefur verið minna um lund-
ann af skiljanlegum ástæðum
þar sem ég er klaufi við alla
eldamennsku.
Þegar ég hugsa til baka
verður mér æ ljósara hversu
þýðingarmikið það var mér sem
stjórnmálamanni að eiga menn
eins og Bjarna að trúnaðarvini,
geta hringt og spjallað um
menn og málefni. Það dýpkar
skilning manns á þörfum
byggðarlagsins og hvar skórinn
kreppir. Og þegar svo bar und-
ir fékk maður snarpa ádrepu
fyrir að hafa látið eitthvað gert
eða ógert. Þannig var vinátta
okkar Bjarna. Mér leið alltaf
vel þegar við kvöddumst eftir
samtalið.
Halldór Blöndal.
Þegar ég heimsótti Bjarna
Magnússon á heimili hans í
Grímsey fyrir um tveimur árum
leyndi sér ekki að þar fór mað-
ur sem lét verkin tala. Hann
var héraðshöfðingi sem hafði
alla þræði í hendi sér. Einurð
skein úr augum og fasið bar
vott um festu en um leið þó-
nokkurn gáska.
Bjarni brosti við mér kankvís
og rifjaði upp liðna daga. Það
kom mér skemmtilega á óvart
hvað þessi atorkumaður, sem
þá var rétt um nírætt, var stál-
minnugur á allt sem varðaði
sögu Grímseyjar frá því um
miðja síðustu öld. Hann var
fyrirsvarsmaður eyjarinnar
sem bar hag íbúanna sannar-
lega fyrir brjósti. Hann vissi að
hverju þyrfti að huga, hvar og
hvenær þyrfti að láta hendur
standa fram úr ermum og
hvernig best væri að gera það.
Hann var máttarstólpi sam-
félagsins við heimskautsbaug-
inn.
Í rétt rúm 40 ár var Bjarni
hreppstjóri í Grímsey. Í um
hálfa öld sá hann um allar
kosningar í eyjunni, hann var
slökkviliðsstjóri, vatnsveitu-
stjóri, vélagæslumaður, forseti
Kiwanis-klúbbsins, vitavörður
og svo ótal margt fleira. Bjarni
Magnússon var allt í öllu.
Við leiðarlok vil ég fyrir
hönd Akureyrarbæjar þakka
Grímseyingnum Bjarna Magn-
ússyni allt sem hann hefur unn-
ið heimahögum sínum til gagns
af einstakri alúð, dugnaði og
trúmennsku. Blessuð sé minn-
ing þessa mæta manns.
Upphefð, ætt með fleiru,
er ekki mikils vert.
Hitt skiptir miklu meiru,
hve margt til þarfa‘ er gert.
Uns dagur lífs réð dvína
með dug og kjark þú vannst.
Og alla ævi þína
þér enginn trúrri fannst.
(Einar Ásmundsson í Nesi)
Ásthildur Sturludóttir.
Bjarni Magnússon
✝
Magnús Ingi
Ingvarsson
fæddist í Reykjavík
29. júlí 1934. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 26. ágúst 2021.
Foreldrar Magnúsar
voru Ingvar Þórð-
arson húsasmíða-
meistari, f. 4. júlí
1909, d. 20. okt.
1973, og Sigríður
Jónsdóttir húsmóðir, f. 27. júní
1911, d. 21. janúar 2008. Systir
Magnúsar er Anna, f. 11. júní 1937,
maki hennar var Torfi Bjarni
Tómasson, f. 20. maí 1935, d. 6.
mars 2007.
Hinn 10. nóvember 1956 giftist
Magnús Aðalheiði G. Alexand-
ersdóttur, f. 23. febrúar 1933. For-
eldrar hennar voru Alexander
Guðjónsson, f. 12. maí 1905, d. 27.
des. 1996, og Sigrún Júlía Sig-
urjónsdóttir, f. 4. júlí 1904, d. 7.
okt. 1996.
Magnús og Aðalheiður eign-
uðust þrjú börn: 1) Guðjón, f. 25.
apríl 1956, kona hans er Anna
Björk Eðvarðsdóttir, f. 29. júlí
1959, og börn þeirra eru: Að-
alheiður Anna, f. 7. júlí 1989, maki
1999, og Guðlaug Karen, f. 16.
september 2003.
Magnús sleit barnaskónum í
Vesturbæ Reykjavíkur í húsi sem
kallað var Efri-Brekka. Eftir
barnaskóla og gagnfræðaskóla fór
hann í gamla Iðnskólann við Tjörn-
ina og fetaði í fótspor föður síns og
lærði húsasmíði. Hann lærði síðan
hjá föður sínum og byggðu þeir
ásamt fleirum blokkina sem stend-
ur við Drafnarstíg 2 í Rvk. Nýgift
fluttu svo hjónin, Magnús Ingi og
Aðalheiður, inn í íbúð í blokkinni
sem var eins konar fjölskylduhús,
þar sem bæði foreldrar Magnúsar
og systir og mágur bjuggu líka
ásamt fleiri skyldmennum.
Magnús fór ásamt eiginkonu og
sonunum tveimur til náms í Kaup-
mannahöfn árið 1961. Tveimur ár-
um síðar útskrifaðist hann sem
byggingarfræðingur og hóf störf
við nýstofnaða stofnun, Húsnæð-
isstofnun ríkisins.
Síðar rak hann teiknistofur og
kenndi tækniteiknun við Iðnskól-
ann í Reykjavík. Síðustu starfsár
sín rak hann teiknistofuna Ark-
form með Guðjóni syni sínum.
Lengst af bjó fjölskyldan á Háaleit-
isbraut 127 í Rvk., en það hús
teiknaði Magnús ásamt öðrum fé-
lögum hjá Húsnæðisstofnun. Á efri
árum minnkuðu þau við sig og
fluttu í Gullsmára í Kópavogi, þar
hafa þau búið í tæp 20 ár.
Útför Magnúsar Inga fer fram
frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 8.
september 2021, klukkan 13.
hennar er Reynir
Örn Pálmarsson og
eiga þau tvö börn.
Ingibjörg Sigríður, f.
20. júlí 1992, maki
hennar er Guðbjörn
Pálsson, eiga þau
einn son, og Rut Mar-
grét, f. 20. júlí 1992,
maki hennar Ingvi
Tryggvason. 2) Ingv-
ar, f. 16. júlí 1959,
kona hans er Bryndís
Björk Karlsdóttir, f. 29. júlí 1968.
Börn þeirra eru: Magnús Ingi, f.
29. ágúst 1993, maki hans er
Thelma Rut Hermannsdóttir og
eiga þau einn son. Karl Stefán, f.
30. mars 2000, maki hans er Ragn-
heiður Kara Hólm. Fyrir átti Ingv-
ar synina Garðar Inga, f. 19. júní
1982, maki hans er Rán Bachmann
Einarsdóttir, eiga þau þrjá syni og
misstu einn son við fæðingu. Arnór
Inga, f. 15. feb. 1990, maki hans er
Tanja Mantel. Fyrir átti Bryndís
soninn Bjarka Þór Pálsson, f. 17.
desember 1986, maki hans er
Harpa Luisa Tinganelli. 3) Rut
Guðríður, f. 28. apríl 1972, eig-
inmaður hennar er Ingólfur Garð-
arsson, f. 16. febrúar 1967, börn
þeirra eru Alexander, f. 27. janúar
Elsku hjartans pabbi minn er
látinn. Kletturinn okkar. Margs er
að minnast, margs er að sakna.
Ég er örverpið ykkar mömmu,
elsku pabbi. Ég naut þess að alast
upp með ykkur á Háaleitisbraut-
inni. Æska mín var góð, við
mamma vorum og erum mjög
samrýmdar og þú varst kletturinn
okkar og öryggi. Þú sást um að
afla tekna fyrir heimilið og fyrir
vikið gat mamma verið heimavinn-
andi alla mína æsku og áttum við
dásamlegt líf með þér.
Það var alltaf að hægt að leita til
þín, þú hjálpaðir mér þegar ég
þurfti hjálp við námið og aldrei
kom maður að tómum kofunum
þegar maður þurfti einhver ráð
eða hjálp við hverju sem er.
Þú varst handlaginn og byggðir
okkur fallegt heimili og kenndir
mér að bera virðingu fyrir falleg-
um hlutum og fallegum viði.
Þegar við Ingó keyptum okkur
fyrstu íbúð saman var ekki annað
inni í myndinni en að þú kæmir og
skoðaðir íbúðina og teikningarnar
af húsinu til að vera viss um að við
værum að kaupa góða eign.
Það sama má segja þegar við
fluttum okkur til Mosfellsbæjar,
þá keyptum við nýlegt raðhús og
þú tókst það allt út og varst í sam-
bandi við byggingarfulltrúa bæj-
arins. Garðurinn okkar var alveg
nýr og mikið var gott að eiga þig
að þegar við byrjuðum að planta
trjám og öðrum gróðri í garðinn.
Mörg trén voru flutt frá Apavatni
til Mosfellsbæjar þar sem þið
mamma voruð að grisja sumarbú-
staðalandið ykkar og við hjónin
nutum góðs af og fengum falleg
stálpuð birkitré sem veita okkur
gott skjól enn í dag.
Ég er þakklát að börnin okkar
Ingó hafi fengið að kynnast þér og
sakna þau afa síns mikið. Þau litu
upp til þín og fundu alltaf hlýjuna
og staðfestuna sem frá þér kom.
Ég kveð þig, elsku pabbi, með
miklum söknuði, ég er þakklát fyr-
ir líf mitt og þakklát fyrir góðan
pabba.
Það var okkur mikils virði að ná
að kveðja þig áður en þú lagðir
augun aftur. Þú varst orðinn
þreyttur og líkami þinn gat ekki
meir.
Með sorg í hjarta kveðjum við
góðan pabba, tengdapabba og afa.
Megir þú hvíla í friði í faðmi Guðs.
Við hugsum og pössum upp á
mömmu þar til hennar tími kemur.
Þín
Rut, Ingólfur, Alexander
og Guðlaug Karen.
Blessaður Magnús minn, við
kynntumst í Iðnskólanum í
Reykjavík og fórum að fara sam-
an á dansleiki. Þá var til siðs að
fara á dansleiki til að kynnast
stúlkunum. Helstu staðirnir í
Reykjavík voru Hótel Borg,
Tjarnarkaffi, Sjálfstæðishúsið,
Röðull, Listamannaskálinn, Iðnó
og ekki má gleyma Mjólkurstöð-
inni.
Manstu eitt kvöldið hittum við
stúlkur úr Hafnarfirði og var Að-
alheiður eða Allý eins og hún er
alltaf kölluð einn af þeim. Við Allý
erum systkinabörn. Þú bauðst
Allý upp í dans og má segja að þið
hafið síðan dansað saman allt þitt
líf. Ég segi stundum að ég hafi
verið smá áhrifavaldur að þessum
langa og góða dansi.
Manstu þegar Allý fór á Hús-
mæðraskólann á Laugarvatni og
þá voruð þið farin að vera saman?
Ég fór á lítilli flugvél og lenti á
túni stutt frá Húsmæðraskólan-
um. Þetta var á laugardegi og
vakti þetta eftirtekt meðal nem-
endanna og kennaranna. Ég fékk
þá hugmynd að fá Allý með mér til
Reykjavíkur og koma öllum að
óvörum. Það gekk eftir, kennarinn
sagði það sjálfsagt að veita helg-
arleyfi þegar neminn var sóttur á
einkaflugvél. Þú varst alveg stein-
hissa þegar ég hringdi í þig eftir
lendinguna í Reykjavík og sagði
þér að Allý væri komin í bæinn.
Mig minnir að við Dunna höfum
farið með ykkur á ball um kvöldið.
Manstu hjálpsemina við mig
þegar ég hef staðið í húsakaupum
og þurft að fá hjálp við breytingar
á húsnæðinu. Þú sást alveg um
það af mikilli ljúfmennsku og vild-
ir aldrei taka krónu fyrir. En núna
síðast fyrir nokkrum árum þurfti
ég að fá ráð í sambandi við húsið.
Þú sagðist eiginlega vera alveg
hættur í bransanum en sagðir mér
að tala við Guðjón son þinn. Það
gekk eftir, Guðjón kom og gaf mér
góð ráð og vildi ekki taka krónu
fyrir frekar en þú.
Manstu á þessum árum eftir
tvítugt þegar við báðir vorum að
koma okkur fyrir í lífinu. Ég var
atvinnulaus og þú talaðir við Ingv-
ar föður þinn og ég fékk bygging-
arvinnu í heilt sumar hjá honum,
sem kom sér vel.
Þakka þér vináttu í tæp sjötíu
ár, sjáumst.
Kæra Allý, Guðjón, Ingvar og
Rut, votta ykkur og fjölskyldum
ykkar samúð mína.
Rúnar Guðbjartsson.
Magnús Ingi
Ingvarsson
Minningarvefur á mbl.is
Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að
andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-,
útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að-
gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur
lesið minningargreinar á vefnum.
" 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2
þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber
(1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5
ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina.
www.mbl.is/andlát
Minningar
og andlát
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
RÖGNU AÐALSTEINSDÓTTUR,
Hjallalundi 20, Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
á hjúkrunarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun.
Marý Hörgdal Þórðardóttir
Helgi Friðjónsson Hrafnhildur F. Gunnarsdóttir
Guðrún Rósa Friðjónsdóttir Óskar A. Óskarsson
Pétur Viðar Friðjónsson
Sigríður Dóra Friðjónsdóttir Sveinn Haraldsson
og fjölskyldur
Innilegar þakkir fyrir hlýhug og samúð
vegna andláts og útfarar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MAGNÚSÍNU GUÐMUNDSDÓTTUR,
sem lést 12. ágúst.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
hjúkrunarheimilisins Grundar fyrir góða umönnun.
Guðmundur Ólafsson Lára Erlingsdóttir
Sjöfn Ólafsdóttir Erlingur Hjaltason
Guðrún Ólafsdóttir Magnús Sigurðsson