Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 08.09.2021, Síða 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Opið streymi Sérstakir formannaþættir í aðdraganda kosninga eru farnir af stað og á morgun situr Halldóra Mogensen þingflokksformaður Pírata fyrir svörum Leiftrandi umræða sem þú skalt ekki láta fram hjá þér fara mbl.is/dagmal 9. sept. 50 ÁRA Arilíus Smári fæddist í Vestmannaeyjum og ólst þar upp og gekk í grunnskóla bæjarins. Arilíus, sem er alltaf kallaður Alli, segir að það hafi verið frábært að alast upp í Eyjum og mikið hægt að bralla. „Maður var að spranga, príla upp fjöll og leika sér í fjör- unum. Svo vorum við mikið í fót- bolta og ég spilaði aðeins með Þór á þessum tíma, alveg upp yngri flokkana og eitthvað smávegis eft- ir það.“ Sjómannsblóðið rennur um æð- ar Alla og eftir skólann fór hann að vinna í Ísfélagi Vestmannaeyja. „Svo fór ég á sjóinn þegar ég var 25 ára og hef verið á sjó alla tíð síðan. Alli segist aldrei hafa verið sjóveikur, nema í gamla Herjólfi, en þar var nú líka reykt rosalega og lyktin eftir því. Hann kynntist konu sinni þegar hann var nýbyrjaður á sjónum. „Hún er frá Akranesi og fluttist til Eyja og við bjuggum þar í tíu ár, keyptum okkur hús og eignuðumst strákana okkar þar. Síðan fluttumst við upp á land og fór- um á Skagann og höfum búið þar síðan og eignuðumst dóttur okkar hér.“ Alli hélt áfram á sjónum eftir flutninginn til Akraness og var á Faxa RE frá Reykjavík. „Núna er ég á Víkingi AK og er kokkur þar.“ Alli spilar mikið golf og segir það helsta áhugamálið. „Konan er nýbyrjuð í golfinu líka og krakkarnir eitthvað.“ Síðan hefur hann gaman af því að elda og hægt er að finna fína kjúklingauppskrift eftir hann á vefnum. FJÖLSKYLDA Eiginkona Arilíusar Smára er Ólöf Una Ólafsdóttir hár- snyrtimeistari, f. 26.3. 1972. Þau eiga börnin Ólaf Hauk, f. 2004; Theodór Orra, f. 2009; og Dóru Valdísi, f. 2010. Foreldrar Arilíusar eru Haukur Guð- mundsson, verkstjóri í Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum, f. 25.10. 1929, d. 3.9. 1991, og Theódóra Óskarsdóttir húsmóðir, f. 12.10. 1933, d. 29.6. 2014. Arilíus Smári Hauksson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Sumar hugmyndir þínar sem hafa fengið að dúsa í rykugu horni heilabúsins eru enn góðar og gildar. Framfarir þínar í ræktinni fara fram úr björtustu vonum. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú færð tækifæri til að ferðast. Trúðu því að þú getir fengið akkúrat það sem þú óskar þér. Ekki er allt gull sem glóir. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt enn langt í land með að klára það verkefni sem þú beinir mestri orku að. Einhver sýnir þér trúnað, ekki bregðast honum. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þú hefur góða kímnigáfu og ert snillingur í að snúa neyðarlegum atvikum upp í andhverfu sína. Vertu sérstaklega á verði gegn gylliboðum sem eru í raun og veru of góð til þess að vera sönn. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Gerðu þér dagamun í dag því verður er verkamaður launa sinna og þú hefur lagt þig hart fram að undanförnu. Fjöl- skyldan er það dýrmætasta að þínu mati. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Sköpunargáfa þín hreinlega blómstrar þessa dagana. Hafðu hemil á eyðslunni, þú sérð ekki eftir því. 23. sept. - 22. okt. k Vog Taktu þér smástund í að ákveða hvernig þú vilt haga næstu vikum. Ekki láta koma þér á óvart, vertu viðbúin/n. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Í dag er góður dagur til að njóta nærveru fjölskyldunnar og einfald- lega njóta notalegrar veru heima fyrir. Vinnufélagi kemur skemmtilega á óvart. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Því sveigjanlegri sem þú ert þeim mun betur mun þér ganga í sam- starfinu sem þú ert að byrja í. Áhugamálin hafa setið á hakanum. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þetta er góður dagur til að gera breytingar á heimilinu. Hentu eða losaðu þig við óþarfa. Kvöldið verður frá- bært. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Sýndu samstarfsfólki þínu og vandamálum á vinnustað þolinmæði í dag. Treystu því að allt fari vel í einkalífinu. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Gamlar tilfinningar eða vanabundin hegðun í samskiptum við þína nánustu lætur á sér kræla á næstunni. Skiptu þér ekki af deilum annarra. skiptastjóri fyrirtækjaþjónustu næsta árið. „Þetta voru ekkert svo ólík verk- efni því ég var aðallega á því sviði sem sneri að sjávarútveginum.“ Eftir árið hjá FBA hf. ákvað Vil- hjálmur að venda sínu kvæði í kross og fór yfir til Ríkisendurskoðunar og var þar deildarsérfræðingur í fjárhags- endurskoðun í fimm ár og síðan varð hann fjármálastjóri Iðnskólans í Reykjavík í þrjú ár. „Ég var formaður Útfararstofu kirkjugarðanna ehf. í 13 ár, frá 2000-2013, og áður sókn- arnefndarformaður Háteigskirkju í fimm ár.“ Með starfinu hafði Vil- hjálmur bætt við sig diplómanámi í op- inberri stjórnsýslu við Félagsvís- indadeild Háskóla Íslands 2005. „Svo hef ég unnið sjálfstætt að rekstrarúttektum, ráðgjöf og tölvu- bókhalds- og fjarkennslu hjá fyrirtæki okkar hjóna, Samvil ehf., og tekið þátt í margvíslegum Evrópuverkefnum og höfum við hjónin ferðast víða í tengsl- um við þau störf.“ Vilhjálmur hefur einnig verið virkur í félagsstörfum og var í stjórn Starfs- mannafélags Framkvæmdastofnunar við úttektir á fyrirtækjum í sjávarút- vegi og var ritari stjórnar Fiskveiða- sjóðs Íslands 1994-1997, allt þar til hann var lagður niður. Næst fór hann til FBA hf. þar sem hann var við- V ilhjálmur Geir Siggeirsson fæddist 8. september 1951 í Reykjavík og ólst upp á Sólvallagötunni og síðar í Austurbrún frá 7 ára aldri og gekk í Langholtsskóla. „Laugarásinn var tiltölulega nýupp- byggt hverfi og það voru mörg börn í hverfinu og ég eignaðist góða vini í skólanum, og var m.a. í KFUM á Holtaveginum.“ Vilhjálmur tók síðan landsprófið í Vogaskóla. Þá fór hann í Menntaskólann við Hamrahlíð og var í öðrum árgangi skólans og útskrifaðist árið 1971. „Það var bekkjakerfi á þess- um tíma í skólanum, en verið að fitja upp á ýmsum nýjungum í skólastarf- inu. Í ár voru 50 ár frá útskriftinni, en vegna Covid var ekki hægt að hafa hóf fyrir allan árganginn, en við hittumst nokkur bekkjarsystkinin á veitinga- stað sem var mjög gaman.“ Vilhjálmur var ekki viss hvert hann ætti að stefna í framhaldinu. Hann var listrænn og hafði áhuga á hönnun og arkitektúr en hann endaði í viðskipta- fræði í Háskóla Íslands. „Ég var líka að hugsa um að læra eitthvað sem gæti tryggt öruggt lífsviðurværi og taldi að það að fara meira á listabrautina yrði erfiðari starfsvettvangur.“ Hann kunni vel við sig í náminu og útskrifaðist sem viðskiptafræðingur af þjóðhagfræðikjarna og endurskoðun- arsviði árið 1976. „Við Kristín, eigin- kona mín, kynntumst þegar ég var í viðskiptafræðinni og við höfum dansað okkar lífsdans saman allar götur síð- an.“ Vilhjálmur fór til Bandaríkjanna með litlu fjölskylduna, konuna og son, og bætti við sig námi í auðlindahag- fræði við University of Rhode Island. „Það var ágætur tími.“ Þegar heim var komið fór Vilhjálm- ur að starfa hjá Framkvæmdastofnun ríkisins í áætlanadeild þar sem hann hafði unnið áður meðfram háskólan- um. Samhliða því var hann prófdómari við Tækniskóla Íslands í viðskipta- greinum í útgerðartæknideild alveg fram að 1990. Hann var einnig ritari og starfsmaður úttektarnefndar um stöðu fiskveiða og fiskvinnslu á vegum for- sætisráðuneytisins árið 1981. Árið 1985 fór hann yfir til Fiskveiðasjóðs þar sem hann var deildarstjóri hag- deildar á árunum 1985-1998 og vann ríkisins um tíma og einnig í stjórn grænlensk-íslenska félagsins KALAK frá 1995-98. „Ég hafði lesið heilmikið um Grænland og fór í hópferð þang- að.“ Þá er ótalið að hann hefur verið í stjórn Félags áhugamanna um tré- skurð frá 1996, stofnandi og formaður félagsins á árunum 1998-2005. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fallegu handverki. Þar fer saman hugur og hönd. Ég hef skorið út mikið af fal- legum kistlum, klukkum og speglum og gestabókum og svo hef ég tálgað fugla. Ég hef nú ekkert verið að flagga þessu áhugamáli nema innan fjölskyld- unnar, en börnin segja stundum að ég ætti að halda sýningu á öllum þessum munum.“ Vilhjálmur er líka í silfur- smíði og hefur farið á nokkur nám- skeið. „Svo hef ég líka gefið mér tíma í að mála og hef málað bæði í olíu og ak- rýl og þetta eru orðnar allmargar myndir í gegnum árin.“ Vilhjálmur er mikill fjölskyldumað- ur og þau hjónin eiga sér afdrep bæði í sumarbústað í Bláskógabyggð og einn- ig á Spáni. „Við höfum verið dugleg að ferðast bæði um landið og eins á Spáni Vilhjálmur Geir Siggeirsson viðskiptafræðingur – 70 ára Fjölskyldan F.v.: Arna Guðrún Jónsdóttir, Siggeir, Vilhjálmur Gunnar, Esja Kristín, Sesselja, Melkorka Þöll með Finn í fanginu, Árni Grétar Finnsson með Sesselju Katrínu. Sitjandi eru Kristín og Vilhjálmur og Jón Víkingur. Listræni viðskiptafræðingurinn Hagleikssmiður Vilhjálmur skar út þennan fallega spegil og gaf frúnni. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.