Morgunblaðið - 08.09.2021, Page 21

Morgunblaðið - 08.09.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Fyrir líkama og sál L augarnar í Reykjaví k w w wsýnumhvert öðru tillitssemi „EF ÞÉR LÍKAR EKKI HVERNIG ÉG REK BÚLLUNA GETUR ÞÚ FARIÐ OG UNNIÐ FYRIR PABBA ÞINN.“ „RÉTTUR DAGSINS ER SPAGETTÍ OG KJÖTBOLLUR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að elta tilfinningarnar á hraðferð. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GRAFI GRAFI GRAFI GRAFI GRAFI SAGÐISTU HAFA LENT Á RAFMAGNSLÍNU? HVAÐ FINNST ÞÉR UM ÞAÐ AÐ BAKTALA OG KVARTA UNDAN YFIR- MANNINUM ÞEGAR HANN HEYRIR EKKI TIL? MÉR FINNST ÞAÐ AFLEIT HUGMYND! ÞAÐ ER VEGNA ÞESS AÐ HANN HEFUR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ ÉG HEYRI TIL! síðustu árin og haft mjög gaman af því.“ Fjölskylda Eiginkona Vilhjálms Geirs er Krist- ín Helga Guðmundsdóttir, M.Ed. í menntunarfræðum og MPA, f. 16.10. 1953. Foreldrar hennar eru Guð- mundur Kr. Jónsson, f. 1928, d. 2006, rafvirkjameistari og Sesselja G. Sig- urðardóttir, f. 1930, d. 2015, húsmóðir. Börn Vilhjálms Geirs og Kristínar eru: 1) Siggeir, forstöðumaður, tölvunar- fræðingur, MBA, f. 1975. Eiginkona hans er Arna Guðrún Jónsdóttir kennsluráðgjafi, BA í sálfræði, f. 1976 og börn þeirra eru Esja Kristín, f. 2004; Vilhjálmur Gunnar, f. 2008 og Jón Víkingur, f. 2017. 2) Sesselja G., framkvæmdastjóri, hagfræðingur frá HÍ, MM frá HR, f. 1985. 3) Melkorka Þöll, lögfræðingur frá HÍ, f. 1990. Eig- inmaður hennar er Árni Grétar Finns- son lögfræðingur, f. 1990. Börn þeirra eru: Sesselja Katrín, f. 2016 og Finnur, f. 2019. Systkini Vilhjálms Geirs eru: Hanna María apótekari, f. 1950, maki Erlendur Jónsson; Jóna hjúkrunar- fræðingur, f. 1953, maki Þórólfur Þór- lindsson; Siggeir rafeindavirki, f. 1959, maki Auður Þórhallsdóttir. Foreldrar Vilhjálms Geirs voru hjónin Siggeir Vilhjálmsson, stór- kaupmaður í Reykjavík, f. 1912, d. 1998, og Sigríður Hansdóttir hús- freyja, f. 1916, d. 2003. Vilhjálmur Geir Siggeirsson Guðrún Ólafsdóttir húsfreyja á Gelti Guðmundur Ásgrímsson útvegsbóndi á Gelti við Súgandafjörð María Helga Guðmundsdóttir húsfreyja á Suðureyri og Reykjavík, sinnti ljósmóðurstörfum á Suðureyri Hans Kristjánsson framkvæmdastjóri á Suðureyri og í Rvík, stofnandi Sjóklæðagerðarinnar og 66° norður Sigríður Hansdóttir húsmóðir í Reykjavík Guðrún Þórðardóttir ljósmóðir á Suðureyri Kristján Albertsson bóndi og kaupmaður á Suðureyri Guðbergur Bergsson rithöfundur Vilhjálmur Bergsson myndlistar- maður Agnes Jónsdóttir húsfreyja í Miðhúsum í Þórkötlustaðahverfi í Grindavík Jóhanna Vilhjálmsdóttir húsfreyja í Grindavík Jón Steinar Guðmundsson prófessor í jarðeðlisfræði í Þrándheimi Guðmundur Hansson verslunarmaður í Reykjavík Valgerður Gamalíelsddóttir húsfreyja á Þórkötlustöðum Jón Þórðarson útvegsbóndi á Þórkötlustöðum í Grindavík Jónína Jónsdóttir húsfreyja í Hafnarfirði Vilhjálmur Geir Gestsson sjómaður í Hafnarfirði Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Gafli og Skúfslæk Gestur Gamalíelsson bóndi á Gafli og Skúfslæk í Flóa Úr frændgarði Vilhjálms Geirs Siggeirssonar Siggeir Vilhjálmsson stórkaupmaður í Reykjavík Aðalsteinn Leifsson sendi mér gott bréf, – „Úr karphúsinu“: „Samningarnir sem hafa verið undirritaðir hjá ríkissáttasemjara í þessari samningalotu, sem hófst í byrjun árs 2019, eru núna rúmlega 170 og fundirnir um 700, margir nokkuð langir. Margar vísur hafa orðið til á löngum samningafundum og í kjölfar þeirra – og hér eru örfáar þeirra: Stundum falla tilboð í grýttan jarðveg. Aumlegt boð og ömurlegt alveg mælinn fyllti. Ég fer að sakna samningsins sem að áður gilti. Og hér er önnur þar sem samn- ingamaður er ekki ánægðari: Ef menn semja eins og bjánar út og suður án samráðs svona einn og einn verður úr því aðeins fálm og fuður og árangur minni en ekki neinn Hér er svar við tilboði atvinnu- rekenda í bundnu máli: Alltof lítið, alltof lágt og lúsarlega boðið. Tilboðið er smærra en smátt smánarlegt og loðið. Vel þeir skenkja sjálfum sér og sínum frændum gefa en almenningi ætlað er að eta skít úr hnefa. Annar orti um hlutskipti vinn- unnar: Þeir eiga það til, sem ekkert geta annað en éta að líta með andúð og háðung til hinna, sem hugsa og vinna. Og einn fangar andrúmsloftið á andvökunótt í Karphúsinu: Ég sit hérna inni hjá Sátta og jökullinn þakinn snjó. Það er verið að þrasa og þrátta þögul er von sem dó. Ég sit hérna inni hjá Sátta og jökullinn þakinn snjó. Hér er tjaldað til tveggja nátta og trúi að það sé nóg. Stundum hafa kennarar setið á löngum samningafundum: Erfiðir samningar reynast í raun ráfa menn vítt yfir sviðið. örþreytta kennara langar í laun því langþreytt er kennaraliðið. Gömul vísa að lokum: Farðu að sofa frændi góður, fer að líða að nótt. Sýsla þú um sálarfóður svo þér verði rótt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kveðið í karphúsinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.