Morgunblaðið - 08.09.2021, Side 22

Morgunblaðið - 08.09.2021, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. SEPTEMBER 2021 Undankeppni EM U21 karla Ísland – Grikkland ................................... 1:1 Kýpur – Liechtenstein..............................6:0 Staðan: Kýpur 3 2 1 0 12:0 7 Grikkland 3 1 2 0 6:1 5 Ísland 2 1 1 0 3:2 4 Portúgal 1 1 0 0 1:0 3 Hvíta-Rússland 2 0 0 2 1:3 0 Liechtenstein 3 0 0 3 0:17 0 Lengjudeild karla Fjölnir – ÍBV ............................................ 2:1 Staðan: Fram 20 17 3 0 50:14 54 ÍBV 19 13 2 4 36:16 41 Kórdrengir 20 11 4 5 34:23 37 Fjölnir 20 11 3 6 35:20 36 Vestri 19 10 2 7 32:33 32 Grótta 19 9 2 8 37:34 29 Afturelding 19 6 5 8 35:37 23 Grindavík 20 6 5 9 33:40 23 Selfoss 20 6 3 11 33:42 21 Þór 20 5 5 10 29:33 20 Þróttur R. 20 4 2 14 35:47 14 Víkingur Ó. 20 1 2 17 21:71 5 3. deild karla Ægir – Dalvík/Reynir .............................. 1:0 KFG – Víðir............................................... 1:1 Staðan: Höttur/Huginn 20 12 3 5 36:26 39 Ægir 20 11 5 4 39:26 38 KFG 20 9 8 3 31:21 35 Elliði 20 11 1 8 43:32 34 Sindri 20 10 3 7 38:29 33 KFS 20 10 1 9 33:40 31 Víðir 20 7 6 7 30:33 27 Dalvík/Reynir 20 7 5 8 32:27 26 Augnablik 20 6 4 10 35:41 22 Einherji 20 6 1 13 34:47 19 ÍH 20 4 5 11 33:46 17 Tindastóll 20 3 6 11 32:48 15 4. deild karla Seinni leikir um sæti í 3. deild: Kormákur/Hvöt – Hamar........................ 1:0 _ Kormákur/Hvöt vann 2:1 samanlagt. Vængir Júpíters – KH ............................. 0:2 _ KH vann 3:1 samanlagt. _ Kormákur/Hvöt og KH leika í 3. deild á næsta keppnistímabili. Þau mætast á laug- ardaginn í úrslitaleik deildarinnar og þá mætast einnig Hamar og Vængir Júpíters í leik um 3. sætið. Undankeppni HM A-RIÐILL: Aserbaídsjan – Portúgal.......................... 0:3 Írland – Serbía.......................................... 1:1 Staðan: Portúgal 13 stig, Serbía 11, Lúx- emborg 6, Írland 2, Aserbaídsjan 1. D-RIÐILL:: Bosnía – Kasakstan.................................. 2:2 Frakkland – Finnland.............................. 2:0 Staðan: Frakkland 12 stig, Úkraína 5, Finnland 5, Bosnía 3, Kasakstan 3. F-RIÐILL: Austurríki – Skotland .............................. 0:1 Danmörk – Ísrael ..................................... 5:0 Færeyjar – Moldóva ................................ 2:1 Staðan: Danmörk 18 stig, Skotland 11, Ísr- ael 10, Austurríki 7, Færeyjar 4, Moldóva 1. G-RIÐILL: Svartfjallaland – Lettland ....................... 0:0 Holland – Tyrkland .................................. 6:1 Noregur – Gíbraltar................................. 5:1 Staðan: Holland 13 stig, Noregur 13, Tyrk- land 11, Svartfjallaland 8, Lettland 5, Gí- braltar 0. H-RIÐILL: Króatía – Slóvenía .................................... 3:0 Rússland – Malta...................................... 2:0 Slóvakía – Kýpur ...................................... 2:0 Staðan: Króatía 13 stig , Rússland 13, Sló- vakía 9, Slóvenía 7, Malta 4, Kýpur 4. 50$99(/:+0$ Danmörk Skanderborg – Kolding ...................... 34:22 - Ágúst Elí Björgvinsson varði 2 skot í marki Kolding og var með12% markvörslu. Lemvig – SönderjyskE ....................... 30:27 - Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir SönderjyskE. Skanderborg – Odense ....................... 15:31 - Steinunn Hansdóttir skoraði 1 mark fyr- ir Skanderborg. .$0-!)49, VÍS Bikarinn 16-liða úrslit karla: ÍR – Þór Þ. ............................................ 93:89 Tindastóll – Álftanes ...........................100:70 Höttur – Keflavík ............................... 65:118 Vestri – Sindri....................................... 71:95 Njarðvík – Valur................................... 97:86 Grindavík – Breiðablik..................... 118:112 Stjarnan – KR..................................... 113:92 _ Í 8-liða úrslitum mætast: Tindastóll og Keflavík, Stjarnan og Grindavík, Njarðvík og Haukar, Sindri og ÍR. 57+36!)49, KNATTSPYRNA Undankeppni HM karla: Laugardalsv.: Ísland – Þýskaland .......18:45 Í KVÖLD! HM 2022 Gunnar Egill Daníelsson Kristján Jónsson „Ég held að það þurfi ekkert að segja fólki hversu góðir Þjóðverj- arnir eru og geta verið. Þeir hafa undanfarin tíu ár þróað sinn leik svo- lítið í átt að nútímaknattspyrnu. Þeir eru mjög sókndjarfir og geta spilað mismunandi leikkerfi,“ sagði Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu, meðal annars á blaðamannafundi í gær. Íslendingar taka á móti Þjóð- verjum í kvöld í undankeppni HM karla í knattspyrnu. Þýskaland er stórveldi í flestum skilningi. Efna- hagslegt og pólitískt stórveldi en einnig í íþróttum. Þessa tilteknu keppni, heimsmeistarakeppnina, hefur Þýskaland til dæmis tvívegis unnið, síðast 2014, og Vestur- Þýskaland vann keppnina auk þess tvisvar. „Þeir hafa undanfarin tíu ár þróað sinn leik svolítið í átt að nútíma- knattspyrnu. Þeir eru mjög sókn- djarfir og geta spilað mismunandi leikkerfi. Í þeim tveimur leikjum sem þeir hafa verið að spila hafa ver- ið ákveðnar áherslubreytingar hjá þeim milli leikja. Það er mjög svipað útlit á þeim með nýja þjálfarann og var hjá fyrri þjálfara,“ sagði Arnar einnig en allir í íslenska hópnum eru leikfærir. Í gær voru leiðréttar rang- færslur um að Albert Guðmundsson væri í leikbanni vegna fjölda áminn- inga. Svo er ekki en miskilninginn má rekja til rangra upplýsinga frá FIFA sem dreift var til fjölmiðla. Goretzka kom af fjöllum Hans-Dieter Flick tók við þýska landsliðinu af Joachim Löw í byrjun ágúst og hefur unnið fyrstu tvo leiki sína við stjórnvölinn, 2:0 gegn Liech- tenstein og 6:0 gegn Armeníu, en báðir leikirnir voru á síðustu dögum í undankeppni HM. Flick gaf í skyn á blaðamannafundi þýska liðsins í gær að Þjóðverjar muni greina leik íslenska liðsins en muni þó eyða meiri tíma í að þróa eig- in leik. „Við vitum að það eru breytingar í gangi, uppbygging á nýju íslensku liði. Við einbeitum okkur fyrst og fremst að okkur sjálfum en við grein- um andstæðinga okkar að sjálfsögðu. Við skoðum til dæmis hvaða svæði á vellinum gætu opnast sem við getum nýtt okkur,“ sagði Flick og vildi ekki nefna þegar hann var spurður hver væri lykilmaður í íslenska liðinu. „Það er bara liðið verð ég að segja. Í hreinskilni sagt höfum við ekki skoð- að mikið muninn á þeim leikmönnum sem eru núna í hópnum og þeim sem spiluðu í fyrri leiknum í Þýskalandi.“ Leon Goretzka, leikmaður þýska liðsins, sagði á fundinum að honum hafi ekki verið kunnugt um ofbeldis- mál tengd leikmönnum íslenska landsliðsins. „Ég viðurkenni að ég hef ekki heyrt af því þannig að ég get í rauninni ekki sagt neitt um það. Fjarvera lyk- ilmanna hefur auðvitað áhrif,“ sagði Goretzka meðal annars en fleiri frá- sagnir frá fundunum tveimur er að finna á mbl.is frá því í gær. Arnar og Eiður léku 2003 Eftir að Þýskaland sameinaðist á ný árið 1990 hefur karlalandslið þess í knattspyrnu sjaldan dregist í riðil með Íslandi. Fyrir utan þá keppni sem nú stendur yfir gerðist það þó í undankeppni EM 2004. Mættust liðin í tveimur leikjum haustið 2003. Leik- irnir eru mörgum Íslendingum eft- irminnilegir því þeir voru þeir tveir síðustu hjá Íslandi í keppninni og Ís- land átti möguleika á að komast á EM. Gerðu liðin markalaust jafntefli á Laugardalsvelli en Þýskaland vann 3:0 í Hamborg og komst áfram. Arnar Þór Viðarsson kom inn á sem varamaður í leiknum á Laug- ardalsvellinum fyrir átján árum og aðstoðarmaður hans, Eiður Smári Guðjohnsen, var í byrjunarliðinu. Rúnar Kristinsson og Jóhannes Karl Guðjónsson voru auk þess í byrj- unarliðinu en þeir eru feður Rúnars Alex Rúnarssonar og Ísaks Berg- manns Jóhannessonar. Ekki þörf á fræðslu um getu Þjóðverja í knattspyrnunni - Stórveldi mætir Íslandi á Laugardalsvelli - Allir í íslenska hópnum leikfærir Morgunblaðið/Brynjar Gauti 2003 Eiður Smári Guðjohnsen reynir skot að marki Þjóðverja í leiknum fyrir átján árum. Christian Wörns gerir til- raun til að komast fyrir og Frank Baumann fylgist með. Andri Lucas, sonur Eiðs, gæti komið við sögu í kvöld. Kaupmannahöfn þar sem þeir Yussuf Poulsen, Simon Kjær, Andreas Skov Olsen, Thomas Del- aney og Andreas Cornelius skoruðu mörk danska liðsins. Í sama riðli unnu Færeyjar sinn fyrsta sig- ur í undankeppninni gegn Moldóvu í Þórshöfn en leiknum lauk með 2:1-sigri Færeyja þar sem þeir Klæment Olsen og Heini Vatnsdal skoruðu mörk færeyska liðsins. Danir eru með 18 stig í efsta sæti riðilsins og hafa sjö stiga forskot á Skotland þegar fjórum umferðum er ólokið en Færeyjar eru í fimmta og næstneðsta sætinu með 4 stig. Þá skoraði Antoine Griezmann tvívegis fyrir Frakka sem unnu 2:0-sigur gegn Finnlandi í Lyon. Frakkar hafa hikstað í undanförnum leikjum sín- um en þrátt fyrir það er liðið í efsta sæti D-riðils með 12 stig. Erling Braut Haaland gerði sér lítið fyrir og skor- aði þrennu fyrir Noreg þegar liðið vann 5:1- stórsigur gegn Gíbraltar í G-riðli undankeppni HM 2022 í knattspyrnu í Ósló í gær. Framherjinn, sem er 21 árs gamall, hefur nú skorað 9 mörk í 14 landsleikjum en Haaland lék sinn fyrsta landsleik árið 2019. Hollendingurinn Memphis Depay lét ekki sitt eftir liggja þegar kom að markaskorun og skoraði líka þrennu í 6:1-sigri Hollands gegn Tyrklandi í Amsterdam í sama riðli. Holland og Noregur eru í efstu tveimur sætum riðilsins með 13 stig hvort en Tyrkland kemur þar á eftir með 11 stig. Danmörk er á hraðri leið til Katar en liðið vann 5:0-sigur gegn Ísrael í F-riðli undankeppninnar í Danmörk með fullt hús stiga AFP 9 Erling Braut Haaland heldur áfram að raða inn mörkunum fyrir norska landsliðið. Fjölnismenn og Kórdrengir geta enn leyft sér að vonast eftir sæti í úrvalsdeild karla í knatt- spyrnu á Íslandsmótinu á næsta ári þótt lang- líklegast sé að ÍBV fylgi Fram upp úr Lengju- deildinni, þeirri næstefstu. ÍBV gat í gær tryggt sér 2. sætið í deildinni og þar með sæti í úrvalsdeildinni með sigri gegn Fjölni í Grafarvogi. Það tókst ekki þótt Sito kæmi ÍBV yfir á 2. mínútu. Michael Bak- are skoraði á 60. og 85. mínútu fyrir Fjölni sem vann 2:1. ÍBV á þrjá leiki eftir en Kórdrengir og Fjölnir tvo. ÍBV nægir að vinna einn leikj- anna til að fara upp. kris@mbl.is Fjölnir á veika von eftir sigur gegn ÍBV Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Grafarvogur Leikmenn Fjölnis og ÍBV athafna sig í kvöldsólinni í borginni í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.