Morgunblaðið - 11.09.2021, Side 40
Sérfræðingur -
Orkuviðskiptahópur
RARIK ohf. er opinbert hlutafélag í eigu
ríkisins með meginstarfsemi í dreifingu
raforku. Starfsfólk RARIK eru um 200
og starfsstöðvar 20.
RARIK gefur út um það bil 600.000
orkureikninga á ári. Því fylgir
þjónusta, úrvinnsla og eftirfylgni.
Raforkumarkaðurinn á Íslandi er í
örri þróun sem kallar á nýjar lausnir.
RARIK vinnur að stafrænum lausnum
tengdum orkuviðskiptum, en í því
felast tækifæri til starfsframa og
þekkingaruppbyggingu.
Nánari upplýsingar á www.rarik.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
RARIK ohf. óskar eftir að ráða sérfræðing inn í orkuviðskiptahóp upplýsingatæknideildar. Leitað er
að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi til að vinna að rekstri og þróun á orkuviðskiptakerfi innan
Dynamics Ax. Um fullt starf er að ræða og er starfsstöðin í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið veita Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) og Helga Birna Jónsdóttir
(helga@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Þátttaka í daglegum rekstri og þróun
orkuviðskiptakerfis
• Aðstoð við úrlausn mála þvert á starfsemi Rarik, s.s.
varðandi notendaþjónustu, greiningar og úrvinnslu,
ferlavinnu o.fl.
• Samskipti og upplýsingagjöf til ytri aðila og
starfsmanna RARIK
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 27. september 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Við hvetjum bæði konur og karla til að sækja um.
• Háskólamenntun í viðskipta- eða tölvunarfræði
• Þekking og reynsla á sviði viðskipta og/eða
upplýsingatækni
• Þekking og áhugi á viðskiptagreind (BI) er æskileg
• Jákvæðni, lipurð í samskiptum og góðir
samstarfshæfileikar
• Nákvæm og skipulögð vinnubrögð
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Tæknifræðingur
Háfell ehf. er alhliða jarðvegsverktaki.
Helstu verkefni hafi falist í gatnagerð,
vegagerð og jarðgangagerð auk
annarrar jarðvegsvinnu af öllum
stærðargráðum bæði á landsbyggðinni
og á höfuðborgarsvæðinu.
Hjá Háfelli starfa 24 starfsmenn,
samhentur hópur á öllum aldri með
metnað til að skila góðu verki. Innan
fyrirtækisins er virkt starfsmannafélag.
Nánari upplýsingar um Háfell má finna á
ww.hafell.is.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háfell ehf. leitar að öflugum og metnaðarfullum tæknifræðingi til starfa.
Nánari upplýsingar um starfið veita Helga Birna Jónsdóttir (helga@intellecta.is) og Hafdís Ósk Pétursdóttir
(hafdis@intellecta.is) í síma 511 1225.
• Mælingar, útsetningar og magntaka
• Tilboðsgerð
• Ýmis önnur tæknivinna
Helstu viðfangsefni og ábyrgð:
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2021. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf að fylgja
starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi sem nýtist í starfið. Farið verður með allar
fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.
• Háskólamenntun á sviði tæknifræði
• Reynsla af sambærilegum störfum
• Þekking og reynsla af vinnslu með trimble mælitæki og
þrívíð módel
• Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
• Sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð og metnaður í starfi
• Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti