Morgunblaðið - 21.09.2021, Qupperneq 6
6 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Barnavernd Reykjavíkur hefur
sprengt utan af sér húsnæðið í
Borgartúni 12-14. Því til viðbótar
hefur aðstaðan þar verið óboðleg
samkvæmt lýsingum. Til að bæta
úr ástandinu hefur Reykjavíkur-
borg tekið á leigu 1.600 fermetra
húsnæði í Ármúla 4 sem er í eigu
Regins. Leigusamningurinn er til
15 ára og er leigugjaldið 4.623.133
krónur á mánuði.
Fram kemur í greinargerð fjár-
mála- og áhættustýringarsviðs, sem
lögð var fyrir borgarráð, að Barna-
vernd Reykjavíkur hafi flutt í
Borgartún 12-14 árið 2008. Á þeim
13 árum sem skrifstofan hefur ver-
ið þar til húsa hefur starfsmönnum
fjölgað í takt við fjölgun tilkynn-
inga og mála sem eru til meðferðar
hjá stofnuninni. Húsnæðið sé því
orðið of lítið og ekki aðstaða þar
fyrir alla starfsmenn.
Í greinargerðinni er ófögur lýs-
ing á þeim aðstæðum sem Barna-
vernd Reykjavíkur hefur mátt búa
við. Fundar- og viðtalsherbergi eru
of fá og illa búin. Viðtalsherbergi
eru nú fjögur. Flest þeirra eru
mjög lítil og hljóðbært milli her-
bergja og þannig mjög takmörkuð
aðstaða til að taka á móti fjöl-
skyldum með börn. Þá eru viðtals-
herbergin nánast öll bókuð með
löngum fyrirvara, sem sé mjög
bagalegt þar sem oft þurfi að boða
fólk fyrirvaralaust í erfið viðtöl,
jafnvel með börnum og lögmanni.
Fólk í viðkvæmri stöðu
Skjólstæðingar Barnaverndar
þurfa að mæta í anddyri í stjórn-
sýsluhúsi þar sem oft er fjöldi fólks
fyrir og ganga framhjá kaffistofu
starfsmanna Barnaverndar og vel-
ferðarsviðs til að mæta í viðtal. Um
sé að ræða fólk í mjög viðkvæmri
stöðu og erfiðum aðstæðum.
„Þetta snýst fyrst og fremst um
persónuvernd skjólstæðinga Barna-
verndar en einnig að tekið sé á
móti fólki í aðstæðum sem veita ör-
yggi og hlýju, eins og hægt er,“
segir í greinargerðinni. Vímuefna-
próf eru tekin af skjólstæðingum
Barnaverndar á starfsmanna-
klósetti, þar sem aftur þarf að
ganga framhjá kaffistofu, auk al-
menns umgangs starfsmanna í
salernisrýmum.
Þetta séu óviðunandi aðstæður
en í dag eru eingöngu þrjú salerni
fyrir starfsmenn Barnaverndar
Reykjavíkur og hluta af starfs-
mönnum velferðarsviðs.
Eignaskrifstofa borgarinnar fór í
markaðskönnun í byrjun árs og var
niðurstaðan sú að húsnæðið í Ár-
múla 4 henti vel undir starfsemi
Barnanefndar Reykjavíkur. Áætl-
aður kostnaður við búnað á nýja
staðnum er 30 milljónir króna. Í
framhaldinu er gert ráð fyrir að nú-
verandi skrifstofur Barnaverndar á
5. hæð í Borgartúni 12-14 verði
nýttar áfram af velferðarsviði borg-
arinnar.
Þrengsli og óboðlegar aðstæður
Morgunblaðið/sisi
Ármúli 4 Barnavernd Reykjavíkur flytur í nýja húsnæðið á næsta ári.
- Barnavernd Reykjavíkur flytur úr Borgartúni í Ármúla - Vímuefnapróf af skjólstæðingum hafa ver-
ið tekin á starfsmannaklósetti - Mikilvægt að tekið sé á móti fólki í aðstæðum sem veita öryggi og hlýju
Alls greindust 44 með kórónuveiru-
smit um helgina, 19 á laugardag og
25 á sunnudag. Af þeim voru samtals
16 í sóttkví.
Þetta kemur fram á vefsíðunni Co-
vid.is.
Í gær lágu níu á sjúkrahúsi með
Covid-19, þar af tveir á gjörgæslu og
í öndunarvél. Annar sem liggur inni
er í kringum fertugt en hinn er eldri.
Ekki liggur fyrir hvort þeir hafi ver-
ið bólusettir við veirunni. Fimm voru
lagðir inn um helgina en á móti voru
einhverjir útskrifaðir.
309 voru í einangrun og hafði
fækkað um 45 frá því fyrri tölur birt-
ust á föstudag en hætt er að birta töl-
ur um kórónuveirusmit um helgar.
Þar af voru 187 í einangrun á höf-
uðborgarsvæðinu, 27 á Suðurlandi,
20 á Austurlandi og 19 á Suðurnesj-
um.
150
125
100
75
50
25
0
júlí ágúst september
Staðfest smit
7 daga meðaltal
H
ei
m
ild
:c
ov
id
.is
kl
.1
1.
0
0
íg
æ
r
44 ný innanlandssmit
greindust sl. helgi
(lau. 18. og sun. 19. sept.)
992 einstaklingar
eru í sóttkví
Fjöldi innanlands-
smita frá 12. júlí
296 eru í
skimunarsóttkví309 eru með virkt smit
og í einangrun
9 einstaklingar eru á sjúkrahúsi,
þar af tveir á gjörgæslu
44 kórónuveirusmit
greindust um helgina
- Innan við helmingur var í sóttkví
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ekki hefur gerst í áratugi að meira en
200 dagar líði milli banaslysa í umferð
á Íslandi, eins og nú er raunin. Síðasta
slys varð 17. febrúar sl. þegar ekið var
á gangandi vegfaranda í Urriðaholti í
Garðabæ og síðan eru 216 dagar. Alls
hafa á árinu fjórir látist í umferðinni í
þremur slysum, rétt eins og sést á
slysaskiltinu svonefnda sem er við
Suðurlandsveg í Svínahrauni
Síðasta langa tímabil án banaslysa
var 171 dagur; frá 28. ágúst 2017 til
15. febrúar 2015. Þetta er skv. slysa-
skráningargrunni Samgöngustofu
sem nær aftur til 1985. „Þetta ár lítur
betur út en oft áð-
ur hvað fjölda
dauðaslysa viðvík-
ur, þó að fjórir
látnir séu vissu-
lega fjórum of
mikið,“ segir Þór-
hildur Elínardótt-
ir samskiptastjóri
Samgöngustofu í
samtali við Morg-
unblaðið.
„Fækkun ferðafólks í tengslum við
faraldurinn hefur þarna áhrif og ró-
legri taktur í þjóðfélaginu almennt af
af sömu orsökum. Því má segja að far-
aldrinum hafi fylgt jákvæð þróun að
þessu leyti. Þó er óvarlegt að hrósa
sigri því tölurnar geta breyst hratt,“
segir Þórhildur ennfremur.
Banaslys í umferðinni voru fyrr á
árum mun fleiri en nú er. Árið 2006
létust 28, 23 árið 2999 og 22 árið 2002.
Í seinni tíð hefur slysunum hins vegar
fækkað, þó með nokkurri sveiflu milli
ára. Í fyrra létust sjö, sex árið 2019 en
15 árið 2018.
Forvarnir og sektir
„Við vonum að þetta ástand haldist
áfram,“ segir Árni Friðleifsson, varð-
stjóri í umferðardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. „Skýringin á
fækkun slysa er ekki einhlít, nema þá
kannski að fólk einfaldlega vandi sig
og sýni aðgát. Forvarnir og fræðsla
eru líka sterkur áhrifaþáttur; þar með
talið að sektargreiðslur vegna hrað-
aksturs og annarra umferðarlaga-
brota eru orðnar miklu hærri en áður
var.“
Fjórir eru látnir í umferð á árinu
- Síðasta banaslys 17. febrúar - 216
dagar liðnir - Aldrei jafn langur kafli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Svínahraun Slysaskiltið við Suðurlandsveg grípur jafnan athygli þeirra
sem leið eiga um og talan sem uppi er sýnir fjölda látinna á hverjum tíma.
Árni
Friðleifsson
Fundur með
Geir H. Haarde
Geir H. Haarde, fyrrv. formaður
Sjálfstæðisflokksins er gestur á
opnum hádegisfundi eldri
sjálfstæðismanna á Hilton
Reykjavík Nordica kl. 12 á morgun.
Allir velkomnir.