Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 12

Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 12
12 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 krafta er að ræða,“ sagði Óskar í skriflegu svari og rökstuddi mál sitt frekar. Þarf að setja sig vel inn í málin „Og í þeim verkefnum sem við er- um að sinna er það reyndar nokkuð algengt að farið sé af stað með verk- efnistillögu sem síðan breytist nokk- uð mikið eftir að farið er í notenda- rannsóknir eða dýpri þarfagreiningu. Einnig má nefna að þau störf sem við veljum að ráða í frekar en að kaupa [vinnuna hjá einkafyrirtækj- um] eru öll þess eðlis að þau krefjast þess að viðkomandi starfsfólk setji sig mjög vandlega inn í innri starfsemi borgarinnar. Þegar við höfum boðið út sambærileg verkefni kemur það oft upp að aðilar sem ljúka sínu verki, og öðlast þessa miklu innsýn og reynslu, eru síðan undirboðnir eða bjóða jafn- vel ekki í [verkið] og þá þurftum við í raun að greiða fyrir þessa sérhæfingu aftur hjá nýjum birgja. Þessi störf eru þannig dæmigerð störf sem fyrirtæki eða stofnanir kjósa fremur að ráða í frekar en að byggja upp sérþekkingu hjá utanaðkomandi aðila þar sem sú sérþekking hverfur úr skipulags- heildinni við lok verkefna. Þurfa að vera sveigjanlegir Síðan má nefna að við áætlum að keyra 4-6 breytingarferla í einu og þá skiptir máli að hafa mannafla sem hægt er að hreyfa til, eftir því hvernig staðan er hverju sinni í mismunandi verkefnum, en það er mjög erfitt í gegnum rammasamninga eða hefð- bundin útboð þar sem gerður er samningur um afmarkað, skilgreint verksvið,“ sagði Óskar og vék að mannaflsþörf við stórverkefni. „Að lokum langar mig að nefna að það er auðvitað útilokað að skala starfsemi eins mikið upp og verið er að gera hér á tiltölulega stuttum tíma, ásamt því að halda annarri fastri starfsemi í skorðum, án þess að fjölga starfsfólki tímabundið. Það þarf nefnilega að tryggja farsæla innleið- ingu og notkun á þeim vörum sem þróaðar eða keyptar verða en við höf- um mjög slæma reynslu af því þegar innleiðingarhlutinn er vanræktur, það getur verið mjög kostnaðar- samt.“ Á sama róli og Vestur-Evrópa Óskar var því næst spurður hvaða aðrar borgir hefðu stuðst við sömu að- ferðafræði, líkt og hann hélt fram í Morgunblaðinu í síðustu viku. Óskar sagði að þær væru fjölmarg- ar „og í raun allar helstu höfuðborgir Vestur-Evrópu“. Á það beri að líta að stafræn umbreyting sé almennt ekki langt komin hjá hinu opinbera, þótt finna megi dæmi um mjög þróaðar borgir, t.d. Shanghæ. Nærtækast sé að nefna samstarfs- borgir Reykjavíkurborgar í verkefn- inu Build Back Better sem sé fjár- magnað af Bloomberg Philanthropies – Amsterdam, Washington, San Francisco, Mexíkóborg og Bogota – en þær séu „allar á sambærilegri veg- ferð og Reykjavík og hafa valið að innhýsa þróun og ákveðinni sérhæf- ingu en úthýsa í staðinn minna sér- tækum verkefnum. Það gerir Reykja- vík líka og við erum t.d. nýlega búin að úthýsa allri þjónustu við notenda- búnað borgarinnar.“ Samkvæmt frumáætlun á að verja 1,8 milljörðum af alls 10,3 milljörðum í kaup á búnaði fyrir endanotendur. Óskar segir aðspurður að m.a. verði um að ræða umfangsmikil kaup á búnaði fyrir nemendur og starfsfólk í skóla- og frístundastarfi. Þar með talið bekkjarsett af spjaldtölvum eða Chromebook-tölvum fyrir alla nem- endur í unglingadeildum. Þá verði tækjakostur borgarinnar endurnýj- aður en um 29 þúsund virkir notendur séu skráðir í kerfum hennar. Loks megi nefna framhald á innleiðingu fjarfundabúnaðar á öllum helstu starfsstöðvum borgarinnar en þær séu um 300 talsins. Tímagjaldið miklu lægra Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sviðsstjóri Óskar J. Sandholt hyggst ráða um 60 sérfræðinga í verkið í ár. - Sviðsstjóri hjá borginni segir ódýrara að láta borgarstarfsmenn þróa hugbúnað - Þá sé mikilvægt að geta fært fólk milli verkefna og að geta haldið í þekkinguna BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Óskar J. Sandholt, sviðsstjóri þjón- ustu- og nýsköpunarsviðs Reykjavík- urborgar, segir hagkvæmara að láta borgarstarfsmenn þróa stafræna inn- við en einkafyrirtæki. Málið varðar uppbyggingu staf- rænna innviða í borginni á árunum 2021 til 2023 en verja á 10,3 milljörð- um króna til verkefnisins. Óskar fullyrti í samtali við Morg- unblaðið í síðustu viku að það sparaði borginni milljarða að vinna verkið sjálf í stað þess að bjóða það út. Vakti viðtalið hörð viðbrögð fulltrúa einka- geirans, þ.m.t. hjá Samtökum iðnað- arins, sem óskuðu eftir útreikningum borgarinnar. Af því tilefni ræddi Morgunblaðið aftur við Óskar. Vísar til fyrri tilboða – Það er ykkar mat að verkefnin sem á að innvista myndu kosta allt að tvöfalt meira ef þið keyptuð þau inn. Eru til útreikningar sem liggja þessu til grundvallar? „Við kaupum mikið inn af ráðgjöf og sérfræðiþjónustu og höfum fengið tilboð í sambærileg sérfræðingastörf. Algengt tímagjald í þeim tilboðum er á bilinu 12-22 þús. krónur. Reiknað tímagjald hjá okkar starfsfólki, að teknu tilliti til alls starfsmannakostn- aðar, er um helmingi lægra. Aðrir þættir eru t.d. að áhætta vegna tafa, eða breytinga sem kunna að verða á verkefnum sem þessir aðilar eru að sinna, er mun „ódýrari“ þegar um er að ræða okkar eigið starfsfólk. Ef [eitthvað] kemur upp þá höfum við alltaf þann möguleika að ráðstafa okkar fólki í önnur verkefni á meðan leyst er úr hlutum. Það er ekki hægt þegar um utanaðkomandi starfs- Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að 21. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 128.51 Sterlingspund 177.38 Kanadadalur 101.52 Dönsk króna 20.361 Norsk króna 14.96 Sænsk króna 14.909 Svissn. franki 138.51 Japanskt jen 1.1682 SDR 182.81 Evra 151.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.3382 « Votviðrið undanfarið hefur tafið fyrir mörgum múrurum sem hafa fyrir vikið þurft að fresta verkefnum. Múrari sem Morgunblaðið ræddi við kvaðst hafa þurft að fresta þremur verkefnum vegna votviðris. Meðal ann- ars vegna viðgerða á svölum. Það viðri jafnan vel til útivinnu í september en nú væri aðra sögu að segja. Óskar Sigurðsson múrari sagði erfitt að ljúka sumum verkum á áætluðum tíma vegna rigningar. „Þetta hefur mikil áhrif. Þá sér- staklega á vinnu við steypuplötur. Þeg- ar verið er að steypa bílaplön, kjallara og slíkt. Margir múrarar bíða nú eftir því að geta lokið slíkum verkefnum fyrir veturinn. September er oftast fínn. Svo er oft ágætt veður fram að jólum en upp úr áramótum þurfa menn að fara að leita að verkefnum innanhúss,“ sagði Óskar sem múrað hefur í áratugi. Að hans sögn rigndi líka mikið sum- arið 2018 og síðustu tvö ár hafi ekki rignt mikið í september. Óskar segir aðspurður að rigningin muni ekki tefja fyrir uppbyggingu al- mennt. Til dæmis hafi rigningin lítil áhrif á vinnu við að steypa fjölbýlishús. Á hinn bóginn geti úrkoma haft áhrif á húsaviðgerðir, til dæmis þegar hús eru steinuð upp á nýtt. baldura@mbl.is Rigningin raskar úti- vinnu hjá múrurum Morgunblaðið/G.Rúnar Útivinna Rigningin hefur tafið vinnu. STUTT Tryggvi Páll Hreinsson, sjóðsstjóri erlendra hlutabréfasjóða hjá sjóða- stýringarfélaginu Stefni, segir í samtali við Morgunblaðið að aðal- ástæða mikilla lækkana á erlendum hlutabréfamörkuðum í gær sé yfir- vofandi gjaldþrot kínverska fast- eignaþróunarfélagsins Evergrande. Félagið skuldi meira en 300 millj- arða bandaríkjadala, jafnvirði tæp- lega 39 þúsund milljarða íslenskra króna. „Félagið hefur stefnt í gjaldþrot síðasta mánuðinn. Skuldabréf þess á erlendum mörkuðum skipta nú um hendur á 25 sent á hvern dollara. Félagið á að standa skil á vaxta- greiðslu á skuldabréfum hinn 23. september nk. sem ólíklegt er að það geti innt af hendi,“ segir Tryggvi. 70% bundin í fasteignum Hann segir að um 70% af eignum kínverskra heimila séu bundin í fast- eignum. Því geti yfirvofandi gjald- þrot haft þó nokkur áhrif á vænt- ingar neytenda og einkaneyslu þar í landi. „Kínversk eftirspurn er gríð- arlega mikilvæg fyrir marga hrá- vörumarkaði. Þetta sést bersýnilega á dögum eins og í dag [í gær] þar sem verð á hrávörum eins og stáli er í frjálsu falli enda er eftirspurn eftir stáli á heimsvísu mjög svo háð fast- eignauppbyggingu í Kína.“ Tryggvi segir að ástandið hafi í gær smitast yfir á vestræna markaði af krafti, þó svo að þessi slæma staða hafi legið fyrir í töluverðan tíma. „Mörg vestræn fyrirtæki byggja sinn rekstur á sölu til Kína, þar sem vöxtur hefur verið gríðar- lega mikill síðustu áratugi og mik- ilvægi Kína í heimshagkerfinu auk- ist verulega.“ Tryggvi segir að menn velti nú fyrir sér hver muni bera tjónið. Margir hafi búist við að kínverska ríkið myndi stíga inn og bjarga Evergrande, en fyrst það hafi enn ekki gerst sé ólíklegt að ríkið muni aðhafast úr þessu. Skellurinn mun að öllum líkindum einna helst falla á erlenda skulda- bréfaeigendur og bankastofnanir í Kína að sögn Tryggva, en þó megi benda á að bankakerfið í Kína sé nánast alfarið í ríkiseigu. Því muni ríkið á endanum bera það tjón. AFP Kína Evergrande skuldar 300 milljarða bandaríkjadala. Risagjaldþrot í Kína skýri verðfall hlutabréfa - Evergrande hefur stefnt í gjaldþrot síðasta mánuðinn « Úrvalsvísitala aðallista Kauphallar Ís- lands lækkaði í gær um 2,98%. Aðeins eitt félag hækkaði í verði, flugfélagið Icelandair, sem hækkaði um 2,43% í 332 milljóna króna viðskiptum. Gengi bréfanna er nú 1,48 krónur hver hlutur. Önnur félög lækkuðu í verði. Mesta lækkunin varð á bréfum olíu- félagsins Skeljungs, eða 5,34% í 13 milljóna króna viðskiptum.Gengi bréfa í sjávarútvegsfyrirtækinu Brimi lækkaði næstmest, eða um 4,35% í 153 milljóna króna viðskiptum. Þriðja mesta lækkunin í gær varð á bréfum Kviku banka en bréf fyrir- tækisins lækkuðu um 4,17% í 602 millj- óna króna viðskiptum. Miklar lækkanir á hluta- bréfamarkaði í gær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.