Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 14

Morgunblaðið - 21.09.2021, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Stundum er sagt að furðu stutt sé í sandkassann þegar þjóðir tak- ast á yfir landa- mæri og jafnvel yfir mun lengri veg. Nýjasta dæmið sem skók alþjóðlega samvinnu teygir sig yfir liðlega hálfa jarðarkringl- una. Þar er um að ræða nýjan varnarsaming á milli Banda- ríkjanna, Bretlands og Ástr- alíu. Og þar sem þar var um varnarsamning að ræða, að hverjum beindist hann þá? Svarið er ekki einfalt. Væri það einfalt væri svarið að sjálfsögðu Kína. En eftir að leynd hvarf af varnarsamn- ingnum varð ekki betur séð en að það væri vopnabróðir Breta og Bandaríkjanna í Atlants- hafsbandalaginu sem væri í mesta uppnáminu. Það er alkunna að þegar upp kemst um víðtæka njósna- starfsemi, oftast á milli „aust- ur og vestur“, þá eru fyrstu viðbrögð til að sýna reiði sína og stórlega móðgun að kalla sendiherra sinn heim frá meintum sökudólg í njósna- málinu. En nú brá svo við að það var Frakkland sem tók upp þykkjuna, og hún reyndist engin smásmíði. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sýndi að honum og Frakklandi hefði verið stórlega misboðið. Hann fordæmdi hinn nýja varnarsamning, AUKUS, og sparaði sig hvergi. Og næst kom svo hin hefðbundna dipló- matíska refsiaðgerð: Sendi- herrar Frakklands í Ástralíu og Bandaríkjunum voru kall- aðir heim til Frakklands til skrafs og ráðagerða við for- seta sinn. Í upphafi kom hin franska þykkja ýmsum í opna skjöldu. Þeir höfðu fyrir fram talið augljóst að ergelsis vegna hins nýja varnarsamnings myndi fyrst og fremst verða vart frá Kína. Erfitt var að skynja án skýringa að varnarsamningur þessara þriggja þjóða gæti beinst að Frakklandi. Flestum þótti blasa við að hann væri kominn til vegna sívaxandi umsvifa Kína á hernaðarsvið- inu. Með þau hefur alls ekki verið pukrað af hálfu stjórn- valda í Peking. Skemmst er að minnast ræðu forseta Kína í tilefni af 100 ára afmæli Kommúnistaflokks Kína. Þar glitti hvergi í minnimáttar- kennd þegar talað var í nafni fjölmennasta ríkis veraldar og mannfrekasta landhers henn- ar. Á undanförnum árum hefur uppbygging flotans sem og manngerðar eyjar Kínverja talað sínu máli og fyrri skýr- ingar á því, til hvers væri í þær ráðist, hafa hvergi staðist. Nú fer ekki lengur á milli mála að þær „eyjar“ eru útfærðar aðgerðir og hluti af hernaðarstefnu Kína og útþenslu hennar í suð- austurátt. Nágrönnum Kína, svo sem í Víetnam og Filipps- eyjum, er ekki rótt vegna þessa og þótt Ástralía liggi fjær þá gætir óróleika óneit- anlega einnig þar. Í hinum nýja varnarsamningi er m.a. lagður grundvöllur að aukinni viðveru Bandaríkjahers í Ástralíu, þótt í smáum stíl sé, og kaupum landsins á kjarn- orkuknúnum kafbátum (en án kjarnorkuvopna) framleiddum í Bandaríkjunum. Og þá er komið að hinum raunverulegu ástæðum þess að forseti Frakklands stökk upp á nef sér. Það er ekki varnarsamn- ingurinn á milli landanna þriggja sem fer svo illa í Frakkland. Það er afleiðingin af samningnum sem valda- menn í París líta á sem alvar- lega ögrun við Frakkland og sig. Það er viðskiptahluti samningsins upp á marga tugi milljarða evra. Frakkar segja að fyrir hafi legið að samningur yrði gerð- ur við Frakkland um smíði kafbátanna. Þar hafi verið rætt um dísilkafbáta, en ekki kjarnorkukafbáta, en slíkir þó ekki verið útilokaðir. Vina- þjóðirnar þrjár og þar af tveir helstu máttarstólpar Nató hafi haldið samningagerðinni leyndri fyrir bandalagsþjóð- inni Frakklandi þar til fáein- um klukkutímum áður en hún var upplýst opinberlega. Scott Morrison, forsætis- ráðherra Ástralíu, segir hins vegar að hann hafi sjálfur ver- ið búinn að gefa þessa niður- stöðu til kynna á fundi með Macron, forseta Frakklands, fyrir þremur mánuðum eða svo. Macron leynir því ekki að hann telji Boris Johnson hafa leitast við að leika á sig í öllum aðdraganda þessa máls. Þegar frönsk yfirvöld voru spurð hvers vegna forsetinn hefði ekki kallað sendiherra sinn heim frá London, eins og hina tvo, mátti ráða af svari franska utanríkisráðherrans að þar var úthugsuð diplómat- ísk aðgerð á ferðinni til að nið- urlægja Boris og stjórn hans alveg sérstaklega. Ráð- herrann sagði að óþarft hefði verið að kalla sendiherrann í London heim, því augljóst væri að breska stjórnin hefði verið algjör litli bróðir í hinni neikvæðu aðgerð, leikbrúða í höndum Bandaríkjanna eins og jafnan áður. Fróðlegt hefur verið að fylgjast með van- stilltum viðbrögðum frá París vegna nýs varnarsamnings} Stórbokkamóðgun S em mennta- og menningarmála- ráðherra á Íslandi hef ég mikinn áhuga á aukinni tækninotkun, bæði í skólum og samfélaginu í heild. Fá- ar þjóðir slá Íslendingum við varð- andi fjölda nettenginga, samfélagsmiðlanotkun eða fjölda snjalltækja á mann. Samskipti við snjalltæki gerast í auknum mæli með tali, í stað hins skrifaða orðs. Tækin kunna hins vegar ekki íslensku og því óttumst við afdrif tungumálsins okkar. Það hefur varð- veist nær óbreytt í þúsund ár og er kjarninn í menningu og sjálfsmynd þjóðarinnar. Góð og alhliða móðurmálsþekking er mikil- væg fyrir persónulegan þroska barna, mennt- un þeirra og hæfni til að móta hugsanir sínar og hugmyndir. Með aukinni snjalltækjanotkun eykst því þörfin á að tækin skilji móðurmálið okkar. Við höfum unnið okkar heimavinnu. Íslensk stjórnvöld hafa leitt saman vísindamenn, frumkvöðla og einkafyr- irtæki í umfangsmiklum og metnaðarfullum verkefnum sem miða að því að efla máltækni hér á landi. Til dæmis eru mörg hundruð klukkustundir af talmálsupptökum að- gengilegar fyrir þá sem vilja þróa íslenskar snjalltækja- raddir. Þúsundir klukkustunda af hljóðdæmum eru einnig fáanlegar sem má nota til að kenna tækjunum íslensku. Nú leitum við þinnar aðstoðar við að varðveita menning- ararfleifð Íslands, sem tungumálið okkar geymir. Ég bið Apple að leggja okkur lið með því að bæta íslensku við radd-, texta- og tungumálasafn sinna stýri- kerfa – svo við getum talað við tækin ykkar á móðurmáli okkar, varðveitt menningar- arfleifðina áfram og stuðlað að betri skilningi í tengdum heimi.“ Svohljóðandi bréf á ensku sendi ég til for- stjóra tæknirisans Apple í gær. Eins og text- inn ber með sér er tilgangurinn að leita liðsinn- is stærsta og öflugasta fyrirtækis í heimi við varðveislu íslenskunnar. Við væntum góðra viðbragða, enda sýnir reynslan að dropinn hol- ar steininn og á okkur er hlustað. Þar nægir að nefna viðbrögð Disney við hvatningu okkar um aukna textun og talsetningu á íslensku á streymisveitunni Disney+ á liðnum vetri. Sú viðleitni hefur nú þegar birst í betri þjónustu við íslensk börn og aðra notendur streymis- veitunnar. Aukin færni Íslendinga í öðrum tungumálum – sér- staklega ensku – er jákvæð og skapar margvísleg tæki- færi. Það á ekki síst við um börn og ungmenni. Ensku- kunnáttan eflir þau, en samtímis ógnar alþjóðavæðing enskunnar menningarlegri fjölbreytni og nýsköpun. Án tungumáls verða hugmyndir ekki til og ef allir tala sama tungumálið er hugmyndaauðgi stefnt í voða og framförum til lengri tíma. Það eiga ekki allir að vera eins og við treystum á liðsinni þeirra stærstu í baráttunni fyrir framtíð íslenskunnar. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Kæri Tim Cook Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen VIÐTAL Guðni Einarsson gudni@mbl.is D ÝR – Dýraþjónusta Reykjavíkur tók til starfa í maí í vor. Málefnum sem tengjast dýrum og dýrahaldi í borginni, öðru en búfjár- haldi, var þá komið undir einn hatt. DÝR heldur utan um málefni gælu- dýra og villtra og hálfvilltra dýra sem hafa lent í hremmingum. Þar á meðal eru ómerkt gæludýr sem lagst hafa út eða verið úthýst. DÝR hefur aðstöðu í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum í Laugardal. Þorkell Heiðarsson deildarstjóri hefur um- sjón með starfsemi DÝR og dýra- garðshluta Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins. „Hundaeftirlitið og málefni katta eru komin til okkar líkt og málefni villtra og hálfvilltra dýra og dýra í neyð,“ sagði Þorkell. Með hálfvilltum dýrum er átt við ómerkt gæludýr eins og t.d. ketti og kan- ínur. Þessi dýr hafa því verið húsdýr eða eru afkomendur slíkra. „Við sjáum líka um villt dýr sem lent hafa í einhverjum hremmingum innan borgarmarkanna, eins og Húsdýragarðurinn hefur lengi gert. Þetta eru t.d. dýr sem hafa slasast, olíublautir fuglar og fleira.“ Búfjáreftirlit, forðagæsla og annað sem viðkemur búfé er ekki lengur á könnu sveitarfélaganna og komið til Matvælastofnunar (MAST). Fjallskil í borgarlandinu heyra undir umhverfis- og skipu- lagssvið borgarinnar og eins sinna borgarstarfsmenn búfé sem gengur laust þar sem það á ekki að vera. Stöðugildi hundaeftirlitsmanns var flutt til Fjölskyldu- og hús- dýragarðsins við stofnun DÝR og hluti úr stöðugildi vegna kattahalds. „Hugmyndin var að bæta þjónustu við dýraeigendur í borginni. Það voru gerðar skipulagsbreytingar en engin fjölgun varð á starfsfólki. Það þótti skynsamlegt að sameina fólkið sem vinnur allan daginn við dýr hjá borginni og safna þekkingu á mála- flokknum á einn stað. Þetta var áður nokkuð dreift í borgarkerfinu,“ sagði Þorkell. Hann sagði að hug- myndin að þessari skipan mála hefði lengi verið rædd en ekki orðið af henni fyrr en nú. „Það hefur verið mikið að gera hjá okkur. Í ágúst hafði Dýraþjón- ustan tekið við um 650 samtölum í þjónustusímanum 822 7820 fyrir ut- an það sem kom í gegnum sam- félagsmiðla, tölvupóst og netið. Við höfum fengið ófá dýr til okkar sem hafa fundist. Reynt er að finna eig- endur merktra dýra. Við erum líka í góðu samstarfi við ýmsa sem vinna að því að finna dýrum heimili. Við látum ekki farga dýrum nema aðrar leiðir séu fullreyndar. Það hefur ekki þurft að farga neinu eiganda- lausu gæludýri frá því að við tókum til starfa,“ sagði Þorkell. Kvartað vegna ónæðis Meirihluti málanna sem borist hafa til DÝR í sumar hefur snúið að hundum. Einkum er um að ræða kvartanir vegna ónæðis og fer slík- um málum fjölgandi. „Ein tilgátan er sú að margir hafi fengið sér hund í Covid-ástandinu. Þá var fólk mikið heima og gat sinnt hundinum. Nú dregur úr áhrifum faraldursins og fólk er farið til vinnu utan heimilis- ins en vinnur minna heima. Hund- urinn er ekki vanur því að vera einn og gerir vart við sig sem veld- ur nágrönnunum ónæði,“ sagði Þor- kell. Hann sagði vísbendingar um að gæludýraeign hefði aukist mikið í faraldrinum. Dæmi um það voru fréttir um að hvolpar og kettlingar væru ófáanlegir á tíma- bili. Málefni dýra komin undir einn hatt Í drögum að nýrri samþykkt um hundahald í Reykjavík segir að í stað leyfisskyldu verði tekin upp skráningarskylda og á ábyrgð umráðamanns að skrá hund með rafrænum hætti. Umsjónarmaður þarf að stað- festa við skráningu að hunda- haldið sé í samræmi við fjöl- eignarhús. Komi upp ágreiningur um hundahald í fjölbýli leysi íbúar úr ágreiningi á grundvelli laga. Með samþykktinni er hlut- verk Dýraþjónustu Reykjavíkur (DÝR) skilgreint, ábyrgð hennar og verksvið og samspil DÝR við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur. Fulltrúar VG, Sam- fylkingar, Pírata, Sjálfstæðisflokks og Miðflokks samþykktu að leggja drögin fram. Hundahald í Reykjavík BREYTINGAR Í BÍGERÐ Þorkell Heiðarsson Morgunblaðið/G. Rúnar Gæludýr Vísbendingar eru um að margir hafi fengið sér gæludýr í far- aldrinum. Nú eru þau ein heima og það getur verið erfitt. Mynd úr safni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.