Morgunblaðið - 21.09.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 21.09.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021 ✝ Baldvin Viggósson fæddist á Hvamms- tanga 13. septem- ber 1962. Hann lést á krabbameins- deild Landspít- alans 10. sept- ember 2021. Baldvin var kjörsonur Viggós T. Valdemars- sonar, f. 1924, d. 2014, og Klöru Bergþórsdóttur, f. 1924, d. 2000, lengst af ólst hann upp í Ölfusinu ásamt syst- ur sinni Ásdísi Viggósdóttur, f. 26.11. 1958. Kristínar og stjúpsonur Bald- vins er Ragnar Már Skúlason, f. 24.9. 1987. Sonur hans er Krist- ófer Arnar, f. 7.7. 2009. Baldvin lauk prófi frá Lög- regluskólanum 1986 og starfaði alla tíð síðan sem lögreglumað- ur, lengst af í umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu. Baldvin og Kristín hafa lengst af búið í Mosfellsbæ og eru öll þeirra börn alin upp þar. Baldvin greindist fyrst með illkynja krabbamein 1996 og hefur barist hetjulega allar göt- ur síðan við þann sjúkdóm. Útför hans fer fram frá Foss- vogskirkju í dag, 21. september 2021, og hefst athöfnin klukkan 11. Fyrir fjórum ár- um tengdist Bald- vin blóðsystkinum sínum Pétri, f. 1964, og Ragn- heiði, f. 1959. Baldvin kynntist árið 1992 eigin- konu sinni, Krist- ínu Snorradóttur, f. 12.2. 1969. Þau giftu sig árið 2000 og endurnýjuðu svo heitin 2019. Börn þeirra: 1) Klara Dögg, f. 28.9. 1993, unn- usti hennar er Guðmundur V. Bílddal, f. 1.9. 1993. 2) Arnar Franz, f. 29. ágúst 1997. Sonur Ég man þegar ég sá þig fyrst í eldhúsinu í Álakvíslinni, mér fannst þú í hallærislegustu mok- kasínum sem ég hafði séð en þessi brúnu augu svo stjarn- fræðilega falleg. Stuttu seinna vissi ég í hjarta mínu að þú værir minn og að fram undan ættum við líf saman en ekki grunaði mig að líf okkar myndi ekki telja lengur en 29 ár. Þú ekki að ná að verða 59 ára og ég ekkja 52 ára, nei sem betur fer vissi ég það ekki þá. Ég er svo þakklát fyrir allar minningarnar, allar dellurnar eins og krakkarnir kalla það. Já við prófuðum allt mögulegt; handverk, hestamennsku, veiði, ferðuðumst á öllum gerðum úti- leguvagna nema hjólhýsi, brun- uðum um á mótorfákum, geng- um á alls konar fjallstinda og inn í alls kyns dali, elskuðum jörðina og hvort annað. Unnum saman að því að gera það sem í okkar valdi er til þess að bæta heiminn, trúðum því bæði að hvert einasta góðverk sem manneskjan innir af hendi hækki tíðni heimsins og fáist endurgreitt sjöfalt með góðri uppskeru. Elskuðum engla og kristalla, okkur var sama þótt sumum þætti við skrýtin. Þú varst minn besti vinur og vinur barnanna okkar, vinur dýranna og ótrúlegt hvernig þú og dýr náðuð að tengjast. Ég elska þig svo heitt og ég hef ekki hugmynd um hvernig ég á að halda áfram en í hjarta mér veit ég að það er satt sem þú sagðir við mig rétt fyrir andlátið: „Ég verð alltaf með þér þótt þú sjáir mig ekki.“ Ég er dofin og sársaukinn er óbærilegur en ég ylja mér við ást- arljóðin sem þú samdir til mín á þessum árum og ég lofa að ég gef út ljóðabókina þína. Ég sakna þín elsku þursinn minn sem barðist alltaf svo hetju- lega og varst svo óhræddur við að vera þú. Þurftir ekkert að elta tískuna eða setja upp einhverja falska mynd, varst bara þú og það þýddi passlega sjúskaður í tauinu og bestur órakaður. Eftir sit ég rík af minningum, börnum og barnabarni, allt sem heldur þér nálægt mér. Ég held áfram með öll okkar verkefni og ég veit að þú ert hjá mér hvert andartak elskan mín. Þvílík gæfa að fá að þroskast með þér í gegnum súrt og sætt, vaxa og verða alltaf betri og betri saman með hverju árinu. Ná þessu ómetanlega jafnvægi sem einkennir þroskaðri ást. Ekkert drama, bara saman, engar flug- eldasýningar, bara saman. Takk fyrir lífsins ferðalag, megirðu njóta til fulls í nýrri vídd. Sé þig síðar þegar minn tími kemur og þá munum við faðmast í annarri vídd við ljúfa tóna krist- alsskála og gongsins. Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Þín Kristín (Stína). Elsku pabbi minn, það er svo sárt og ósanngjarnt að missa þig svona snemma. Þú varst ótrúlega sterkur og hugrakkur í veikindum þínum og ég er svo innilega þakklátur fyrir tímann sem við fengum með þér, þú lést svo innilega ekki mikið á því bera að þú værir að berjast við krabbamein í mörg ár, þú hélst í húmorinn þinn alveg til enda og jafnvel á spítalanum þeg- ar veikindin voru sem verst varstu fyndinn. Pabbi, þú varst alltaf til staðar fyrir okkur fjölskylduna þína og bara yfirleitt alla sem þurftu á því að halda, þú varst með svo stórt og gott hjarta og ég mun svo inni- lega sakna þín minn kæri. Takk fyrir allt sem þú kenndir mér í lífinu, þú varst fyrirmyndin mín og ég leit alltaf svo mikið upp til þín, þú varst heiðarlegur, ábyrgur maður sem var sam- kvæmur sjálfum sér og ef ég get verið líkur þér þá er ég ánægður. Þú varst frábær afi og mér þótti alltaf svo vænt um hvað þú og sonur minn áttuð gott og inni- legt samband, það hafa verið erf- iðir síðustu dagar að kveðja þig fyrir okkur öll, þú varst klettur- inn okkar og ég bara hreinlega veit ekki hvað við munum gera án þín. Þú komst inn í líf mitt þegar ég var fjögurra ára og þú tókst mér alltaf sem þínum eigin og fyrir það verð ég alltaf þakklátur. Ég á svo mikið af góðum minningum um þig sem ég mun alltaf halda fast í. Við áttum mörg sameigin- leg áhugamál og mér þótti svo vænt um að við skyldum tengjast svona vel í gegnum þau síðustu ár. Ég var ekki alltaf sá auðveld- asti en þú hafðir endalausa þol- inmæði fyrir mér, takk fyrir það. Þú varst virkilega góður faðir og afi og ég og Kristófer elskum þig. Áfram Manchester United. Kveðja, Ragnar Már. Pabbi, við eigum ansi margar minningar, of margar til að telja þær allar upp. Í hugann kemur þó sú hvatning sem þú veittir mér alltaf og sú minning þegar við hjóluðum saman marga kílómetr- ana. Ég hafði enga trú á ég gæti hjólað svona mikið og vildi helst bara gefast upp en þú hvattir mig áfram og einhvern veginn klár- uðum við þetta saman því saman gátum við allt. Sál þín var hrein og tær, í kringum þig var ég alltaf örugg. Ég gæti ritað margar bækurnar um þann mann sem þú hafðir að geyma og allar okkar minningar. Þú varst góður, yfir- vegaður, fyndinn, dýravinur, verndari og svo margt annað. Þú varst samt fyrst og fremst í mín- um huga góður faðir sem var allt- af til staðar og vildi allt fyrir mann gera. Ég mun aldrei gleyma þeim stundum sem við áttum saman í jóga nidra og eru þær stundir dýrmætar. Ég mun sakna þess að heyra þig spila gongið og á tíb- etskálarnar, þvílíkir fallegir tón- ar sem það voru. Ferðin okkar í sumar á steinaströndina mun alltaf ylja mér um hjartarætur Baldvin Viggósson HINSTA KVEÐJA Svo er því farið: Sá er eftir lifir deyr þeim sem deyr en hinn dáni lifir í hjarta og minni manna er hans sakna. Þeir eru himnarnir honum yfir. (Hannes Pétursson.) Takk fyrir vináttuna. Takk fyrir samveruna á Old Trafford. Takk fyrir göngutúrana. Takk fyrir ljóðalesturinn. Takk fyrir hljóðheilunina. Takk fyrir þig. Stefán (Stebbi) og Edda. ✝ Vígdögg Björgvinsdótt- ir fæddist á Ket- ilstöðum í Jökuls- árhlíð í Norður-Múlasýslu 20. febrúar 1933. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Eir 9. september 2021. Foreldrar henn- ar voru Björgvin Vigfússon, bóndi í Fjarðarseli í Seyðisfirði, f. 16. október 1896, d. 3. ágúst 1961, og Stefanía Stefánsdóttir hús- freyja, f. á Hallgeirastöðum í Jökulsárhlíð 15. febrúar 1897, d. 26. janúar 1965. Systkini Vígdaggar: Elsa Ágústa, f. 1.8. 1920, d. 30.8. 1977. Jónheiður Petra, f. 25.1. 1922, d. 23.12. 2001. Stefán, f. 8.7. 1923, d. 1.12. 1984. Guð- mundur Vigfús, f. 1.5. 1925, d. 9.4. 2015. Guðný, f. 31.8. 1927, d. 30.12. 1978. Þórhalla, f. 19.2. 1929. Fregn, f. 15.10. 1934, d. 8.4. 2005. Björgvin Ketill, f. 12.10. 1937, d. 16.12. 1991. Hinn 20. febrúar 1958 giftist Vígdögg Sæmundi Sveinssyni, f. í Reykjavík 3. júlí 1932, d. 29. nóvember 2018. Foreldrar hans voru Sveinn Sæmundsson rann- Seinni maður Örnu er Trausti Bragason, þau skildu. 3) Stef- anía hjúkrunarfræðingur, f. 28. apríl 1967, gift Einari Ásbjörns- syni. Þeirra börn eru a) Arna Vígdögg, f. 3. júní 1990, giftist Magnúsi Daníel Michelsen, þau skildu. Saman eiga þau synina Snorra Stein og Brynjar Hrafn. Unnusti Örnu Vígdaggar er Ingi Þór Hjálmarsson og er son- ur þeirra Ýmir Þór, b) Harpa, andvana fædd 19. maí 1997, c) Óskar Örn, f. 14. september 1999, unnusta hans er Ásta Kristinsdóttir. Vígdögg var fædd og uppalin á Ketilstöðum í Jökulsárhlíð. Fluttist til Reykjavíkur skömmu áður en hún hóf nám í hjúkrun og bjó eftir það alla tíð í Reykja- vík. Lauk gagnfræðaprófi frá Alþýðuskólanum á Eiðum 1951. Lauk námi við Hjúkr- unarkvennaskóla Íslands 1957. Vann á Kleppsspítala til 1961, eftir það á ýmsum deild- um Landspítala, lengst á brjóst- holsskurðdeild og einnig um tíma hjá Krabbameinsfélaginu. Hóf aftur störf á Kleppsspítala 1971 og starfaði þar til ársins 2000, lengst af á næturvöktum. Frá árunum 1972-1979 tók hún virkan þátt í félagsstarfi hjúkr- unarfélagsins og gegndi þar ýmsum störfum sem lutu að kjaramálum hjúkrunarfræð- inga. Útför Vígdaggar fer fram frá Guðríðarkirkju í dag, 21. sept- ember 2021, klukkan 13. Elsku mamma. Við vorum oft, sérstaklega síðustu mánuði, búnar að ræða dauðann, ferðina í sum- arlandið. Þú varst tilbúin til brott- farar. Búin að lifa þínu lífi, sátt við lífshlaupið. Sumt hefði mátt öðru- vísi fara, annað ekki. Við gátum gantast með það að biðlistarnir í sumarlandið væru sjálfsagt svona langir og þú þyrftir bara að bíða ró- leg. Ég er þakklát fyrir margt. Þakklát fyrir mömmu sem elskaði mig og mína mikið og sýndi það í orði og verki. Ég er þakklát fyrir bernsku mína. Mínar ljúfustu minningar eru þegar ég fór í sigl- ingar til útlanda með pabba og með mömmu í vinnuna á Kleppi. Þetta voru mörg skipti. Þvílík forréttindi að fá að fara og vera með foreldr- um sínum í vinnunni enda voru þau bæði frábærar fyrirmyndir. Ég er þakklát fyrir starfsval mitt enda var fyrirmyndin ætíð mjög ánægð og stolt af sinni menntun og sínu starfi. Ég er þakklát fyrir að þú hvattir mig til að taka þátt í félagsstarfi innan stéttarinnar, sérstaklega kjara- málum. Þér fannst mjög mikilvægt að hjúkrunarfræðingar tækju virk- an þátt í því til að eflast og vaxa í starfi. Ég er þakklát fyrir öll ferðalögin um Ísland saman og utanlands- ferðirnar okkar svo og allar ferð- irnar í sumarbústaðinn þar sem var dekrað við mann. Þú kunnir það svo vel. Ég er þakklát fyrir öll matarboðin og samverustundirnar sem voru óteljandi. Þú varst heimsklassakokkur. Ég er þakklát fyrir hve rammpólitísk þú varst þó að ég hefði nú oft ranghvolft aug- unum, svo mikil kvenréttindakona varstu að oft þótti mér nóg um. Umræður um pólitík voru tíðar. Úff sögðu margir sem heyrðu í okkur í fyrsta sinn takast á í há- værum rifrildum um menn og mál- efni en jafnhissa kannski að eftir- mál af umræðunum voru engin. Allir saddir og sáttir. Alveg eins og þú vildir hafa það. Ég er þakklát fyrir að einu sinni sem oftar sagðir þú: „Stefanía, ef allir eru sammála, vertu þá ósammála. Skapaðu um- ræðu, annað er leiðinlegt.“ Ég er þakklát fyrir að þú varst alltaf til staðar fyrir mig og mína. Mín helsta og besta klappstýra. Þakklát fyrir þína ljúfu og hlýju nærveru. Þinn móðurfaðm sem ég gat alltaf kúrt í, jafnt í gleði og sorg. Þakklát fyrir að eiga þig sem Vígdögg Björgvinsdóttir sóknarlögreglu- maður, f. á Lágafelli í Austur-Landeyjum 12. ágúst 1900, d. 19. apríl 1979, og Elín Geira Óladótt- ir, f. á Höfða á Völl- um 5. ágúst 1905, d. 17. september 1988. Börn Vígdaggar og Sæmundar eru: 1) Sveinn stýrimað- ur, f. 30. júlí 1956. Hann kvæntist Örnu Jónu Back- man, þau skildu. Þeirra synir eru a) Sæmundur Örn, f. 27. maí 1979, hans kona er Arnþrúður María Felixdóttir og þeirra börn Sveinn Rúnar og Guðrún Dögg. b) Hennig Sævar, f. 20. mars 1983, hans kona er Linda Björk Hafsteinsdóttir og eiga þau synina Arnar Loga og Garðar Elías. c) Rúnar Þór, f. 24. september 1986, unnusta hans er Sunneva Mist Björns- dóttir og eiga þau dótturina Soffíu Rós. 2) Arna læknaritari, f. 29. júlí 1960. Hún var gift Sig- urgeiri Guðjónssyni, sem lést af slysförum 13. október 2002. Þeirra börn eru a) Jóhanna Margrét, f. 25. október 1986, og b) Sigurgeir Örn, f. 21. júlí 1992, d. 29. desember 2019. Til Gunna: Þegar ég hugsa til þín koma ótal stundir, orð og tilfinningar upp í hugann. Þú varst mér alltaf svo kær á mínum yngri árum, varst svo skemmtilegur. Mig langaði alltaf að ganga í augun á stóra bróður mínum. Ég vildi óska þess að við hefð- um getað talað saman síðustu ár, en þú varst ekki lengur þú. Svo oft hef ég hugsað til þín, saknað þín. Saknað þess að fara í göngutúra með þér eða sund. Tala við þig um hvað væri að gerast hjá mér. Þú leyfðir mér alltaf að tala eins mikið og ég vildi, hlustaðir á mig og hlóst. Leyfðir mér að halda að ég væri sterkari en ég var. Þú vildir hlífa mér fyrir þínu Gunnar Már Björnsson ✝ Gunnar Már Björnsson fæddist í Reykjavík 7. október 1988. Hann lést 8. sept- ember 2021. Foreldrar hans eru Björk Hreins- dóttir, f. 27. febr- úar 1965, og Björn G. Aðalsteinsson, f. 22. júní 1963. Systur Gunnars eru Elín Margrét Björnsdóttir, f. 19. ágúst 1993, og Anna María Björnsdóttir, f. 13. september 1997. Útför hans fór fram 20. sept- ember 2021. lífi, sagðir mér aldr- ei frá þínum erfið- leikum. Ég vildi að þú hefðir gert það. Ég vona að þú sért á betri stað núna og að einn dag- inn munum við hitt- ast á ný og vinna upp tapaðan tíma. Anna María. Elsku ömmustrákur. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý. Því burt varst þú kallaður á örskammri stundu, í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða, við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Þó kominn sért yfir í aðra heima mun minning þín lifa um ókomin ár. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Þín amma, Anna. Við eigum hvor annan að, eins og skefti og blað í lífsins skúra- veðri. Já, Gunni minn, ég veit ekki hversu oft við sungum saman þetta lag og hlustuðum á alla Tomma og Jenna-kassettuna, en á endanum eyðilagðist hún vegna ofspilunar svo mig grunar að þau hafi verið ófá skiptin. Þetta lag er búið að óma í höfðinu mínu síðan mér bárust fréttirnar að þú værir farinn, enda lagið okkar. Þú varst bara þremur árum yngri en ég og mér fannst lengi eins og þú værir litli bróðir minn frekar en frændi minn. Þú svona ljóshærður með englakrullur og stór augu svo frænka gat aldrei sagt nei við að rúlla bolta með þér á ganginum hjá ömmu og afa eða reyna að tefla við þig. Þú varst samt alltaf miklu betri en ég því afi þreyttist ekki á að kenna þér öll trixin í bókinni. Við vorum líka svo oft saman að hjálpa ömmu og afa í Hagabúðinni. Þá fékkst þú svona flottan hvítan slopp eins og afi og ég fékk rauðan eins og amma og mamma voru í. Þú raðaðir morg- unkorninu meðan ég raðaði kaffi- pokunum. Allt átti að snúa rétt og búðin var alltaf svo snyrtileg. Síð- an fengum við að leika okkur niðri á lager og þá þurfti ég að ýta þér út um allt á vörubrettunum og snúa þér í ótal hringi. Auðvitað stálumst við svo líka í sykurmola og kex inni á kaffistofu. Þetta voru frábærir tímar og við vorum miklir vinir. Þegar við urðum að- eins eldri áttum við alltaf eitthvað sameiginlegt sem við gátum rabb- að um, hlustuðum saman á Pro- digy, poxuðum, fórum í her- mannaleik, vorum í tölvuleikjum og töldum krónurnar okkar, því við vorum bæði að safna „eina- krónum“. Ég á svo ótalmargar yndislegar minningar af okkur tveimur, þú gafst alltaf svo hlý knús og það var líka alltaf stutt í brosið, sama hvað gekk á. Þó að sambandið hafi ekki verið eins sterkt undanfarin ár þá slitnaði aldrei þessi strengur, ég hugsaði margoft til þín og vonaði heitt og innilega að þú værir á góðum stað. Ég veit þó að nú ertu kominn á enn betri stað því að afi hefur tek- ið vel á móti þér með kökusneið og sykurbrúnuðum kartöflum og þið getið skipst á að vinna hvor annan í skák. Ég mun varðveita allar dýrmætu minningarnar um þig, elsku Gunni frændi, um ókomna tíð. Þín Bóabba, Þóranna Hrönn. Ástkær systir, mágkona og frænka, ÞÓRA SIGRÍÐUR TÓMASDÓTTIR frá Vallnatúni, Vestur-Eyjafjöllum, lést sunnudaginn 19. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli. Útför fer fram frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 25. september klukkan 14. Þórður Tómasson Guðrún Tómasdóttir Magnús Tómasson Kristín Magnúsdóttir og fjölskylda Tómas Birgir Magnússon og fjölskylda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.