Morgunblaðið - 21.09.2021, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 2021
Íslenskar knattspyrnukonur
eru í sviðsljósinu um þessar
mundir og hafa heldur betur
unnið fyrir því.
Breiðablik er komið í riðla-
keppni Meistaradeildarinnar og
spilar stórleiki framundir jól og
landsliðið tekur í kvöld á móti
sjálfum Evrópumeisturum Hol-
lands í fyrsta leiknum í undan-
keppni HM.
Reyndar hefur dálítils mis-
skilnings gætt í fréttaflutningi af
árangri Breiðabliks. Það er langt
frá því að vera nýtt að íslenskt
lið komist svona langt og bæði
Breiðablik og Valur hafa gert enn
betur og komist í átta liða úrslit
Meistaradeildarinnar. Stjarnan
komst líka í sextán liða úrslit fyr-
ir nokkrum árum.
En það nýja er keppnisfyrir-
komulagið, riðlakeppni í stað
hefðbundinna sextán liða úrslita,
og að Breiðablik skuli vera í riðli
með frægum félögum á borð við
París SG og Real Madrid. Keppn-
in sem slík er komin á mun hærri
stall en áður.
Breiðablik var í dauðafæri.
Mótherjarnir frá Færeyjum,
Litháen og Króatíu voru allir
lægra skrifaðir og það hefði satt
best að segja verið áfall fyrir
Kópavogsliðið ef það hefði ekki
komist í riðlakeppnina.
Svona er einfaldlega staðan
hjá íslenskum knattspyrnukon-
um og hefur verið lengi. Þær eru
mjög framarlega í Evrópu og
hafa verið um langt árabil.
Núna á allra síðustu árum
eru hinsvegar gríðarlegar fram-
farir í fjölmörgum Evrópu-
löndum, breiddin hefur aukist
verulega, og því er sérstaklega
ánægjulegt að sjá að íslensk fé-
lagslið halda sinni stöðu og vel
það. Og um leið að sjá unga og
spennandi leikmenn sem eru að
hasla sér völl með landsliðinu og
ætla sér stóra hluti gegn Evrópu-
meisturunum í kvöld.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Lieke Martens brenndi af vítaspyrnu
fyrir hollenska liðið á 82. mínútu í
stöðunni 2:2.
Þá lék Holland til úrslita á heims-
meistaramótinu í Frakklandi sumarið
2019 þar sem liðið tapaði 0:2 fyrir
Bandaríkjunum í úrslitaleik í Lyon.
Hollenska liðið varð hins vegar Evr-
ópumeistari í Hollandi árið 2017 eftir
4:2-sigur gegn Danmörku í úrslitaleik
í Enschede í Hollandi.
Holland er sem stendur í fjórða
sæti styrkleikalista FIFA en liðið var
í þriðja sæti listans í júlí 2019 og aftur
í apríl á þessu ári.
Nýr þjálfari við stjórnvölinn
Sari van Veenenddal, leikmaður
PSV, Stefanie van der Gragt, leik-
maður Ajax, Jackie Groenen, leik-
maður Manchester United, Lieke
Martens, leikmaður Barcelona, og
Vivianne Miedema, leikmaður Arsen-
al, voru allar í byrjunarliði hollenska
liðsins í úrslitaleik EM 2017, úrslita-
leik HM 2019, gegn Bandaríkjunum í
átta liða úrslitum Ólympíuleikanna í
AFP
Meistarar Sherida Spitse, Vivianne Miedema og Lieke Martens fagna
Evrópubikarnum árið 2017 en þær eru allar lykilmenn í hollenska liðinu.
sumar og loks gegn Tékklandi í und-
ankeppni HM í síðustu viku. Þá var
Shanice van de Sanden, leikmaður
Wolfsburg, í byrjunarliðinu í þremur
þessara leikja en hún kom inn á sem
varamaður á 73. mínútu í 0:2-tapinu í
úrslitum HM gegn Bandaríkjunum
2019.
Miðjukonan Sherida Spitse er
reynslumesti leikmaður liðsins með
188 landsleiki að baki en Lieke Mar-
tens kemur þar á eftir, í núverandi
leikmannahóp liðsins, með 127 A-
landsleiki.
Þær Martens, Miedema og van de
Sanden skipuðu sóknarlínu hollenska
liðsins gegn Tékklandi á dögunum en
Miedema hefur raðað inn mörkunum
fyrir bæði Arsenal og hollenska
landsliðið undanfarin ár. Hún hefur
skorað 83 mörk í 100 A-landsleikjum,
þá hefur Martens skorað 53 mörk og
van de Sanden 21 mark.
Englendingurinn Mark Parsons,
35 ára, tók við þjálfun liðsins af
Sarinu Wiegman eftir Ólympíu-
leikana í sumar en Wiegman stýrir í
dag enska landsliðinu eftir að hafa
stýrt Hollandi frá 2017 til 2021. Par-
sons stýrði sínum fyrsta leik sem
þjálfari liðsins gegn Tékklandi á dög-
unum en hann stýrir einnig Portland
Thorns í bandarísku atvinnu-
mannadeildinni, samhliða starfi sínu
hjá hollenska knattspyrnusamband-
inu.
Ísland og Holland hafa mæst tíu
sinnum í genum tíðina, fimm sinnum
í vináttulandsleik, fjórum sinnum í
undankeppni EM og einu sinni í loka-
keppni EM. Ísland hefur sex sinnum
fagnað sigri í þessum viðureignum,
tvívegis hafa liðin gert jafntefli og tví-
vegis hefur Holland fagnað sigri.
Íslenska liðið hafði betur í síðasta
keppnisleik liðanna í lokakeppni EM
árið 2013 í Svíþjóð þar sem Dagný
Brynjarsdóttir skoraði sigurmarkið í
1:0-sigri Íslands í riðlakeppninni í
Växjö. Dagný, Sif Atladóttir og Hall-
bera Guðný Gísladóttir voru í byrj-
unarliði Íslands í leiknum og eru í
leikmannahóp Íslands í dag. Þá voru
þær Sandra Sigurðardóttir, Glódís
Perla Viggósdóttir og Elísa Viðars-
dóttir varamenn í leiknum í Svíþjóð
en þær eru einnig í hópnum sem
mætir Hollandi.
Ótrúlegur
markafjöldi
sóknarinnar
- Ísland hefur leik í undankeppni HM
gegn Hollandi á Laugardalsvelli í kvöld
UNDANKEPPNI HM
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í knatt-
spyrnu mætir Evrópumeisturum
Hollands í C-riðli undankeppni HM
2023 á Laugardalsvelli í kvöld.
Þetta er fyrsti leikur Íslands í und-
ankeppni HM og jafnframt fyrsti
keppnisleikur liðsins undir stjórn
Þorsteins Halldórssonar sem tók við
þjálfun liðsins í janúar á þessu ári.
Hollendingar hófu undankeppnina
á fimmtudaginn í síðustu viku þegar
liðið gerði óvænt 1:1-jafntefli gegn
Tékklandi í Groningen í Hollandi.
Það hefur verið mikil stígandi í hol-
lenskri kvennaknattspyrnu und-
anfarin ár en liðið tapaði í vítaspyrnu-
keppni gegn Bandaríkjunum í
fjórðungsúrslitum Ólympíuleikanna í
Tókýó hinn 30. júlí í sumar en staðan
að loknum venjulegum leiktíma var
2:2. Vivianne Miedema skoraði bæði
mörk hollenska liðsins í leiknum en
Þýska handknattleiksfélagið Mel-
sungen hefur sagt Guðmundi Guð-
mundssyni upp störfum sem þjálf-
ara liðsins eftir dapurt gengi í 1.
deildinni í upphafi tímabils, en liðið
er með eitt stig eftir þrjár umferðir.
„Liðið hefur valdið miklum von-
brigðum í upphafi tímabils og þá
var árangur síðasta tímabils langt
undir væntingum,“ sagði meðal
annars í tilkynningu frá Melsungen.
Guðmundur tók við liðinu í febr-
úar 2020. Hann er þjálfari íslenska
karlalandsliðsins og hefur gegnt
starfinu frá árinu 2018.
Guðmundi sagt
upp störfum
AFP
Rekinn Guðmundur Guðmundsson
var látinn taka pokann sinn í gær.
Valur og þýska liðið Lemgo mætast
í fyrri leik annarrar umferðar Evr-
ópudeildarinnar í handknattleik
karla í Origo-höllinni í kvöld. Sig-
urvegari einvígisins tryggir sér
sæti í riðlakeppni keppninnar.
Bjarki Már Elísson, lykilmaður
Lemgo, varar við vanmati. „Ef við
komum hingað sem einhverjir
kóngar þá getum við alveg eins tap-
að fyrir þeim,“ sagði hann við
mbl.is, en í gær var nánar rætt við
hann og einnig Tuma Stein Rún-
arsson hjá Val um einvígið. Viðtölin
má lesa á mbl.is/sport/handbolti.
Lemgo má ekki
vanmeta Val
AFP
Hættulegur Bjarki Már Elísson er
helsti markaskorari Lemgo.
HK – STJARNAN 1:0
1:0 Valgeir Valgeirsson 79.
M
Guðmundur Þór Júlíusson (HK)
Birkir Valur Jónsson (HK)
Atli Arnarson (HK)
Ívar Örn Jónsson (HK)
Valgeir Valgeirsson (HK)
Stefan Ljubicic (HK)
Haraldur Björnsson (Stjörnunni)
Daníel Laxdal (Stjörnunni)
Rautt spjald: Birnir Snær Ingason (HK)
75.
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
– 5.
Áhorfendur: Um 1.000.
Í KÓRNUM
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
HK sendi Fylki niður í 1. deild og
styrkti verulega eigin stöðu í fall-
baráttu úrvalsdeildar karla í gær-
kvöld með því að sigra Stjörnuna,
1:0, í Kórnum.
Valgeir Valgeirsson skoraði sig-
urmarkið á 79. mínútu, fjórum mín-
útum eftir að Birnir Snær Ingason
sóknarmaður HK fékk sitt annað
gula spjald og var rekinn af velli.
Þetta var fyrsta mark Valgeirs á
tímabilinu.
Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
dómari virðist hafa gert alvarleg
mistök þegar hann gaf Birni seinna
gula spjaldið eftir að hann féll í ná-
vígi við Stjörnumann í vítateig
Garðbæinga. Miðað við þær myndir
sem Stöð 2 Sport sýndi af atvikinu í
gærkvöld var um rangan dóm að
ræða en Birnir verður fyrir vikið í
banni í lokaumferðinni á laugardag-
inn kemur þegar HK mætir Breiða-
bliki.
Gríðarleg spenna er í fallbarátt-
unni eftir þennan sigur HK sem
komst á ný tveimur stigum fram úr
ÍA. Skagamenn sitja eftir í fallsæti á
nýjan leik og sækja á laugardaginn
Keflvíkinga heim, þriðja liðið sem
gæti fallið ásamt Fylki.
Þar er sú magnaða staða komin
upp að ef ÍA vinnur Keflavík og HK
gerir jafntefli við Breiðablik verða
liðin þrjú öll með 21 stig og gætu
verið öll með 15 mörk í mínus ef ÍA
vinnur eins marks sigur. Þá yrði ÍA
alltaf uppi á fleiri skoruðum mörk-
um en Keflavík og HK hafa skorað
jafnmörg mörk eftir leiki 21. um-
ferðar.
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Gleði Stuðningsmenn HK höfðu ærna ástæðu til þess að fagna í leikslok.
Þriggja liða fall-
barátta í lokin
- Fylkismenn eru fallnir eftir sigur HK
Þegar Birkir
Bjarnason skor-
aði fyrir lið sitt
Adana Demispor
í tyrknesku úr-
valsdeildinni á
laugardaginn
bættist hann í fá-
mennan hóp ís-
lenskra knatt-
spyrnumanna.
Birkir innsigl-
aði þar góðan 3:1-sigur Adana Dem-
ispor á Rizespor og fyrsta sigur liðs-
ins í deildinni í haust, í fimmta
leiknum.
Þar með hefur Birkir skorað í
deildakeppni sex landa á ferlinum en
hann hefur áður skorað mörk í Nor-
egi, á Ítalíu, í Sviss, á Englandi og í
Katar. Hann náði ekki að skora í
Belgíu á hálfu tímabili þar.
Þetta hafa aðeins sjö aðrir Íslend-
ingar afrekað. Eiður Smári Guð-
johnsen skoraði í átta löndum og
Hannes Þ. Sigurðsson í sjö en þeir
léku báðir í níu löndum á ferlinum.
Alfreð Finnbogason og Viðar Örn
Kjartansson hafa einnig skorað í sjö
löndum og á undan Birki hafa Kári
Árnason og Sverrir Ingi Ingason
skorað í deildakeppni sex landa á
sínum ferli í fótboltanum. vs@mbl.is
Hefur skorað
mörk í deild-
um sex landa
Birkir
Bjarnason